Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
59
dags sérstaklega að öllum jafnaði.
Ég veit að Kristín mun lengi minn-
ast þessarar gjafar og þess hugar-
þels sem að baki bjó.
Frá langri samferð er margs
að minnast. Þegar leiðir skiljast
sakna menn einatt vinar í stað,
en minningin lifír um góðan dreng
og traustan.
Blessuð sé minning hans.
Kristinn Gíslason
Kveðja til afa.
Hann afi okkar er dáinn. Sér-
staklega munum við eftir hvað
hann tók alltaf vel á móti okkur
þegar við komum í heimsókn í
Sólheimana. Ekki vorum við búnar
að vera lengi þegar hann spurði
okkur hvort við vildum koma að
spila og spiluðum við oftast Lúdó
eða Ólsen, Ólsen. Á hveiju ári
fórum við með afa og ömmu í
sumarbústað upp í Munaðarnes
og þá oftast á berjatíma. Hann
var duglegur að tína ber og þótti
það mjög gaman.
Rétt fyrir jól kemur fjölskyldan
alltaf saman til að skera út laufa-
brauð og var skorið út á annað
hundrað kökur. Þegar búið var að
skera út var amma með hangi-
kjöt.sveislu og verður frekar tóm-
legt þegar afi er farinn, en minn-
ingin um afa mun alltaf lifa.
Margt er það, og margt er það,
sem minningamar vekur,
og þær era það eina,
sem enginn frá mér tekur.
Þær eru vinir
hins þreytta vegamóða.
Aldrei, aldrei gleymi ég
eminum mínum góða.
(Davíð Stefánsson)
Hanna Kristín og Herdís.
Nú er hann Gísli genginn. Spor-
léttur lagði hann af stað í hina
venjubundnu árlegu athugun
hjartagangráðsins, tækis sem
hafði auðveldað honum að halda
meðfæddri reisn undanfarin ár.
Hann náði í mark sem í íþróttum
á ungum aldri, komst þangað inn
ganga sjúkrahússins sem hann
ætlaði. Líkaminn hefur verið orð-
inn veikburða, enda þótt yfir-
bragðið gæfi það ekki ókunnugum
til kynna, því þar hné hann niður
og var allur sextán dögum síðar.
Gísli Tómas Guðmundsson var
sonur Guðmundar Péturssonar
nuddlæknis og Áslaugar Friðjóns-
dóttur frá Sandi í Aðaldal. Ungur
var hann tekinn í fóstur af móður-
bróður sínum, Siguijóni, og konu
hans, Kristínu Jónsdóttur, að
Litlu-Laugum í Reykjadal í S-
Þingeyjarsýslu. Hálfþrítugur
hleypti Gísli heimdraganum. Eitt
ár vann hann á Akureyri en frei-
staði síðan gæfunnar í Reykjavík.
Þar snerist gæfan á sveig með
honum er hann kynntist eiginkonu
sinni, Kristínu S. Björnsdóttur,
sem var þá kennari við Landakots-
skóla. Gengu þau í hjónaband árið
1943 og fæddist dóttirin Kristín,
starfsmaður Bóksölu stúdenta,
árið 1944, sem gift er Jakob L.
Kristinssyni, lyfjafræðingi, og eiga
þau þijú böm. Síðan fæddust syn-
irnir; Öm, viðskiptafræðingur,
starfsmaður Ríkisskattstjóra, f.
1945, kvæntur Guðrúnu Áskels-
dóttur, hjúkrunarfræðingi, og eiga
þau einn son; og Bjöm, trésmiður
og starfsmaður Slökkviliðs
Reykjavíkur, f. 1955, kvæntur
Karólínu Gunnarsdóttur, ritara, og
eiga þau tvær dætur.
Ýmsum störfum gegndi Gísli í
Reykjavík fram til þess er hann
réðst í þjónustu Pósts og síma
árið 1955. Aðalpósthúsið í Reykja-
vík varð hans meginstarfsvett-
vangur allt til ársins 1980, þá
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
Er hinni formlegu starfsævi var
lokið vannst honum tími til að
gefa sig að ritstörfum, sem hann
hafði ætíð verið hneigður fyrir.
Árið 1988 kom út skáldsaga hans,
Undir stjörnubjörtum himni. Und-
irtitill bókarinnar er Aldamóta-
saga. Sagan géfur innsýn í ald-
arandann eins og hann var í upp-
vaxtartíð höfundar. Fjallar um líf
og störf kvenna og karla, en þó
einkum og sér í lagi félagsmála-
hliðina í bændasamfélagi þeirra
tíma. Félagsleg uppbygging var
Gísla hugleikin. Hann hafði ríka
félagslega vitund og metnað gagn-
vart sínu fagfélagi og þjóðmálum.
Glímunni við hið jarðneska líf
er lokið. Lokaglíman var stutt en
snörp. Þar hafði sá betur, er að
endingu alla leggur.
Már
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Mikil
áhersla er á það lögð að hand-
rit séu vélrituð með góðu línubili.
GLÆSILEG GJOF
m
K'
Margar geröir
og litir
Veró fró
kr. 8.990,-
*»l i 3.340,-
utiuf
Glæsibæ, sími 812922.
HAGKAUP