Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 Spádómarnir rætast Gyða Guðmunds- dóttir - Kveðjuorð í huga að gera eitthvað til að hjálpa öðrum og gleðja. Þau eru ófá hand- tökin sem hún vann í þeim til- gangi og aldrei fannst henni nógu vel gert. Hélt hún ótrauð áfram á þeirri braut meðan kraftar entust og dró hvergi af sér. Gyða var góðum gáfum gædd, fylgdist vel með framvindu mála í þjóðfélaginu og var með afbrigðum minnug t.d. á afmælisdaga, vísur og ýmis spakmæli sem hún hafði á takteinum þegar vel átti við. Kímnigáfan var mikil og hláturinn aldrei langt undan. Hún hafði ein- stakt lag á að sjá broslegu hliðina á tilverunni og var fljót að slá á létta strengi. Ég og fjölskylda mín höfum oft- lega notið nærveru Gyðu. Hún heimsótti okkur í hvaða veðri sem var og kom þá yfirleitt færandi hendi. Smáfólkinu gleymdi hún aldrei, færði þeim gott í munninn og fullorðna fólkinu oftar en ekki gómsætt bakkelsi. Elsti sonur minn, Gísli, minnist oft á mikilfenglegar margra hæða súkkulaðitertur Gyðu, hlaðnar konfekti, sem voru hennar sér- grein. Þessar tertur skrýddu um tíma afmælisborðin á afmælum barna minna og vöktu ætíð mikla eftirtekt. Tæpast er hægt að ljúka umræðunni um myndarskap Gyðu án þess að minnast á loftkökurn- ar. Gyða hafði náð ótrúlega góðum tökum á loftkökubakstri og var óspör á að deila afrakstrinum með öðrum. Loftkökurnar hennar Gyðu áttu sér fastan sess á veisluborðum á mínu heimili og allir vissu hvað- an þær voru komnar og gerðu þeim góð skil. Eitt sinn ákvað Gyða að sauma hvítan pífukjól á dóttur mína, Guð- rúnu, sem þá var tveggja ára. Þær voru miklar vangavelturnar um efni og snið. Gyða vildi aðeins það besta. Ferðirnar í Kópavoginn til að máta á þá litlu urðu ófáar áður en verkinu Iauk. Sú stutta hafði fyrir venju að láta okkur hlaupa á eftir sér um allt hús. Þegar leikur- inn stóð sem hæst lét Gyða iðulega eitthvert spakmælið fjúka en sá aldrei ástæðu til að verða óþolin- móð við litlu dömuna. Þá áttum við góðar stundir saman og hlógum ÁRMÚLA23 SfMI 91-672400 FAX 678994 AÐVENTUTILBOÐ Á HOLTI Fædd 7. janúar 1917 Dáin 29. nóvember 1991 Mig langar til að minnast henn- ar Gyðu okkar, eins og við í fjöl- skyldunni kölluðum hana oft, með nokkrum fátæklegum orðum. Gyða var afar ljúf og vönduð manneskja og hafði til að bera ein- staka hlýju. Hún var ákaflega gjaf- mild, höfðingi heim að sækja og ætíð tilbúin að leggja fram aðstoð sína í stóru sem smáu. Örlæti hennar hlýtur að teljast fátítt. Gyða var fædd og uppalin að Skjaldvararfossi á Barðaströnd, dóttir hjónanna Friðgerðar Mar- teinsdóttur og Guðmundar Jóns- sonar er þar bjuggu. Var Gyða þriðja í röðinni af átta systkinum en af þeim hópi komust sjö til full- orðinsára. Elstur er Hafsteinn, því næst Unnur, þá Gyða. Síðan koma Friðgeir, Þórarinn, Gunnar, Lúðvík og Kristín, sem dó ung að árum. Friðgeir og Lúðvík eru nú látnir. Gyða fór til Reykjavíkur í vist snemma árs 1936 og var syðra það ár. Veturinn 1939-1940 stundaði Gyða nám við Húsmæðraskólann að Staðarfelli og hlaut um vorið hæstu einkunn fyrir hannyrðir enda afburða vandvirk og lagin í þeim efnum. Eftir að leið lá til Reykjavíkur í annað sinn vann hún um skeið á saumastofunni Nonna. Gyða fór síðar á saumanámskeið og náði mikilli leikni í fatasaumi og tók að sér að sauma fyrir aðra um tíma. Það var með ólíkindum hversu vandaðar og margbrotnar flíkur Gyða töfraði fram með að- stoð saumavélarinnar og má m.a. nefna glæsilega brúðarkjóla. Eftirlifandi eiginmaður Gyðu er Benedikt Kristjánsson, föðurbróðir minn, ættaður úr Bolungarvík. Þau eignuðust þijú böm: Kristján, Frið- gerði Sigríði og Ársæl. Bamaböm- in eru fjögur talsins auk eins bamabarnabams. Gyða var um- hyggjusöm móðir og bar hag bama sinna mjög fyrir brjósti. Hún fýlgd- ist ætíð vel með sínu fólki og lét sér sérstaklega umhugað um að gera allt sem hún framast gat til aðstoðar. Lífsstarf Gyðu var að láta gott af sér leiða. Ætíð var henni efst Hinn heimsfrægi náttúruvísindamaður, 'w Sir David Attenborough er kominn til íslands. Hann dvelur hér aðeins í einn sólarhring, enda ákaflega upptekinn maður. Hann kemur til landsins til að fylgja eftir nýrri bók sinni LÍFSBARÁTTA DÝRANNA og einnig til að ýta úr vör sjónvarpsþáttum sem Ríkissjónvarpið hefur nú hafið sýningar á. Sir David Attenborough hefur áhuga á að hitta almenning og því hefur verið ákveðið að hann áriti bók sína LÍFS- BARÁTTA DÝRANNA í Hagkaup Kringlunni í dag kl. 13-15. Þeir sem ekki geta komið því við að hitta Attenborough geta pantað árituð eintök hjá Skjaldborg hf. Ármúla 23 í síma 672400. Bækurnar verða síðan sendar í póstkröfu. Á HÓTEL HOLTI VERÐUR TILBOÐ í HÁDEGINU ALLA AÐVENTUNA, SEM SAMANSTEDNDUR AF FORRÉTTIR, AÐALRÉTTIOG EFTIRRÉTTI, ÞAR SEM ÁHERSLA ER LÖGÐ Á GÆÐI í HRÁEFNI, MATREIÐSLUOG ÞJÓNUSTU. TILBOÐIÐ GILDIR ÍHÁDEGI ALLA DAGA VIKUNNAR ÞRIRETTAÐUR HÁDEGISVERÐUR FRÁ KR. 1.195.- Bergstaðastræti 37, sími 91-25700 Eru hjörtu mannanna að forherðast? mikið. Fullbúin flíkin bar merki meistara síns, sannkallaður prins- essukjóll. Mér er það minnisstætt þegar ég eignaðist börnin mín þijú að ekki brást að Gyða kæmi fýrst allra í heimsókn og var reyndar mætt nokkru áður en heimsóknar- tíminn hófst. Slæm færð megnaði ekki að hindra Gyðu í að vitja vina og vandamanna og var hún svo sannarlega ofjarl okkar hinna í þeim efnum. Ég tel mig tæpast hafa kynnst trygglyndari og óeig- ingjarnari manneskju. Heimili Gyðu og Benedikts frænda var lengst af í Barmahlíð 55. Þangað var ætíð gott að koma og móttökumar hlýjar. Hef ég se- tið ófá matarboðin í Barmahlíðinni þar sem borð svignuðu undan kræsingum. Gyða var höfðingi heim að sækja og bar ætíð á borð langtum meira af gómsætum veit- ingum en gestir gátu torgað. Hún kunni ekki að skera við nögl og örlætið ætíð hin sama. Ef ég rak inn nefíð, ein eða með krakkana, voru tíndar fram ófáar sortirnar. Við brottför voru allir nestaðir út og bar engan árangur að malda í móinn. Frá því að ég var smástelpa tengdist ég Gyðu náið. Eftirlætis brúðan mín hét Gyða í höfuð gef- andans. Þessa brúðu þótti mér afar vænt um, og þykir enn. Gyða og Benedikt komu reglu- lega í heimsókn til foreldra minna á Isafírði og urðu Gyða og móðir mín mjög góðar vinkonur. Vinátta þeirra var mjög djúpstæð og ríkti gagnkvæm umhyggja og virðing á milli þeirra. Bað Gyða móður mína iðulega að hugsa vel til sín og fjöl- skyldu sinnar þegar á brattan var að sækja og hafði mikla trú á krafti bænarinnar. Ég held að þessi vin- átta hafí verið þeim báðum mikils virði og leitt margt gott af sér. Lífíð var Gyðu ekki alltaf auð- velt. Hún átti oftlega við vanheilsu að stríða og aðstæður stundum erfiðar. Það er meðal annars þess vegna sem ég hef ætíð borið ómælda virðingu fyrir Gyðu, þess- ari örlátu og umhyggjusömu konu, sem hlýtur oftlega að hafa látið sjálfa sig sitja á hakanum þegar lítið var til skiptanna. Konu sem mætti erfiðleikum með gamansemi og lét ekkert buga lífsviljann. Ég kom nokkrum sinnum ung að árum í heimsókn til höfuðborg- arinnar og dvaldi þá yfirleitt í Barmahlíðinni. Móttökurnar voru ætíð höfðinglegar eins og vænta mátti. Gyða mátti alltaf til með að kaupa einhvern hlut sem kaup- staðarstúlkan gæti haft með sér heim úr höfuðborginni. Ég man .sérstaklega eftir svörtum uppháum leðurstígvélum, sem þá voru nýj- asta nýtt í borginni, og sótti fast að ég mátáði. Það endaði auðvitað með að Gyða hafði sitt fram og stígvélin voru keypt. Afrekaskrá Gyðu er löng og fjöl- breytileg og verður ekki rakin ítar- lega hér. Hún starfaði við blaðburð í nokkur ár og gerðist um hríð kaupmaður í versluninni Stokki, sem var til húsa neðst við Vestur- götu, í samstarfi við kunningja- konu sína. Eitt af því sem hæst ber er hversu gott lag hún hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.