Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 67

Morgunblaðið - 12.12.1991, Side 67
1 þaðan af síður skip og fyrir slíkt ber að sjálfsögðu að þakka. Síðasta minningarbrotið er frá því fyrir nokkrum vikum síðan. Þá kom Bói frændi niður á skrifstofu til mín með mynd af Þorsteini RE- 303 til þess að gefa mér, en áður hafði hann gefið mér málverk af öðru skipi sem bar sama nafn. Ekki var hann margmáll frekar en fyrri daginn_ um gjafir þessar eða sjálfan sig. Ég er hinsvegar stoltur af þessum gjöfum hans og þær prýða skrifstofur mínar. Þegar ég hugsa til baka og fer yfir þessi og fleiri minningarbrot velti ég því fyrir mér, af hverju hann frændi minn reyndist mér svo góður sem reyndin var, og kemst að þeirri niðurstöðu að líklegast hafi ég notið nafns míns. Guðbjörn frændi fæddist í Kefla- vík þ. 30. október 1927 og var því rétt 64 ára er hann lést. Hann var sonur hjónanna Þorsteins Eggerts- sonar skipstjóra og konu hans Margrétar Guðnadóttur. í Keflavík ólst hann upp til fermingaraldurs, er faðir hans fórst með skipi sínu, en þá fluttist fjölskyidan til Reykja- víkur. Ekki varð skólaganga hans löng að skyldunámi loknu. Starf það er varð hans ævistarf, sjómennsk- an, dró huga hans. Stundaði hann sjómennsku æ síðan, lengst af sem skipstjóri, eða þar til hann fyrir fjór- um árum kom í land. Hóf hann þá störf hjá Reykjavíkurhöfn við vigt- ina á Grandagarði. Ég minntist þess hér að framan að frændi minn hefði verið gæfu- maður til sjós. Það sama átti við hans einkalíf. Eftirlifandi eiginkonu sinni, Svanhildi Snæbjömsdóttur, kvæntist hann þ. 29. apríl 1952. Það gæfuspor reyndist honum far- sælt, því að með henni eignaðist hann ekki einungis góða konu, held- ur reyndist hún honum einnig hinn bezti ráðgjafi í öllum hans störfum. Börn þeirra eru fjögur, Margrét, Snæbjörn, Signý og Steinunn. Barnabörnin eru orðin níu. Ég flyt Svanhildi og þeim öllum samúðarkveðjur frá fjölskyldu minni og bið algóðan Guð að styrkja þau í mótlæti. Ég bið þann er öllu ræður að styðja og styrkja frænda minn á þeim vegum sem hann nú er á. Fari hann í friði. Og hægt hún fer, en hún færist um set, þessi fylgd yfir veginn auðan, kynslóð af kynslóð og fet fyrir fet. Og ferðinni er heitið í dauðann. (Lestin mikla. Tómas Guðmundsson) Þorsteinn Eggertsson Ástkær afi okkar, Guðbjörn Þor- steinsson, andaðist á Landspítalan- um á föstudagsmorguninn. Við trúum því varla enn að afi skuli vera dáinn. Hann var alltaf svo góður. Stutt er síðan hann bauð okkur og frændsystkinum okkar í leikhús og við skemmtum okkur öll svo vel. Okkur fannst líka alltaf spennandi að sýna honum einkunn- imar okkar, þá varð hann svo glað- ur og laumaði seðli í lófann á okkur. Við munum alltaf hugsa fallega um elsku afa. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Þorsteinn Mar og Sara Hrund. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. K.-fl HG!lMlK:3a .31 HUOAaUTMMn aKlAJHKUOHOM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 Kveðjuorð: * * Arni V. Arnason Fæddur 19. januar 1942 Dáinn 16. október 1991 Hann afi, Árni Vigfús Árnason, er dáinn, hann afi er kominn til Guðs. Það er erfitt að útskýra dauð- ann fyrir ungum drengjum. En lít- ill afadrengur skildi strax og sagði að nú væri afi orðinn lítill engill hjá Guði og gæti alltaf passað okk- ur. Margar spurningar vakna. Af hverju er Guð að taka afa? Hann afa sem alltaf var svo blíður og góður þó stutt væri í glettni og stríðni. En hjá börnum eru engin vandamál án lausna; ég fer bara upp til Guðs og næ í hann afa fyr- ir ömmu. _ Árni Freyr og Óskar áttu yndis- lega viku hjá Árna afa og Möttu ömmu á Faxabrautinni á meðan mamma og pabbi voru í útlöndum. Þá var margt brallað sem enginn veit nema afi og tveir litlir afa- drengir. Síðasta stundin þeirra með afa var á þriðjudeginum þegar þeir réttu afa sínum lítinn pakka sem þakklæti fyrir pössunina. Með þessum fáu orðum viljum við þakka elsku afa fyrir yndislegar stundir sem urðu alltof fáar og biðj- um góðan Guð að gefa elsku ömmu styrk á þessari erfiðu' kveðjustund. Margur einn í aldurs blóma undi sæll við glaðan hag. Brátt þá fregnin heyrðist hljóma: Heill í gær, en nár í dag. - Ó, hve getur undraskjótt yfir skyggt hin dimma nótt. Fyrir dyrum dauðans voða daglega þér ber að skoða. (Sb. 1886 - B. Halld.) Árni Freyr og Óskar. % Hefuröu litið á SPAR VERÐIÐ | í nýlega ? & Jólatillboí & Stórl<ostlegt úival af svefnsófum og fallegum ál<læðum! 15% staðgreiðsluafsláttur á svefnsófum og hornsófum. Komdu og líttu á úrvalið! 2ja manna kr. 38.250- Opið alla virka daga frá kl. 9-19, laugardaga frá kl. 10-18 og sunnudaga frá kl. 13-16. LYSTADÚN-SNÆLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.