Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 70

Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 70
MORQ.lINRLAÐip FIMMTUPAG,UR 12. .DESEMBÉR .1991 70 Krístján P. Guðmunds- son, Akureyrí - Minning Kristján P. Guðmundsson, út- gerðarmaður á Akureyri, er til moldar borinn í dag. Síðast þegar ég sá hann á heimili þeirra hjóna, var þrekið horfið. Hann hafði að vísu fótavist og bar sig vel, en hvor- ugum okkar duldist, að þetta gæti orðið hinsti fundur okkar. Svo hafði raunar verið síðustu mánuðina. Hann hafði verið kjarkmenni og karlmenni og lífsviljinn sterkur. Þess naut hann lengur en auðskilið var. Kristján fæddist á Akureyri 8. mars 1912. Hann var af miklum - kjamaættum við austanverðan Eyj- afjörð, sonur hjónanna Sigurlínu Valgerðar Kristjánsdóttur frá Mó- gili og Guðmundar Péturssonar frá Dálksstöðum á Svalbarðsströnd. Þau hjón voru annáluð fyrir rausn og myndarskap. Guðmundur hafði gengið í gegnum strangan lífsins skóla, misst foreldra sína í bemsku og alist upp hjá vandalausum, hafði barist til mennta og orðið Möðru- vellingur, sem hann var stoltur af, en sýktist síðan af berklum þegar hann var að koma undir sig fótun- um, og var sendur til Kaupmanna- hafnar nánast til þess að deyja. En hann átti afturkvæmt og var um áratuga skeið einhver umsvifamesti athafnamaður við Eyjafjörð, „ ... farsæll og forsjáll. Stóð af sér kreppuna miklu hvað þá annað,“ eins og Gísli Jónsson hefur komist að orði. Ég kynntist þeim hjónum í hárri elli. Sigurlína bar sterka persónu, hlý og hvers manns hug- ljúfí. í menntaskóla varð Kristján fyrir því áfalli að vera skorinn upp við sprungnum botnlanga og liggja rúmfastur í 8 mánuði. Þá urðu straumhvörf í lífi hans. í stað þess að snúa aftur í gamla skólann kaus hann að hleypa heimdraganum og leggja stund á verslunarfræði, fyrst í Englandi, svo í Danmörku og loks lá leiðin til Þýskalands, þar sem hann kynntist konuefni sínu, Ursúlu Beate Piernay. Þau héldu til íslands ög giftust 1938. Þau eignuðust 3 börn: Renötu, sem nú er látin, hún var mikil hetja; Hertu, sem vinnur að ferðaþjónustu, og Guðmund lög- mann. Barnabörnin eru 9 og barna- barnabörnin 4. Kristján hóf störf hjá síldarverk- smiðjunni á Dagverðareyri og síðan í Utvegsbankanum, eftir að hann kom heim, meðan hann var að þreifa fyrir sér um eigin rekstur. Í ársbyijun 1940 hélt hann til Noregs til skipakaupa en áður en frá þeim varð gengið var landið hernumið. Kristjáni tókst að flýja með öðrum á fiskibát. Þeir hröktust til Græn- lands og til íslands komst hann loks undir áramótin. Þessi glæfraför var honum minnisstæð, en hinar löngu fjarvistir og óvissan reyndu án vafa enn meir á Úrsúlu og sá ófriður, sem var milli þjóðanna. Kristján hóf útgerð árið 1942. Honum svipaði til föður síns um reksturinn, var þrautseigur og þol- góður, einstaklega nákvæmur og gætti þess að hafa skip sín vel bú- in. Þessir eiginleikar fleyttu honum yfir síldarleysisárin á 6. áratugnum, sem mörgum reyndust ofviða, og var hann vel efnum búinn þegar hann seldi Stjörnuna til Keflavíkur árið 1964. Kristján rak um skeið all um- fangsmikla innflutningsverslun út- gerðarvara og var umboðsmaður Sjóvá frá 1941 i 43 ár. Hann naut sín í þessum störfum, var vel að sér í verslunarfræðum og einstakur tungumálamaður; hafði góða reiðu á öllum hlutum. Kristján var mikill þrekmaður og hafði yndi af útivist og ferðalögum, var mikill laxveiðimaður og gekk til ijúpna eða fór á gæsaveiðar. Hann lenti auðvitað í hrakningum í erfiðum vetrarferðum, en var jafn- an vel búinn og vissi hvernig við skyldi bregðast. Þessir kostir nýtt- ust honum vel þegar hann gekk á Vatnajökul 1950 í björgunarleið- angrjnum eftir Geysisslysið. Kristján var mikill Akureyringur og Norðlendingur. Hann festi tryggð við átthaga sína og hafði yndi af glímu sinni við Laxá, sem hann þekkti flestum betur og kunni vel frá að segja. Hann sótti austur þangað þrek og lífsfyllingu og er ekki mikið ofsagt, þótt sagt sé, að hann hafi neytt ýtrustu krafta síð- ustu skiptin sem hann stóð á bökk- um árinnar og kastaði flugunni út í strenginn. Hann var í stjórn Stangveiðifélagsins Strauma á þriðja tug ára, lengst af gjaldkeri, og lagði mikla rækt við félagið. Kristján hafði ríkan áhuga á þjóðmálum, einkum þeim þáttum sem sneru að sjávarútvegi og at- vinnumálum. Hann skildi glöggt mikilvægi fijálsra viðskiptahátta og þess, að einstaklingamir gætu notið sín í atvinnulífinu. Hann átti lengi sæti í stjórn Sjálfstæðisfélags Akur- eyrar og var formaður þess um skeið. Hann átti sæti í stjóm Út- gerðarfélags Akureyringa, ýmist sem aðalmaður eða varamaður yfir 20 ár sem fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins og naut þar trausts. Hann var um áratugi félagi í Rótarýklúbbi Akureyrar, forseti hans um skeið og hafði notið viðurkenningar fyrir vel unnin störf. Hann var í Odd- fellow-stúkunni Freyju. Eftir stúdentspróf gekk ég að eiga Renötu, dóttur þeirra Úrsúlu og Kristjáns. Og þótt við slitum samvistir hefur vináttan haldist æ síðan og farið vaxandi með árunum. Heimilið á Brekkugötu 27a var rausnarlegt og bar vitni snyrti- mennsku og reglusemi þeirra hjóna. Hins vegar voru húsakynni erfið og þau tóku þann kost að byggja í raðhúsi aldraðra við Víðilund og fluttust þangað fyrir réttum tveim- ur árum. Kristján hafði verið hjart- veikur og hrakað mjög, svo að ekki mátti tæpara standáh Það var Kristjáni gæfuspor að eiga Úrsúlu fyrir lífsförunaut. Hún er mikil húsmóðir og mikil kona, hlý og glöð, og stórlát, þegar því er að skipta. Hún bar sig vel í veik- indum Kristjáns, sem þó reyndu mikið á hana, og létti honum síð- ustu sporin eins og hægt var. Nú er minn gamli vinur Kristján genginn. Þessir dagar höfðu verið sorgardagar. Og þótt andlát Krist- jáns 6. desember sl. hafí ekki kom- ið að óvörum og verið líkn með þraut, er söknuðurinn sár. Okkur t Móðir okkar og tengdamóðir, ÁRNA ANDERSEN, Hraunbæ 148, andaðist i Borgarspítalanum 10. desember. Börnin. t Móðir mín og amma, EDITH CLAUSEN, lést á Hrafnistu 10. desember. Jarðarförin verður auglýst sfðar. Elísabeth Clausen, Þór Clausen, Herluf B. Gruber. t Bróðir okkar og mágur, JÓN HÁLFDÁN KRISTJÁNSSON, andaðist 10. nóvember í Landspítalanum. Sveinborg Kristjánsdóttir, Einar Kristjánsson, Rafn Kristjánsson, Guðrfður E. Gísladóttir. t Hjartkær eiginmaður minn, JÓN BERGSTEINSSON múrarameistari, Vesturgötu 52, andaðist mánudaginn 9. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Svannbjörg Halldórsdóttir. t Elskuleg dóttir okkar og systir, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR HAFBERG, lést 2. desember síðastliðin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samuð. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur Hafberg, Ásdis Valgarðsdóttir og systkini. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, BJÖRG JÓNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skjóli, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 12. desember, kl. 15.00. Sigurbjörg E. Eiríksdóttir, Pjetur M. Helgason, Hulda Pjetursdóttir, Björg Pjetursdóttir, Bryndís Pjetursdóttir. t Jarðarför MARTEINS JÓHANNSSONAR, Bakkakoti, fer fram frá Langholtskirkju í Meðallandi laugardaginn 14. desem- ber kl. 14.00. Sætaferð frá Umferðarmiðstöðinni i Reykjavík kl. 7.00. Fyrir hönd vandamanna, Guðrún Jóhannsdóttir. t Astkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, Drápuhlíð 43, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. desember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Blindrafélagið. Haraldur Teitsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tpngdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN P. GUÐMUNDSSON, Víðilundi 23, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn 12. desember kl. 13.30. Blóm eru afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Islands. Úrsula B. Guðmundsson Herta Kristjánsdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Katrín Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. hefur verið hugsað til Úrsúlu og fjölskyldu hennar og beðið þeim Guðs blessunar. Megi Kristján í friði hvíla. Halldór Blöndal Nú er minn gamli vinur Kristján P. Guðmundsson_ látinn eftir langt og erfitt stríð. Ég fór til hans á spítalann á Akureyri í síðasta mán- uði er ég var þar á ferð. Þá sagði hann við mig að nú væri hann tilbú- inn að mæta örlögum sínum hinum megin við skilin og bætti við að vonandi væri þeirra ekki langt að bíða. Við Kristján Pétur kynntumst í gegnum Rotary. Það var í desem- ber 1958 að mágur minn, Þórarinn heitinn Björnsson skólameistari MA, bauð mér á Rotary-fund. Ég var þá tiltölulega nýkominn heim frá námi í Þýskalandi, nýlega giftur og lífið blasti við fallegt og spenn- andi. A þessum fundi ákvað ég að taka boði klúbbsins og gerast félagi í Rotary. Ef til vill átti það þátt í þeirri ákvörðun minni að fundarefni þessa fundar var ferðasaga sem var meira en lítið sérstök. Það var Krist- ján P. Guðmundsson sem var að segja frá flótta sínum frá Þýska- landi í síðari heimsstyijöldinni 1940 og sú ferð var algjört ævintýri. Þarna hófust kynni okkar Kristjáns sem urðu að gagnkvæmri vináttu ekki aðeins okkar heldur einnig eig- inkvenna okkar. Við Kristján áttum mikið samstarf í Rotary. Þegar hann var forseti klúbbsins var ég ritari og þá hittumst við oft, fyrir utan okkar reglulegu fundi, til þess að ræða klúbbmál og að sjálfsögðu margt fleira. Þessir fundir urðu til þess að við hittumst öðru hvoru ásamt fleiri Rotary-félögum heima hjá hver öðrum og áttum ánægju- legar stundir saman. Ekki spillti það fyrir að konur þessa hóps stofn- uðu föndurklúbb og hittust oft á hverjum vetri og urðu miklar vin- konur og eru enn. Þegar ég varð forseti Rotary- klúbbsins á Akureyri og síðar um- dæmisstjóri Rotary á íslandi studdi Kristján dyggilega við bakið á mér ' sem kom sér oft vel. Kristján P. Guðmundsson var sterkur persónuleiki. Hann var ákveðinn er réttlátur. Hagsýnn en örlátur. Hann hjálpaði og aðstoðaði marga sem áttu um sárt að binda. En kurteisin var hans einkenni. Það var sama hver átti í hlut, ríkur eða fátækur, ungur eða gamall, alltaf kom Kristján fram af einstakri prúðmennsku. Kristján var dugnaðarforkur sem gekk heill til hvers þess starfs sem hann tók að sér og voru þau mörg. Nákvæmni í starfi var mikil. Ekk- ert lét hann frá sér fara sem var ekki örugglega rétt frágengið. Eins og gefur að skilja var mikið leitað til Kristjáns um þátttöku í allskonar félagsstarfi. Hann var formaður í mörgum félögum og í stjórn enn fleiri. Þó má segja að hans aðal áhugamál hafi snúist mikið um veiðar. Útgerð og útgerð- arvörur voru lengst af hans aðal starf ásamt tryggingum. Og alls konar veiðar voru líka hans aðal tómstundagaman. Þar bar hæst laxveiði. Hann var í áratugi í stjórn laxveiðifélags Laxár í Þingeyjar- sýslu og veiddi þar í marga daga á hveiju sumri. í því sambandi minn- ist ég þess að í eina skiptið sem Kristjáni sárnaði við mig, svo ég viti, var í sambandi við Laxá. Hann bauð mér fyrir hönd veiðifélagsins að koma og vera einn sólarhring við Laxá, veiða og hafa það gott. Ég gleymdi þessu sennilega vegna þess að ég er enginn veiðimáður og það gat Kristján ekki skilið. Að gleyma veiðiferð var útilokað. En Kristján hafði líka áhuga á öðrum veiðum. Hann stundaði gæsa- og ijúpnaveiðar þegar færi gafst og á síðari árum fór hann gjarnan á sjó- inn á trillu, sem hann átti, og veiddi þorsk eða annað sem þar var að fá. Ekki get ég skilið við þessar lín- ur án þess að minnast á elsku Úrs- úlu sem var svo dugleg í einu og öllu. Hún var drifkrafturinn í að halda hópnum saman og við áttum margar glaðar stundir á heimili

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.