Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 71
þeirra hjóna. Bæði voru einstaklega
gestrisin og veislur þeirra rómaðar.
Kristján og Úrsúla voru glæsileg
hjón og settu svip á Akureyri. Heim-
ili þeirra í Brekkugötu var menning-
arlegt og fallegt en hafði líka sér-
stakan „sjarma" sem erfitt er að
lýsa. Á heimili þeirra að Víðilundi,
en þangað fluttu þau fyrir fáum
árum, var sama andrúmslpftið, ef
svo má að orði komast. Ég dáist
að því, hvað Úrsúla, sem var fædd
og uppalin í Þýskalandi, var fljót
að laga sig að íslenskum aðstæðum.
Hún talar lýtalausa íslensku og það
sem undraði mig oft er hvað hún
þekkir vel til á Islandi og er fróð
um ættir fólks.
Nú er Kristján allur og við sökn-
um hans. Það var alltaf reisn yfir
honum. Jafnvel lokabaráttuna háði
hann með reisn.
Um ieið og við hjónin kveðjum
góðan vin sendum við Úrsúlu, börn-
um og barnabörnum samúðarkveðj-
ur.
Hjörtur Eiríksson
Föstudaginn 6. desember sl. lést
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Kristján P. Guðmundsson fv.
útgerðarmaður og umboðsmaður
Sjóvátryggingafélags íslands hér á
Akureyri eftir langvarandi veikindi.
Hann fæddist á Akureyri 8. mars
1913 og var því 78 ára þegar hann
lést. Foreldrar hans voru heiðurs-
hjónin Guðmundur Pétursson fv.
útgerðamaður hér á Akureyri og
kona hans, Sigurlína Kristjánsdótt-
ir, bæði ættuð af Svalbarðsströnd.
Kristján stundaði nám við Mennt-
askólann á Akureyri en síðan lá
leið hans til Englands, Danmerkur
og Þýskalands þar sem Kristján
dvaldi í tæp 5 ár við nám í verslun-
arfræðum. Fyrstu árin eftir heirn-
komuna starfaði Kristján hjá Út-
vegsbankanum á Akureyri. Síðan
tókst Kristján á við útgerð eins og
faðir hans hafði gert. Kynntist
Kristján bæði góðum aflaárum og
eins og aðrir útgerðarmenn mátti
hann taka á á erfiðleikatímum á
sínum útgerðarferli.
I 45 ár var Kristján umboðsmað-
ur Sjóvátryggingafélags íslands hf.
á Akureyri og dafnaði umboðið
mjög vel undir hans stjórn. Margir
ungir menn störfuðu á skrifstofunni
hjá Kristjáni, og get ég fullyrt að
það hefur verið þeim öllum góður
skrifstofuskóli.
Kristján var í mörg ár formaður
Sjálfstæðisfélags Akureyrar, í
stjórn Útgerðarfélags Akureyringa
um margra ára skeið, í stjórn
Stangveiðifélagsins Strauma í 25
ár, lengst af sem gjaldkeri félags-
ins, en Kristján lagði mikla rækt
við hag og uppgang þess.
Kristján var alla tíð mikill sport-
maður, hanri var góður laxveiði-
maður og ágæt skytta. Útivist, fjall-
aferðir og göngutúrar í sátt við
landið sitt og sérstaklega hinar
norðlensku byggðir þess, mat Krist-
ján meir og betur en flestir.
Kristján var alla tíð reglusamur
og nákvæmur í hvívetna. Hann
þótti öruggur liðsmaður í hvaða
vígstöðu sem barist var. Hann var
ljúfur og orðvar, heyrði ég Kristján
aldrei í þau 25 ár sem ég starfaði
hjá honum hallmæla nokkrum
manni. Kristján var mikill gleðimað-
ur á góðri stundu. hann lifði lífinu
glaður með glöðum en hryggur með
hryggum.
Kristján kvæntist árið 1938 Úrs-
úlu Beate Piernay sjóliðsforingja-
dóttur, dugmikilli sómakonu, sem
hann kynntist í Þýskalandi á
námsárum sínum þar. Úrsúla hefur
alla tíð staðið þétt að baki manni
sínum og reynst honum dyggur
förunautur. Þau eignuðust 3 börn,
Renötu, sem er látin, Hertu, skrif-
stofukonu í Reykjavík, og Guð-
mund, lögmann í Hafnarfirði.
Að leiðarlokum vil ég þakka góð-
um vin gott samstarf og margvís-
legar ráðleggingar gegnum árin.
Ég bið góðan Guð að blessa minn-
ingu hans.
Við hjónin sendum Úrsúlu, Hertu
og Guðmundi svo og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þórarinn B. Jónsson
^kGUNBLAÐIÐ FIMkfUDköu'ÉHi Í]éHéÍÍbERíÍ<99/1
Kveðjuorð:
Ketill Þórisson,
Baldursheimi
Laugardaginn 30. nóvember sl.
var Ketill vinur minn lagður til
hinstu hvíldar á ættarjörð sinni, sem
hann unni svo mjög. Ég liugsa til
ykkar í Baldursheimi héðan frá
Svíþjóð og finnst erfitt að skilja,
að Pétur og Ketill skuli ekki vara
ofanjarðar. Ég átti því láni að fagna
að dvelja mörg sumur, hjá þessum
góðu bræðrum. Kynni mín og Ket-
ils hófust á dálítið sérstakan hátt.
Smalahundurinn hans, hann Kátur,
tók upp á því að bíta mig, dag einn,
fyrsta surharið mitt í Baldursheimi.
Það var brunað með pottorminn til
Húsavíkur í hvelli og hann saumað-
ur saman þar.
Katli leiddist þetta slys mikið og
var mér alltaf vænn eftir þetta.
Hann gat verið hrjúfur á yfirborð-
inu, en hafði hjarta úr gulli, sem
sýndi sig þegar eitthvað kom upp á.
Einhvern veginn hafði ég lag á
karlinum og skildi fljótt að hann
hafði gaman að segja frá, eins og
mörgum Þingeyingum þykir. Ég
átti ófáar stundirnar með Katli þeg-
ar hann sagði mér frá hinu og
þessu, þuldi upp goðafræðina og
Islendingasögurnar og ýmis ljóð og
lausavísur. Þannig kenndi Ketill
mér að meta íslenska menningu,
ekki síst þessa sérkennilegu bænda-
menningu sem er núna að deyja
út. Þetta var ekki ónýtt og bý ég
að þessu alla ævi.
Ketill kenndi mér líka ýmislegt
um náttúruna, fuglana og jurtirnar-
ar sem lifa á íslenskum heiðalönd-
um. Oft fékk ég klárana hans lán-
aða eftir vinnudag og naut þess að
ríða út í sumarnóttinni. Þetta lagði
grunninn að þeim áhuga sem ég
hef ætíð síðan haft á íslenska hest-
inum og kostum hans.
Ketill var ræktunarmaður eins
og þeir gerast bestir á íslandi, átti
bæði góðar kýr og kindur. F’élags-
búið í Baldursheimi hefur enda ver-
ið með betri kúabúum á landinu um
margra ára skeið.
Ketil hitti ég seinast í sumar á
fjórðungsmóti sunnlenskra hesta-
manna á Gaddastaðaflötum, var
hann þá hinn hressasti og spurði
af mínum högum. Ekki óraði mig
fyrir því að þetta væri í síðasta sinn
sem ég sæi þennan vin minn.
Ég mun alltaf minnast Ketils sem
vinar og félaga, hann reyndist mér
alltaf vel. Ég mun sakna hans.
Davíð Ingason
t
Minningarathöfn um ástkæran föður okkar,
KRISTJÁN ÁRNASON,
sem lést í Perth, Ástralíu, 8. desember, verður haldin í Fossvogs-
kapellu föstudaginn 13. desember kl. 15.00.
Kristbjörg Kristjánsdóttir, Hjördís Kristjánsdóttir,
Árni Haukdal Kristjánsson, Ólafur Unnar Kristjánsson,
Theódóra Kristjánsdóttir, Elín Lóa Kristjánsdóttir,
Rut Skúladóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ BJÖRNSDÓTTIR,
Borgarnesi,
verður jarðsungin laugardaginn 14. desember frá Borgarneskirkju
kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 12.00.
Halldór Magnússon,
dætur hinnar látnu,
tengdasynir og barnabörn.
t
Systir okkar,
GÍSLÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Skólabraut 27,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 13. desember
kl. 11.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar, er vinsamlega bent á að láta Kristniboðssambandið njóta
þess (91-678899).
Fyrir hönd vandamanna,
Guðmundína Kristjánsdóttir,
Petrúnella Kristjánsdóttir,
Sigurður Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástvinar míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HANNESAR R. JÓNSSONAR,
Frostafold 20.
Ólafía S. Helgadóttir,
Anna Helga Hannesdóttir,
Ásdís Eva Hannesdóttir, Jónas Kristinsson,
Ingimundur H. Hannesson, Þórlaug B. Stefánsdóttir,
Jón Hafsteinn Hannesson, Birna Björnsdóttir,
Eva Björk Hannesdóttir,
Ólöf Röfn, Rakel Linda, Jónas Óli og Hera Björk.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall
HRAFNHILDAR EINARSDÓTTUR
húsfreyju,
Hallkelsstaðarhlíð, Hnappadal.
Einar Hallsson,
Sigríður H. Hallsdóttir,
Anna J. Hallsdóttir,
Sigfríður E. Hallsdóttir,
Ragnar Hallsson,
Margrét E. Hallsdóttir,
Guðrún Hallsdóttir,
Sveinbjörn Hallsson,
Elfsabet Hallsdóttir,
Svandis Hallsdóttir,
Halldís Hallsdóttir,
Guðleif H. Vigfúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
PállTorfason,
Rögnvaldur Guðbrandsson,
Sverrir Úlfsson,
Jóel H. Jónasson,
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
STEINGRÍMUR MAGNÚSSON
fyrrverandi fiskkaupmaður,
sem andaðist í Skjóli 4. desember verður jarðsettur frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík föstudaginn 13. desember kl. 15.00.
Sigríður Vilberg Einarsdóttir,
Agústa Steingrímsdóttir,
Magnús Steingrímsson,
Kristinn Einar Steingrimsson,
Guðlaug Steingrímsdóttir,
Ingiríður Steingrímsdóttir,
Steingrimur Steingrímsson,
Kristjana Steingrímsdóttir,
Auður Steingrímsdóttir,
Örn Helgi Steingrimsson,
Magnús Sigurjónsson,
Sigríður Meyvantsdóttir,
Joyce Steingrímsson,
Gunnar Þórsson,
Hrund Káradóttir,
Gústaf Þ. Tryggvason,
Alice Nilsen,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall
FRIÐRIKS MAGNÚSSONAR
hæstaréttarlögmanns
frá Akureyri.
Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem önnuðust hann í erfiðum
veikindum.
Fanney Guðmundsdóttir,
Magnús Árnason og fjölskylda,
Gunnar Árnason og fjölskylda.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
MARTEINS STEFÁNSSONAR,
Rauðarárstíg 26.
Birna Jónsdóttir,
Jóna L. Marteinsdóttir,
Steinar Marteinsson,
Salgerður S. Marteinsdóttir, Sigurður Böðvarsson,
Jónína S. Marteinsdóttir, Hörður Ragnarsson,
Sigríður Marteinsdóttir, Knútur Knútsson.
+
Þökkum innilega'auðsýnda samúð og
vinsemd við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
LÁRUSAR G. JÓNSSONAR
skókaupmanns.
Sérstakar þakkir færum við öllu starfs-
fólki umönnunar- og hjúkrunarheimilis-
ins Skjóls fyrir frábæra hjúkrun og hlýju.
Anna K. Sveinbjörnsdóttir,
Hrefna Lárusdóttir Kvaran, Ragnar Kvaran,
Anna Margrét Lárusdóttir, Jónas Hallgrímsson,
Jón Lárusson, Sigríður Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.