Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 74
74
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Forðastu að gagnrýna einhvem
í fjölskyldunni og láttu smá-
munina ekki fara í taugamar
á þér. I kvöld skaltu njóta
næðis og slappa af.
Naut
'(20. aprfl - 20. maí)
Vandaðu orðaval þitt ef þú vilt
komast hjá því að tala illilega
af þér. Þú kannt að fá óvæntan
gest í heimsókn núna. Þú gerir
reyfarakaup þegar þú ferð út
að versla í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kannt að lenda í orðaskaki
við vin þinn í dag. Farðu þér
að engu óðslega í viðskiptum
í dag, heldur hugsaðu málin út
í hörgul. Þú færð gleðilegar
fréttir í kvöld.
Krabbi
■{21. júní - 22. júlí) >-$8
Viðskiptaviðræður sem þú tek-
ur þátt í fara út um þúfur
vegna lítilræðis sem á milli
ber. Vertu fús að gera tilslak-
anir. Fjármálaþróunin er þér
óvenjuhagstæð í dag, en þú
ættir helst ekki að hafa hátt
um það.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Kvíðatilfinning sækir á þig í
dag. En þú hefur varla hugsað
^<þá hugsun til enda að allt sé
þér mótdrægt þegar hjólin fara
að snúast eftir þínu höfði.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þetta er einn af þeim dögum
þegar öðrum finnst þú nöldr-
ari. Þér gengur vel með verk-
efni sem dregist hefur á lang-
inn. I kvöld borgar sig fyrir
þig að segja sem fæst.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú gerir breytingar á áætlun-
um þínum núna, en allt fer að
óskum þrátt fyrir það. Gerðu
sem minnst úr ágreiningi ykkar
hjónanna. Vinir þínir gleðja þig
svo að um munar í kvöld.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú undirbýrð ákveðið verkefni
í smáatriðum og það reynist
bæði tímafrekt og þreytandi á
köflum.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) 150
Það er ekki nóg að yfirborðið
líti vel út. Taktu þér nægan
tíma til að vinna verkið til fulln-
ustu. Forðastu að lenda í deil-
um við samverkamann þinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Viðskiptatækifæri getur fært
þér dijúgan flárhagsávinning.
Þú lendir í deilu út af smávægi-
legu vandamáli heima fyrir.
Það er þó engin ástæða til að
stökkva upp á nef sér.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Skoðanaágreiningur kemur
upp milli ykkar hjónanna. Það
gleymist þó fljótlega og þið
farið saman út að skemmta
ykkur í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) !Sk
Það reynist þér erfitt að hafa
hugann við starfið í dag. Gríptu
ekki til þess ráðs að láta reiði
þína bitna á ástvinum þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindategra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
rcTDniM AMn
1 V i rbKUINANU
''VSimio
i -y-’T— m M&jssauy nr-^=
SMAFOLK
WALLOWEEN 15 OVER, ANP THE
"6REAT PUMPKIN" DIPN'T 5H0U)
UP A6AIN, PIP HE ?•
Hrekkjavaka er liðin, og „Graskerið
mikla“ lét ekki sjá sig aftur, gerði
hann það?
Nei, gerði hún það? Hefur ekki einu sinni flögrað að
þér, er það?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Breskir bridshöfundar hafa
alltaf haft vissa tilhneigingu til
að líta á brids sem einstaklings-
íþrótt. Þetta kemur hvað skýrast
fram í bókum Mollos og Kels-
eys, þar sem þrautirnar snúast
oft mest um það að leysa vanda-
málið við borðsendann á móti —
makker. Albert Dormer tilheyrir
sömu hefð, eins og þetta spil
hans úr The Times sýnir ágæt-
lega:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður ♦ KDG72 ♦ D1083 ♦ 105 ♦ D8
Vestur Austur
♦ 103 ♦ 9865
♦ K6 llllll ♦ G94
♦ 87632 ♦ DG9
♦ ÁK75 ♦ 932
Suður ♦ Á4 ♦ Á752 ♦ ÁK4 ♦ G1064
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Vestur kemur út með laufás
og Dormer biður lesandann að
setja sig í spor austurs. Smáveg-
is umhugsun leiðir í ijós að
makker getur ekki átt mikið til
hliðar við ÁK í laufi — örugg-
lega ekki tígulkóng og slag til
hliðar. Því þjónar varla tilgangi
fyrir vörnina að spila tígli í öðr-
um slag. Besti möguleikinn til
að felia samninginn er sá að
vestur sé með ás eða kóng í
hjarta. Þá má kannski byggja
upp fjórða slaginn á hjartagosa.
En til þess þarf makker að spila
laufinu þrisvar og svo í fjórða
sinn þegar hann kemst inn á
tromp. En gerir hann það? „Ekki
nema maður bregði fyrir sig
hvítri lygi og sýni tvíspil,“ segir
Dormer.
Snjallt, eða hvað? Kannski,
ef maður gerir ráð fyrir að
makker sé hvort tveggja vilja-
og heilalaus. En svo er ekki, sem
betur fer. Minn makker myndi
a.m.k. velta fyrir sér hvort suður
hefði virkilega opnað á grandi
með 5-4 í laufi og hjarta? Og
kannski líta á „tvíspilið“ mitt í
laufí sem fjórlit. Og þá er alger-
lega tilgangslaust að spila laufi
þrisvar. Hins vegar er vanda-
laust fyrir sæmiiega hugsandi
vestur að finna bestu vörnina
ef hann fær réttar upplýsingar,
þ.e.a.s. að austur sé með þrílit.
Vestur veit vel’ að austur getur
ekki átt mikinn styrk, en Gxx í
trompi getur hann hæglega átt.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á meistaramóti á Kúbu í haust
kom þessi staða upp í viðureign
stórmeistaranna Amador Rodr-
iguez (2.500) og Walter Arcnc-
ibia (2.560), sem hafði svart og
átti leik. Svarta staðan virðist
vonlaus, en ef lesendur rámar í
hina glæsilegu vöm í hróksenda-
taflinu á laugardaginn var, sjá
þeir e.t.v. eitthvað í stöðunni sem
gefur möguleika á jafntefli.
kóngurinn í pattstöðu og öll peð
hans njörvuð niður. Þá er bara
að losa sig við mennina: 49. —
Bxg4+I, 50. Kxg4 — Dg2+, 51.
Kf5 - Dh3+, 52. Kg6 - Dh5+!
Jafntefli, því eftir 53. Kxh5 er
svartur patt.