Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
'77
Á vit hins ókunna
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóhöllin/Gullmolinn
Leikstjóri Bernardo Bertolucci.
Handrit Bertolucci og Mark Peploe.
Kvikmyndataka Vittorio Storaro.
Aðalleikendur Debra Winger, John
Malkovich, Campbell Scott, Jill
Bennett, Timothy Small. Bandarísk.
Warner Bros 1991.
Seinna stríði er lokið er hjónin
Malkovich og Winger koma til Alsír.
Þau eru bæði listamenn og ekki fjár
vant. Með þeim í för er heimilisvinur
þeirra, Campbell. Á þessum tíma var
Afríka fjariægari og enn meira fram-
andi vesturlandabúum en í dag. Fólk
varð að skijja eftir heima flestöll þeirra
tíma þægindi og ferðast um á aflóga
samgöngutækjum í kæfandi hita og
flugnamori, og úlföldum ef ekki vildi
betur. Hótel- og matarmenning á afar
frumstæðu stigi.
Þrátt fyrir ómælda erfiðleika halda
þau hjónin þó æ lengra inní heimsálf-
una, verða viðskila við Campbell, sem
reyndar hefur komist á milli þeirra. í
auðnum Sahara veikist Malkovich af
taugaveiki sem dregur hann til bana.
Winger leitar hjálpar bedúína á norður-
leið til að komast aftur til menningar-
innar og ástareynslu hennar í álfunni
myrku er ekki lokið.
Bertolucci er með forvitnilega og
vandaða mynd sem endranær, þó fjarri
sínu besta (II Conformista, Síðasti
keisarinn, Síðasti tangó í París). Fram
undir hlé verður maður vitni að
ánægjulegri og oft listilega vel gerðri
mynd. Manngerðirnar eru forvitnileg-
ar, fijálslynt, leitandi og forríkt lista-
fólk sem minnir um margt á persónur
Hemingway. Þetta er fólk, sem þrátt
fyrir auð og frægð kýs að leita á fram-
andi slóðir til móts við hið óþekkta.
Fá sandbragðið í munninn í stað þess
að skoða heiminn í gegnum bílrúðuna.
Miðpunktur myndarinnar er Winger.
Ferðin virðist farin m.a. í þeim til-
gangi að hressa uppá hjónaband þeirra
Malkovich þó það liggi í loftinu frá
upphafi að báðar persónurnar séu
haldnar sjálfseyðingarhvöt, hún að
auki haldin ófullnægjandi kynhvöt og
ýjað er að samkynhneigð Malkovich.
Myndin missir flugið því lengra sem
ferðin sækist í suður og lokakaflinn
er langur og slítandi og ekki í sama
anda og það sem á undan er gengið.
Áhorfandinn strandar með söguhetj-
unni í aðstæðum sem eru jllskiljanleg-
ar og óspart teygt á lopanum.
Blikur & lofti er ein stanslaus veisla
fyrir augað og það er einmitt langdreg-
inn seinni hlutinn sem er glæsilegast-
ur. Kvikmyndataka snillingsins Vitt-
orio Storaro (sem m.a. fékk Óskars-
verðlaunin fyrir Síðasta keisarann)
fangar arabíska töfraveröld þar sem
úlfaldalestir sniglast um tröllslega,
gullbrúna eyðimörk sandalda sólbak-
aðrar Sahara. Og ekki eru síðri nætur-
tökurnar undir sigðum mána og
stjörnubliki. Þetta eru ógleymanlegar
stundir sem einar saman umbuna
áhorfandanum langrar setur. Og hann
dregur upp fyrir okkur órafjarlæga
menningu og lifnaðarhætti, land og
þjóð af slíkri snilld að hún yfirgnæfir
flest annað.
Þó persónurnar séu nokkuð lausar
í loftinu eru þær engu síður vel leikn-
ar. Winger fer með erfitt aðalhlutverk-
ið og skilar því á sinn vitræna og tján-
ingarfulla hátt og nákvæm og listileg
túlkun er einnig aðalsmerki Malkovich.
Campbell Seott er efnilegur leikari en
hefði mátt leggja heldur meiri karl-
mennskubrag í tjáninguna, hann er
þá ekki sonur hans pabba síns (George
C. Scott) ef hann lumar ekki á meiri
kempuskap og þrátt fyrir góð tilþrif
hér, Dying Young og í Longtime
Companions, er ekki enn ljóst hvort
hann kemst með tærnar þar sem karl
hefur hælana á leiklistarsviðinu. Og
Small er skemmtilega undirfurðulegur
sem viðundur, hæpin hjálparhella móð-
ur sinnar sem er einnig skilmerkilega
leikin af Jill Bennett.
Bertolucci er manna vandvirkastur
og fyrir augað er myndin nánast óað-
finnanleg og með gagnorðara og skýr-
ara handriti og örlátari styttingu hefði
Blikur á lofti komist í hóp hans bestu
verka. Engu að síður ljóðræn og fögur
og ómissandi öllum kvikmyndaunnend-
um sem mega ekki missa af henni á
tjaldinu.
á Melóníu
Prosperó
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Ferðin til Melóníu („Reisen til
Melonia"). Sænsk teiknimynd sýnd
í Háskólabíói. Leikstjóri og klipp-
ari: Per Ahlin. Handrit: Ahlin og
Karl Rasmusson. Raddir: Allan
Edwall, Robin Carlsson, Olli Sarri,
Tomas von Brömssen ofl. Sænska
kvikmyndastofnunin. 1989.
Sænska teiknimyndin Ferðin til
Melóníu, sem er ein af jólamyndum
Háskólabíós, byggir að nokkru leyti
á síðasta leikriti Vilhjálms Shake-
speares, Ofviðrinu, með viðkomu m.a.
í Charles Dickens. Og í kaupbæti er
sterkur áróður fyrir umhverfísvernd,
boðskapur sem allir ættu að skilja.
Myndin, sem er prýðilega teiknuð
og gerð af Per Ahlin og félögum, er
fyrir yngri kynslóðina og þótt litlu
krakkarnir skilji ekki meiningarnar
að baki lýsingum á Prosperó, Mí-
röndu, Aríel og Kalíban skiptir það
ekki máli því þau geta eflaust
skemmt sér dægilega yfír ævintýrinu,
kúnstugum persónum og spennandi
atburðarás.
Vondu kallarnir eru Sori og Slori
á eyjunni Plútóníu, sem þeir hafa
breytt í eiturspúandi stáliðnaðarbæli
innan í þykku mengunarskýi. Þeir
hyggja á landvinninga á hinni fallegu
og umhverfisvænu Melóníu þar sem
galdrakarlinn Prosperó býr ásamt
dóttur sinni Míröndu, sem kann líka
sitthvað fyrir sér í göldrum, fuglinum
Aríel og þjóninum Kalíban, sem er
gerður úr grænmeti og lítur út eins
og gangandi kálgarður. En Prosperó
býr til storm einn ógurlegan til að
granda skipi iðnaðarkónganna og
loks berst leikurinn aftur til Plútóníu
þar sem helsta verkefnið er að frelsa
börn úr aumri vist í þrælkunarvinnu
á eyjunni.
Myndin er áferðarfalleg með
skemmtilegum söguþræði og per-
sónugerð, ekki síst hvað varðar auka-
persónur eins og skipstjórann úrilla,
Jólatréfót, og skáldið Vilhjálm sjálf-
an, sem aðeins talar í bundnu máli.
Við höfum nú séð með stuttu milli-
bili tvær teiknimyndir frá Norður-
löndunum, þessa sænsku og Fugla-
stríðið í Lumbruskógi, sem er dönsk
og með íslensku tali. Verður ekki
annað sagt en teiknimyndagerð
standi ágætlega hér norðurfrá ef
marka má þessar tvær.
Mozart geisladiskur fylgir Vikunni
í DAG, fimmtudag, fylgir
geisladiskur með úrvali af
verkum Mozart með tímaritinu
Vikunni. Tilefni þessa er að Iið-
inu eru 200 ár frá andláti Moz-
arts. Á disknum er gripið niður
í 12 af þekktustu verkum Moz-
arts en diskurinn er alls um 70
mínútur að lengd.
í fréttatilkynningu frá SAM-
útgáfunni sem gefur út Vikuna
segir m.a. að þetta sé í fyrsta sinn
sem geisladiskur fylgi með tíma-
riti af þessu tagi. Diskurinn fylgir
með jafnt til áskrifenda sem og
þeirra er kaupa blaðið í lausasölu
en upplag Vikunnar er tæplega
16.000 eintök.
Á geisladisknum er um að ræða
stafræna upptöku á flutingi
heimsþekktra hljómsveita og
hljóðfæraleikara. Meðal verka má
nefna stef úr Elvira Madigan,
Eine kleine Nachtmusik og for-
leikir að Töfraflautunni og Brúð-
kaupi Fígarós.
& HLJÓMSVEIT
Jón Ólafsson, bassi,
Jónas Björnsson, trommur,
Tryggvi Hiíbner, gítar,
Þórir Ulfarsson, hljómb.
AÐGANGUR KR. 500,-
með nemendaafslætti kr. 300,-
ATH.: ÞETTA VERÐA EINU ÚTGAFU-
TÓNLEIKAR RÚNARS ÞÓRS A
REYKJAVÍKURSVÆÐINU FYRIR JÓL'.
Jólaglögg & piparkökur
smáréttir & fjölbreytt tónlist!
il©INiiO©IIINIINlSooo
FRUIUISÝNIR VERÐLAUNAMYNDiNA:
Ó, CARMELA
CARMEN MAURA
Borgarastyrjöldin á Spáni geysar árið 1938 þegar
Carmela og Paolino ásamt heyrnarlausum aðstoðar-
manni skemmta stríðshrjáðu fólkinu. Þau eru hand-
tekin af ítölum og umsvifalaust skellt í fangelsi fyr-
ir pólitískar skoðanir sínar.
Hrífandi mynd byggð á samnefndum söngleik í leik-
stjórn hins eina sanna Carlos Saura.
Aðalleikkonan, Carmen Maura fékk Felix-verðlaun-
in árið 1990 fyrir túlkun sína á Carmelu.
Leikstjóri: Carlos Saura.
Aðalhlutverk: Carmen Maura, Andres Pajeres
og Cabino Diego.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
í LtiilSNlWlÍ!
Sýnd kl. 5 og 7.
Miðaverð kr. 500.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
UNGIR HARÐJAXLAR
KRAFTAVERK ÓSKAST sýnd ki. 5,7,9 og 11.
VEGURVONAR
Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuð börnum innan 12 ára.
HOMOFABERsýnd kl. 5,7,9og11.
Ung dama á Hard Rock
á afmælisdeginum sínum