Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
79
ekki að „reka heilu sjávarþorpin út
á landsbyggðinni" eins og hinn ríkis-
bankinn þarf að gera), þá gæti slíkt
valdið því að menn vildu losa sig við
önnur hlutabréf sem þeir kynnu að
eiga, til að halda réttri samsetningu
sparnaðar. Gæti því salan á Búnaðar-
bankanum valdið lækkun á hluta-
bréfum í öðrum hlutafélögum. 'Slíkt
gæti komið af stað enn frekari sölu
hjá viðkomandi félögum. Menn mega
í þessu sambandi ekki gleyma þeirri
staðreynd að engu skipti hver þróun
á kaup- og sölugengi hefur verið,
það er framtíðarsölu- og kaupgengi
sem menn spá í, þ.e. það skiptir engu
máli hver afkoma Búnaðarbankans
hefur verið, það er hvernig hún muni
verða sem skiptir öliu.
Má íslenskur hlutabréfamarkaður
við slíkri „tilraun" sem einkavæðing-
in yrði? Þetta er svartsýnispóllinn
sem tekinn er. Það má vel vera að
almenningur og fyrirtækin í landinu
lumi á svona 5-8 milljörðum kr. sem
báðir bíði eftir að geta fest í hluta-
bréf í banka, en ekki hefur salan á
hlutabréfamarkaði það sem af er
þessu ári verið upp á það besta, skv.
viðtölum á viðskiptasíðu Mbl. undan-
farnar vikur, til að gefa slíkri tilhugs-
un byr undir báða vængi.
• Ef litið er á sjónarhól Búnaðar-
bankamanna þá hafa þeir sagt að
þeir óttist að ef bankanum verði
breytt í hlutafélag nú á næstu mán-
uðum og hann svo seldur á almenn-
um markaði í kjölfarið, muni verða
miklar líkur á að bankinn lendi í eigu
örfárra aðila sem þegar hafa mikil
ítök í íslensku efnahagslífi. Myndi
slíkt valda bankanum tjóni því við-
skiptavinir bankans gætu ekki lengur
reitt sig á að hlutleysi ríkti varðandi
t.d. lánaviðskipti. Þeir aðilar sem
taka undir slík sjónarmið verða að
athuga að Búnaðarbankinn er eign
allra landsmanna, rétt eins og auðæf-
in í hafinu í kringum okkur. Af hveiju
í ósköpunum mega ekki allir lands-
menn njóta arðs af bankanum, sem
virðist vera eitt af örfáum ríkisfyrir-
tækjum sem skilar einhveiju af sér
sem tekur að tala um? Það yrði bank-
anum mikið í hag ef hann yrði
einkavæddur. Sem dæmi um slíkt
er staðan hjá Landsbanka og Íslands-
banka í dag. Á meðan Landsbankinn
verður að reiða sig á ölmusu frá
stjórnvöldum vegna bágrar stöðu,
þá bjargar íslandsbanki sér úr sínum
kröggum með því að auka hlutafé
sitt, sem er miklu betri ráðstöfun á
fjármagni heldur en sú að láta skatt-
greiðendur borga með bankanum.
Auðvitað eru líkur á að sala Bún-
aðarbankans gæti misheppnast en
menn mega ekki ganga út frá við
upphaf á hvaða verki sem þeir taka
sér fyrir hendur að það muni mis-
heppnast (líkt og þau vinnubrögð
sem stjórnarandstaðan á Alþingi vill
að viðhöfð séu í samningaviðræðum
urn Álver), þá er alveg eins gott að
bytja aldrei á viðkomandi verki. Bún-
aðarbankamenn ættu frekar að sýna
sveigjanleika og taka virkan þátt í
mótun á framtíðarfyrirkomulagi
hans. Þeim hefur tekist vel upp við
stjórnun hans hingað til og ætti því
ekki að verða skotaskuld úr að gera
sölu hans líka vel úr garði, í stað
þess að sölunni verði þröngvað upp
á þá með ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um fyrir alla aðila.
Sú málamiðlun sem minnst var
lítillega á í upphafi þessarar greinar
gæti orðið viðunandi lausn á þeim
ágreiningi sem umræður um sölu
bankans hefur þróast út í, þ.e. að
bankanum yrði breytt í hlutafélag
þar sem hlutafé hans yrði rétt mat
á virði hans. Yrði síðan 49% (þ.e.
hámarks leyfileg eignaraðild er-
lendra aðila í íslenskum fyriitækjum)
af því hlutafé boðið til sölu til við-
skiptabanka Búnaðarbankans í Evr-
ópu.
Slíka málamiðlun gætu báðir aðil-
ar vel sætt sig við. Stjórnendur bank-
ans myndu halda áfram að stjórna
honum í þeim faivegi sem þeir hafa
svo vel gert undanfarin ár. Draga
verður stórlega í efa að hinir erlendu
aðilar myndu vilja breytingu þar á
því telja má líklegt að stjórnendur
bankans verði metnir sem viðskipta-
vild við mat á virði bankans, og ekki
byija menn á að losa sig við slíka
vild eftir kaup.
Fyrir ríkið myndi þetta þýða að
það ætti enn meirihluta í bankanum,
þó eingöngu fyrst um sinn því það
er einfaldlega ekki góð nýting á fjár-
magni að ríki skuli vera með fing-
urna í rekstri banka og það í beinni
samkeppni við einkabanka. Slíkt býð-
ur einfaldlega spillingu heim, þó það
skuli tekið fram að slíkt á alls ekki
við varðandi sölu Búnaðarbankans í
dag, bankinn myndi einfaldlega ekki
vera í þeirri góðu stöðu sem hann er
í í dag ef spilling réði þar ríkjum.
Ríkið ætti síðan að stefna að því að
vera búið að losa sig við sinn hlut í
bankanum, á íslenskum hlutabréfa-
markaði, áður en til gildistöku EES-
samningsins kemur.
Fyrir hinar erlendu bankastofnan-
ir sem keyptu hinn 49% hlut, að við
kaupin myndu þær fá dýrmæta (og
arðbæra) reynslu af íslenskum íjár-
magnsheimi innan frá, heimi sem
þær munu, ef EES-samningurinn
nær fram að ganga, einn góðan veð-
urdag eiga þess kost að festa fé sitt
í, nærri því ótakmarkað.
HK
r
OPNUNARTÍMI: Mánudag - föstudag frá kl. 13-18. Laugardag frá kl. 10-16.
HAGKVÆMAR JÓLA6JAFK
„ mmsrní
NÝBYLAVEGUR
1 I SKODA TOYOTA L*—
v DALBREKKA ~m —
Hagvöxtur framtíðar er í lækkuðu vöruverði á hagkvæmum góðum vörun
Nýbýlavegi 4 (Dalbrekkumegin),
, símar 91-45220
Kvenkuldaúlpa - hetta fylgir -
kr. 6.900,-
Vatnsheldur vatteraður kuldajakki
hetta í kraga kr. 6.900,-
(REGATm)
fsarwiwoy
06 MAfíBT, MAfíGT FLBRA
ÓDM0G60TT!
80 siðna litprentaður
bæklingur til sýnis
Þekkt vörumerki
Heilsarskuldajakkar
kr. 5.390,-
Rifflaðar flauelsbuxur
m/vesti sett kr. 2.690,'
Póstkröfu-
þjónusta
GORE-TEX
SUPERPROOF
SENDUMI
PÓSTKRÖFU
UMlAND
ALLT.
ÚTILÍF"
Glæsibæ, sími 812922.
EURO-VISA
RAD
SAMMNGAR
Lykilinn
að Stöð 2
færðu hjá okkur
og umboðsmönnum
um land allt
SIEMENS
Fjölhœf hrœrivél!
MK4450
Blandari, grænmetiskvöm og hakka-
vél fylgja með.
• Allt á einum armi.
• Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar,
brytjar, rífur, hakkar og sker.
• ísl, leiðarvísir og uppskriftahefti.
• Einstakt verð: 15.300,-kr.
SMfTH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI 28300