Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 82
82
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
fafcnR
FOLX
■ SIGURÓLI Kristjánsson,
fyrrum leikmaður Þórs á Akur-
eyri, hefur verið endurráðinn sem
þjálfari Reynis á Arskógsströnd
sem leikur í 4. deild næsta sumar.
■ SIG URBJÖRN Bárðarson
hefur verið valinn knapi ársins
1991. Þetta er í fimmta sinn hann
hlýtur þessa nafnbót á síðustu sex
ámm.
I GEIR Sveinsson og félagar í
Alzira Avidesa, sem slógu Víking
út úr IHF-keppninni í handbolta á
dögunum, unnu pólska liðið Wisla
Lodz með tólf marka mun í fyrri
leik liðanna í átta úrslitum í Póll-
andi. Þeir em því nánast öraggir
með sæti í undanúrslitum. Geir
gerði þijú mörk.
■ TEKA, sem Kristján Arason
lék með í fyrra, stendur einnig vel
að vígi. Vann Elektromos 28:24
í Ungverjalandi í fyrri viðureign-
inni í keppni bikarhafa.
■ JÚLÍUS Jónasson gerði þijú
mörk er Bidasoa sigraði Valla-
dolid 30:22 í spænsku úrvalsdeild-
inni í handbolta um helgina. Liðið
er í öðm sæti A-riðils með 19 stig
á samt Granollers en Barcelona
hefur 21.
■ SIGURÐUR Bjarnason gerði
átta mörk er lið hans, Grosswall-
stadt, sigraði Eirenach 21:19, í
þýsku úrvalsdeildinni í handbolta
um helgina.
■ JÓN Kristjánsson gerði tvö
mörk fyrir fyrir Suhl sem tapaði
fyrir Dessau, 14:16, á útivelli.
M HÉÐINN Gilsson gerði eitt
mark er lið hans, Diisseldorf, tap-
aði 17:20 fyrir Frankfurt.
■ GYLFIÞ. Gíslason hefur ver-
ið ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
Selfoss í knattspyrnu. Gylfi hefur
áður þjálfað lið Selfoss, en síðasta
sumar þjálfaði hann Víking frá
Olafsvík í 4. deild. Þórarinn Ing-
ólfsson þjálfaði Selfoss síðasta
sumar.
■ ERNA Lúðvíksdóttir sleit lið-
bönd í leik með liði sínu, Amicitia,
í svissneksa handboltanum um síð-
ustu helgi.
Pétur
iabbar
■ PÉTUR Guðmundsson og
Torgeir Bryn frá Noregi eru einu
leikmennirnir frá Norðurlöndum,
sem hafa leikið í NBA-deildinni í
Bandaríkjunum,
en 45 leikmenn
fæddir utan
Bandaríkjanna
hafa leikið í deild-
inni. Pétur lék síðast með San
Frá
Gunnarí
Valgeirssyni
i Bandaríkjunum
Antonio Spurs 1989, en Bryn með
Los Angeles Clippers í fyrra.
■ KAREEM Abdul Jabbar og
Julius Erwin eru ekki hættir í
körfunni, þó þeir leiki ekki lengur
í NBA-deildinni. Þeir mætast einn
á móti einum í sérstökum sjónvarps-
þætti á áskrifendarás í febmar og
fá meira en sex millj. ÍSK hvor
fyrir þátttökuna. Það er Donald
Trump sem stendur að þættinum,
en áskrifendur rásarinnar verða að
borga um 1.200 ÍSK fyrir að sjá
þáttinn.
í kvöld
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Japísdeildin:
Strandgata Haukar-ÍBK....kI. 20.00
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla:
Akureyri Þór-FH....kl. 19.30
SUND / ÞÝSKALAND
Austur-þýska sunddrottningin Kornelia Ender, sem vann til fjögurra
gullverðlauna auk silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 1976, sagði að vel gæti
verið að hún hefði neytt ólöglegra lyfja án vitundar sinnar.
Þýskir þjálfar-
ar viðurkenna
misnotkun lyfja
Umræða um notkun ólöglegra
lyfja á meðal afreksfólks í
sundi frá Austur - Þýskalandi sem
var hefur varpað skugga á undir-
búning þýska sundlandsliðsins fyrir
Ólympíuleikana í Barcelona. Fyrir
skömmu undirrituðu 20 þjálfarar
frá Austur-Þýskalandi yfirlýsingu
þar sem þeir viðurkenndu að ólögleg
lyf hefðu átt þátt í glæsilegum ár-
angri sundfólksins undanfarin 20
ár. Þeir áréttu hins vegar að skipun
um notkun lyijanna hefði komið frá
æðri stöðum.
Austur-þýska sunddrottningin
Kornelia Ender, sem vann til fjög-
urra gullverðlauna auk silfurverð-
launa á Ólympíuleikunuíh 1976,
sagði að vel gæti verið að hún hefði
neytt ólöglegra lyfja án vitundar
sinnar. Um yfirlýsingu þjálfaranna
sagði hún að sökinni væri skellt á
sundfólkið, en það væri ekki rétt.
„Við vissum ekkert um þessa hluti,
en það gerðu þeir og því á að refsa
þeim. Læknarnir eru fyrst og
fremst sekir í þessu máli. Við vorum
aldrei spurð álits á því hvort við
vildum sprautur — við fengum þær
bara.“
Þjálfarar frá Vestur - Þýskalandi
svöruðu kollegum sínum og sögðust
ekki vera ánægðir með yfirlýsing-
una. í svari þeirra kom fram að
yfirlýsingin væri að minnsta kosti
ári of seint á ferðinni og þeir lýstu
yfir áhyggjum sínum vegna áhrifa
lyfjanna á keppnisfólkið. Þjálfar-
arnir sögðu að þýska sundsamband:
ið væri ekki í stakk búið til að taka
á vandanum, en það væri óumflýj-
anlegt, því annars væri framtíð
þýsks sundfólks í hættu. Lagt var
til að hlutlaus aðili tæki málið að
sér, met yrðu endurskoðuð og lyfja-
próf færu fram án þess að tilkynna
um þau áður. Ennfremur sagði í
bréfi þjálfaranna að læknar og
þjálfarar, sem hefðu viðurkennt að
hafa átt þátt í notkun ólöglegra
lylja, ættu ekki að koma til greina
í störf hjá þýska sundsambandinu.
HANDBOLTI
Unglinga-
liðiö í
Evrópu-
keppnina
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
handknattleik, skipað leik-
mönnum 18 ára og yngri, tekur
þátt í Evrópukeppni í vor.
Island er í riðli með Eystrasalts-
ríkjunum þremur; Eistlandi,
Lettlandi og Litháen og fara leikir
í þessum riðli fram í Litháen í vor,
um páskana.
Þetta er sami aldurshópur og
varð Norðurlandameistari í hand-
knattleik sl. vor í Finnlandi. Ekki
verða þó allir þeir, sem léku í liðinu
í vor, með í Evrópukeppninni þar
sem þeir eru orðnir of gamlir.
Þjálfari unglingalandsliðsins er
Geir Hallsteinsson.
KNATTSPYRNA
Athugasemd við bréf skotmanna:
Sæmir ekki sönnum íþróttamönnum
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi bréf:
Föstudaginn 6. desember birtist
á íþróttasíðu Morgunblaðsins
bréf frá fimm nafngreindum skot-
mönnum. í bréfi þessu koma fram
ósannindi sem nauðsyn er að leið-
rétta.
Ósannindi em að undirritaður
sé stjórnarmaður í Skotsambandi
íslands. Ég sat í stjórn sambands-
ins á liðnu kjörtímabili, sem lauk
á Skotþingi 11. maí síðastliðinn.
Önnur ósannindi em, að dag-
setning íslandsmóta hafí verið
ákveðin af stjóm Skotsambands
íslands. Mótaskrá var sett saman
af svokölluðum formannafundi,
en hann sátu formenn skotfélaga
landsins. Undirritaður átti ekki
þátt í því að ákveða dagsetningar
neinna íslandsmóta.
Gefíð er í skyn að undirritaður
hafí valið dagsetningu á íslands-
móti í staðlaðri skammbyssu til
að auðvelda mér að ná verðlauna-
sæti á mótinu. Staðreyndin er að
ég hef ekki æft umrædda grein í
tvö og hálft ár og hafði ekki hugs-
að mér að taka þátt í mótinu.
Bréf skotmannanna fimm er
þeim til skammar og íþrótt þeirra
ekki til framdráttar. Þeir gera
mönnum upp hinar verstu hvatir
og beita rangfærslum í því skyni.
Slíkt sæmir ekki sönnum íþrótta-
mönnum.
Eiríkur Björnsson
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
Cantona í tveggja
mánaða leikbann
Eric Cantona, landsliðsmaður Frakka sem gerði m.a. tvö mörk gegn ís-
lendingum í Evrópuleiknum í París 20. nóvember, var í gær úrskurðað-
ur í tveggja mánaða keppnisbann fyrir að kasta boltanum í bak dómarans
í leik Nimes og St Etienne í frönsku 1. deildinni sl. laugardag.
Cantona hafði áður verið úrskuraður í fjögurra leikja bann, en aganefnd
frönsku 1. deildarinnar breytti fyrri úrskurði sínum í tvo mánuði vegna lít-
ilsvirðinar Cantona við dómarann.
Morgunblaðið/KGA
3000. stjórnarfundur Knattspyrnuráðs Reykjavíkur
Knattspyrnuráð Reykjavíkur, KRR, hélt í vikunni 3.000 stjórnarfund ráðsins. Stofnfundurinn var haldinn 29. maí 1919
og áttu þá fjögur félög, KR, Fram, Valur og Víkingur aðild að ráðinu, en fyrsti formaður var Egill Jakobsen. Fundir
hafa síðan veyðið haldnir nær vikulega, en 10 félög með um 6.000 iðkendur eru innan KRR. Myndin var tekin á afmæl-
isfundinum. Á henni eru frá vinstri: Stefán Gunnarsson, Leiknþ Lúðvík Andreason gjaldkeri, Fylki; Eyjólfur Ólafsson,
Víkingi; Eiríkur Helgason ritari, Fram; Guðlaugur Magnússon, Ármanni; Baldur Maríusson formaður; Hallur Kristvins-
son varaformaður, Þrótti; Lárus Valberg bréfritari, Val; Guðmundur Jónsson, Fjölni; Benedikt Axelsson, ÍR, og Geir
Þorsteinsson formaður mótanefndar, KR.
URSLIT
Körfuknattleikur
2. deild kvenna:
Snæfell sigraði í fyrsta fjölliðamótinu af
þremur í 2. deild kvenna í körfuknattleik,
en keppnin fór fram í Stykkishólmi. Úrslit
leikja urðu þessi:
Skallagrímur - Þór............ 34:41
ÍMA - Skallagn'mur..............29:23
Skallagrímur - Njarðvík.........26:59
Njarðvík - iMA..................54:33
Snæfell - Skallagrfmur........ 77:21
Þór-ÍMA.........................41:56
Njarðvík - Þór..................74:16
Snæfell-Þór.....................64:13
Snæfeli - Njarðvík..............47:35
Snæfell - IMA................. 57:27
England
Dregið var í 3. umferð ensku bikarkeppninn-
ar á laugardaginn:
Huddersfield - Millwall, Oxford - York eða
Tranmere, Leeds - Manchester United, Notts
County - Wigan, Sheffield United - Luton,
Aston Villa - Tottenham, Norwich - Bamsley,
Bumley - Derby, Nottingham Forest - Wol-
vei-s, Woking - Hereford, Brighton - Crawley,
Ipswich - Darlington eða Hartlepool, Hull -
Chelsea, Bolton - Peterborough eða Reading,
Bristol City - Wimbledon, Preston - Sheffield
Wednesday, Oldham - Leyton Orient eða
WBA, Swindon - Watford, Wrexham - Arse-
nal, Bristol Rovers - Plymouth, Coventry -
Cambridge, Torquay eða Farnborough - West
Ham, Southampton - QPR, Leicester - Crystal
Palace, Exeter eða Swansea - Portsmouth,
Charlton - Barnet, Middlesbrough v Manchest-
er City, Bournemouth - Newcastle, Everton -
Southend, Crewe - Liverpool, Sunderland -
Port Vale og Blackburn Kettering.
Leikið verður 4 og 5 janúar.
FELAGSLIF
ÍSÍ heiðrar íþrótta-
menn sambandanna
Iþróttasamband Islands heiðrar
íþróttamenn ársins 1991, sem sér-
samböndin hafa valið hvert í sinni
grein, í veitingasal ÍSÍ í kvöld kl.
19.30.