Morgunblaðið - 31.12.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.12.1991, Blaðsíða 8
T<IV T 8 C MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1991 ERLEND ERLEND ERLEND Ifréttagetraun ERLEND ERLEND ERLEND 1. Einn virtasti rithöfundur á Norðurlöndum á þessari öld andaðist 12. mars en hann hafði fengið bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs fyrir skáldsöguna Vonin blíð. Hver er maðurinn? a. Danski rithöfundurinn Karen Blixen. b. Sænski rithöfundurinn Olaf Lagercrantz. c. Færeyski rithöfundurinn Will- iam Heinesen. d. Danski rithöfundurinn Martin Andersen Nexo. 2. Nýr forsætisráðherra var skipað- ur í Póllandi 4. janúar en hann lét af embættinu eftir fyrstu alfrjálsu þingkosningarnar í landinu í haust. Hver er maðurinn? a. Tadeusz Mazowiecki. b. Lech Walesa c. Jan Krzysztof Bielecki. d. Jan Olszewski 3. Bandaríska umhverfismálastofn- unin ákvað í janúar að rann- saka næstu þrjú árin hversu mikið metangas fer út í andrúmsloftið en það hefur öðrum efnum fremur áhrif á hitastigið á jörðinni. Rann- sóknin beinist einkum að: a. nælonverksmiðjum, sem valda gífurlegri mengun í andrúms- loftinu. b. útblæstri bíla, sem er ein helsta ástæða gróðurhúsaáhrifanna svokölluðu. c. frystitækjum, sem framleiða 35% alls metangass sem fer í andrúmsloftið. d. kúaropa, því kvikfénaður framleiðir 15% alls metangass sem fer í andrúmsloftið. 5. * Olafur Noregskonungur lést 17. janúar, 87 ára að aldri. Hvað heitir núverandi konungur Noregs? a. Haraldur V. b. Hákon IV. c. Hákon Magnús VI. d. Ólafur VI. 6. Varsjárbandalagið var formlega lagt niður 25. febrúar. Utan- ríkisráðherrar aðildarríkjanna fyrr- verandi skrifuðu þá undir skjal því til staðfestingar, þeirra á meðal sovéski utanríkisráðherrann, en hver var hann? a. Dimitrí Jazov. b. Alexander Pankín. c. Edúard Shevardnadze. d. Alexander Bessmertnyk. 8. Jogvan Sundsten, sem var lög- maður Færeyinga 1988-1990, lagði í ársbytjun fram tillögu um stofnun sambandsríkis. Hvaða lönd vildi hann að sameinuðust? a. Færeyjar, Grænland, Island og Grænhöfðaeyjar. b. Færeyjar, Grænland og ísland. c. Norðurlönd. d. Norðurlönd og Eystrasaltsrík- in. 4. Sovéskir fallhlífahermenn réðust inn í útvarps- og sjónvarpsstöð í Vilnius, höfuðborg Litháens 12. jan- úar með þeim afieiðingum að 13 óbreyttir borgarar biðu bana. Hernaðaraðgerðirnar voru fordæmdar út um allan heim en Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti réttlætti þær. Á hvaða forsendu gerði hann það? a. Hann sagði að sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsþjóðanna skapaði hættu á valdaráni harðlínukomm- únista. b. Hann sagði að sovésk stjórnvöld vildu vernda almenning fyrir ofríki lítháískra sjálfstæðissinna. c. Hann sagði að litháískir fjölmiðlar hefðu hafið lygaherferð gegn sovéskum ráðamönnum. d. Hann sagði að litháískir fjölmiðlar störfuðu ekki í anda glasnost 9. John- Major, forsætisráðherra Bretlands, var í talsverðri hættu í bytjun febrúar. í hveiju fólst hætt- an? a. Margaret Thatcher hætti stuðningi við hann vegna stefnu hans í Evrópumálunum. b. Sprengja sprakk aðeins tólf Það er margt um manninn um borð í þessu skipí eins og reyndar í sjónum líka. Hvaða fólk er þetta og hvert fór það? a. Króatar sem flúðu til Ítalíu. b.' Rúmenar sem flúðu til Moldovu. c. Albanar sem flúðu til Ítalíu. d. Víetnamar sem flúðu til Tævans. metrum frá fundarsal Downing- strætis 10, þar sem hann var á fundi með helstu ráðherrum sín- um. c. Saddam Hussein kvað upp dauðadóm yfir honum. d. Æstur múgur réðst á hann á Trafalgar-torgi vegna nefskatts- ins umdeilda. 10. Norska sjónvarpið aflýsti í febrú- ar söngvakeppni sem hefur verið áriegur viðburður og sigurveg- arar hennar hafa löngum verið full- trúar Noregs í söngvakeppni evróp- skra sjónvarpsstöðva. Hvers vegna var keppninni aflýst? a. Dómnefndinni þótti ekki við hæfi að efna til söngvakeppni á meðan stríð geisaði fyrir botni Persaflóa. b. Dómnefndin vildi þannig mót- mæla niðurskurði stjórnarinnar á útgjöldum til menningarmála. c. Þjóðarsorg ríkti daginn sem halda átti keppnina vegna andláts Ólafs Noregskonungs. d. Dómnefndin komst að þeirri niðurstöðu að 140 Iög, sem bár- ust í keppnina, hefðu verið of léleg. 11. Iskýrslu, sem Tryggingastofnun sjúklinga í Noregi gaf út í jan- úar, komu fram fjölmörg dæmi um að sjúklingar hefðu orðið að þola ónauðsynleg óþ^egindi og þjáningar á norskum sjúkrahúsum. Hvað kom mest á óvart í skýrslunni? a. Alvarlegur misbrestur reyndist á gagnakerfi sjúkrahúsa, meðal annars ollu breytingar á tölvu- kerfi vegna sameiningar þriggja sjúkrahúsa því að gögn um 27 sjúklinga týndust og þeir fengu því ekki nauðsynlega aðhlynn- ingu. b. Niðurskurður á útgjöldum til heilbrigðismála reyndist koma illa niður á öldruðum sjúklingum, sem voru sendir heim án þess að þeim væri tryggð heimahjúkrun. c. Fram komu uggvænlega mörg dæmi um að hlutir gleymdust inni í sjúklingunum, meðal annars kom í ljós að kona hafði gengið með tíu sentímetra langt plaströr í ellefu ár. d. Mikil fjölgun erlends hjúkrun- arfólks reyndist valda miklum tjáskiptaerfiðleikum á sjúkrahús- um, meðal annars kom í ljós að 33 sjúklingar fengu röng lyf áf þessum sökum. 12. Iþjóðaratkvæðagreiðslu í Sovétlýð- veldinu Georgíu um mánaðamót- in mars/apríl lýstu 98,3% kjósenda sig fylgjandi: a. því að nafni lýðveldisins yrði breytt í Grúsía. b. því að rúblan yrði bönnuð og greiðslukort tekin í notkun í stað- in. c. því að Míkhaíl Gorbatsjov yrði gerður að heiðursborgara Tbílísi. d. sjálfstæði lýðveldisins á grund- velli fullveldisyfirlýsingarinnar frá 26. maí 1918. 13. Karl Gústaf Svíakonungur lét sig gamlar venjur engu varða er hann tók afstöðu til stórpólitísks máls í viðtali við sænsk blöð í apríl en þar sagði hann: a. að sænska væri orðin of blön- duð tökuorðum og bæri Svíum að hefja kennslu í íslensku til að fá á ný tilfinningu fyrir frum- máli sínu. b. að Svíum bæri að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. c. að Svíuni bæri að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO). d. að Svíar ættu að stórauka vopnasölu, aðallega til friðel- skandi ríkja. 14. + Isumarbytjun samþykkti ein Norð- urlandaþjóðin að leyfa auglýs- ingar í sjónvarpi og varð hún síðust norrænu bræðraþjóðanna til þess að leyfa slíkar auglýsingar. Hér er átt við: a. Svía. b. Norðmenn. c. Dani. d. Finna. 15. Þeir sem eru örvhentir lifa í heimi rétthentra og sá heimur er þeim svo hættulegur að það hefur áhrif á ævilengd þeirra. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar í Suður- Kaliforníuríki sem birtar voru í vor getur þar munað allt að: a. 30 árum. b. 20 árum. c. 9 árum. d. 10 árum. 16. Borís Jeltsín setti fram hugmynd- ir um breytingar á starsemi sovésku öryggislögreglunnar KGB í vor. I stað þess að vekja ótta og skelfingu meðal borgaranna vildi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.