Morgunblaðið - 31.12.1991, Síða 10
MOR(Íuk-BLAÍ)HÍ ÞRIÐJUDAGUR 31. DKSK.MiÍER 1991
ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND
Þessi merkilega mynd barst okkur utan úr geimnum og sýnir hún svo ekki verður um villst, að róman-
tíkin og raunveruleikinn fara sjaldan saman. Hvaðan er hún?
a. Af kvefbólgnu nefinu á karlinum í tunglinu.
b. Af virku eldfjalli á ástarstjömunni Venusi.
c. Af Heklutindi eins og hann birtist utan úr geimnum.
d. Af hraunelfi á Mars.
*
Amyndinni er
a. Zheliu Dimitroff, búlgarskur vínbóndi sem heldur
hér á yngsta barnabarni sínu. Hann hefur notfærst sér auk-
ið einstaklingsfrelsi og sett á laggiroar fyrirtæki sem selur
framleiðslu hans og nær 400 annarra bænda á bandarískum
markaði, einkum þykir búlgarska rauðvínið smakkast vel
með nautakjöti.
b. Færeyski þingmaðurinn Jógvan Seletoj, sem reynir að
hvetja landa sína til dáða þótt ríkið sé að sökkva I skulda-
fen, bendir á að ekki sé ástæða til að örvænta meðan lands-
menn eignist jafn myndarleg börn og það sem hann heldur
hér á
c. Ástralinn Leslie Colley, sem eignaðist soninn Oswald á
árinu en Colley býr í bænum Ararat. Fæðing Oswalds þótti
í frásögur færandi þar sem Leslie er 92 ára gamall og var
talinn elsti nýbakaði faðir í heimi. Núverandi eiginkona hans
er 38 ára en elsti sonur Leslie frá fyrra hjónabandi er 71 árs.
d. Sjötugur Kanadamaður af þingeyskum ættum, Jack Ger-
laugson, sem notaði sparifé sitt til að stofna heimili fyrir
einstæðar mæður í Winnipeg og heldur hér á barni eins
slgólstæðingsins.
31.
Nokkrir harðlínumenn gerðu
tilraun til valdaráns í Kreml
í ágúst. Fyrstu dagana varð
óvænt breyting til batnaðar á
högum margra borgarbúa í
Moskvu að sögn rússnesks stúd-
ents sem Morgunbiaðið ræddi við
símleiðis.
a. Sýndar voru James Bond-
spennumyndir á öllum sjón-
varpsrásum.
b. Ollum nemendum var heitið
að þeir fengju eingöngu ágætis-
einkunnir næsta vetur.
c. Götusóparar fengu að vita
að framvegis þyrftu þeir ekki
að strita því að refsingin við
því að fleygja frá sér rusli á
almannafæri yrði nú lífstíðar-
fangelsi.
d. Skyndilega var meiri matur
á boðstólum í verslunum og
úrval fjölbreyttara, nýju vald-
hafarnir virtust hafa látið
senda birgðir til borgarinnar.
32.
Forseti Georgíu, Zviad
Gamsakhurdia, var ómyrkur í
máli er hann ræddi um Mík-
haíl Gorbatsjov í samtali við
Morgunblaðið í ágúst.
a. Hann sagði umbótastefnu
Gorbatsjovs hafa verið „ein-
tómt pólitískt sjónarspil" og
Sovétleiðtoginn hefði reynt að
bregða fæti fyrir umbætur í
lýðveldunum.
b. Taldi að raunverulegur vald-
hafi í Sovétríkjunum undanfar-
in ár hefði verið Raísa, eigin-
kona Gorbatsjovs, og hún hefði
skipulagt valdaránstilraunina í
von um að geta aftur treyst
tökin á landinu.
c. Sagðist vera viss um Gor-
batsjov væri á mála hjá banda-
rísku leyniþjónustunni, CIA.
d. Gorbatsjov væri að vísu all-
góður skákmaður en afleitur
stjórnmálamaður og ætti strax
að draga sig í hlé.
33.
Margt óvænt kom í ljós í sept-
ember er fjölmiðlar í Sovét-
ríkjunum hófu að kanna eignir og
tekjur kommúnistaflokksins. Með-
al annars reyndist
a. Flokksdeildin í héraðinu Tat-
arstan við Volgu reka Ieynilega
bruggverksmiðju.
b. Miðsljórnarmenn sovéska
móðurflokksins hagnast um
stórfé með því að láta birta
reglulega af sér myndir í
hverju einasta dagblaði og
tímariti Iandsins og krefjast síð-
an greiðslu fyrir að leyfa mynd-
birtinguna.
c. Hluti ríkisflugfélagsins Aero-
flots vera skráður sem eign
Nikita Khrústsjovs sem var
hrakinn úr embætti Sovétleið-
toga 1964.
d. Flokkurinn hafa fjárfest í
bókaútgáfu og bókaverslun á
íslandi á sjötta og sjöunda ára-
tugnum en ekki tókst að grafa
upp hvaða fyrirtæki hér á landi
var um að ræða.
34.
Yfirvöld í Kína ákváðu að bæta
siðferði háskólastúdenta í
landinu.
a. Þeim var bannað að kyssast,
faðmast eða haldast í hendur á
almannafæri.
b. Framvegis skyldu allir stúd-
entar hneigja sig djúpt þrisvar
er þeir mættu verkamanni á
götu.
c. Allir stúdentar skyldu klæð-
ast síðum skikkjum sem hylja
nær allan líkamann að höfðinu
undanskildu, undanþága yrði
aðeins veitt íþróttamönnum og
listamönnum.
d. Ákveðið var að skipta
skólaárinu milli kynja þannig
að konur stunduðu nám á
haustmisseri en karlar á vor-
misseri; til að bæta upp þann
tíma sem glataðist yrði reynt
að kenna hraðar en tíðkast
hefði og frá því snemma á
morgnana óslitið fram á kvöld
35.
George Bush Bandaríkjaforseti
flutti mikilvæga sjónvarpsræðu
27. september.
a. Hann tilkynnti þjóð sinni að
hann gæfi kost á sér í forseta-
kosningunum sem verða í nóv-
ember 1992.
b. Skýrði frá áformum stjórnar
sinnar um geysimiklar skatta-
hækkanir til að binda enda á
fjárlagahallann.
c. Forsetinn sagði að hann teldi
nauðsynlegt að þjóðhollir
Bandaríkjamenn tækju hönd-
um saman og hættu að fara
háðungarorðum um Dan Qua-
yle varaforseta, ástandið væri
að verða óþolandi og væru ein-
hveijir óánægðir væri einfald-
asta lausnin sú að láta sem
Quayle væri ekki til.
d. Bush skýrði frá ákvörðunum
um mesta niðurskurð banda-
rískra kjarnavopna sem
nokkurn tíma hefði verið fram-
kvæmdur.
37.
Bandaríski blökkumaðurinn
Clarence Thomas var skip-
aður hæstaréttardómari en það
gekk þó ekki þrautalaust fyrir
sig. Hvað var honum fundið til
foráttu?
a. Hafði aldrei unnið mál á ferli
sínum.
b. Kynferðisleg áreitni.
c. Að hafa skorið úr erfiðu
máli með teningskasti.
d. Að draga alltaf taum minni-
hlutahópa í dómum sínum.
38.
\
*
Inóvemberbyijun fóru fram rík-
isstjórakosningar í Louisiana
í Bandaríkjunum og stóð mikill
styr um frambjóðanda repúblik-
ana, sem beið lægri hlut í kosning-
unum. Hvað heitir hann?
a. Prince Albert.
b. Baron de Bergerac.
c. Count Christopher.
d. David Duke.
39.
Bandaríska tímaritið Forbes
upplýsti, að samtök græn-
friðunga hefðu fengið sínum mál-
um framgengt með svikum og
prettum. Þávar átt við samþykkt-
ina um:
a. Bann við höfrungadrápi
Bandaríkjamanna.
b. Bann við eyðingu regnskóg-
anna.
c. Bann við hvalveiðum.
d. Bann við fiskveiðum á N-Atl-
antshafi.
40.
Fjölmiðlakóngurinn Robert
Maxwell lést með sviplegum
hætti og hefur síðan margt mis-
jafnt komið í ljós um fjármál hans.
Hann var jarðsettur á fjalli einu
fjarri heimahögunum. Hvaða fjali
er það?
a. Ararat.
b. Mont Blanc.
c. Himmelbjerget.
d. Olíufjallið.
41.
Félag nokkurt á Ítalíu gekkst
fyrir könnun og þóttu niður-
stöðumar mjög athyglisverðar. í
ljós kom, að:
a. Helmingur ítalskra bílsljóra
stæðist ekki ökupróf.
b. Italir eru almennt laglausir.
c. Spaghettiát er hvergi minna
en á Ítalíu.
d. Fæstir vissu hvað páfinn hét.
42.
Erich Honecker, fyrrum leið-
toga austur-þýskra komm-
únista, er nú hvergi fritt um frón
en þýsk stjórnvöld vilja fá hann
en Rússar ekki hafa hann. I hvaða
landi vildi Honecker fá hæli?
a. Suður-Afríku.
b. Chile.
c. E1 Salvador.
d. Tævan.
43.
Inn á utanríkisráðherrafund Atl-
antshafsbandalagsins, NATO,
í Brussel skömmu fyrir jól barst
kveðja ásamt frómri ósk, sem
mörgum fannst sýna vel breyting-
arnar í heimsmálunum að undanf-
örnu.
a. Samtök íslenskra hernáms-
andstæðinga báðu um áheyrna-
raðild að NATO.
b. Míkhaíl Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, spurðist fyrir
um lausa stöðu hjá bandalaginu.
c. Jón Baldvin Hannibalsson bað
um vegna þrenginga íslenska
þjóðarbúsins, að höfuðstöðvar
NATO yrðu fluttar til íslands,
helst á landsbyggðina.
d. Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, sagði það markmið Rússa
að ganga í NATO.