Morgunblaðið - 16.02.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
15
Tríó Reykjavík-
ur í Hafnarfirði
________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
Þessi fyrirsögn á ekki að vera
brandari, hvorki Hafnarfjarðar- né
Reykjavíkur. En mér er spurn,
hvers vegna þurfa tónleikar Tríós
Reykjavíkur einlægt að fara fram
í Hafnarborg, þar sem hljómburður
er mikill en alls ekki æskilegastur.
Það eru til salir í Reykjavík þar sem
ekki væri síður forvitnilegt að hlýða
á leik þremenninganna. Eins og
margoft hefur verið bent á er svör-
un salarins þannig að hún gleypir
suma hluti, skilar öðrum ekki vel
og gefur heldur ekki rétta mynd
af getu flytjandans, og þá á sama
hátt stundum getuleysi. Tríó
Reykjavíkur hefur verið sérlega iðið
við að kynna áheyrendum kammer-
verk, af ýmsum gerðum, á þeim
u.þ.b. fjórum árum sem það hefur
starfað og oft verið stórhuga í verk-
efnavali og sýnir það vitanlega
djarft markmið þremenninganna
þeirra Guðnýjar Guðundsdóttur,
Gunnars Kvaran, og Halldórs Har-
aldssonar. Að þessu sinni hófu þau
tónleikana á 10 ára gömlu verki
eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem
hann samdi 1982 í tilefni „Scand-
inavia today“ í Bandaríkjunum það
sama ár og var frumflutt í Kennedy
Center í Washington. „Þijú andlit
í látbragðslist" kallar Þorkell verkið
og ef ég heyri rétt þá byggist verk-
ið á fimm tónum innan stórrar þró-
unar, sem svo taka ótal breytingum
á leið sinni gegn um verkið, og
kannski eiga þessir fimm tónar að
höfða til fimm Norðurlanda. Þetta
stemmningsríka og vel samda verk
virtist liggja flytjendunum vel og
var mjög gott jafnvægi í flutningn-
um. Tríó nr. 2 í e-moll op 67 eftir
D. Schostakowitsch kom næst.
Guðný Guðmundsdóttir
Segja má að verkið hafi verið glæsi-
lega flutt af þeim félögum og virð-
ist að þessi tónlistarstíll, síðróman-
tíkur og nútíma henti sérlega vel
skapgerð þremenninganna í Tríó-
inu. „Flasulettið“ í upphafi hjá
Gunnari heppnaðist mjög vel, þótt
viðkvæmt sé, kannske hefði mátt
spila „Largo“ -kaflann þéttar og
af meiri þunga en í síðasta þættin-
Gunnar Kvaran
um fann maður sannarlega fyrir
rússnesku dönsunum í öllum sínum
skaphita. Helst þótti mér að, Hall-
dór drægi sig um of til baka á köfl-
um, þess þarf Halldór ekki. Það
sama fannst mér raunar í Schubert-
Tríóinu í Es-dúr op 100, sem kom
eftir hlé og þá kannski frekast í
p- og pp- spili. Eitthvað fannst mér
vanta á sönginn í Schubert-tríóinu,
Halldór Haraldsson
og stundum spilað meira upp á
nákvæmnina, og þó vantaði stund-
um upp á hrinræna nákvæmni, eins
og t.d. í dansþættinum — Scherzo-
inu, sem var ekki nákvæmt í ritma,
og stundum gætti nokkurs óhrein-
leika í spilinu. Þrátt fyrir þessar
aðfinnslur upplifði maður glæsilega
tónleika.
Forsíða Vestra.
Nýtt blað,
Vestri, er
komið út
ÚT ER komið fyrsta tölublað
af nýju blaði á Vestfjörðum og
ber það nafnið Vestri. Blað
þetta, sem er 36 blaðsíður að
stærð og í tímaritsbroti, er hugs-
að sem héraðsfréttablað með
sérstaka áherslu á fræðslu og
skemmtiefni. Jafnframt er blað-
inu ætlað að berjast gegn því
neikvæða hugarfari og þeirri
svartsýni sem einkennt hefur
umræðuna um búsetu á Vest-
fjörðum, segir í frétt frá útgef-
anda.
Þarna er fyrst og fremst um til-
raun að ræða til að steypa saman
tveim útgáfuformum, þ.e. hinu
hefðbundna formi héraðsfrétta-
blaða, sem hefur verið með nær
óbreyttu sniði í blaðaútgáfu á
ísafirði frá því um aldamót, og
tímaritsforminu, sem lítil viðleitni
hefur verið til að gefa út á Vest-
fjörðum.
Útgefandi Vestra er ísprent hf.
á ísafirði og er það ætlun útgef-
anda að blaðið geti orðið skemmti-
legur vettvangur skoðanaskipta og
upplýsingamiðlunar um menn og
málefni í aðgengilegra formi en
áður hefur tíðkast. Hafa brottflutt-
ir Vestfirðingar sýnt þessu mikinn
áhuga, jafnframt því sem íbúar
hinna dreifðari byggða á Vestfjörð-
um hafa mjög hvatt til þessa fram-
taks. Mun framhaldið og útgáfu-
tíðni ráðast af viðtökum, en ef
grundvöllur reynist fyrir útgáfu
af þessu tagi er stefnt að því að
Vestri komi út mánaðarlega.
COfdCltCI m s%
m 80386SX-16 Mhz örgjörvl
t Vandaður 14" VGA litaskjár
• 1Mb mlnnl (stækkanlegt í 8Mb)
42Mb dlskur (28ms)
r 3.5" dlskllngadrlf 1.44Mb
* 102 hnappa lyklaborð
m 2 raðtengl, 1 prentaratengl
m WINDOWS 3.0
m MS-DOS 5.0
m Genlus mús
m Umhverfisvæn (hljóðlátl)
Staðgreítt m/vsk.
CS7100 tölvan frá Cordata er fyrsta 386SX skákforrit, golfforrít, töflureiknir o.fi). Tölvan er
tölvan sem boðin er fullbúin á 99.900 krónur þvíklár tilnotkunar um leið og búid erad stinga
staðgreitt. Hún er besti kosturinn sem býdst í henniísambandvidrafmagn!
dag, vel hönnud, ríkulega búin, áreidanleg, Auk frábærs staðgreiðsluverðs bjóðum við
hraðvirk og hljóðlát. Ótrúlega lágt verð tölvunnar önnurmjög góð greiðslukjör: VISA Raðgreióslur
teljasérfræðingarsérstöktímamót! alltað 18mánuðir, EuroKreditíalltað 11 mánuði
CordataCS7100erafgreiddtilbúintilnotkunar eða MunaLán með 25% útborgun og eftir-
með glimrandi litaskjá, 42Mb hörðum disk, með stöðvum dreiftá alltað 30 mánuði.
uppsettum Windows hugbúnaði og kynningu frá Nú er rétti tíminn til að fá sér Cordata tölvu, á
PC-Tölvuklúbbnum (þeirri kynningu fylgir tímamótaverðimeðanbirgðirendastl!
• •
I RADGREIDCLUR TtTTATT AHHAT IT 1 TkT m'
V/SA VIII Ki I 1 (11 V /t m
i iviiv/i\vf i yjLá v íiii
Suóurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976