Morgunblaðið - 16.02.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
IMMBj AUGL YS S8Í '/Y'/y,/ $ ,, ' ''////'''< " ', HNGAi
n # elle
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur, þroskaþjálfar og fólk með uppeldis-
menntun óskast til starfa á leikskólann
Hagakot v/Fornhaga.
Nánari upplýsingar gefur viðkomandi forstöðu-
maður í síma 29270.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUWEYRI
Lausar eru til umsóknar fastar stöður og
afleysingastöður hjúkrunarfræðinga á gjör-
gæsludeild og vöknun.
Byrjunartími: Strax eða eftir samkomulagi.
Aðlögun: Við bjóðum upp einstaklingsaðlög-
un með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Upplýsingar gefa Sigurlaug Arngrímsdóttir,
deildarstjóri og Ólína Torfadóttir, hjúkrunar-
forstjóri, í síma 96-22100 milli kl. 13-14 alla
virka daga.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Hafnarfjörður
Hálfsdagsstarf
á skrifstofu.
Endurskoðunarstofa í Hafnarfirði óskar að
ráða ritara eftir hádegi. Starfið felst í inns-
lætti og ritvinnslu á tölvu. Æskilegt er að
umsækjandi þekki TOK-bókhaldskerfi, hafi
góð tök á Word Perfect ritvinnslu og vélritun.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist fyrir 22. febrúar nk. í pósthólf
312, 222 Hafnarfirði, merktar: „Tölva".
Bókari
Framleiðslufyrirtæki óskar eftir að ráða
starfskraft til bókhaldsstarfa. Reynsla af
tölvubókhaldi skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í
síma 679595 milli kl. 9-12 til 20. febrúar nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Rekstrarstjóri
Óskum að ráða rekstrarstjóra til starfa hjá
deildaskiptu verslunar- og framleiðslufyrir-
tæki úti á landi.
Starfssvið: Yfirstjórnun þjónustukjarna. Jafn-
framt er viðkomandi framkvæmdastjóri eins
af dótturfyrirtækjum. Innkaup vöru og hrá-
efna. Starfsmannahald o.fl.
Við leitum að manni með rekstrar- og/eða
viðskiptamenntun. Reynsla af stjórnunar-
störfum æskileg, ákveðni og hæfni til skipu-
lagðra vinnubragða nauðsynleg. Starfið
krefst þess að viðkomandi hafi þjónustulund
og samstarfshæfni.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Rekstrarstjóri 635“ fyrir 22. febrúar nk.
Hagvangur hf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 813666
Róðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Knattspyrnufélag Reykjavíkur óskar eftir að
ráða forstöðumann. Starfið felst í að annast
daglegan rekstur félagsins og að hafa um-
sjón með mannvirkjum þess, þ.m.t. viðhaldi.
Leitað er að starfsmanni með rekstrarlega
þekkingu og reynslu í umsjón með fasteign-
um.
Umsóknum skal skila til formanns hússtjórn-
ar KR í KR-heimilinu, Frostaskjóli 2 í
Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn
2. mars nk.
Hússtjórn KR.
Gott sölustarf
Vlð leitum að hæfu sölufólki til þess að
kynna
Laura Star gufustraujárnið.
Kynningarnar fara fram á mörkuðum og í
heimahúsum. Hafir þú áhuga á því að starfa
í hressum félagsskap hjá traustu fyrirtæki,
þá vinsamlega sendu inn til auglýsingadeild-
ar Mbl. nafn, heimilisfang og símanúmer
merkt: „G -3422“ fyrir 25. febrúar.
Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Verkstjóri í umbroti
og útlitshönnun
Vegna stækkunar á Pressunni og breyttrar
vinnslu vantar okkur nú þegar vanan um-
brotsmann, sem einnig getur útlitshannað.
Við leitum að aðila með reynslu í Quark Ex-
press, sem er nægilega drífandi til að verk-
stýra vinnslueftirliti blaðsins.
Hafið samband við framkvæmdastjóra í síma
621313.
<
. KISILIÐJAN ?
V REYKJAHLÍÐ VIÐ MÝVATN
Framkvæmdastjóri
Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra.
Kísiliðjan starfrækir verksmiðju, sem framleiðir
síunar- og fylliefni úr kísilgúr, aðallega til út-
flutnings. Starfsmannafjöldi er 61. Afkoma
félagsins hefur verið góð og eiginfjárstaða er
mjög traust. Aðaleigendur Kísiliðjunnar eru
Ríkissjóður íslands (51%) og bandaríska fyrir-
tækið Celite Corporation (48,56%).
Starf framkvæmdastjóra er fjölþætt, en er
aðailega fólgið í stefnumörkun, áætlanagerð,
ásamt stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri.
Framkvæmdastjóri kemur fram fyrir hönd fé-
lagsins og gætir hagsmuna þess út á við.
Leitað er að hæfum manni, helst með reynslu
í fyrirtækjastjórnun, sem tilbúinn er að tak-
ast á við krefjandi ábyrgðar- og stjórnunar-
starf. Góð kunnátta í ensku er skilyrði.
Skriflegum umsóknum um starf fram-
kvæmdastjóra ásamt upplýsingum um
starfsferil og menntun, skal merkja stjórn
félagsins og senda til Kísiliðjunnar hf., 660
Reykjahlíð, fyrir 24. febrúar nk. Umsóknum
skal skila á íslensku og í enskri þýðingu.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Róbert B. Agnarsson, framkvæmdastjóri,
vs. 96-44190, hs. 96-44129.
Pétur Torfason, stjórnarformaður,
vs. 96-22543, hs. 96-22117.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og þeim svarað.
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sölumann til framtíðar-
starfa. Lögð er áhersla á dugmikinn og fram-
sækinn sölumann, fyrsta flokks þjónustu og
hagkvæmni í rekstri. Við leitum að einstaklingi
20-40 ára með reynslu af sölumennsku.
Skriflegum umsóknum er tilgreini aldur, mennt-
un og fyrri störf skal senda til Ragnars Guð-
mundssonar hf. fyrir föstudag 21. febrúar nk.
Ragnar Guðmundsson hf.
Skólavörðustíg 42,
pósthólf 1143, 121 Reykjavík.
© Ballogr/u=
Hjúkrunarfræðingur
Staða hjúkrunarstjóra á næturvakt er laus
nú þegar. Hlutastarf. Óskum að ráða hjúkr-
unarfræðinga til sumarafleysinga.
Sjúkraliðar
Óskum að ráða sjúkraliða á ýmsar vaktir nú
þegar og til sumarafleysinga.
Upplýsingar í síma 26222.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500, fax 686270
Fjölskyldudeild auglýsir:
Öll börn og unglingar þurfa örugga
fótfestu ílífinu.
Verkefni fyrir þig?
Fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar óskar eftir að komast í kynni við fjöl-
skyldur á höfuðborgarsvæðinu sem eru tilbúnar
að leggja sitt af mörkum til að skapa vegalaus-
um unglingum „venjulegt fjölskyldulíf".
Um er að ræða krefjandi en gefandi starf
þar sem flestir þeir kostir sem prýða góðar
sálir koma að gagni.
Nánari upplýsingar veita Regína Ásvalds-
dóttir, forstöðumaður vistunarsviðs, í síma
678500 og Vilmar Pétursson, deildarstjóri
unglingadeildar, í síma 625500.
Laus störf
Eftirtalin störf eru
laustil umsóknar:
1. Símavarsla og létt skrifstofustörf hjá inn-
flutningsfyrirtæki. Starf í 1 ár.
2. Afgreiðslustarf á vinsælum veitingastað.
Vaktavinna.
3. Ritarastarf. Tímabundið starf til 1. júní
eða 1. október 1992. Mjög góð íslensku-
kunnátta og reynsla af ritarastörfum skil-
yrði. Vinnutími frá kl. 9-13.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar
1992.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og rádningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustíg 1a - 101 Reykjavík - Sfrri 621355
"ir^^SEa*'^B*ŒW5»S**iraraB(^>ríWKfl7'í'5í5T'05!lKS'C