Morgunblaðið - 16.02.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1992
KNATTSPYRNA / ATVINNUMENNSKA
íslendingar hafa
þurft að víkja
fyrir Afríkubúum
ÞAÐ hefur lengi verið draumur
ungra knattspyrnumanna á ís-
landi að feta í fótspor Alberts
Guðmundssonar, Þórólfs
Becks og Ásgeirs Sigurvins-
sonar og gerast atvinnumenn
með frægum félögum í Evrópu.
Þegar best gekk á árum áður
voru um tuttugu íslenskir
landsliðsmenn að leika með
félagsliðum íV-Þýskalandi, x
Sviss, Frakklandi, Spáni, Hol-
landi, Belgíu og Skotlandi, en
nú eru landsliðsmennnirnir
aðeins sex. Guðni Bergsson,
Tottenham og Þorvaldur Ör-
lygsson, Nottingham Forest í
Englandi, GuðmundurTorfa-
son, St. Mirren í Skotlandi,
Arnór Guðjohnsen, Bordeaux í
Frakklandi, Sigurður Grétars-
son, Grasshopper í Sviss og
Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart í
Þýskaiandi.
Það eru ekki mörg ár síðan ís-
land var kallaður „ódýri mark-
aðurinn" í Evrópu og blöð í V-
Þýskalandi sögðu
SigmundurÓ. frá því að víkingar
- Steinarsson frá íslandi væru
búnir að gera innrás
á knattspyrnuvelli
landsins. Nú er aðeins einn íslend-
ingur eftir þar í landi að leika knatt-
spymu - síðasti móhíkaninn er
Eyjólfur Sverrisson, sem leikur með
Stuttgart. Asgeir Sigurvinsson sem
var maðurinn á bak við að Eyjólfur
gerðist l'eikmaður hjá félaginu, en
Asgeir er nú „yfirnjósnari" félags-
ins — sér um að fýlgjast með leik-
mönnum um allan heim. Leikmenn
sem geta komið félaginu að gagni.
Sér Asgeir nýja flóðbylgju knatt-
spymumanna frá íslandi flæða yfir
meginland Evrópu? „Nei, ég sé ekki
þá flóðbylgju fyrir mér. Nýjar flóð-
> gáttir hafa opnast - flóðgáttir í
Afríku, Austur-Evrópu og þá hafa
félögin í þýsku úrvalsdeildinni getað
fengið leikmenn ódýrt frá austur-
hluta landsins eftir að múrinn féll,“
sagði Ásgeir.
Afríkumenn í Evrópu
Mikill fjöldi Afríkumanna hefur
undanfarin ár komið til Evrópu og
nú leika 28 Afríkumenn í Þýska-
landi. Það hefði þótt saga til næsta
bæjar fyrir nokkrum árum. „Ástæð-
an fyrir þessari þróun er að knatt-
spymumenn og landslið frá Afríku
hafa staðið sig frábærlega í heims-
meistarakeppninni og er mönnum
_ enn í fersku minni framganga
1 Kamerúnmanna á Ítalíu 1990. Þeg-
ar Ghana varð heimsmeistari í 17
ára og yngri sl. sumar, voru nær
allir leikmenn liðsins keyptir til
Evrópu á einu bretti. Ég var stadd-
ur í Senegal á dögunum til að fylgj-
ast með meistarakeppni Afríku og
þar var varla hægt að þverfóta fyr-
ir mönnum sem komu frá félagslið-
um í Evrópu - allir í sama til-
gangi; að sjá út leikmenn sem þeir
gætu haft not fyrir. Menn vom
komnir þangað til að missa ekki
af lottóvinningnum.
Allar aðstæður knattspyrnu-
manna eru hrikalegar í Afríku. Þar
fer ekkert unglingastarf fram, held-
ur leika ungir strákar sér með
tuskuknetti á götum úti eða í húsa-
sundum. Mörg félög í álfunni hafa
ekki nema einn til tvo knetti til
umráða og ungir knattspymumenn
eiga ekki knattspymuskó. Þeir leika
jafnvel berfættir. Það er viss áhætta
og fá unga leikmenn frá Afríku til
að koma til Evrópu. Það em mikil
Rætt við Ásgeir Sigurvinsson um
möguleika íslenskra knattspyrnu-
manna á að gerast atvinnumenn
viðbrigði fyrir þá að byija að æfa
með stórum félögum og leikmenn-
imir fá hreinlega áfall. Það tekur
þá jafnvel fjögur ár að aðlaga sig
nýjum og breyttum aðstæðum.
Stuttgart gat til dæmis fengi Abedi
Pele, sem leikur með Marseille í
Frakklandi, fyrir smáaura fyrir
nokkmm áram. Það hefur tekið
hann á fjórða ár að vinna sér fast
sæti hjá Marseille," sagði Ásgeir.
Fylgist með leik-
mönnum á íslandi
Ásgeir segist hafa augun opin
fyrir íslenskum knattspymumönn-
um, þó að erfitt sé fyrir þá að kom-
ast að eins og stendur. Eins og
málin eru nú hjá Stuttgart er félag-
ið með tvo leikmenn sem sem em
frá löndum utan EB - Eyjólf og
Júgóslavann Dubajic. „Svo framar-
lega sem við höfum þá getum við
ekki gert atvinnumannasamning
við leikmenn utan EB.“
Við buðum Guðmundi Benedikts-
syni frá Akureyri áhugamanna-
samning í fyrra. Töldum rétt- að
byggja hann hægt og rólega upp
og gefa honum tækifæri til að leika
með unglingaliði okkar, sem hefur
verið meistari átta síðastliðin ár.
Hann valdi aðra leið og ég vona
að sú leið gangi upp hjá honum.
Rúnar Kristinsson úr KR var hjá
okkur síðastliðið haust og stóð sig
vel þrátt fyrir að hafa lítið leikið á
íslandi vegna meiðsla. Við gerðum
honum síðan grein fyrir því hvernig
staðan væri og hvaða möguleika
hann ætti til að komast að, þar sem
hann er leikmaður frá landi sem
er utan EB.
Það er ekkert kappsmál fyrir mig
gera atvinnumannasamninga við
góða leikmenn frá íslandi. Aftur á
móti vil ég aðstoða leikmenn og
bægja hættunni frá að þeir geri
samninga við félög - samninga sem
þeir eiga síðan erfitt með að losna
frá, þar sem þeir hafa skuldbundið
sig ákveðnum félögum,“ sagði Ás-
geir.
Stuttgart elur upp leikmenn
Ásgeir sagði að Stuttgart legði
mikið kapp á að fá unga leikmenn
til sín, sem félagið gæti mótað.
Leikmenn sem era ekki mikið eldri
en átján ára. „Við emm með hóp
góðra ungra leikmanna - átján til
tuttugu ára. Sex til átta þeirra hafa
æft og leika með aðalliðinu. Þessi
stefna er margra annarra, sem
kappkosta að kaupa sem flesta leik-
menn. Þessi uppbygging hefur
heppnast vel undanfarin ár hjá okk-
ur.
Við eram einnig með marga
sterka landsliðsmenn í Evrópu í
sigtinu - góða leikmenn, sem era
þó ekki á Ítalíulínunni. Það getur
ekkert félag keppt við hin fjársterku
félög á Ítalíu - ekki einu sinni
Bayem Miinchen, ríkasta félag
Þýskalands. Við þurfum að horfa á
eftir Matthias Sammers til Inter
Mílanó eftir þetta keppnistímabil
og er því ljóst að við þurfum ná
að púsla saman nýju öflugu liði
fyrir næsta keppnistímabil."
Starf „yf irnjósnara"
Hvernig kann Ásgeir við sig í
starfi „yfirnjósnara" hjá Stuttgart,
eftir að hafa verið atvinnuknatt-
spyrnumaður í átján ár. Ég kann
vel við mig í nýja starfmu og er
sjálfs míns herra. Ég stjórna vinnu-
tíma mínum sjálfur, en þarf ekki
að vera mættur til vinnu á ákveðn-
um tímum eins og þegar maður var
leikmaður. Starfíð er í mínum hönd-
um, en að sjálfsögðu funda ég af
og til með Dieter Höness, fram-
kvæmdastjóra Stuttgart, þjálfaran-
um Christoph Daum og aðstoðar-
þjálfaranum Lorenz-Gunther
Köstner, þar sem við förum yfir
ýmis atriði og leggjum ákveðnar
línur.
Ég fær mikið af ábendingum frá
hinum og þessum umboðsmönnum
víðs vegar um heim, sem benda á
góða leikmenn. Það er í mínum
verkahring að vinna úr þessum
gögnum og fara til að horfa á leik-
mennina sem bent er á. Ég er þá
á ferðinni um helgar, í miðri viku
og jafnvel heilu vikurnar. Lengsta
ferð mín hefur staðið yfir í þijár
vikur. Ef leikmennirnir eru athygl-
isverðir horfi ég á þá leika oftar
en einu sinni og þá verð ég að kynn-
ast þeim persónulega - finna út
hvort þeir komi til með að falla inn
í myndina hjá Stuttgart," sagði
Ásgeir, sem fór til dæmis til London
í vikunni til að fylgjast með enska
landsliðsmanninn Matthew Le
Tissier hjá Southampton leika gegn
Chelsea á Stamford Bridge.
Á milli þess sem ég er á ferðinni
er ég við vinnu á skrifstofu minni
á Neckar-leikvanginum, par sem
ég fer yfir ýmsar upplýsingar um
leikmenn sem ég hef séð leika og
flokka þær. Ég geymi þær upplýs-
Ásgeir Sigurvinsson á fullri ferð
frægðar sinnar í V-Þýskalandi
sem
Fækkun íslenskra
knattspymumanna
Undanfarin ár hafa íslenskum
knattspvrnumönnum, sem
leika í 1. deildarkeppninni á ís-
landi og í údöndum, fækkað. Á
árum áður voru hátt í þrjátíu ís-
lenskir leikmenn sem vora í at-
vinnumennsku eða léku með
áhugamannaliðum í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. Knattspyrnu-
menn frá Júgóslavíu og Tékkósló-
vakíu hafa komið í hópum til
landsins og leika á annan tug
útlendinga með liðum í 1. deild
og svipaður fjöldi með liðum í 2.
3. og 4. deild.
Tíu lið leika í 1. deildarkeppn-
inni. Hæglega væri hægt að kalla
saman útlendingana sem leika
með liðunum í eitt lið - þá væra
eftir níu lið skipuð íslendingum.
Fækkun er einnig í neðri deild-
um. Félög hafa hætt keppni eða
sameinast.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
með knöttinn þegar hann var á hátindi
einn besti knattspyrnumaður landsins.
ingar í möppum. Starfið er mjög
fjölbreytilegt og skemmtilegt.“
„Er byrjaður að hugsa
til heimferðar"
Ásgeir hefur verið í atvinnu-
knattspyrnunni síðan 1973, er hann
gerðist leikmaður með Standard
Liege í Belgíu. Er hann á heimleið?
„Ég hef lengi hugsað heim og hef
stefnt að því að koma heim með
fjölskylduna næsta ár, 1993, en þá
er ég búinn að vera tuttugu ár í
útlöndum. Við munum þá láta reyna
á það, hvað sem annað verður upp
á teningnum," sagði Ásgeir Sigur-
vinsson, sem er ekki laus við meiðsli
þó að hann sé hættur að leika knatt-
spyrnu. Hann er nú í meðhöndlun
hjá sjúkraþjálfara - hefur fengið
vott að briósklosi í baki.
( ! ' 1 " UltiJ...............