Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 4

Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 Atvinnuleysisdagar 28 þúsund fleiri í febrúar en á sama tíma 1991: Dregur úr atvinnu- leysi nema á höf- uðborgarsvæðinu SKRÁÐ atvinnuleysi á landsvísu í febrúar var 2,8% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði, samkvæmt yfirliti frá Vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytisins. Heldur dró úr atvinnuleysi á lands- byggðinni frá því í janúar síðastliðnum. Þá mældist að meðaltali 5,5% atvinnuleysi en í febrúar var það 3,8%. Á höfuðborgarsvæðinu jókst atvinnuleysi hins vegar um 28%. Þar mældist 2,1% atvinnuleysi í febrúar en var 1,6% í janúar. Hlutur höfuðborgarsvæðisins í heildar- atvinnuleysi í landinu hefur aukist úr 33% í 45% milli mánaða. Fjöldi skráðra atvinnuleysisdaga í febrúar jafngildir því að 3.466 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, samanborið við 4.030 í janúarmán- uði. Síðasta virka dag mánaðarins voru þó 4.200 manns á atvinnuleys- isskrá, þar af tæplega 2.000 á höf- uðborgarsvæðinu. Atvinnuleysisdögum fækkaði um rúmlega 12 þúsund frá því í jan- VEÐUR úar, úr 87 þúsund dögum niður í 75 þúsund daga, en fjölgaði um 28 þúsund daga miðað við febrúar 1991. í yfirliti Vinnumálaskrifstofu segir að þrátt fyrir nokkurn bata hvað atvinnuástand á landsbyggð- inni snertir verði atvinnustigið í heild að teljast óviðunandi miðað við árstíma, þar sem ýmsir lands- hlutar búi enn við 4-5% atvinnu- leysi og atvinnuleysið á landsvísu mælist nú sama hlutfall af mann- afla og í febrúar 1970. Á höfuðborgarsvæðinu voru skráðir 33.931 atvinnuleysisdagar í mánuðinum og voru að meðaltali 1.566 á atvinnuleysisskrá, þar af 1.006 karlar og 560 konur. Síðasta virka dag mánaðarins voru tæplega VEÐURHORFUR / DAG, 11. MARS YFIRLIT: Suðaustur af Jan Mayen er 970 mb lægð á leið norðaustur. Yfir Norður-Grænlandi er 1.020 mb hæð, Um 100 km vestnorðvestur af Garðskaga og um 200 km suðsuðaustur af Hornafirði eru smálægðir á leið suðaustur. I fyrramáliö myndast lægð á Grænlandshafi. SPA: Suðaustankaldi eða stínningskaldi og snjókoma á Suövesturlandi og síðar einnig suðaustanlands. Um landið norðanvert veröur úrkomu- Jauat, sums staðar nokkuð bjart og þar er útlit fyrir tatsvert frost. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðaustanátt og snjókoma eöa él um mik- inn hluta landsins, síst þó vestanlands. Talsvert frost um allt land. HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðanátt og snjókoma eða él um landið norð- anvert, en syðra léttir til. Frost á bilinu 10-17 stig. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað * r * * r r * r , Slydda Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V t V Skúrír Slydduél Él * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstíg. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig Súld Þoka V Btig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Ágæt færð er í nágrenni Reykjavíkur austur um Hellisheiði og Þrengsli um Suðurland og með ströndinni til Austfjarða, en víða er háika á þessu svæði. Á Austfjörðum er ágæt færð nema Oddskarð, Fjarðarheiði og Vatnsskarð eystra eru aðeins fær jeppum og stórum bilum. Fært er fyrir Hvalfjörð, um Borgarfjörð og Snæfellsnes, nema Kerlingarskarð er aðeins fært stórum bílum og jeppum. Fært er vestur í Dali um Heydal og Bröttubrekku en aðeins er fært stórum bílum og jeppum fyrir Gils- fjörð til Reykhóla. Fært er mílli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar en Kleífa- heiói og Hálfdán eru aðeins fær jeppum og stórum bílum. Fært er norð- ur yfir Holtavörðuheiði, til Hólmavíkur og þaðan um Steingrímsfjarðar- heiði til (safjarðar og Bolungarvíkur. Frá Isafirði er fært til Súgandafjarð- ar en Breiðadalsheiði er ófær. Fært er um Norðurland til Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Akureyrar og Húsavíkur og þaðan með ströndinni til Vopna- fjarðar. Möðrudalsöræfi eru jeppafær. Vegagerðin VEÐUR VÍÐA kl. 12.00 í gær hltl UM HEIM að ísl. tíma veftur Akureyri +7 skýjað Reykjavík +2 léttskýjað Bergen vantar Helsinki vantar Kaupmannahöfn vantar Narssarssuaq +14 alskýjað Nuuk +12 snjókoma Ósld vantar Stokkhólmur vantar Þórshöfn vantar Algarve 18 heiðskírt Amsterdam 11 léttskýjað Barcelona 12 mlstur Berlfn 12 heiðskírt Chicago +6 snjókoma Feneyjar 11 þokumóða Frankfurt 11 mlstur Glasgow 4 skórásið. klst. Hamborg 10 mistur London 11 rign. á síð. klst. LosAngeles 12 skýjað Lúxemborg varttar Madríd 12 léttskýjað Malaga 17 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Montreal 6 rign. á síð. klst. New York 6 þokumóða Orlando 18 alskýjað París 12 hálfskýjað Madeira 19 léttskýjað Róm 13 þokumóða Vín 11 heíðskírt Washington 13 alskýjað Winnipeg +17 heiðskírt 2.000 á atvinnuleysisskrá á höfuð- borgarsvæðinu. í mánuðinum mældist að meðaltali 2,1% atvinnu- leysi. í janúar sl. voru að meðaltali 1.219 á atvinnuleysisskrá og mæld- ist þá að meðaltali 1,6% atvinnu- leysi, en í febrúar 1991 voru að meðaltali 664 á atvinnuleysisskrá. Mest atvinnuleysi var skráð á Suðurnesjum, 5,3% en var í janúar 7%. Þar voru 385 manns á atvinnu- leysisskrá í mánuðinum, samanbor- ið við 519 manns í janúar. Á Norð- urlandi eystra var að meðaltali 4,6% atvinnuleysi en var í janúar 6,5%. Á Norðurlandi vestra var að meðal- tali 4,5% atvinnuleysi í febrúar en 6,9% í janúar. Á Suðurlandi var að meðaltali 4% atvinnuleysi í febrúar en 6,4% í janúar. Á Austurlandi var að meðaltali 3,7% atvinnuleysi í febrúar en 5,6% í janúar. Á Vestur- landi var að meðaltali 2,3% atvinnu- leysi í febrúar en 3,4% í janúar. Minnst atvinnuleysi var á Vestfjörð- um, eða að meðaltali 0,5% í febrúar en var í janúar 0,7%. ______________________________________L Einar Oddur Kristjánsson formaður VSÍ: Gjald fyrir botnfisk- kvóta er íþyngjandi VINNUVEITENDUR lögðu fram sérstakt minnisblað á fundi sínum með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra síðastliðinn laugardag, þar sem segir að vinnuveit- endur leggji megin áherslu á að rekstrarskilyrði fyrirtækja þurfi að batna. „Sérstök athygli er vakin á nýjum launaskatti sem er 0,2% á öll laun, sérstöku vörugjaldi á allan inn- og útflutning og gífur lega hækkun á ýmsum þjónustugjöldum á sjávarútveg og samgöng ur. Má þar nefna gjaldtöku fyrir botnfiskkvóta," segir m.a. á minnis blaði VSI til ríkissljórnarinnar. Einar Oddur Kristjánsson, for- maður VSÍ var í gær spurður hvort skilja mætti setninguna um gjald- töku fyrir botnfiskkvóta á þann veg að vinnuveitendur gerðu óbreytta stjórnun fiskveiða að skilyrði fyrir kjarasamningum: „Vinnuveitendur eru með þessu, sem ég vil ekki nefna skilyrði, að benda ríkisstjórn- inni á í mikilli vinsemd að það er skilningur Vinnuveitendasam- bandsins að grunnpunktur efna- hagsstjórnar ríkisstjórnarinnar sé óbreytt gengi. Óbreytt gengi getur hins vegar aldrei staðist, ef það er stefna ríkisstjórnarinnar að hægri höndin viti ekki hvað sú vinstri gerir. Genginu verður ekki haldið óbreyttu um leið og framleiðslunni verður íþyngt og samkeppnishæfni hennar skert,“ sagði Einar Oddur. Hann sagði að þetta kæmi stjórn fiskveiða í sjálfu sér ekkert við. Gjaldtaka fyrir botnfiskveiðar væri bara íþyngjandi aðgerð sem yki greiðslubyrði aðalútflutnings- greinarinnar sem þegar væri í miklum vanda stödd. Aðspurðu;' hvort full samstaða væri um þett; plagg innan VSÍ sagði Einar Odd ur: „Að sjálfsögðu er full samstaða um þetta atriði.“ Einar Oddur var spurður hvað félagsmenn Félags íslenskra iðn- rekenda innan VSÍ segðu um þetta tiltekna atriði um gjaldtöku fyrir botnfiskkvóta: „Það sést svart á hvítu á því sem komið hefur frá FÍI um veiðileyfagjöld að Félag íslenskra iðnrekenda hefur aldrei lagt til að hér yrðu lögð á veiði- leyfagjöld, öðru vísi en gengið yrði fellt,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson formaður VSÍ. Hafrannsóknastofnun og Háskólinn á Akureyri: Tveir starfsmenn ráðnir til að undirbúa þorskeldi ÞAU Anette Jarl Jörgensen og Valdimar Gunnarsson hafa verið ráðin til að annast undirbúning að tilraunaframleiðslu á þorskseiðum í Eyja- firði á vegum Hafrannsóknastofnunar og Háskólans á Akureyri. Þau munu að likindum hefja störf með vorinu og er gert ráð fyrir að undir- búningurinn standi út þetta ár og ef niðurstöður verða jákvæðar má búast við að hafin verði framleiðsla á þorskseiðum á næsta ári. Anette Jarl Jörgensen er sjávarlíf- Eyjafjörður þykir hafa ýmsa kosti fræðingur frá Háskólanum í Tromsö, en Valdimar Gunnarsson er sjávarút- vegsfræðingur frá sama skóla. Þau munu koma til starfa í vor, en heim- ild er fyrir þessum stöðum út þetta ár, að sögn Steingríms Jónssonar, forstöðumanns Hafrannsóknastofn- unar á Akureyri. Verði niðurstöður rannsókna þeirra góðar má búast við að framhald verði á þessari tilraun, sem gerð er í samvinnu Hafrann- sóknastofnunar og Háskólans á Ak- ureyri. að því er varðar hafbeit á þorski og hefur verið rætt um þetta mál um nokkurt skeið, en með ráðningu tveggja starfsmanna verður því hrint í framkvæmd og nauðsynlegar undir- búningsrannsóknir hafnar. Samhliða þessu verkefni munu starfsmenn Hafrannsóknastofnunar stunda rannsóknir á klaki og hrygningu þorsks í fiskeldistöð stofnunarinnar í Grindavík auk þess sem gerð verð- ur rannsókn á vistfræði Eyjafjarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.