Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 12

Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 Drengjakór Laugarnessóknar ________Tónlist___________ Ragnar Bjömsson Ronald Vilhjálmur Turner hefur sannarlega byijað þarft verk með því að koma á fót drengjakór við Laugarneskirkju og svo virðist að hér verði ekki um dægurflugu að ræða því starfið er þegar orðið umfangsmikið og byggl. upp á reynslu erlendra fyrirmynda og þá með framtíðina í huga. En að baki drengjunum sem sungu tónleikinn á sunnudaginn í Langholtskirkju mun vera hópur yngri drengja í þjálfun sem taka við þegar sópran- og altraddir drengjanna hafa breyst í tenóra, baritóna eða bassa. Það hlýtur að vera mikið vanda- verk að vinna með barnaraddir, og þá ekki síst drengja. í þeim fræg- asta drengjakór allra tíma, Vínar- drengjakórnum, fór þjálfunin fram í tónmenntum almennt og miklar kröfur gerðar til drengjanna á þeim sviðum, enda komu margir merk- ustu tónlistarmenn Austurríkis úr þeirri frægu uppeldisstofnun. Svokölluð radd- eða söngtækni kemur að öllum líkindum af sjálfu sér þegar örugg þekking á innviðum verkefnisins liggur fyrir. Börn gera sönginn ekki að vandamáli, þau bara syngja. Það kemur og heim við það sem þekktur söngkennari þýskur sagði eitt sinn við mig, en sá var með námskeið fyrir söngvara um víða Evrópu, allt frá Ítalíu til Norðurlanda, að mikill munur væri á að kenna Suðurlandabúum eða Mið-Evrópu- og Norðurlandabúum söng. Suðurlandabúinn væri líkari barninu, laus við hömlur og feimni og syngi eðlilega og rétt án þess að vita af því. Öðru máli gegndi hjá íbúunum norðan Alpa, en þar yrðu hömlur og feimni ríkjandi ekki síðar en með kynþroskaaldri og því þyrftu þeir miklu frekar að búa til í sig rödd, en kannski eru það sama og „tricksin“ sem sú ágæta söng- kona og virðulega prestsfrú, Ágústa Ágústsdóttir, minnist á í feimnis- lausri grein sinni í Morgunblaðinu nýlega. Munurinn eini sá að „tricks- in“ hennar gerast fyrir sunnan Alpa en þýska söngkennarans norðan Alpa. En úr því komið er inn á grein frú Ágústu er ekki forsvaranlegt annað en leiðrétta sögubrengl frú- arinnar. Hún segir: „Með Richard Wagner (f. 1813) má tala um bylt- ingu í sönglist. Áður höfðu Bellini, Verdi, Puccini og Mascagni samið dramatískustu óperurnar." Verdi er fæddur sama ár og Wagner, Puccini er fæddur tæpum 50 árum eftir Wagner og Mascagni ennþá síðar. Bellini er að vísu nokkrum Drengjakór Laugarneskirkju. árum eldri en Wagner en sögulega séð er hann fyrst og fremst bendlað- ur við aðra stefnu en frúin ætlar honum. Mér þykir leitt að þurfa að leið- rétta þetta hér, en svona villur geta gert aðra hluti ótrúverða. Drengjakór Laugamessóknar var sérlega ánægjulegt á að hlýða og verður spennandi að fylgja fram- vindu hans. Það sem mér fannst helst að var tekstaframburður sem oft var óskýr og gæti hafa valdið ónákvæmni í „intonation" á stund- um, og um leið óhreinum hljómum. Mér segir svo hugur að ef drengirn- ir einbeita sér enn betur að fram- burðinum og gleypa ekki endinn á orðinu að þá muni söngurinn verða mun hreinni. En fararheilla er þeim óskað til Bandaríkjanna um næstu helgi. David Knowles aðstoðaði á orgel og píanó, sömuleiðis Guðrún Sigríð- ur Birgisdóttir á flautu og Kristján Þ. Stephensen á óbó. Ciurlionis-strengjakvartettinn. Frá vinstri: Jonas Tankevicius, Saul- ius Licius og Aloyzas Grizas. Á myndina vantar Rimantas Siugdinis, sem var veikur er myndin var tekin. Kammertónlist Grettir í Garðabæ __________Tónlist_______________ Jón Ásgeirsson Fjórðu tónleikar Tónlistarfélags- ins í Reykjavík voru haldnir að venju í íslensku óperunni og komu þar fram gestir frá Litháen, strengj- akvartett, sem nefnir sig eftir ein- um frægasta málara og tónsmið Litháa, Mikalojus Konstantinas Ciurlionis (d.1911). Ciurlionis- kvartettinn hefur starfað frá 1968, er þeir félagar, sem nemendur við Tónlistarháskólann í Litháen, tóku að leika saman. Þeir hafa notið leið- sagnar frægra kammertónlistar- manna, eins og t.d. Dmitri Shebal- ins, lágfiðluleikara í Borodin- kvart- ettinum og fíðluleikarans Tatrai, er lék með Búdapest-kvartettinum. Þama virðist ekki hafa verið flanað að neinu, em vandað til alls undir- búnings. Á efnisskrá Ciurlionis-kvartetts- ins voru þijú verk; g-moll passa- caille eftir Handel, í útfærslu ein- hvers Aslamasians, strengjakvart- ett í d-moll, Op.34, eftir Dvorák og F-dúr strengjakvartettin eftir Ra- vel. Passacaille í g-moll, sem er reyndar í ehaconne-formi, var nokk- uð mikið umsnúin af hendi Aslam- asians og því í reynd skemmd á því verki sem Handel samdi árið 1720. í efnisskrá er nafn tónskáldsins rit- að Hándel, en hann sjálfur mun, sem enskur borgari, hafa ritað nafn sitt Handel (ekki með tvípunkti) og jafnvel Hendel, er hann var á Ital- íu. Með tvípunkti er farið eftir þýska rithættinum, sem vissulega var upprunalegi rithátturinn á föður- nafni hans. Hvað sem þessu líður, þá gerir minna til hvernig nafn hans er ritað en skiptir hins vegar nokkru, að standa fyrir því að flytja slíka brenglun á jafn ágætu verki, svo sem smekklaus umritun Aslam- asians er. Það var ekki fyrr en félagamir í Ciurlionis-kvartettinum tóku að leika d-moll strengjakvartettinn eft- ir Dvorák, að þeir sýndu virkileg kammermúsiktilþrif og þá sérstak- lega í Adagio-þættinum, sem var frábærlega vel leikinn. í kvartettin- um eftir Dvorák mátti Víða heyra stórskemmtilegan leik, bæði í sam- spili, mótun tónhendinga, þar sem spenna og slökun var ekki aðeins útfærð í styrkleikabreytingum, heldur og í vandlega samvirkum hraðabreytinum. Þessi leikmáti fé- laganna blómstraði blátt áfram í F-dúr kvartett Ravels, sem fékk á sig myndrænt form, í anda impress- ionismans og er víst að slík túlkun og leikur með blæbrigði, sem þar gat að heyra, er ekki hversdags viðburður og ekki á margra færi að leika eftir með jafn miklum glæsibrag. Með gagnrýni í blaðinu í gær um „Baltneska tónlist" birtist röng mynd. Er beðist velvirðing- ar á mistökunum. Leiklist Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Leikfélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ sýnir söngleikinn um Gretti. Höfundar: Egill Ólafsson, Ólafur Haukur Símonarson, Þórarinn Eldjárn. Leikstjóri: Sigurþór Albert Heimisson. Söngstjóri: Sigurður Halldórs- son. Leikmynd: Ólöf Björnsdóttir, Margrét Perla. Söngleikurinn um Gretti, sem sló svo rækilega í gegn í Austurbæj- arbíói fyrir rúmum áratug, á enn vinsældum að fagna og þá einkum meðal yngra fólks. Ekki er til dæm- is langt síðan að Leikfélag Keflavík- ur færði hann upp á sitt svið, sömu- leiðis Leikfélag Menntaskólans á Akureyri og nú er röðin komin að Leikfélagi Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Eðlilega útheimtir þetta verk sönghæft fólk og stundum getur verið erfítt að finna fólk sem bæði getur sungið og leikið. í þess- ari sýningu er til dæmis söngurinn oft prýðilegur en leikur allur í slak- ara lagi, þó með undantekningum. Söguna um Gretti og baráttu hans við Glám þekkja sennilega flestir framhaldsskólanemendur og það ætti því að vera áhugavert fyr- ir.þá að velta því fyrir sér hvar Gretti nútfmans væri að finna og hver væri í hlutverki Gláms. Upp- haflega var Grettir söngleiksins búsettur í Breiðholti í stöðugri bar- áttu við stofnanir samfélagsins líkt og nafni hans forðum sem var and- félagslegur í meira lagi. Garðbæ- ingar hafa staðfært textann nokkuð og þeirra Grettir býr því í Garðabæ. Eins er textinn færður nær okkur í tíma, til dæmis er talað um menn- ingarfulltrúann í London og fall Sovét. Umgjörð leiksins er afar einföld, svört tjöld í bakgrunni og svartir mistórir kassar á sviðinu þjónuðu margskonar hlutverkum en stund- um fannst mér leikararnir full stressaðir við að koma þeim á sína staði. Almar Guðmundsson var í hlut- verkum Grettis og Gláms og stóð sig ágætlega einkum sem Glámur. Það var helst að hreyfingar hans væru full einhæfar. Foreldra Grett- is léku þau Ólafur Einar Rúnarsson og Kristjana Bjarnþórsdóttir. Ólafi tókst einna best upp í því að sam- eina líflegan ieik og ágætan og kraftmikinn söng. Hann naut sín líka afar vel í apagervi pabbans. Kristjönu skorti aftur stundum líf- lega framkomu á sviðinu. Hjalti Már Björnsson lék Atla bróður Grettis með stakri piýði og hann er góður söngvari en þegar hann var ekki að syngja var hann full VAR EINHVER A f ) m Hjá okkur færðu dýnur efftir máli í öllum verðflokkum — aðeins örlítið ódýrari 20kg/m3 27 kg/m3 Fyrirlitla notkuri með áklæði eftir þín Stætðir í cm VERÐ VERÐ VERÐ 70 x 200 x 9 3.415,- 4.788,- 5.985,- 70 x 200 x 1 2 4.553,- 6.384,- 7.980,- 90 x 200 x 1 2 5.854,- 8.208,- 10.260,- 1 20 x 200 x 1 2 7.805,- 10.944,- 13.680,- 1 60 x 200 x 1 2 1 0.406,- 14.592,- 18.240,- LANDSÞEKKT DÝNUÞJÓNUSTA: Við gerum meira en að framleiða fullunnar dýnur. Við lagfærum og endurbætum gamlar svampdýnur, skiptum um áklæði og veitum ráðleggingar um val og frágang á dýnum sem henta við mismunandi aðstæður. Síma- og póstkröfuþjónusta. Uppgefið verð er fyrir óklæddar svampdýnur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.