Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 13

Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 13 Endurnota, endur- vinna og nota minna eftir Garðar Guðjónsson í grein minni um alþjóðadag neyt- endaréttar sem birtist í Morgunblað- inu, fjallaði ég um sjö lágmarkskröf- ur neytenda. 15. mars er að þessu sinni helgaður þeirri sjöundu, sem íjallar um umhverfi. í henni er þó ekki aðeins falin krafa. í henni felst einnig ábyrgð og hún kallar á frum- kvæði neytenda. Lykilorð í þessu sambandi eru að endurnota, endur- vinna og - ekki síst - nota minna. íslendingar hafa nú um skeið fengið að venjast umflöllun fjöl- miðla um hin ýmsu umhverfisvanda- mál sem steðja að; eyðingu ós- onlagsins, gróðurhúsaáhrif, mengun andrúmslofts, vatns og jarðvegs, rányrkju auðlinda, heilbrigðisvanda- mál. Öll þessi vandamál má rekja til daglegra umsvifa mannskepnunnar og þó einkum þess litla minnihluta mannanna sem býr við allsnægtir og stendur fyrir stærstum hluta þeirrar sóunar sem einkennir nútím- ann. Við íslendingar tilheyrum vissulega þessum litla minnihluta sem ógnar tilveru sinni og annarra lífvera með skeytingarleysi sínu og ofneyslu. Það er stundum sagt að beina þurfi mannkyninu inn á braut sjálf- bærrar þróunar, sem eigi að tryggja hina sameiginlegu framtíð okkar allra. Þetta gerist varla nema íbúar ofneyslusamfélaganna geri þessi orð að sínum: Endurnota, endurvinna og nota minna. Að endurnota íslenskt neyslusamfélag einkenn- ist mjög af sóun hvers konar. Hlut- ir eldast hratt og hafna gjarna á ruslahaugum fyrir aldur fram. Við látum stjórnast af ríflegri nýjunga- girni. Það er of algengt að við hend- um hlutum fremur en að láta lappa upp á þá. Einnota ílát og áhöld eru mikið notuð í stað hluta sem nota má aftur og aftur. Að endurvinna Endurvinnsla er á frumstigi á íslandi, en það er sjálfsagt að nýta sér þá möguleika sem fyrir hendi eru. íbúar höfuðborgarsvæðisins eiga þess kost að skila ýmsu hrá- efni og ýmsum úrgangi fram hjá ruslafötunni. Skila má timbri, pappa, pappír og málmum á gáma- stöðvar. Umbúðum um gosdrykki og áfengi er sjálfsagt að skila til Endurvinnslunnar. Spilliefni fara að sjálfsögðu ekki annað en á gáma- stöðvar. Safnhaugar ættu að vera sjálfsagt mál á flestum heimilum. Ekki á að þurfa að aka með garðaúr- gang fram og aftur um borgina. Bara með þessum einföldu aðgerð- um má draga verulega úr því sorpi sem áður fór í einn haug og nýttist engum. Vonandi verður þess ekki lengi að bíða að sveitarfélögin á landsbyggðinni sjái sóma sinn í að færa þessi mál í betra horf. Að nota minna Þetta er kannski það stig aðgerð- anna sem skiptir mestu máli og getur átt við svo fjöldamargt. Þetta getur þýtt að nota minna þvotta- efni, að nota einkabílinn minna, að Garðar Guðjónsson „Við íslendingar til- heyrum vissulega þess- um litla minnihluta sem ógnar tilveru sinni og annarra lífvera með skeytingarleysi sínu og ofneyslu.“ nota minni orku, að nota minna vatn, að draga úr umbúðanotkun- inni, að draga úr efnanotkuninni á heimilinu og í tengslum við bílinn, að nota minna yfirhöfuð. Stundum er reyndar örðugt að sjá muninn á því að endurnota og að nota minna. Við munum komast að því að álagið á pyngjuna minnkar við allt þetta og væntanlega skánar sam- viskan um leið. Hér er ekki verið að mælast til þess að almenningur hverfi aftur til fortíðar að neinu' marki eða að teknir verði upp lífs- hættir sem blómabörnum varð tíð- rætt um á sinni tíð. Mikilvægast er að hver og einn setji neyslu sína og lífshætti í samhengi við umhverfið. Að baki alls sem við neytum býr notkun auðlinda, stundum rányrkja. Við alla framleiðslu er notuð orka og hún ekki alltaf af hreinasta tagi. Framleiðslu neysluvara fylgir gjarna mengun vatns, lofts eða jarð- vegs eða alls þessa í senn. Flutningur neysluvarnings heims- hornanna á milli tekur sinn toll. Jafnvel smæstu umsvif okkar valda umhverfisspjöllum. Ábyrgir neyt- endur setja lífshætti sína og neyslu í þetta samhengi og aðhafast í sam- ræmi við það. Með þessu er þó ekki sagt að ábyrgðin sé eingöngu neyt- enda. Forráðamenn sveitarfélaga og fyrirtækja verða líka að taka tillit til umhverfisins í sínum rekstri. Höfundur er ritstjóri Neytendnblnðsins og upplýsingnfulltrúi Neytendnsamtaknnnn. Ný kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur senn tilbúin: Verður sýnd á kvikmynda- hátíðinni í Cannes í maí KVIKMYND Kristínar Jóhannesdóttur, Svo á jörðu sem á hinuii, sem fjallar uni það þegar franska vísindaskipið „Pourquoi-pas?“ strand- aði hér við land árið 1936, verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Can- nes í Frakklandi í maímánuði næstkomandi. Að sögn Kristínar er unnið að lokafrágangi myndarinnar hún en var valin sem framlag íslendinga til Norræna kvikinyndaverkefnisins 1991. Grettir; alls staðar á slqön. Alm- ar Guðmundsson í hlutverki Grettis. stífur á sviðinu. Kannski má skrifa þetta á reikning leikstjórans, hann hefði mátt brýna það betur fyrir leikurunum að halda alltaf einbeit- ingunni og vera með í leiknum þrátt fyrir að þeir séu ekki beinlínis þátt- takendur. Þetta var það sem bagaði kórinn talsvert, því milli söngatriða missti hann alveg einbeitinguna og það sem fram fór á sviðinu virtist ekkert koma honum við, frekar fólkið í salnum. Reyndar verð ég að geta þess að þetta á alls ekki við alla því Fanney Dröfn Guð- mundsdóttir sem lék líka Hrefnu Víkings og skólástjórann var full af lífi og fylgdist með allan tímann og það gerði áhugaleysi hinna í kórnum kannski enn meira áber- andi. Ég sá aðra sýningu og kannski hefur spennufall eftir frumsýningu vaidið því að sýningin var svolítið hæg en sönglögin eru skemmtileg og lífleg og sá hluti sýningarinnar var prýðilegur. Ég er heldur ekki að krefjast stjörnuleiks af óreynd- um leikurum en þegar næg leik- gleði er til staðar bætir hún margt upp, bara að njóta þess að vera á sviðinu. Að sögn Kristínar verður kvik- mynd hennar ein af fimm Norræn- um kvikmyndum sem sýndar verða í Cannes. Hún segir að ekki verði byrjað að setja myndina í almennar sýningar fyrr en seinni hluta sum- ars. „Það er alveg vonlaust að sýna kvikmyndir hér á landi á vorin og því stefnum við að því að setja myndina í sýningar hér í lok júlí eða bytjum ágúst,“ segir Kristín. Kvikmyndin fjallar, sem fyrr seg- ir, um strand franska vísindaskips- ins „Pourquoi-pas?“. „Myndin segir frá aðdraganda og afleiðingum slyssins og gerist á strandstað á Straumfirði á Mýrum. Það er ung stúlka sem býr á bæ þarna og hún rifjar upp atburði frá fjórtándu öld þegar bölvun var sett á staðinn. Einnig er atburðarrás á skipinu sjálfu tengd við söguþráðinn," segir Kristín. Meðal íslenskra leikara, sem fara með aðalhlutverk í kvikmyndinni, eru Tinna Gunnlaugsdóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Valdimar Fly- ering, Helgi Skúlason og Sigríður Hagalín. Auk þess fara frönsku leikarinir Pierre Vaneck, Christoph Pinon og Christian Charmetant einnig með aðalhlutverk. Kristín segir gerð kvikmyndarinnar hafa tekist mjög vel og fólk sé ánægt með niðurstöður. „Þetta var mjög erfitt og viðamikið verk og áhættu- þættir voru gífurlegir en enga að síður hefur gerð myndarinnar tekist vonum framar," segir hún. UM URVAL AF DYNUM? vali og með frágangi eftir þínu höfði. Hér eru nokkur dæmi um verð á óklæddum svampdýnum: 40 kg/m3 Mjög mjúkur svampur Eggjabakkadýna Heilsuyfirdýna, loftræstir og einangrar. Einstök fjöðrun // VERÐ VERÐ BREIDD VERÐ 7.371,- 75 cm 4.830,- 9.828,- 1 1.410,- 80 cm 5.152,- 12.636,- 14.670,- 90 cm 5.796,- 16.848,- 1 9.560,- 110 cm 7.084,- 22.464,- 26.080,- 1 60 cm 10.304,- Við útbúum að sjálfsögðu dýnuver og klæðum með áklæði af lager eða tillögðu efni. Bjóðum einnig upp á hundruð mismunandi áklæða með pöntunarþjónustu okkar. LIHU INN OG KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ. ellc •ess LYSTADLIN-SNÆLAN D hf Skútuvogi 11, símar 814655 og 685588. Sendurn í póstkröfu um land allt Kork*o*Plast Veggkork í 8 gerðum. Ávallt til á lager Sænsk gædavara KORK-gólfflísar með vinyl-plast-éferð Kork*o*Plast: í 10 gerðum t Aörar korRvörutegundir á lager; Undiríagskork í þremur þykktum Korkvélapakkningar i tveimur þykktum Gutubaðstofukork Voggtöflu-korkplötur i þremur þykktum Kork-parkett venjulegt, i tveimur þykktum Einkaumboð á íslandi: Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 • Reykiavík • Sími 38640 FJAÐRAGORMAR ÍÝMSABÍLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.