Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 16

Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Lýsi hf. hafa fengið alþjóðlega „vottun“: Vottimin verður enn frekari lyftístöng fyrir Sölumiðstöðina - segir Friðrik Pálsson forstjóri SH SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna og Lýsi hf. fengu fyrir skömmu svokallaða „vottun“ á starfsemi fyrirtækjanna samkvæmt alþjóðastöðlum. Fyrirtæki verða að uppfylla mjög strangar kröfur um alla starfsemi til að fá slíka vottun. Friðrik Pálsson forstjóri SH og Ágúst Einarsson forstjóri Lýsis hf. sögðu í samtali við Morgunblaðið að þetta yrði til þess að fyrirtækin yrðu mun sam- keppnishæfari á markaði erlendis. Þá voru þeir sammála um, að þótt búast mætti við aukinni sölu fyrirtækjanna í kjölfarið væri hitt ekki síður mikils vert hversu betri fyrirtækin væru og allt starf þeirra skilvirkara, eftir að kröfur fyrir vottun voru uppfyllt- ar. Æ fleiri fyrirtæki erlendis vinna nú að því að ná slíkum staðli. „Sú vinna, sem við urðum að inna af hendi til að Sölumiðstöðin næði þessum stöðlum, jafnaðist á við viðamikið námskeið fyrir allt fyrirtækið. Hún hefur hins vegar tvímælalaust borgað sig og á eft- ir að vera enn frekari lyftistöng fyrir fyrirtækið í framtíðinni og mjög mikilvæg í sölumálum," sagði Friðrik Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvar ■ hraðfrystihús- anna. Friðrik sagði að vottun væri að ryðja sér hratt til rúms erlend- is og í sumum tilfellum væri hún skilyrði þess að viðskiptasamning- ar næðust. Aukin samkeppni með opnun innri markaðar EB í byijun næsta árs ýtti á fyrirtæki að upp- fylla ströngustu kröfur. Þá gerðu strangari reglur Evrópulandanna um skaðsemisábyrgð það einnig að verkum, að fyrirtæki í mat- vælaiðnaði vildu geta sýnt fram á, að þau hefðu gert allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja að vara þeirra og þjónusta væri sem best. Hann kvaðst til dæmis hafa orðið var við þetta sjónarmið hjá þeim kaupendum SH erlendis, sem keyptu matvæli í mötuneyti sjúkrastofnana. „Þessir staðlar byggjast á því að hver einasti hlekkur í starfsem- inni verður að standast strangar kröfur,“ sagði Friðrik Pálsson. „Við urðum að kortleggja ná- kvæmlega starf hvers manns í fyrirtækinu og skrá verklagið. Þá varð að gæta þess vel að allir snertifletir milli deilda væru í lagi, svo fyrirtækið gæti veitt sem allra besta þjónustu. Þetta var mjög mikil en skemmtileg vinna.“ Þó yfirleitt taki 2-3 ár að koma rekstri fyrirtækja í það horf að vottun fáist, þá stóðst SH prófið eftir aðeins 8 mánaða vinnu. „Það getum við þakkað miklu starfí að gæða- og skipulagsmálum undan- farin ár,“ sagði Friðrik. „í síðustu viku komu hingað tveir starfs- menn breska ráðgjafafyrirtækis- ins British Standard Institute. Fyrirtækið og allir starfsmenn þess þurftu í raun að gangast undir mjög strangt próf þessa daga og hver hlekkur varð að standast ýtrustu kröfur. Að því loknu kváðu Bretarnir upp þann úrskurð að SH fengi vottun þess að fyrirtækið uppfyllti allar kröfur sem þessir aiþjóðlegu staðlar setja.“ Friðrik sagði að hann hefði þegar orðið var við það hjá kaup- endum erlendis að þeir væru ánægðir með þennan árangur SH. „Viðskiptavinir okkar erlendis eru sumir með slíka vottun og enn aðrir vinna að því að standast staðla. Bretamir standa fremstir í þessu og þar hafa um fímmtán þúsund fyrirtæki fengið vottun. Þjóðveijar fylgja fast á eftir og frá Danmörku berast umsóknir frá tveimur fyrirtækjum í hverri viku. Þá eru fyrirtæki í Bandaríkj- unum í auknum mæli farin að leita eftir vottun, til að eiga greið- ari aðgang að Evrópumarkaði. Það á áreiðanlega eftir að hafa keðjuverkandi áhrif innan Banda- ríkjanna, því framleiðsiu- og út- flutningsfyrirtækin gera smám saman auknar kröfur til fyrirtækj- anna, sem sjá þeim fyrir hráefni innanlands. Eg er þess sjálfur fullviss að staða Sölumiðstöðvar- innar styrkist við það að vottunin fékkst, en að auki er fyrirtækið sjálft betra en áður og starfið markvissara. Þar sem hvert starf og sú ábyrgð sem því fylgir er skilgreint svo nákvæmlega þá er minni hætta á mistökum og óvæntum uppákomum, sem geta truflað reksturinn." Stórkostlegt tækifæri í harðri samkeppni Friðrik sagði að fyrirtækjum væri oft boðin ýmiss konar ráð- gjöf, en sú ráðgjöf, sem fylgdi úttekt sem þessari á fyrirtæki, væri vafalaust með því hagkvæm- asta sem byðist. „Það er farið yfír hvert starf, hvernig menn vinna það, og hvaða samskipti þeir eiga við aðra starfsmenn. Sumir stjórnendur fyrirtækja líta á það sem hömlur á starfsemi að þeir skuli verða að uppfylla svo nákvæmar og miklar kröfur. Ég lít hins vegar á þetta sem stór- kostlegt tækifæri í harðri sam- keppni og það tækifæri kemur í beinu framhaldi af vakningu í neytendamálum, þar sem æ meiri kröfur eru gerðar til fyrirtækja. Þau fyrirtæki, sem uppfylla ströngustu kröfur, standa einfald- lega miklu betur að vígi en hin. Ef allir vinna að þessu marki skapar þetta smátt og smátt betra atvinnulíf, með markvissari Hefðum misst umtalsverð viðskipti án vottunarinnar - segir Ágúst Einarsson forstjóri Lýsis hf. „VINNA OKKAR við að uppfylla þessa alþjóðlegu staðla og fá vottun hófst fyrir tveimur árum, en þá höfðum við þegar hafist handa við að breyta pökkunarsölum fyrirtækisins til að fá lyfja- framleiðsluleyfi. Við urðum varir við nokkurn þrýsting frá helstu viðskiptavinum okkar, til dæmis lyfjaframleiðendum, um að við uppfylltum þessa staðla og ég er sannfærður um að við hefðum misst umtalsverð viðskipti, ef við hefðum ekki hafist handa,“ sagði Ágúst Einarsson forstjóri Lýsis hf. Fyrirtæki hans fékk vottun British Standard Institute í síðustu viku, líkt og Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, og uppfyllir nú staðla. Ágúst sagði að reglur og lögg- jöf um rekstur fyrirtækja væru afar mismunandi milli landa og því hefðu stofnanir EB gripið til þess ráðs að taka upp alþjóðlega staðla, svo hægt værí að hafa eina viðmiðun við opnun innri markað- ar bandalagsins í byijun næsta árs. Þessir staðlar væru ekki ein- göngu gæðastaðlar á framleiðslu- vöru, heldur á alla starfsemi fyrir- tækisins. Hann sagði að honum hefðu nær fallist hendur þegar hann sá hversu mikil vinna var framundan, svo uppfylla mætti staðlana. „Við hófumst samt handa við að semja gæða- handbækur og rekstrarhandbæk- ströngustu kröfur alþjóðlegra ur, eins og reglumar gera ráð fyrir," sagði Ágúst. „Við leituðum liðsinnis Gunnars Guðmundssonar verkfræðings hjá Ráðgarði og hann aðstoðaði okkur allt þar til vottunin fékkst. Á þessum tveimur árum, sem við unnum að þessu, voru kröfur erlendis alltaf að auk- ast. Það ýtti enn frekar á eftir okkur að stærsti viðskiptavinur okkar í Bretlandi, sem kaupir þor- skalýsi í neytendaumbúðum, fór fram á að við fengjum vottun fyr- ir lok þessa árs. Ég er sannfærður um að við tókum rétta ákvörðun, þegar við hófum þá miklu vinnu sem vottunin kostaði okkur, því annars hefðum við eflaust tapað viðskiptum. Núna sé ég hins vegar fram á að viðskiptin aukist. Til marks um það hversu mikilvæg vottunin er má nefna, að víða í Evrópu ganga þau fyrirtæki fyrir í opinberum útboðum, sem hafa fengið vottun." Agúst. sagði að vinna Lýsis hf. við að uppfylla staðlana hefði auk- ið mjög samheldni starfsfólks og skilning þess á nauðsyn agaðra vinnubragða. „Það varð að lýsa hveiju starfí í fyrirtækinu ná- kvæmlega og tíunda hvaða ábyrgð fylgdi því. í fyrstu óttaðist starfs- fólkið að það yrði staðið yfír því og fylgst með hveiju handtaki, en það er öðru nær. Gráu svæðin hurfu og starf okkar varð allt miklu skilvirkara, svo það leyndi sér enn síður en áður ef einhver hlekkur starfseminnar var ekki nógu sterkur. Þetta hefur blásið nýju lífí í starf fólksins og oft ein- faldað verkin. Þá hefur þessi vott- un einnig keðjuverkandi áhrif. Við gerum sérstaka gæðatryggingar- samninga við þá aðila, sem sjá okkur fyrir vöru o'g hráefni. Kas- sagerðin þarf t.d. að uppfylla okk- ar kröfur um umbúðir og ég veit að í framhaldi af því er farið að huga að því þar á bæ að fá vott- un.“ Ágúst sagði að vissulega væri einhver kostnaður því samfara að uppfylla staðla og fá vottun. „Þetta er hins vegar fyrst og fremst mikil vinna og það getur enginn stjórnandi fyrirtækis borið það fyrir sig að þetta kosti of mikið, því hagur fyrirtækis af þessu er svo augljós. Ég varð var við það fyrir 1-2 árum, að stjórn- endur fyrirtækja héldu að við værum bara að fást við gæðaeftir- lit. Það er ekki rétt, því auðvitað var slíkt eftirlit fyrir hendi. Vott- unin nær hins vegar yfir alla starf- semi fyrirtækis og ekki síður til stjórnenda en almennra starfs- manna. Ég heimsótti fjölda fyrir- tækja í Bretlandi fyrir skömmu og það var greinilegt að þetta er það sem koma skal. Þetta á ekki einungis við um fyrirtæki eins og Lýsi hf. eða Sölumiðstöðina. Ég get nefnt sem dæmi, að öll vinna við göngin undir Ermarsund varð frá upphafi að standast þessa Friðrik Pálsson forstjóri SH. vinnubrögðum og auknu trausti á fyrirtækjum." Friðrik sagði að vottunin haml- aði á engan hátt framþróun, því hægt væri að laga reksturinn að breyttum aðstæðum og breyta verklagi ef ástæða væri talin til, ef það væri gert í samræmi við staðalkröfur. „Þetta starf okkar heldur áfram, því þó við séum búin að fá vottun, þá verður gerð úttekt á fyrirtækinu 2-3 sinnum á ári, án mikils fyrirvara og það próf verðum við að standast til að halda vottuninni,“ sagði hann. „Þá eru einnig tíu úttektarmenn innan SH, sem gæta þess að ekki sé slakað á klónni. Hér er fyrst og fremst um hugarfarsbreytingu að ræða, ekki skipulagsbreytingu. Núna efast enginn um að fyrir- tækið er betra en áður,“ sagði Friðrik Pálsson forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna. Ágúst Einarsson forstjóri Lýsis hf. staðla og British Standard Instit- ute tók verkið út, rétt eins og vinna okkar hér verður undir þeirra smásjá, fyrirtækinu til mik- illa hagsbóta.“ Ágúst kvaðst að lokum vilja^ 'óska Friðrik Pálssyni og starfs- fólki hans hjá SH til hamingju með að hafa náð þeim árangri að fá vottun. „Við hjá Lýsi hf. gerum okkur grein fyrir hve mikil vinna liggur að baki og sendum bestu árnaðaróskir," sagði Ágúst Ein- arsson, forstjóri Lýsis hf. | Y estmannaeyjar: Sjávarútvegsnefnd í Vestmannaeyjum. Sjávarútvegsnefnd Alþingis og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra ásamt Kristjáni Ragn- arssyni, Jónasi Haraldssyni og Brynjólfi Bjarnasyni frá Lands- sambandi íslenskra útvegsmanna heimsóttu Vestmannaeyjar á mánudag til að kynna sér það helsta sem er að gerast í sjávar- útveginum í Eyjum um þessar mundir. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, var aðalhvatamaðurinn að þessari ferð til Eyja sem var farin til að stuðla að því að koma nefndar- fólki í nánari snertingu við það sem er að gerast í sjávarútveginum. Gestirnir skoðuðu bolfiskvinnslu á flæðilínu og Ioðnuhrognavinnslu hjá ísfélaginu, netagerð hjá Netagerð Ingólfs, saltfískpökkun hjá Vinnslu- stöðinni og ísframleiðslu hjá Eyjaís heimsókn og farið var um hafnarsvæðið. Þá var náttúrugripasafnið einnig skoð- að og vakti steinbítsklakið mikla athygli. Gestirnir snæddu hádegisverð í Eyjum og var þar boðið uppá utan- kvótafisktegundir því í forrétt var snæddur gulllax og búri í aðalrétt ásamt ýmsu öðru góðgæti úr haf- inu. Grímur Gestirnir skoða loðnuhrognavinnslu. Morgunbiaðið/Grí.nur Giskson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.