Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 19

Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 19 Just Vill sam- stöðu um Júgóslavíu JAMES Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hvetur til, að vestræn ríki taki höndum saman um að koma í veg fyrir áframhaldandi átök í Júgó- slavíu. Kom þetta fram í ræðu, sem hann flutti á fundi með utanríkisráðherrum Evrópu- bandalagsins í Brussel en Bandaríkjastjórn og EB hafa ekki verið samstíga í þessum efnum hingað til. Kvaðst Baker óttast, að upplausn og átök yrðu hlutskipti íbúanna í Bosníu-Herzegovínu og sagði, að eina ráðið væri, að allir legð- ust á eitt til að koma í veg fyrir það. Var nokkuð um skær- ur í lýðveldinu í gær og í Króa- tíu féllu þrír í átökum Króata við sambandshermenn. Satish Nambiar, indverskur yfirmaður friðargæsluliðsins, sem kemur til Króatíu á næstunni, átti i gær viðræður við yfirvöld í Zagreb og Belgrad. Fortíðin felldi þingmann Austur- þýskur jafn- aðarmaður og þingmaður á þinginu í Brandenburg, Gustav Just, sagði af sér í gær vegna ásakana um, að hann hefði verið í aftöku- sveit á stríðsárunum og átt þátt í að skjóta óbreytta borg- ara, þar á meðal gyðinga. Komu þær fram í blaðinu Welt am Sonntag og byggðust á skjölum, sem fundust í fórum Stasi, austur-þýsku öryggislög- reglunnar fyrrverandi. Það var háttur kommúnista að hylma yfir með stríðsglæpamönnum nasista austan járntjaldsins til að svo liti út, að þeir væru all- ir samankomnir í Vestur- Þýskalandi. Just segist aðeins hafa hlýtt skipunum en í skjöl- unum kemur fram, að hann hafí sóst eftir að komast í sveit- ina. Dráp á músl- imum í Burma HERMENN Burmastjórnar hafa drepið hundruð múslima og hneppt þúsundir manna í fangelsi og þrælabúðir á síð- ustu tveimur vikum. Er það haft eftir flóttafólki frá Arakan-héraði í Burma en þar hafa múslimarnir eða svokall- aðir Rohingar verið búsettir. Segja þeir, að nýlega hafi 200 manns, karlmenn, konur og börn, verið skotin til bana í Apaukwa-fjallaskarðinu og lík- in síðan husluð í einni gröf. Eru flóttamennirnir í Bangladesh að nálgast 200.000. Mikill barna- dauði í Irak ÍRÖSK stjórnvöld, sem erú að reyna að fá viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna aflétt, sögðu í gær, að frá áramótum hefði 21.000 manns, þar af 8.000 börn undir fimm ára aldri, látist af völdum matar- og lyfjaskorts. Hafa þá alls 120.000 manns dáið vegna af- leiðinga viðskiptabannsins að sögn stjórnarinnar í Bagdad. Raunar má flytja matvæli og Iyf til landsins en íraksstjórn segist ekki geta keypt eitt né neitt vegna þess, að henni er bannað að selja olíu úr landi. Kosið um umbótastefnu stjórnar Suður-Afríku í næstu viku: De Klerk hrakinn af kosninga fundi með táragassprengju Jóhannesarborg. Reuter. F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, þurfti að flýja kosningafund með ungu háskólafólki í borginni Bloemfontein á mánudag eftir að táragassprengju var hent á fundarstaðinn. Forsetinn ferðast nú um landið til að reyna að afla umbótastefnu stjórnar sinnar fylgis en um hana verður kosið í þjóðaratkvæðagreiðslu meðal hvíta minnihlut- ans í Suður-Afríku þann 17. mars. Atvikið átti sér stað í matsal háskólans í Bloemfontein og drógu öryggisverðir forsetann og eigin- konu lians út í skyndingu uin leið og táragassins varð vart. Kobie Coetsee dómsmálaráðherra, sem einnig var á fundinum, varð hins vegar fyrir ininniháttar meiðslum í öngþveitinu sem skapaðist. Aðstoðarmenn de Klerks sögðu að það hefðu verið öfgasinnaðir hvítir námsmenn sem hefðu hent táragassprengjunni og hrópað um leið og forsetinn kom inní matsalinn „Bavíani, haltu aftur til fjalla" og „Svikari, farðu burt“. Þessi árás hefur vakið upp áhyggjur um ör- yggi forsetans en hann kemur fram á fjölmörgum kosningafundum. „Við getum ekki haldið áfram um- bótunum án de Klerks og það vita hægrimenn. Hann er í æ meiri hættu með hverjum degi sem líð- ur,“ sagði Wim Booyse, einn ráð- gjafa forsetans. Sagði hann mikla hættu vera á því að reynt yrði að myrða forsetann. Stefna de Klerks hefur sætt harðri gagnrýni meðal hægrisinn- aðra hvítra íbúa Suður-Afríku sem óttast um ýmis forréttindi sín verði blökkumönnum veitt aðild að stjórn landsins. íhaldsflokkurinn, sem er til hægri við Þjóðarflokk de Klerks, vann sigur í nokkrum mikilvægum aukakosningum á síðustu mánuðum og ákvað forsetinn þá að bera stefnu sína undir þjóðaratkvæði. Hefur hann lýst því yfir að hann hyggist segja af sér embætti verði hann undir í kosningunum. De Klerk sakaði í gær íhalds- flokkinn um að bera ábyrgð á árás- inni á sig í Bloemfontein þrátt fyrir að ýmsir þingmenn flokksins höfðu komið fram opinberlega og harmað atvikið. „Þegar flokkur grípur til aðgerða af þessu tagi er það greini- legt tákn um gjaldþrot,“ sagði for- setinn. Hann sagði í viðtali í gær að íhaldsflokkurinn gæti ekki reynt að firra sig ábyrgð af atvikum af þessu tagi með fallegum orðum. „Það er einmitt sú rangtúlkun sem Ihaldsflokkurinn setur fram í ræð- um sínum, ritum og veggspjöldum sem myndar það andrúmsloft sem veldur lúalegum aðgerðum af þessu tagi,“ sagði de Klerk. Piet Rudolph, talsmaður stærstu öfgahreyfíngar hvítra í Suður-Afr- íku, AWB, sagði í gær að samtökin bæru ekki ábyrgð á árásinni gegn de Klerk en bætti við: „De Klerk YFIRBREIÐSLA MEÐ LÍMBANDI fyrir málara. Handhægt-fljótlegt-ódýrt. ArvIk ARMÚLI 1 - HEYKJAVÍK - SlMI 687222 -TELEFAX 687295 verður að búast við viðbrögðum af þessu tagi. Hann er að uppskera það sem hann hefur sáð. Hann get- ur ekki kallað félaga AWB fasista og nasista án þess að búast við ein- hvers konar hefndum." Aðspurður um hvort forsetinn gæti búist við frekari táragasárásum ef hann héldi áfram að líkja AWB-félögum við nasista og fasista sagði Rudolph: „Já, hr. de Klerk verður einhver hataðasti maður sem til er.“ Reuter F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, heilsar blökkukonu fyrir kosn- ingafund í gær. Yelferð á varanlegum grunni Kynningarfundir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Sighvats Björgvinssonar á Austurlandi. Seyðisfjörður - miðvikudaginn 11. mars. Viðtöl fyrir almenning á heilsugæslustöðinni kl. 11-12. Tímapantanir hjá skrifstofu heilsugæslunnar í síma 21406. Egilsstaðir - miðvikudaginn 11. mars. Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 17-19. Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 11166. Almennur fundur á Hótel Valaskjálf kl. 20.30. Eskifjörður - fimmtudaginn 12. mars. Heimsókn í heilbrigðisstofnanir. Norðfjörður - fimmtudaginn 12. mars. Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 17-19. Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 71700. Almennur fundur á Hótel Egilsbúð kl. 20.30. * Vopnafjörður föstudaginn 13. mars. Heimsókn í heilbrigðisstofnanir. Athugið breyttan fundartíma Höfn í Hornafírði - sunnudaginn 15. mars. Viðtöl fyrir almenning á bæjarskrifstofunni kl. 17-19. Tímapantanir hjá bæjarstjóra í síma 81222. Almennur fundur á Hótel Höfn kl. 20.30. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.