Morgunblaðið - 11.03.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992
29
Sigurður E. Sigurð
son - Minning
Aldurtila eiga sér allir vísan.
Þess vegna er dauðinn í sjálfu sér
engum undrunarefni. Þó er það
svo, að í hvert sinn sem hann ber
að dyrum veldur hann röskun í
huga þeirra sem nærri standa.
13. desember sl. andaðist í New
York mágur minn, Sigurður Einar
eins og hann hét fullu nafni, en
allir í fjölskyldunni kölluðu hann
Didda. Hann höfðaði til allra og
má segja að ljóðlínur Stephans G.
Stephensen segi manni allt:
Þitt er menntað afl og önd
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd
hjartað sanna og góða.
Ég, sem þessa grein rita, minnist
Didda sem góðs drengs. Mín fyrstu
kynni af honum voru þegar hann
kom til íslands til að fylgja móður
sinni til grafar, en hann mat móður
sína mjög mikils.
Sigurður fæddist á ísafirði 13.
ágúst 1931, sonur hjónanna Bjarg-
ar Bergsveinsdóttur og Sigurðar
Péturssonar. Hann átti tvo albræð-
Kveðjuorð:
Þórunn
Bjarna-
dóttir
Þegar mamma hringdi og sagði
mér að Þórunn Bjarnadóttir væri
dáin runnu upp fyrir mér margar
þær góðu minningar sem ég átti
um Þórunni. Hún var alltaf svo kát
og ánægð að sjá mig þegar hún
hitti mig, það Ijómuðu á henni aug-
un. Þegar hún hætti að þekkja mig
fann ég fyrir einhverri sorg innra
með mér.
Eitt sinn þegar ég var að athuga
með póstinn og gluggana heima hjá
henni fyrir föður minn sem var þá
veikur, en hann sinnti þessu alltaf,
leit ég yfir mannlaust húsið og sett-
ist niður í stofunni og lét hugann
reika aftur í tímann þegar ég var
lítil í árlegu spilaboði. Þá var spilað
af hjartans list og Þórunn var með
hvíta stífaða blúndusvuntu og stóð
með súkkulaðikönnuna og hellti í
bollana og jólabakkelsi fyllti borðið
og svo var þeyttur rjómi út í súkku-
laðið. Og alltaf gaf hún mér smá
sælgæti því ég var eina bamið í
boðinu.
Mér fannst eitthvað svo flott við
hana Þórunni, sérstaklega á 17.
júní þegar hún klæddi sig í peysu-
föt og með skikkju yfir, þá fannst
mér hún alltaf eins og drottning.
Þórunn eignaðist aldrei börn, en
hún missti mann sinn um fimmtugt
og verður lögð til hinstu hvílu við
hlið hans.
Ég þakka Þórunni samfylgdina
og megi hún hvíla í friði.
Oddný Mattadóttir
og fjölskylda.
ur, Halldór (Didda), sem er eldri
og býr í New York, kvæntur banda-
rískri konu, Grace. Yngri bróðirinn,
Bergsveinn kvæntur undirritaðri og
býr í Hafnarfirði.
Árið 1938 slitu foreldrar þeirra
samvistir og var Sigurði þá komið
í fóstur hjá frænda sínum Kristjáni
Jóni Benónýssyni og konu hans,
sem bjuggu í Hjarðardal í Dýra-
firði. Þar dvaldi hann þar til Krist-
ján missti konu sína. Hann fór þá
að Gemlufalli og síðar að Mýrum í
Dýrafirði, eða þar til hann flutti til
Hafnarfjarðar árið 1944 til föður
síns, sem þá var giftur mikilli sóma-
konu, Guðrúnu Sveinsdóttur, sem
alla tíð reyndist Sigurði sem besta
móðir. Faðir hans og Guðrún áttu
fimm börn sem eru: Guðlaug,
Sveinn, Pétur, Agnes og Gunnar.
Öll búa þau í Hafnarfirði nema
Gunnar, sem býr í Reykjavík.
Sigurður stundaði nám í Flens-
borgarskóla og síðan í Menntaskól-
anum í Reykjavík. Á námsárunum
vann hann í síldarvinnu norður á
Siglufirði, eins og þá var algengt.
Þar dvaldi hann hjá móðursystur
sinni, Ólínu, sem gift var síldarsalt-
anda, sem hann vann hjá. Æ síðan
reyndust Ólína og öll hennar fjöl-
skyjda honum einstaklega vel.
Árið 1950 fluttist hann til New
York og dvaldi fyrst á heimili bróð-
ur síns, Ilalldórs, sem flust hafði
út árinu áður. Sigurður var í flug-
her Bandaríkjanna frá 1951 til
1955. Um haustið 1955 fór hann í
framhaldsnám í Hofstrad-háskólan-
um á Long Island og síðar í City
College of New York þar sem hann
stundaði kvöldnám í mörg ár og
útskrifaðist kandidat, B.A. í raf-
magnsfræði. Eftir það fór hann að
vinna fyrir Hazeltine, sem framleið-
ir radar- og mælitæki.
Árið 1974 lauk hann enn frekara
námi frá C.W. Post-háskólanum á
Long Island og útskrifaðist sem
Master in Business Administration.
Sigurður vann hjá Hazeltine þar
til hann fór á eftirlaun í febrúar
1989. Sigurður kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Guðrúnu Nielsen, 17.
júní 1961, en hún átti fyrir soninn
Clark, sem Sigurður gekk í föður-
stað. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu
þau í Flushing, sem er úthverfi New
York borgar, en fluttu síðan í sitt
eigið hús úti á Long Island. Þess
má geta að í nágrenni við þau býr
frænka Sigurðar, Lillý, dóttir Ólínu
móðursystur þeirra bræðra, sem
reynst hefur þeim bræðrum sem
besta systir.
Við hjónin vorum svo heppin að
geta heimsótt Didda og Rúnu og
Dúdda og Grace í ferðum okkar til
Bandaríkjanna og eru þær heim-
sóknir fast greyptar í okkar hug-
skot. Þvílíkar móttökur! Rausnar-
skapurinn og huggulegheitin voru
slík, að við okkur var dekrað eins
og ungbörn. Ég minnist þess hve
gaman Diddi hafði af því að tala
við fuglana i garðinum sínum með-
an hann enn hafði heilsu, en hann
átti við vanheilsu að stríða síðustu
árin og gat ekki sinnt húsinu sínu
og garðinum sem skyldi. Sá grunur
læðist að mér, að býsna stórt skarð
sé höggvið í hjarta Halldórs við
bróðurmissinn.
I september sl. lagðist Diddi inn
á V.A. Hospital og gekkst þar und-
ir aðgerðir, sem ekki dugðu gegn
hinum erfiða sjúkdómi, en hann
háði baráttu sína af karlmennsku
og var ákveðinn í að standa svo
lengi sem stætt væri. Þegar hann
sá hvert stefndi tók hann því af
æðruleysi, sáttur við lífið og tilver-
una.
Elsku Rúna og Clark, við hjónin
biðjum góðan Guð að vera með
ykkur og veita ykkur styrk. Við
munum öll minnast Didda sem góðs
drengs.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi
hafði þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Ruth.
t
Útför móður okkar,
ÞORBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Rauðhálsi,
fer fram frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 14. mars kl. 16.00.
Jakob Guðmann og
Bergsteinn Péturssynir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð við andlát
og útför eiginmanns míns,
ÞORVALDAR BORGFJÖRÐ GÍSLASONAR.
Sigurborg Þórarinsdóttir,
synir og aðrir vandamenn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsfjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
SigurðurK. Gunnars-
son - Kveðjuorð
Fæddur 13. desember 1946
Dáinn 2. mars 1992
Hafknömnn glæsti og fjörunnar flak
fljóta bæði. Trú. þú og vak.
Marmarans höll er sem moldarhrúga.
Musteri Guðs eru hjörtun, sem trúa,
þó hafi þau ei yfír höfði þak.
(Einar Ben.)
Þegar ég lít yfir farinn veg og
vináttu okkar Sigurðar Karls Gunn-
arssonar gegnum árin, fínn ég
hversu lánsamur ég var að kynnast
honum og eiga hann að sem vin.
Sú fölskvalausa vinátta og góð-
mennska sem hann sýndi sínum, á
hveiju sem gekk, er gott veganesti
okkur sem eftir lifum. Menn sem
hugsa lítið um sjálfa sig, en þeim
mun meira um náungann, eru oft
misskildir á einhvern hátt. — Ég
held að svo hafi ekki verið um hann.
Heilsteyptur vilji og trúmennska
sáu um þá hlið málsins.
Gleðjumst því ytri skelin á fræinu
er sprungin og óumbreytanlegt lög-
mál veldur því að hann hlýtur að
rísa upp — rísa upp í Guði, þeim
sem hann trúði á og sá í öllu og
öllum.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON,
Austurbrún 37A,
andaðist í Landspítalanum 9. mars.
Vilborg Jónsdóttir,
Jón Kristján Sigurðsson,
Sigurjón Sigurðsson,
Steinþóra Sigurðardóttir, Svanur Kristinsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og fósturfaðir,
SIGURÐUR KARL GUNNARSSON
frá Haga v/Selfoss,
Holtagerði 32,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. mars
kl. 15.00.
Þórunn Jónsdóttir
og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU ANDREU EYJÓLFSDÓTTUR,
Njálsgötu 65.
Ragnheiður Ágústsdóttir,
Kristín Þ. Ágústsdóttir, Sigurður Örn Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og stuðn-
ing við andlát
ÞORSTEINS PÁLMASONAR,
sem lést þann 3. mars síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðfinna Óskarsdóttir
og fjölskylda.
Lokað
Verkstæði okkar verður lokað í dag, miðvikudag-
inn 11. mars, frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar
SIGURÐAR KARLS GUNNARSSONAR.
H.P.H. díselvélaviðgerðir,
Eldshöfða 16.