Morgunblaðið - 11.03.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992
f< lk f
fréttum
Díana prinsessa sýndi sína venjulegu aiúð og umhyggjusemi í heimsókn sinni til Indlands. Hún fór einn-
ig sérstaklega til Rómar til að hitta móður Teresu.
-
UMHYGGJA
Díana prinsessa
hittir móður Teresu
Díana prinsessa var nýlega á
Indlandi ásamt Karli Breta-
prins, eiginmanni sínum, þar sem
hún heimsótti m.a. heimili fyrir
umkomulaus böm og sýndi þeim
þá umhyggjusemi sem hún er þekkt
fyrir. Sem kunnugt er hefur Díana
t.d. bæði verið lofuð og fordæmd
fyrir að koma við sjúklinga, sem
þjást af eyðni, en hún hefur ekki
látið neikvætt tal á sig fá og berst
mikið fyrir málstað þeirra sem
minna mega sín.
Á Indlandi heimsótti hún einnig
stofnun fyrir deyjandi fólk og gaf
fólkinu sælgæti. Hen'ni var vel tek-
ið hvert sem hún fór og fólkið, sem
hún hitti, lofaði hana fyrir góðsem-
ina og umhyggjuna sem hún sýndi
hvarvetna.
Díana ætlaði einnig að heilsa upp
á móður Teresu en vegna veikinda
komst hún ekki til Indlands. Díana
ákvað því að koma við í Róm sér-
staklega til að hitta hana. Móðir
Teresa hafði heimtað að yfirgefa
spítalann, þar sem hún dvaldi í veik-
indum sínum, því hún vildi ekki að
Díana prinsessa sæi sig í rúminu.
Þegar þær hittust féllust þær í
faðma en þær hafa aldrei áður hitt
hvor aðra. Áður en Díana prinsessa
hélt heim lofaði hún móður Teresu
að halda sambandi við hana og
sagðist vona að þær myndu hittast
aftur.
Tölvunámskeið
Windows (9 kist.)
Word Perfect fyrir Windows (16 klst.)
Word fyrir Windows(i6klst.)
PC byrjendanámskeið (16 kist.)
Exel fyrir PC og Machintosh (16 kist.)
Næstu námskeið hefjast fljótlega. Verð frá kr.9.200,-
VR og fleiri stéttarfélög styrkja.
Kolbrún Ingibergsdóttir var full-
trúi Morgunblaðsins og söng þar
rólegan blús.
Hallgrímur Thorsteinsson, full-
trúi Bylgjunnar, flutti blús á ís-
lensku og sannaði það að islensk-
an er ekki síðri í þessari tegund
tónlistar.
TÓNLIST
Lokakvöld fjölmiðla-
blússins á Púlsinum
Lokakvöld fjölmiðlablússins var
haldið laugardaginn 29. febrú-
ar sl. Þar komu fram flestir þeir
fulltrúar sem tekið höfðu þátt um
veturinn, m.a. frá Morgunblaðinu,
DV, Aðalstöðinni, Pressunni, Rás
2, Stjörnunni sálugu og Effemm.
Vinir Dóra sáu um undirleikinn.
Óhætt er að segja að mikil
stemmning hafði myndast og mátti
þarna sjá mörg kunnug andlit úr
fjölmiðlaheiminum sem komu og
studdu við bakið á sínum mönnum.
flvv* œw*®3**
..lillWI—l—f"*-'
0»'
ri
MIKID RYMI
og gott verð!
DAF 400 er rúmgóður, burðarmikill og þægilegur sendibíll.sem
hentar íslenskum aðstæðum óvenju vel.
DAF 400 er hundruðum þúsunda ódýrari en keppinautarnir, og
kostar nú aðeins:
Pallbíll frá kr. 2.108.000 ] m/Vsk.
Sendiblll frá kr. 2.390.000 stgr. m/Vsk.
Við eigum DAF 400 sendiblla á lager og til afgreiðslu strax.
Hafið samband viö sölumenn okkar, sem veita nánari upplýsingar.
í
V.Æ.S. HF
Fosshálsi 1 ® 67 47 67