Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992
i þlnnL- st^ub.
Hann verður örugglega
stjórnmálamaður. ..
BRÉF ITL BLABSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Villandi auglýsingar
Frá Jóhanni Haukssyni:
HVERSU lengi ætla Flugferðir-
Sólarflug að halda áfram að gefa
villandi upplýsingar um ferða-
kostnað í auglýsingum sínum? Ég
spyr vegna þess að þetta fyrirtæki
auglýsir ferðir til Kaupmanna-
hafnar á 15.900 kr. þegar þær
kosta í raun 20.000 kr. Munurinn
er 4.900 kr. eða fjórðungur heild-
arverðsins.
Reyndar stendur meðanmáls í
auglýsingunum, með smáu letri,
að flugvallagjöld og forfallagjald
sé ekki innifalið í verði. Þegar
þessi upphæð nálgast 25% af
heildarverðinu verður þetta sam-
bærilegt við það að bílaumboð
auglýsi bíl á 600 þúsund kr. og
neðanmáls standi smáu letri að
dekk, stýri og sæti séu ekki
innifalin í verðinu.
Staðreyndin í þessum fargjalda-
málum er sú, að það er ekkert
hagstæðara að fara í leiguflugi til
útlanda með Flugferðum-Sólar-
flugi en með áætlunarflugi Flug-
leiða. Fyrir þá sem búa úti á landi
koma Flugleiðir að auki mun hag-
stæðar út.
Ég kannaði hjá báðum aðilum
hvað það mundi kosta fyrir fjöl-
skyldu mína að fara til Kaup-
mannahafnar. Við erum fjögur og
bæði börnin yngri en 12 ára. Mið-
að var við greiðslu með kreditkorti.
Grunngjald Flugferða-Sólar-
flugs er 15.900 kr. á mann og
enginn barnaafsláttur er veittur.
Við þetta bætist á hvern mann:
Innritunargjald í Leifsstöð 350
kr., brottfararskattur 1.250 kr.
(börn greiða helming), brottfarar-
skattur í Kaupmannahöfn 650 kr.
og -forfallagjald 1.200 kr. sem
ekki er hægt að sleppa. Samtals
gerir fargjaldið á mann 19.040
kr. Til viðbótar kemur 5% álagning
vegna greiðslu með kreditkorti,
eða 20.000 kr. í allt.
Hjá Flugleiðum er grunngjald-
ið 20.900 kr. og er innritunargjald
í Leifsstöð innifalið. Við þetta
bætast brottfararskattar, en ekki
þarf að greiða forfallagjald nema
maður óski sérstaklega eftir að
baktryggja sig. Flugleiðir taka
ekkert álag vegna greiðslu með
kreditkorti. Hjá Flugleiðum er að
auki veittur 20% afsláttur af þessu
sumarfargjaldi fyrir börnin, þann-
ig að þegar upp er staðiði kostar
Kaupmannahafnarferðin 20.400
kr. á manninn hjá Flugleiðum.
Munurinn er um 400 kr. á far-
gjaldi Flugleiða og Flugferða-Sól-
arflugs. Fyrir þessar 400 kr. er
hægt að velja um brottfarir tvisvar
sinnum í viku hjá Flugferðum-Sól-
arflugi en níu sinnum hjá Flugleið-
um.
Fyrir okkur úti á landi bætist
svo við verulegur afsláttur af flugi
til Reykjavíkur í tengslum við
ákveðna brottfarardaga til Kaup-
mannahafnar ef við verslum við
Flugleiðir og þá fer ekkert lengur
á milli mála hvaða kostur er hag-
stæðari.
Ástæða þess að ég vek athygli
á þessu er sú að það fer í taugarn-
ar á mér þegar fyrirtæki reyna
að afla sér viðskipta með villandi
auglýsingum, líkt og Flugferðir-
Sólarflug gera. Ég hélt reyndar
að búið væri að setja rýjar reglur
um upplýsingar í ferðauglýsing-
um, þannig að við neytendur vær-
um betur varðir. En augsýnilega
komast menn upp með að fara
ekki eftir reglunum og er það
miður.
JÓHANN HAUKSSON
rafvirkjameistari
Bakkasíðu 9 Akureyri
VELVAKANDI
UPPLYSINGAR
UM ÞILSKIP
Sigurgísli Sigurðssson:
MIG vantar upplýsingar og
myndir af þilskipum og skútum
sem gerð voru út frá aldamótum
til ársins 1922. Sérstaklega
vantar mig upplýsingar um eft-
irtalin skip: Bergþóru, Nýönzu,
ísabellu, Svan, Björn Ólafsson,
Skalla, Hákon, Iho og Milly.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
vinsamlegast hringi í mig í síma
91-40418.
PÁFAGAUKUR
BLÁR páfagaukur fannst við
Bárugötu 3. febrúar. Upplýs-
ingar í síma 14403.
BINDISNÆLA
BINDISNÆLA úr hvítagulli
tapaðist á Hótel íslandi 19.
febrúar. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
98-34979.
HÁLSFESTI
GULLHÁLSFESTI tapaðist á
Hótel Ork fimmtudaginn 5.
mars. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 75609.
GLERAUGU
GLERAUGU töpuðust í Kola-
portinu sunnudaginn 1. mars.
Finnandi er vinsamlegast beði'nn
að hringja í síma 28109.
Víkverji skrifar
Umræður um þátttöku í Evr-
ópubandalaginu (EB) settu
mikinn svip á umræður á þingi
Norðurlandaráðs í síðustu viku.
Um langt skeið hefur verið um
það rætt á þeim vettvangi hvernig
hann þróist í ljósi evrópska
samrunans. Eru allir sammála um
að miklar breytingar hljóti að
verða á samstarfi ríkjanna, bæði
skipulagslegar og efnislegar.
Nefnd á vegum forsætisráðherra
landanna hefur lagt til að tekið
verði upp svipað fyrirkomulag og
innan Évrópubandalagsins að því
leyti að norrænu ríkisstjórnirnar
hafi til skiptis forystu í hinum
sameiginlegu málum og annist
hagsmunagæslu inn á við og út á
við. Höfum við íslendingar kynnst
slíku fyrirkomulagi í EFTA-sam-
starfinu, þar sem forystan færist
á milli ríkisstjórna á sex mánaða
fresti. Hún er til dæmis núna í
höndum íslands.
Portúgalir gegna nú í fyrsta
sinn slíku forystuhlutverki innan
Evrópubandalagsins. Þeir gerðust
aðilar að bandalaginu 1986 og
höfnuðu í fyrstu umferð að taka
að sér hið pólitíska forsæti vegna
reynsluleysis. Þegar röðin kom að
þeim í annað sinn, öxluðu þeir
ábyrgðina og samkvæmt fréttum
fá portúgalskir stjórnmálamenn
og embættismenn hrós fyrir fram-
göngu sína. Er ekki að efa, að
þessi skipan á þátttöku þjóða í
alþjóðlegu samstarfi hefur góð
áhrif á stjómkerfi viðkomandi
landa. Er mjög eftir því tekið,
hvernig slíkum trúnaðarstörfum
er sinnt.
Á vettvangi EFTA hafa íslend-
ingar fengið lof fyrir störf sín í
þágu allra þátttökuríkjanna, eink-
um Hannes Hafstein sendiherra,
sem átti ásamt aðstoðarmönnum
sínum dijúgan þátt í að samkomu-
lag tókst að lokum um evrópska
efnahagssvæðið.
xxx
Þegar rætt er um framtíð
EFTA og aðild einstakra þátt-
tökuríkja þar að Evrópubandalag-
inu, setja menn bæði ísland og
Sviss á sérstakan bás. Bent er á
að íslendingar telji sig hafa svo
mikilla sérhagsmuna að gæta að
þeir geti ekki átt samleið með
öðrum. Síðan er sagt að Svisslend-
ingar hafi tileinkað sér svo mikla
sérvisku í samskiptum við aðrar
þjóðir að þeir hljóti að standa utan
við Evrópubandalagið.
Hér skal ekki rætt um sérhags-
muni okkar íslendinga heldur vak-
in athygli á því að í Sviss virðist
kynslóðabil í pólitískri afstöðu til
þátttöku í EB. Kannanir meðal
námsmanna og háskólastúdenta í
Sviss hafa löngum sýnt að þar er
meiri vilji en meðal hinna eldri til
að tengjast EB.
Þessi vilji hefur nú verið stað-
festur með formlegum hætti á
pólitískum vettvangi, því að æsku-
lýðssamtök sex stærstu stjórnmál-
aflokkanna, sem eiga fulltrúa á
þinginu í Bern, hafa ákveðið að
sameina krafta sína í baráttu fyr-
ir þeim tveimur málefnum sem
þeim finnst mestu skipta á líðandi
stundu, það er baráttunni gegn
fíkniefnum og fyrir aðild Sviss að
Evrópubandalaginu.