Morgunblaðið - 11.03.1992, Síða 37

Morgunblaðið - 11.03.1992, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 gf Vegna fréttar um nýtt mígrenilyf og athugasemdar við hana Frá Sigrúnu Davíðsdóttur: HINN 2. febrúar birtist í Morgun- blaðinu frétt frá undirritaðri um nýtt mígrenilyf á dönskum mark- aði. Þar sagði meðal annars að fyr- irtækið verði 7% í þróun nýrra lyfja, meðan 18% þætti eðlilegt. Heimild fréttarinnar var grein í danska blað- inu Politiken. Kristján Sverrisson umboðsmaður Glaxo gerði athuga- semd við þetta atriði í grein 28. febrúar og kemur þar með allt aðr- ar tölur, sem sýna að fyrirtækið Virkjaðu þína eigin krafta Frá Guðrúnu Lilju Norðdahl: AÐ hafa áhrif. Hvemig kem ég máli á framfæri í mínu félagi. Ertu aðili í stjóm félags, en ertu ekki nægj- anlega upplýst(ur) um það hveijar skyldur þínar eru, hver réttur þinn er eða völd? Sjaldan hefur hinn almenni borg- ari sótt eins marga fundi og núna, þegar alls staðar eru einhveijar breytingar og hinn venjulegi meðal Jón þarf og vill, vera með á nótun- um. Vita hvernig hægt er að hafa áhrif á framgang mála. Geta stjórn- að fundi og/eða komið máli á fram- færi. ITC samtökin bjóða almenningi að taka þátt í námskeiði, sem nefn- ist Áhrifarík fundarstjórn. Nám- skeið fyrir þá sem vilja vita hvernig góður fundarstjóri ber sig að. Hveij- ar skyldur og hvaða völd formaður í félagi hefur. Mismun á ýmsum gerðum funda. Hvernig hinn al- menni félagsmaður getur komið máli á framfæri. Hvað eru fundar- sköp? Hvernig undirbýr maður ráð- stefnur og margt fleira. Fólk í nútíma þjóðfélagi þarf að vera meðvitað um rétt sinn. Virkjaðu þína eigin krafta, en bíddu ekki eftir að aðrir geri það fyrir þig. Hann meðal Jón hefur miklu meiri völd en hann gerir sér grein fyrir, en hann þarf að vita hvernig þau völd geta komið honum að gagni. ITC samtökin hafa það að megin- markmiði sínu að efla hæfileika til samskipta og forystu, auka starfs- afköst og styrkja sjálfstraust fé- lagsmanna sinna. Námskeið samtakanna eru öllum opin og fundir í ITC deildum eru einnig öllum opnir og gestir hjartan- lega velkomnir. GUÐRÚN LIL.JA NORÐDAHL blaðafulltrúi landssamtaka ITC á íslandi Hjallabrekku 2A Kópavogi veiji 14% af veltunni í rannsóknir. Það fór fram hjá mér að daginn eftir að umræddar tölur voru birtar í Politiken birtust aðrar tölur sem eru líklega sambærilegar við tölur Kristjáns. Mismunurinn liggur í við hvaða rekstrartölur er miðað í upp- hafi og enginn vafí er á að tölur Kristjáns eru réttar. Á það má benda að rannsóknar- og þróunar- kostnaður fyrirtækisins, sem Krist- ján segir hafa verið 48 milljarða króna, er afskrifaður á hveiju ári. Eftir afskriftir var ágóði Glaxo síð- asta ár 36% af veltunni. Umboðsmaðurinn nefnir einnig að í greininni hafí lítið verið minnst á þann árangur sem náðst hefði með lyfinu. í tímaritinu New Eng- land Journal of Medicine hefur ver- ið gerð grein fyrir árangri af með- ferð með lyfmu. Þar kemur fram að lyfið slær mjög á höfuðverkja- kast fyrstu 24 klst., en síðan sé hætta á nýju kasti. í dönskum blaðaskrifum um lyfið hefur ein- staka heimilislæknir látið í ljósi þá skoðun að lyfið henti best í afmörk- uðum tilfellum, en alls ekki sem venjulegt höfuðverkjalyf. Lyfið er svo nýtt á dönskum markaði að það er enn ekki hægt að sjá hversu mikið verður vísað á lyfið. Umboðsmaðurinn nefnir einnig tvö önnur lyf frá Glaxo, astmalyf og ógleðistillandi lyf fyrir sjúklinga í krabbameinsmeðferð, sem dæmi um ný og betri lyf frá fyrirtækinu. í Danmörku kostar mánaðar- skammtur af astmalyfinu Serevent sem svarar um 4.500 ÍSK. Fimmtán töflu pakki af Zofran, lyfinu fyrir krabbameinssjúklinga, kostar rúm- lega 20.000 ISK. An þess að taka afstöðu til gagns þeirra hefur verð- lagning þessara tveggja lyfja einnig dregist inn í umræð'ur um nýjasta lyf fyrirtækisins, nefnilega mígreni- lyfsins. Danska samkeppnisráðið, sem áður hét einokunarráðið og fylgist með eðlilegum viðskiptahátt- um, hefur nú farið þess á leit við Evrópubandalagið að það taki til athugunar hvort Glaxo bijóti reglur bandalagsins um samkeppni, Af fréttum í Danmörku má marka að umræðunni um lyijaverð er alls ekki lokið. SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR fréttaritari Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn. Meðferð gúmmíbjörgunarbáta er einföld og fljótlærð. Þó geta mistök og vanþekking á meðferð þeirra valdið fjörtjóni allra á skipinu á neyðarstundu. Lærið því meðferð og notkun gúmmí- björgunarbáta. ÁRANGURSRÍKAR SÖLUAÐFERÐIR Markmið markaðsfræðinnar er að skilja þarfir neytenda og þá þætti í umhverfinu sem hafa áhrif á þá. Sölumenn verða að hafa þekkingu á þörfum neytandans til þess að skilja kaup- hegðun hans, Hvers vegna kaupir neytandinn ákveðna vöru? Á námskeiðinu verður fjallað um: ★ Neytendur og þarfir þeirra. ★ Sölustjórinn - sölumennirnir ★ Staðsetning vöru ★ Að loka sölunni ★ 30 sölugullkorn Leiðbeinandi: Bæring Ólafsson, sölustjóri Vífilfells, Tími: 19. og 20. mars kl. 13.00-18.00 í húsa- kynnum Stjórnunarfélags- ins í Ánanaustum 15. 5tjómunarfélag Islands Ánanaustum 15, sími 621066. Hjartanlegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig og sýndu mér vinarhug á áttrœðisaf- mceli mínu 29. febrúar sl. Guð blessi ykkur öll. Þórhildur Jakobsdóttir frá Árbakka, Njálsgötu 36, Reykjavík. Arshótíð unglinga 14 ára og eldri frá Gusti, Sörla, Fáki, Herði og Sóta verður haldin í félagsheimili Fáks, föstudaginn 13. mars kl. 20. Heitur matur, diskótekið Dísa, skemmtiatriði og fleira. Veislustjóri verður hinn alkunni knapi Tómas Ragnarsson. Miðar seldir á skrifstofu Fáks frá 9. mars. Verð kr. 800,- Spariklæðnaður. Unglingadeild Fáks. Hlnn þekkti húðfrœðingur, MICHELLE AMBERNI kynnir og veitir persónulega ráðgjöf varðandi notkun á nýju áhrifaríku kremlínunni RM2 frá STENDHAL. Fimmtudaginn 12. mars kl. 11 -17. Snyrtivöruverslunin KRISMA, ísafirði. Stendhal Stendhaltrœðingur veitir törðunarráðgjðf, með litallnunnl frá STENDHAL. Blomberg þvottavélarnar hlutu hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF hönnunarverðlaun fyrir framúr- skarandi glæsilega og hugyit~ samlega hönnun. Við bjóðum nú gerð WA-230 með kostum, sem skapa henni sér- stöðu: * Tölvustýrður mótor * yfirúðun * alsjáltvirk magnstilling á vatni * umhverfisvænt sparnaðarkerfi. Verð aðeins kr. 69.255 stgr. Aðrar gerðir frá kr. 58.615 w Einar FareStvett&Co.hf. Borgartuni 28 ® 622901 og 622900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.