Morgunblaðið - 11.03.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.03.1992, Blaðsíða 39
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 39 Morgunblaðið/Július Júlíus Jónasson lék að nýju í gærkvöldi eftir langt hlé vegna meiðsla og stóð sig vel. Var kraftmikili og gerði fímm falleg mörk. Hér hefur hann brotist í gegnum slóvensku vörnina. Reikna með að Júgóslavía verði með lið í Barcelona - segirToneTiselj landsliðsþjálfari Slóveníu Ijjálfari Slóveníu, Tone Tiselj, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi, að hann reiknaði með að lið Júgósavíu yrði með á hand- knattleikskeppni Ólympíuleik- anna í Barcelona í sumar og yrði þá skipað leikmönnum frá Serbíu og Svartfjallalandi [Montenegró]. Fari svo að Júgóslavía verði ekki með er landslið íslands næst í röðinni inn á leikana, en ekkert virðist benda tii að íslandi fái tækifæri til að leika í Barcelona. Eins og fram kom í blaðinu í gær hafa forystumenn Alþjóða handknattleikssambandsins [IHF] ákveðið að kalla handknatt- leiksforystumenn frá Júgóslavíu (Serbíu), Slóveníu, Króatíu og Bosníu Herzegóvínu á fund á næstu dögum til að reyna að fínna lausn á því hvort og þá hveijir þeirra keppi í Barcelona. Forystumenn IHF hafa stungið upp á því, skv. heimildum Morg- unblaðsins, að núverandi lýðveldi mætist í keppni um sætið sem Júgóslavía hafði tryggt sér, og sagði Tiselj að ef því yrði myndi lið hans taka þátt. Sagði reyndar að leikir þessir gætu örugglega ekki farið fram í Júgóslavíu, eða á landssvæði sem áður tilheyrði því landi, heldur t.d. í Austurríki. „Fólk heima hefur sagst gjarna viljað sjá þá dómara sem myndu dæma þessa leiki!“ sagði þjálfar- inn og brosti. Sagði að eflaust yrði hart barist og viðureignimar því ekki auðdæmdar. Égætlatil Svíþjódar - sagði Þorbergurlandsliðsþjálfari, en margt þarf að batna til að ísland nái einu^ af fjórum efstu sætunum í B-keppninni^ ÍSLAND sigraði Slóvenfu 22:19 í vináttuleik í Laugardalshöll í gærkvöldi. Það verður að segj- ast eins og er að leikurinn var ekki góður. Jákvæðir hlutir sáust þó, en of fáir. Og það gegn andstæðingum sem áttu einn vináttuleik að baki gegn Króatíu i febrúar, og voru sam- an á æfingum í tvo daga fyrir íslandsförina. Nú em ekki nema níu dagar í fyrsta leik í B-keppninni og mikið verður að breytast til að dæmið gangi upp. Skapti Það tekst vonandi, Hailgrímsson og Þorbergur Aðal- skrífar steinsson landsliðs- þjálfari er bjartsýnn á það. Æfingaleikir sem þessi skipta auðvitað ekki máli í sjálfu , sér, þegar upp er staðið, heldur frammistaðan í keppni — og það er óskandi að Þorbergur verði með liðið á toppnum á réttum tíma. En eins og liðið leikur í dag og hefur gert undanfarið er staðan ekki góð. „Það vantar neista í liðið. Meiri hvatningu frá áhorfendum og öðr- um,“ sagði Þorbergur við Morgun- blaðið eftir leikinn í gærkvöldi. „Ef við fengjum hana ætti dæmið að ganga upp. Það voru góðir hlutir í leiknum en svo var þetta daufara inn á milli.“ Hann sagði þá rúmu viku sem er til stefnu nógan tíma til að létta strákana og hvíla. „Við gerum það með æfingum næstu daga og svo fá þeir frí um helg- ina.“ Og bætti við: Ég ætla til Sví- þjóðar," sagðj þjálfarinn. Þar fer A-heimsmeistarakeppnin sem kunnugt er fram á næsta ári, og fjögur efstu sætin í B-keppninni gefa farseðil til Svíþjóðar. íslendingar höfðu alltaf forystu í gærkvöldi og sigurinn var aldrei í hættu, en minnsti munur varð þó eitt mark, t.d. 19:18 og 20:19 þeg- ar skammt var til leiksloka. Bjarki gerði svo 21. markið með langskoti og Valdimar það síðasta, um það bil er tíminn rann út, með skoti yfir endilangan völlinn — knöttur- inn fór á milli fóta markvarðarins, sem reyndi að veija, og inn! Kostu- legt mark, af u.þ.b. 35 m færi, og nokkuð dæmigert fyrir þann hand- bolta sem boðið var upp á eftir hlé. Ísland-Slóvenía22:19 Laugardalshöll, vináttulandsleikur í handknattleik, þriðjudaginn 10. mars 1992. Gangur leiksins: 3:0, 4:3, 5:5, 10:6, 13:8, 14:10, 15:12, 16:15, 18:17, 19:18,,20:19, 22:19. Mörk íslands: Valdimar Grímsson 7/2, Júlíus Jónasson 5, Bjarki Sigurðsson 3, Geir Sveinsson 2, Konráð Olavson 2/2, Jakob Sigurðsson 1, Gunnar Gunnarsson 1, Sigurður Bjamason 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 3, Guðmundur Hratnkelsson 2. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Slóveniu: Jani Cop 5/2, Roman Pungartnic 3, Uros Serbec 2, Tomaz Jersic 2, Tomaz Cater 2, Tomaz Tomsic 2, Bojan Voglar 1, Gregor Glavac 1, Ales Levc 1. Varin skot: Boris Ðenic 4. Utan vallar: 10 mínútur. Ðómarar: Stefán [ Amarldsson og Rögnvald Erlingsson. Áhorfendur: Seldir miðar vom um 200. Sóknarleikur íslenska liðsins var í góðu lagi í fyrri hálfleik, sóknar- nýtingin um 70% og mörkin §öl- breytt, en seinni hálfleikurinn var mun slakari. Þegar langt var liðið á hálfleikinn var sóknarnýtin^úvr aðeins um 33% en með góðum enda- spretti fór hún upp í um 50%. íslensku strákamir vöm ekki nálægt sínu besta. Júlíus Jónasson, sem lék í fyrsta sinn í langan tíma, var góður í fyrri hálfleik og gerði falleg mörk. Var mjög kraftmikill. Valdimar var einnig ógnandi óg Bjarki gerði laglega hluti. Annars átti sóknin oft í erfiðleikum gegn vörn Slóvena, sem lék framarlega. Þá var vörn Islands ekki nógu góð. Það er umhugsunarefni að aðeins seldust um 200 miðar á leikinn í gærkvöldi. Áhuginn á landsliðinu hefur verið lítill undanfarið, enda ekki gengið sérlega vel og móther- jamir ekki spennandi. En sem Sstfft segir er það frammistaðan þegar á hólminn kemur sem skiptir máli og ekki má gleyma því að Kristján Arason bætist í hópinn. Síðasti leikur liðsins áður en það heldur utan verður í kvöld í Kefla- vík, gegn Slóveníu, og væri það við hæfi að áhorfendur fjölmenntu og styddu við bakið á strákunum á lokasprettinum. Þeir geta betur og ætla sér það í Austurríki. Eitt af fjórum efstu sætunum er takmark- ið, og vonandi næst það. ÚRSLIT KORFUKNATTLEIKUR ÚRSLIT UMFG-IBK 86:76 Grindavík, þriðjudaginn 10. mars 1992. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:13, 8:18, 12:23, 17:23, 21:27, 32:27, 36:29, 45:37, 45:45, 53:63, 57:66, 73:66, 81:73, 86:76. Stig UMFG: Joe Lewis Hurst 31, Guðmund- ur Bragason 28, Marel Guðlaugsson 10, Rúnar Árnason 5, Bergur Hinriksson 5, Pálmar Sigurðss. 4, Hjálmar Hallgrimss. 3. Stig IBK: Guðjón Skúlason 22, Nökkvi Már Jonsson 20, Jonathan Bow 19, Jón Kr. Gíslason 7, Albert Óskarsson 6, Brynjar Harðarson 2. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Víglundur Sverrisson. Áhorfendur: Liðlega 500 Valur-Þór 121:69 Iþróttahúsið að Hlíðarenda: Gangur leiksins: 6:0, 28:9, 59:26 59-30 74:32, 97:50, 109:55, 115:64, 121:69. Stig Vals: Svali Björgvinsson 30, Frank Booker 25, Magnús Mattíasson 14, Guðni Hafsteinsson 13, Ari Gunnarsson 12, Lárus D. Pálsson 9, Símon Ólafsson 8, Tómas Holton 6, Jón Bender 2, Mattías Mattiass. 2. Stig Þórs: Joe Harge 28, Örvar Erlendsson 13, Arni Þór Jónsson 7, Högni Friðriksson 6, Birgir Birgisson 5, Þorvaldur Amarsson 4, Einar Hólm Davíðsson 4, Hafsteinn Lúð- víksson 2. Dónmrar: Einar Þór Skarphéðinsson og Brynjar Þór Skarphéðinsson . Baráttuleikur í Grindavík GRINDVÍKINGAR báru sigur- orð af nágrönnum sínum frá Keflavík 86:76 í hröðum og skemmtilegum leik sem var þó ekki laus við mistök sem voru ótalmörg á báða bóga. Frimann Ólafsson skrífar Keflvíkingarnir virtust ætla að kafsigla gestgjafana og skor- uðu 13 stig gegn aðeins 2 á upphafs- mínútum leiksins. Jonathan Bow fékk þriðju villu sína rétt eftir miðjan hálfleik- inn auk þess sem Keflvíkingar hvíldu byijunarliðs- mennina. Þá var eins og lið Grinda- víkur hi-ykki í gang og náði forystu fyrir leiklilé. Keflvíkingar gerðu ekki nema 7 stig síðustu 8 mín. og 27 í hálfleiknum sem hefur líklega ekki gerst í langan tíma. Keflvíkingar náðu síðan að jafna leikinn í seinni hálfleik og munaði mest um að Guðjón Skúlason sem ekki skoraði neitt í fyrri hálfleik fór í gang og skoraði margar fallegar körfur. Þeir náðu síðan að snúa leikn- um sér í hag og voru yfir 66:57 þeg- ar um 7 mín. voru eftir. Þá sögðu Grindvíkingar hingað og ekki lengra og skoruðu 14 stig í röð án svars frá Keflvíkingum og gerðu út um leikinn. Þrátt fyrir að Grindvíkingar ættu góðan endasprett í Japísdeildinni sitja þeir eftir með sárt ennið og hafa lokið þátttöku í vetur. Joe Lewis Hurst átti stórleik með þeim og sýndi að það var mikill fengur fyrir Grindvíkinga að fá hann í sín- ar raðir. Guðmundur Bragason stóð honum lítt að baki og einnig áttu þeir Hjálmar, Marel og Bergur ágætan leik. Nökkvi Már Jonsson og Guðjón Skúlason áttu bestan -leik Keflvíkinga. Burst Valsmenn unnu stórsigur á Þór að Hlíðarenda í gærkvöldi, 121:69, í leik sem skipti engu máli. Valsmenn öruggir í Stefán úrslitakeppnina en Stefánsson Þórsarar löngu falln- skrifar ir. Valsmenn náðu alltaf að halda meira en helmingsmun, ungu drengirnir fengu að spreyta sig og allir skor- uðu. Lárus D. Pálsson og Guðni Hafsteinsson, létu ljós sitt skína á meðan gömlu kapparnir hvíldu. Þeir komu þó inná af og til og brá þá fyrir skemmtilegum syrpum. Joe Harge var allt í öllu hjá Þór eins og við er að búast. Merkilegt samt hvað drengjunum tókst að skora, tveir eru sautján ára og tveir fímmtán og sá sein þeir kalla gamla er tuttugu og tveggja ára. Knattspyrna w England 1. deild: Arsenal — Oldham................2:1 (Wright 55., Merson 58.) - Ritchie 84.). 22.096. Notts County — Aston Villa......0:0 8.389. Wimbledon — Everton.............0:0 3.569. 2. deild: Blackburn — Southend............2:2 Cambridge — Newcastle...........0:2 Grimsby — Brighton..............0:1 Plymouth — Bristol City.........1:0 Swindon — Charlton..............1:2 Skotland Úrvalsdeild: Hibemian — Rangers..............1:3 B-RIÐILL Fj. leikja U T Stig Stig IBK 25 21 4 2450:2111 42 VALUR 25 14 11 2369: 2253 28 UMFG 26 13 13 2325: 2166 26 HAUKAR 25 11 14 2379: 2429 22 ÞÓR 25 2 23 2079:2522 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.