Morgunblaðið - 03.05.1992, Qupperneq 16
ææs*:?^
y jlÓRGUNBLAÐIÐ FASTEIGMIR SUNNÚDAGUR
3. MAÍ 1992
^
Brekkutún - parh. - Kóp.
238 fm glæsilegt parhús á þremur hæðum. Á 1. hæð
er 1 svefnherb., stofur, sólstofa, eldhús. Á efstu hæð
eru 3 svefnherb., þvottah. og bað. í kj. er sjónvarps-
herb., föndurherb. og geymsla. Parket er á gólfum og
flísar. Eignin er öll vel viðhaldin. 35 fm bílsk. Einkasala.
Eignin er laus ágúst/september.
Fasteignasalan 641500
EIGNABORG sf jft
Hamraborg 12 - 200 Kópavogur ■■
Va\aii(li skllning-
nr á nauósyn vió-
halds á húseignum
61 44 33
OPIÐ SUNNUD. KL. 13.00-15.00
Einbýlis- og raðhús
HRISATEIGUR
Vel með farið steinh. á tveimur
hæðum. Efri hæð 2 stofur
(skiptanl.), 3 svefnherb., eldhús
og bað. Kj. 3 herb., eldhús, bað
o.fl. Geymslur í risi og kj. 33 fm
bílsk.
HÚS í VESTURBÆ
Endurbyggt steinh. á tveimur
hæðum v/Fálkagötu. 3 svefn-
herb., sjónvherb. og baðherb. á
neðri hæð. Stofur og eldh.
m/fallegu panelklæddu lofti á
efri hæð. Verð 11,5 millj.
RAÐH. OG ATVH.
V/LA UFBREKKU
185 fm nýtískul. og-vandað hús
á tveimur hæðum byggt 1985.
Sambyggt með aðkoma neðan
frá Dalbrekku er 330 fm 1. fl.
nýinnr. húsn. f. ýmis konar atv-
rekstur. Selst saman eða i
tvennu lagi.
MÝRARÁS
NÝTT í SÖLU
Einbhús á einni hæð 220 fm
þar af 35 fm bílsk. M.a. stofur,
4 rúmg. svefnherb. og blóma-
c|/ó|i
RAUÐAGERÐI
Einbhús á tveimur hæðum meö
innb. bílsk. Alls 350 fm. Verð
19,5 millj.
/ VESTURBÆNUM
Fallegt frekar nýl. einbhús á
einni hæð alls 223 fm að með-
töldum innb. bílsk. m.a. 2 stofur
og 5 svefnh. Laust eftir sam-
komulagi. Verð 20 millj.
NÝTT PARHÚS -
ÁHV. 9,3 MILLJ.
V/HÚSBRÉFA
212 fm hús á tveimur hæðum
m/innb. bílsk. v/Dalhús.
„PENTHOUSE“
Ca 180 fm íb. á tveimur hæðum
v/Skúlagötu tilb. u. trév. og
máln. Afh. fljótl.
4ra og 5 herb.
HLÍÐARVEGUR
Afburða falleg 155 fm neðrl
sérhæð í nýl. tvíbhúsi ásamt
bílsk. Viðarkl. loft. Flísal. stofur.
4 svefnherb., eldh. m/gegnheilli
viðarinnr. Sólstofa m/heitum
potti. Fallegur garður.
BARMAHLÍÐ
4ra herb. ca 100 fm íb. á 1. hæð
m/sérinng. og 30 fm bílsk. Verð
8,9 millj.
SAFAMÝRI
5 herb. endaíb. á 4. hæð ásamt
bílskrétti. Tvær stofur m/arni,
skiptanlegar, og 3 svefnherb.
Nýl. eikarinnr. í eldhúsi og sam-
eign endurn.
VESTURBERG
Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð.
Sameign ný standsett. V. 6,8 m.
2ja og 3ja herb.
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ
2ja herb. 85 fm þjónhús f. aldr-
aða hjá DAS í Hafnarfirði.
FURUGERÐI
Bráðfalleg 74 fm 2ja-3ja herb.
íb. á jarðh. Sér hiti. Sérgarður.
Laus strax.
HÁTÚN - LYFTA
Nýkomin í sölu 3ja-4ra herb. íb.
á 3. hæð. M.a. 2 stofur og 2
svefnh. Sameign nýstandsett.
VESTURBERG
3ja herb. útsýnisíb. á 4. hæð.
Verð 5,9 millj.
I smíðum
„PENTHOUSE“-ÍB.
Við lækinn í Hafnarf. ný 114 fm
íb. á tveimur hæðum m. útsýni
yfir gamla bæinn. Suðursv.
VIÐARÁS - RAÐH.
160 fm raðh. tilb. u. trév. og
máln. Milliveggir komnir. Hag-
stætt verð.
SETBERGSHLÍÐ
Nýtískul. og bjartar 4ra-5 herb.
íb. á tveimur hæðum v/Klukku-
berg m/stórkostl. útsýni.
2JA HERB.
Ný og falleg íb. á 1. hæð við
Þverholt. Bílskýli. Verð 5,8 millj.
Atvinnuhúsnæði
SKIPHOLT
Til sölu nokkrar 250 fm einingar
á götuhæð með góðri lofthæð.
LAUGAVEGUR - 560 FM.
ÁRMÚLI - 300 FM.
SUÐURLANDSBR. - 380 FM.
SÍÐUMÚLI - 820 FM.
LÁGMÚLI - 185 FM.
DALBREKKA - 230 FM.
EIÐISTORG - 166 FM.
EYJARSLÓÐ - 1550 FM.
FAXAFEN - 604 FM.
FUNAHÖFÐI - 674 FM.
HVALEYRARBRAUT -140 FM.
HVALEYRARBRAUT - 218 FM.
HVERFISGATA - 917 FM.
TANGARHÖFÐI - 400 FM.
VATNAGARÐAR - 650 FM.
SUÐURLANDSBR./200-1200
SÍÐUMÚLI - 150 FM.
TUNGUHÁLS - 850 FM.
DALVEGUR - 1050 FM.
HEILD III - 630 FM.
TIL LEIGU V/FELLSMÚLA -
860 FM
GEYMSLUHÚSN. TIL LEIGU.
250 KR. PER. FM.
TIL LEIGU F. LÖGMANNSST.
100-200 FM NÝINNR. HÚSN.
í MIÐBÆNUM.
VAGM JONSSON
FASTEIGNASALA
Skúlagötu 30
Atli Vagnsson hdl.
SÍMI 61 44 33 • FAX 61 44 50
- segír Ragnar Gunnarsson, fram-
lcvæmdastjóri Verkvangs hf.
VIÐHALDI og viðgerðum á húseignum hefur farið fram hér á undan-
förnum árum. Vegna samdráttar í nýbyggingum hafa margir öflug-
ir verktakar snúið sér að þessum verkefnum. Þeir ráða gjarnan
yfir betri verkþekkingu og tækjakosti en tíðkaðist í þessari grein
hér áður fyrr. Af sömu ástæðu er það einnig hagkvæmara fyrir
húseigendur, sem þurfa á þessari þjónusta að halda, að leita eftir
henni nú. Samkeppnin er meiri og því fást betri tilboð. Litlar verð-
hækkanir hafa orðið á þessari þjónustu á undanförnum árum og
að sumu leyti hafa verðin staðið í stað, sem þýðir í reynd verðlækkan-
ir. Verkin taka líka styttri tíma og þeim fylgja því minni óþægindi
en áður.
etta kom m. a. fram í viðtali
við Ragnar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra Verkvangs hf., sem
er ráðgjafarfyrirtæííi og sérhæfir
sig einkum í viðhaldsverkefnum,
nýbyggingaeftir-
liti og hita- og loft-
ræstilögnum. En
Ragnar viður-
kennir, að það sé
ríkjandi mikil tor-
tryggni hjá al-
menningi gagn-
vart viðhalds- og
viðgerðarfyrir-
tækjum. — Ef við lítum t.d. á húsa-
viðgerðir, þá hafa þær um langan
tíma haft á sér vont orð, segir hann.
— Almannarómur hefur haft fyrir
satt, að við slíkt ynnu aðallega
skúrkar og fúskarar og að viðgerð-
ir entust aðeins fáein ár. Verktök-
um væri borgað fyrirfram og síðan
sæust þeir ekki meir. Skólakrakkar
væru látnir vinna verkin eða ekki
væri unnið allt sumarið en þá fyrst
byijað, þegar vetur gengur í garð.
Hvað eftirlit snertir, hafa margir
þótzt hafa það fyrir satt, að í eftir-
liti væru frakkaklæddir hvítflibbar,
sem aldrei sæjust og ef það gerðist
þá þyrðu þeir ekki upp á verkpalla.
Ragnar Gunnarsson er fæddur
1943 og alinn upp í Reykjuvík.
Hann lærði fyrst pípulagnir en fór
síðan í Tækniskóla íslands og út-
skrifaðist þaðan 1983. Síðan starf-
aði hann um skeið á teiknistofu en
réðst síðan til Verkvangs hf. 1987
sem framkvæmdastjóri og hefur
starfað þar síðan. Þar starfa að
jafnaði 5-7 manns.
Erfitt verkefni
En af hveiju stafar þetta orð-
spor? — Það er ekki furða, þó að
það hafi viðgengizt lengi, segir
Ragnar. — Venjulegir iðnaðarmenn
hafa ekki viljað gefa sig í þessi
verk. Nóg hefur verið að gera í
nýbyggingum. Menn hafa talið lítið
upp úr þessu að hafa og erfitt að
koma við fagmennsku, því að fú-
skararnir hafa ætíð gert lægri til-
boð en fagmennirnir. Einnig má
segja um húsaviðgerðir, að þær eru
vanþakklátt starf. Það tekur því að
sjálfsögðu enginn fagnandi, þegar
honum er tjáð, að gera þurfi dýra
viðgerð á íbúðinni eða húsinu hans.
— Viðgerðir og viðhald eru sér-
stakt fag, sem lærist fyrst og fremst
af margra ára reynslu, heldur
Ragnar áfram. — Nokkrar verk-
fræðistofur hafa sinnt þessum mál-
um af alvöru og þróað aðferðir og
verklýsingar. Samt hefur verið
nokkuð um, að óreyndir aðilar á
þessu sviði hafi tekið að sér verk
og gert slæm mistök. Þegar fjallað
hefur verið um viðhaldsmarkaðinn
á opinberum vettvangi t.d. í fjöl-
miðlum, þá hafa í flestum tilfellum
verið dregin fram slæm tilfelli og
oft verið býsnazt yfir miklum við-
gerðakostnaði. Rætt hefur verið við
aðila hvem úr sinni áttinni, sem
hafa mismunandi reynslu á þessu
sviði. Hinn almenni húseigandi hef-
ur verið jafn ráðvilltur eftir sem
áður og setið uppi með spurningar,
sem ekki hafa fengizt svör við.
Að mati Ragnars hafa húsvið-
gerðir samt farið hér batnandi á
undanförnum árum. — Það er liðin
tíð, að verktakar séu óhæfir og
svikulir nema_ í undantekningatil-
fellum, segir hann. — Nokkrir ófag-
lærðir fúskarar eru enn á markaðn-
um og á hveiju vori koma fram
nýjar stjörnur af því tagi. Þessir
aðilar eiga það sammerkt að gera
lág tilboð beint til húseeigenda og
vinna síðan eftirlitslaust. Þeir fá
yfirleitt einhver verkefni, sem
nægja til þess að viðhalda þessum
hóp.
En hver er ábyrgur, ef húsavið-
gerðir reynast ekki eins og til stóð?
— Að sjálfsögðu ber sá ábyrgð á
verki, sem það vinnur, en oft er á
reiki, hvað langt sú ábyrgð nær,
segir Ragnar. — Verktakar eru
ábyrgir fyrir því handverki, sem
þeir vinna, en þeir bera ekki alla
ábyrgð á ástandi húsa, sem þeir
koma að. Samkvæmt íslenzkum
staðli gildir ábyrgð verktaka í eitt
ár frá verklokum. En það er áríð-
andi að skipta við heilsársverktaka,
sem er öflugur og metnaðargjam
og fús til að sinna kvörtunum.
Þá má ekki gleyma því, að hús
heldur að sjálfsögðu áfram að þurfa
sitt viðhald, þó að gert hafi við það
og það þeim mun frekar, ef það er
orðið gamalt og lúið að ekki sé tal-
að um, ef það er illa byggt. Ef reglu-
lega er hugað að fyrirbyggjandi
viðhaldi, reynizt það oftast mun
ódýrara þegar til lengdar lætur og
kostar jafnvel ekki nema brot af
því, sem annars gæti orðið.
Stutt vorskoðun á hveiju ári
ætti að tryggja, að viðhaldskostnað-
ur verði í lágmarki. Hún leiðir
kannski í ljós, að að eitthvað er
farið að gefa sig t.d. farið að leka
með gluggum. Slíkur leki gæti haft
mjög slæmar afleiðingar, ef hann
nær að skemma út frá sér. Ef gert
er við hann strax, er viðgerðin hugs-
anlega ekki nema lítilræði miðað
við það, sem síðar gæti orðið, ef
skemmdin fær að búa um sig. Það
er vatnið, sem er versti óvinur bygg-
inga hér á landi.
Meistari á að vera á öllum
verkum
Á næstunni er væntanleg ný
byggingarreglugerð. Þar verður
tekið á nokkrum þáttum, sem lúta
að viðgerðum og viðhaldi. — Það
verður t. d. skylt að hafa ábyrga
meistara á öllum verkum, segir
Ragnar. — Einnig þurfa hönnuðir
að tilkynna verkið til byggingafull-
trúa og tilgreina, hver verði verk-
taki og hver sé eftirlitsmaður að
verkinu. Þetta þýðir væntanlega,
að skylt verði að hafa ábyrga hönn-
uði á öllum verkum. Með þessu
móti á að tryggja, að aðeins fag-
menn sinrii viðgerðum og viðhalds-
Verkum.
Ragnar telur það mjög mikil-
vægt, að fólk geri sér grein fyrir
því, hvernig það eigi að fara að,
þegar huga þarf að viðhaldi húss-
ins. — Þar skptir máli að fá góða
úttekt, leita sambærilegra tilboða,
Morgunblaðið/Júlíus
Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Verkvangs hf.
eftir Magnús
Sigurðsson