Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 16.05.1992, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAI 1992 4 Ráðherrafundur EFTA á Islandi í næstu viku RÁÐHERRAFUNDUR Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, verð- ur haldinn í Reykjavík dagana 19.-21 maí en slíkir fundir eru haldnir tvisvar á ári. ísland fer með formennsku í ráði EFTA fyrri hluta þessa árs og mun Jón Baldvin Hannibalsson stýra fund- í frétt frá utanríkisráðuneytinu kemur frám, að meðal mála á dagskrá fundarins er samvinna EFTA og Evrópubandalagsins, EB, í kjölfar undirritunar samn- ingsins um evrópskt efnahags- svæði með tilliti til fullgildingar samningsins og gildistöku, sam- skipti við þriðju ríki, einkum ríki 5 Mið- og Austur-Evrópu og innri uppbyggingu EFTA eftir gildi- stöku EES, þar með talið framtíð- arskipulag skrifstofu EFTA í Genf og Brussel. Ráðherrar EFTA munu á fimmtudag eiga fund með varafor- Stal og skreið undir bíl LÖGREGLAN handtók í fyrri- nótt mann sem talið er að hafi undanfarnar vikur stolið áfengi af minibar i herbergi á Loftleiða- hótelinu. Starfsmaður hótelsins sá til mannsins þegar hann var á hlaup- um út, náði af honum áfenginu og hringdi í lögreglu. Þegar lögreglan handtók manninn hafði hann skrið- ið undir sendiferðabíl við hótelið og smeygt sér milli drifskafts og undir- vagns. seta framkvæmdastjórar Evrópu- bandalagsins, Frans Andriessen, þar sem m.a. verður fjallað um bráðabirgðafyrirkomulag sam- skipta EFTA og EB þar til samn- ingurinn um EES tekur gildi. Síðdegis á fimmtudag munu Jón Baldvin Hannibalsson og Frans Andriessen eiga fund tii að ræða tvíhliða samskipti EB og íslands. í tengslum við ráðherrafundinn verða haldnir fundir ráðgjafa- nefndar EFTA, þingmannanefnd- ar EFTA og sameiginlegur fundur ráðgjafamefndar EFTA og Efna- hags- og félagsmálanefndar Evr- ópubandalagsins. Miðvikudaginn 20. maí verður undirritað samkomulag varðandi framtíðarhlutverk þingmanna- nefndar EFTA. Síðar sama dag munu EFTA-ráðherrarnir og efna- hagsráðherra Slóveníu undirrita samstarfsyfirlýsingu EFTA-ríkj- anna og Slóveníu. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Straumöndin á náttúrugripasafninu í Eyjum. Straumönd á vappi í V estmannaeyjum V estmannaeyjum. UNGIR Eyjapeyjar fundu straumönd á vappi í miðbænum í vikunni. Fönguðu þeir öndina og komu henni til Kristjáns Egilssonar, safnvarðar náttúrugripasafnsins, sem tók hana í sína vörslu. Kristján sagði að öndinn hefði verið ansi slöpp er hann fékk hana en hann ætlaði að reyna að hressa hana við og sleppa henni síðan. Hann sagist hafga boðið henni upp á loðnu, sem hún hafi kroppað í og ljósátu sem hann týndi í fjörunum á Heimaey og hefði hún strax far- ið að kroppa í hana. Kristján sagði straumönd ekki algenga í Eyjum. Þó sæist hún stundum á sjónum við Eyjar yfír vetrartímann en hann vissi ekki til að straumönd hefði áður sést á bæjarrölti þar. Grímur Ríkisskattstjóri: í f » I \ » Reglur um vsk eru til endurskoðunar REGLUR um virðisaukaskatt eru nú til skoðunar í fjármálaráðun- eyti og hjá embætti ríkisskattstjóra. Er það vegna þess að endur- greiðsla innskatts hefur orðið mun meiri en áætlað var, þau tvö k ár sem liðin eru síðan virðisaukaskatturinn var tekinn upp. “ Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði á Alþingi á fimmtudag að verið væri að kanna hvort regl- ur um innskatt væru misnotaðar á einhvern hátt en niðurstöður þeirrar athugunar lægju ekki fyrir. Friðrik lýsti þeirri skoðun sinni, að fækka ætti undanþágum veru- lega í virðisaukaskatti og lækka skattstofninn um leið. Sömu skoð- un lýsti Guðmundur Bjarnason, þingmaður Framsóknarflokks. VEÐURHORFUR I DAG, 14. MAI YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi er hægt vaxandi lægðasvæði, sem þokast norðaustur. SPÁ: Suðvestankaldi og víða stinningskaldi um sunnan og vestanvert landið. Súld eða rigning sunnan- og vestanlands en þurrt að mestu norðaustanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg suðvestanátt. Skúrir um sunnan- og vestanvert landið en þurrt og léttir víða til á Norður- og Austur- landi. Hiti 6-10 stig, hlýjast norðaustanlands. HORFUR Á MÁNUDAG: Vaxandi austan- og suðaustanátt. Þykknar upp suðaustanlands með rigningu þegar líður á daginn. Hægari og léttskýjað norðanlands og vestan. Hiti 8-14 stig, hlýjast norðanlands. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir; 990600. ▼ •SUUíikÆ Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað r r r * f * * * * f f * f * * f r f f * / *** Rigning Slydda Snjókoma FÆRÐÁ VEGUM: Skýjað Alskýjað . * * V V v Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 10° Hitastig V Súld = Þoka (Kl. 17.30igær) Góð færð er á vegum í nágrenni Reykjavtkur. Vegir á Suðurlandi eru greiðfærir og einnig með Suðurströndinni austur á Austfirði. Á Vestur- landi er yfirleitt góð færð, og fært er um Dali í Gufudalssveit. Á Vest- fjörðum er yfirleitt ágæt færð nema ófært er um Þorskafjarðarheiði. Lágheiði er aðeins fær jeppum. Vegna aurbleytu eru sums staöar sér- stakar öxulþungatakmarkanir á vegum og eru þær tilgreindar með merkj- um við viðkomandi vegi. Allir hálendisvegirlandsins eru lokaðir vegna aurbleytu og snjóa. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 8 alskýjað Reykjavík Salskýjað Bergen vantar Helslnki 18 skýjað Kaupmannahöfn 19 helðsk/rt Narssarssuaq 2 skýjað Nuuk 3 snjókoma Ósló 17 léttskýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað Amsterdam 23 heiðskírt Barcelona 20 heiðskfrt Berlín 24 helðskírt Chicago 9 heiðskírt Feneyjar 27 léttskýjað Frankfurt 28 heiðskírt Glasgow 13 skýjað Hamborg 25 heiðskírt London 17 skýjað Los Angeles 17 alskýjað Lúxemborg vantar Madríd 28 léttskýjað Malaga 21 mistur Mallorca 25 heiðskírt Montreal 9 léttskýjað NewYork vantar Orlando vantar París 27 helðskfrt Madeira 18 skýjað Róm 26 heiðskírt Vín 22 léttskýjað Washlngton 17 skúr Winnipeg 5 heiðskírt F elagsmálaráðuneytið: Málþing um stöðu karla í breyttu samfélagi l Félagsmálaráðuneytið stend- ur fyrir opnu málþingi um stöðu karla í breyttu samfélagi í Borg- artúni 6 laugardaginn 23. maí frá kl. 11-16.30. Markmið mál- þingsins er að leggja'grunn að umræðu um stöðu karla í breyttu samfélagi. Hvernig karlar takist á við kröfur nýrra tíma sem heimilisfeður og uppa- lendur jafnframt því að vera útivinnandi. Á málþinginu verður fjallað um hvort löggjöfin og framkvæmd hennar taki mið af breyttu hlut- verki karla, breytt þjóðfélag og breytt hlutverk karla, fyrirmyndir drengja og karla í ímyndar- og tilfinningakreppu. Stjórnendur málþingsins verða Sigurður Snævarr, hagfræðingur, og Ari Skúlason, hagfræðingur. Margrét S. Björnsdóttir, formaður nefndar um stöðu karla í breyttu samfélagi, setur þingið og Jó- hanna Sigurðardóttir flytur ávarp. Meðal frummælenda eru Elsa Þor- kesldóttir, framkvæmdastjóri jafn- réttisráðs, Þorvaldur Karl Helga- son, forstöðumaður fjölskyldu- þjónustu kirkjunnar, og Guðmund- ur Andri Thorsson, rithöfundur. Skráning væntanlegra þátttak- enda er í Félagsmálaráðuneytinu. Þátttökugjald er kr. 1000 og er hádegisverður og kaffi innifalið. -----------» ♦ ♦---- Athugasemd frá Globus hf: Styður auk- ið frelsi í viðskiptum GLOBUS hf. hefur sent Morgun- blaðinu eftirfarandi athuga- semd: „Vegna leiðaraskrifa Morgun- blaðsins 15. þessa mánaðar þar sem fram kemur að umboðsaðilar séu því mótfallnir að einokun ríkisins á tóbaksvarningi verði aflétt, viljum við árétta að slíkt hefur aldrei kom- ið fram í okkar málflutningi og hljótum við því að mótmæla öllum skrifum í þá veru. Hið rétta er að Globus hf. fagnar auknu frelsi í viðskiptum af hvaða toga sem er.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.