Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1692
Morgunbladio/Kunar Pór
Plöntusala Skógræktarfélagsins í nýtt hús
Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur opnað plöntu-
sölu i nýjum húsakynnum í Kjarnaskógi. Hallgrím-
ur Indriðason framkvæmdastjóri sagði að aðstaða
til plöntusölu væri nú mun betri en áður þar sem
félagið hefði tekið í notkun nýtt hús þar sem vel
er búið að plöntusölunni. Félagið býður 150 tegund-
ir ttjáa og runna til sölu og á staðnum er fólk sem
veitir aliar upplýsingar um plönturnar. Tekjur af
plöntusölunni standa undir framkvæmdum á þeim
svæðum sem Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur til
umráða, en þau eru alls 13, frá Leyningshólum í
Eyjafjarðarsveit og út í Svarfaðardal. Á myndinni
eru starfsstúlkur plöntusölunnar, Snjólaug og Sig-
ríður.
Kór Akureyrarkirkju:
*
Islensk og erlend lög
á tvennum tónleikum
Allar ær látnar bera
í húsi sökum kulda
Björk, Mývatnssveit.
HER í Mývatnssveit hefur verið
ákaflega kalt að undanförnu.
Frost flestar nætur það sem af
er maí og jafnvel hefur frostið
komist í 8 stig.
í gær fór að snjóa og var alhvítt
í byggð um morguninn og hiti um
frostmark. Sauðburður er hafinn
og allt látið bera í húsi. Virðist
burður ganga vel. Á einu búi hér í
sveit eru bornar 80, þar er 21 þrí-
lembd og tvær fjórlembdar. Sýnist
fijósemin á því búi vera í hámarki.
Flestir farfuglar eru komnir
hingað og krían sást fyrir viku. Þá
vekur það athygli hvað stórir flotar
af lóu hafa verið á túnum hér við
vatnið síðustu dag og má vafalaust
kenna um hve kalt hefur verið og
snjór í heiðum.
Ekki er leyfð silungsveiði í net í
Mývatni í maímánuði.
Kristján
KÓR Akureyrarkirkju undir
stjórn Björns Steinars Sólbergs-
sonar heldur tónleika í Akur-
eyrarkirkju á morgun, sunnu-
daginn 17. maí kl. 17 og í félags-
heimilinu Tjarnarborg í Ólafs-
firði mánudaginn 18. maí kl.
20.30.
Á efnisskránni er blanda ís-
lenskrar og erlendrar tónlistar af
kirkjulegum og veraldlegum toga.
Sungin verður íslensk kirkjutón-
list eftir Róbert A. Ottósson, Jakob
Tryggvason, Pál ísólfsson, Þorkel
Sigurbjörnsson og Jón Hlöðver
Áskelsson og ættjarðarlög eftir
Emil Thoroddsen, Þórarin Guð-
mundsson og Bjarna Thorsteinson
og íslensk þjóðlög eftir Jón Ásgeirs-
son, Emil Thoroddsen, Hafliða Hall-
grímsson og Hjálmar H. Ragnars-
son. Einnig syngur kórinn lag eftir
danska kórstjómandann Ulrik Ras-
mussen auk tveggja mótetta eftir
A. Bruckner. Þessa efnisskrá mun
Kór Akureyrarkirkju syngja í tón-
leikaferð til Danmerkur 29. maí til
7. júní næstkomandi.
(Fréttatilkynning)
Hagnaður Foldu hf. um fímm
milljónir króna á síðasta ári
Gert ráð fyrir 400 milljóna króna veltu á þessu ári
UM 5 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Foldu hf. á liðnu ári,
en fyrirtækið hóf starfsemi 1. október síðastliðinn eftir gjaldþrot
Áiafoss hf. Á þessum tíma voru seldar vörur fyrir um 123 milijónir
króna, en reksti-argjöld námu um 115 milljónum króna. Eigið fé
Foldu nam í lok síðasta árs tæpum 70 milijónum króna. Hlutafé
félagsins var í árslok tæpar 65 milljónir og hluthafar voru 29, en
þeim hefur nú fjölgað í 39. Þetta kom fram á fyrsta aðalfundi félags-
ins sem haldin var í gær.
Júdómaður
fær styrk
FREY Gauta Sigmundssyni júdó-
manni úr K. A. var nýlega veittur
styrkur að upphæð 75 þúsund
krónur úr Minningarsjóði Jakobs
Jakobssonar.
Freyr Gauti hefur unnið sér rétt
til að keppa á Olympíuleikunum í
Barcelona í sumar.
Jakob Jakobsson var landsliðs-
maður í knattspyrnu og einn besti
leikmaður sem K.A. hefur átt í
þeirri íþrótt. Alls hafa 40 einstakl-
ingar hlotið styrk úr sjóðnum en
fyrsti styrkurinn var veittur árið
1966.
Baldvin Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri Foldu sagði að út-
koma síðasta árs væri ekki mark-
tæk fyrir heilt ár, en hún gæfi þó
góða vísbendingu. í þessari starfs-
grein, ullariðnaði, kæmu meginhluti
tekna inn seirini liluta sumars og
fyrri hluta vetrar og þar af Ieiðandi
væri rekstrarreikningur félagsins
ekki fyllilega marktækur. Þá sagði
hann að fýllstu varúðar hefði verið
gætt varðandi afskriftir á vélum,
tækjum, vörubirgðum og útistand-
andi kröfum.
Eigið fé félagsins var um 70
milljónir króna í lok árs. Skuldir
námu samtals tæpum 168 milljón-
um króna, en þar af voru skamm-
tímaskuldir tæplega 112 milljónir
króna. Á þeim þremur mánuðum
sem félagið starfaði á liðnu ári seldi
það vörur fyrir um 123 milljónir
króna, innanlandssalan nam 19,5
milljónum króna og útflutningur
102,5 milljónum. Rekstrargjöld
voru 115 milljónir og munar þar
mestu um hráefniskaup, sem voru
upp á 48 milljónir króna.
Á árinu störfuðu að meðaltali 127
starfsmenn hjá fyrirtækinu og
námu launagreiðslu samtals 38,1
milljón króna. Frá árslokum hefur
hluthöfum fjölgað um 10, úr 29 í
39. Tveir hlutahafar eiga yfir 10%
eignarhlut í félaginu, Framkvæmd-
asjóður Akureyrar, sem á tæp 47%,
og Byggðasjóður tæp 19%.
Fram kom á aðalfundinum, að
velta fýrirtækisins fyrstu fjóra
mánuði þessa árs er um 80 milljón-
ir, eða um 10 milljónum króna
minna en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Baldvin sagði að áætlanir gerður
ráð fyrir um 400 milljóna króna
veltu á þessu ári og ekki væri
ástæða til að breyta þeim þrátt
fyrir nokkru minni veltu á fyrri
hluta árs en búist hafði verið við.
Þá sagði hann að útlit væri fyrir
að reksturinn skilaði hagnaði á
þessu ári.
Stjórn Foldu var endurkjörin á
fundinum, en í henni sitja Ásgeir
Magnússon, Kristján E. Jóhannes-
son, Árni Viðar Friðriksson, Guð-
mundur Guðmundsson og Ólafur
Vagnsson.
HASKOLINN A AKUREYRI
Ólafsfjarðarkirkja:
Fjölbreytt dagskrá Vordaga
VORDAGAR Ólafsfjarðar-
kirkju hefjast á mánudag, 18.
maí og stenda fram til sunnu-
dags 24. maí, en það er sóknar-
nefnd Ólafsfjarðarkirkju í sam-
vinnu við félög og stofnanir í
Ólafsfirði sem gangast fyrir
Vordögunum.
Dagskráin hefst með tónleikunr
Kórs Akureyrarkirkju í félags-
heimilinu Tjarnarborg næstkom-
andi mánudagskvöld og á þriðju-
dagskvöldið kl. 20.30 flytur Einar
Gylfi Jónsson forstöðumaður
Unglingaheimilis ríkisins fyrir-
lestur um unglinga í safnaðar-
heimili Ólafsfjarðarkirkju.
Kirkjukvöld verður í Olafsfjarð-
arkirkju miðvikudagskvöldið 20.
maí, þar syngur Andrea Gylfa-
dóttir einsöng, Kirkjukór Ólafs-
fjarðarkirkju flytur nokkur lög
undir stjórn Jakobs Kovosovsky
og Bjarni Guðleifsson náttúru-
fræðingur á Möðruvöllum í Hörg-
árdal verður ræðumaður kvölds-
ins. Ólafsfirskt kvöld verður sfðan
í Tjarnarborg á fimmtudagskvöld
í umsjá Leikfélags Ólafsfjarðar,
en gestir kvöldsins verður Tjarn-
arkvartettinn úr Svarfaðardal.
Barna- og unglingakvöld verður
í Tjarnarborg á föstudagskvöld.
Vordagamir ná hámarki næst-
komandi laugardag, en þá um
morguninn flytur dr. Björn
Björnsson yfirmaður fræðslu-
deildar þjóðkirkjunnar og prófess-
or í siðfræði við Háskóla íslands
„vínarbrauðserindi“ í safnaðar-
heimili Ólafsfjarðarkirkju. Það
nefnist „Á ég að gæta bróður
mins? Velferðarsamfélagið og
þjóðfélagsleg ábyrgð kirkjunnar"
Heit vínarbrauð og kaffi verða á
boðstólum. Meistaraflokkur Leift-
urs leikur sinn fyrsta 2. deildar-
leik í sumar við 1R og að honum
loknum hefst fjölskyldudagur í
Ólafsfirði, þar sem m.a. verður
farið í leiki, efnt til grillveislu og
kveiktur varðeldur. Um kvöldið
verða sameiginlegir tónleikar eldri
félaga karlakóranna og Geysis og
Fóstbræðra í Tjarnarborg.
Vordögunum lýkur sunnudag-
inn 24. maí, guðsþjónusta verður
í Ólafsfjarðarkirkju kl. 14 þar sem
dr. Pétur Pétursson predikar og
Kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju
frumflytur nýjan norðlenskan
sálm. Eftir messu verður kaffisala
í Tjarnarborg, en um kvöldið kl.
21 hefjast píanótónleikar Arnar
Magnússonar á sama stað.
Umsókn um skólavist
Heilbrigðisdeild, rekstrardeild
og sjávarútvegsdeild
Við heilbrigðisdeild er ein námsbraut, hjúkrunarfræðibraut.
Við rekstrardeild eru þrjár námsbrautir, iðnrekstrarbraut,
rekstrarbraut (1. og 2. ár) og gæðastjórnunarbraut (3. og
4. ár).
Við sjávarútvegsdeild er ein námsbraut, sjávarútvegsbraut.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 1. júní 1992.
Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskírteinum.
Ef prófum er ekki lokið skal senda skírteini um leið og þau
liggja fyrir.
Skilyrði fyrir inntöku í skólann er stúdentspróf eða annað
nám, sem stjórn skólans metur jafngilt. í gæðastjórnunar-
braut rekstrardeildar gilda þó sérstök inntökuskilyrði um
tveggja ára rekstrarnám eða annað nám, sem stjórn skól-
ans metur jafngilt.
Umsóknarfrestur um húsnæði á vegum Félagsstofnunar
stúdenta á Akureyri er til 20. júní 1992.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólans við Þingvallastræti, sími 96-11770, frá kl. 9.00 til
12.00.
Háskólinn á Akureyri