Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ Eg iða í skinninu eftir viðbrögðum Islendinga - segir bandaríski djasssöngvarinn Jon Hendricks BANDARÍSKI djasssöngvarinn Jon Hendrieks kom til íslands í fyrradag ásamt föruneyti, en hann heldur tónleika í tengslum við Rúrek-djass- hátíðina í Háskólabíói í dag. Hendricks kvaðst iða í skinninu eftir viðbrögðum Islendinga við tónlist sinni og lýsti yfir mikilli ánægju með dvöl sína í landinu. Hann hefur verið kallaður James Joyce sveiflunn- ar vegna texta sinna sem hann hefur samið við við klassíska einleikskafla djassbókmenntanna. Hann hefur hlotið Grammy- og Emmy-verðlaunin fyrir tónlist sína og hljómplata hans, Freddie Freeloader, sem kom út á síðasta ári, hefur hlotið afar lofsam- lega dóma. „Ég þykist syngja einleikskafla djassmeistaranna, aðrir verða að dæma um hvort mér takist það. Á tónleikunum í dag munum við ekki flytja Freddie Freeloader því Bobby McFerrin, A1 Jarreau og Ge- orge Benson eru ekki með í för. Ég kann að vísu tenórkafla Coltranes, en Judith [eiginkona Hendricks] hefur ekki lært sína parta,“ sagði Hendrieks og hló. Á tónleikunum verða flutt þekkt djasslög við texta Hendricks, en auk hans koma fram eiginkona hans, dóttirin Aria, baritónsöngvarinn Kevin Burke, Ren- ato Chieco píanó, Ugonna Okegwo bassa og David Watson trommur. Aðgöngumiðasala er í versluninni Japis í Brautar- holti og í Háskólabíói fyrir tónleikana sem hefjast kl. 14.30. Jon Hendricks Morgunblaðið/KGA Svifflug hafið á Sandskeiði Boðið verður upp á kennslu í svifflugi SVIFFLUGMENN hófu sig til flugs frá Sandskeiði um seinustu helgi í fyrsta sinn á þessu sumri. Veður til svifflugs var ekki sem best en þó voru farin nokkur flug og menn fengu smá flugtilfinningu eftir langan vetur. árangri er náð fá menn að fljúga einflug á vélum félagsins. I sumar stendur til að halda mót í svifflugi þar sem svifflugmenn allsstaðar af landinu hittast og keppa í yfirlands- flugi og lendingum. Islandsmótið í svifflugi verður svo haldið á Hellu. 1992 Morgunblaðið/Matthías Jóhannsson Valur Valsson bankastjóri afhendir Örlygi Kristinssyni styrkinn. Siglufjörður: íslandsbanki gefur millj- ón til Síldarminjasafns MENNINGARSJOÐUR Islands- banka hefur veitt einnar milljón króna styrk til uppbyggingar Síldarminjasafns Siglufjarðar. Á næsta ári verða liðin 90 ár frá upphafi síldveiða og vinnslu á Siglufirði. Það var jafnframt upphaf 60 ára sögu Siglufjarðar sem miðstöðvar síldariðnaðarins á Islandi. Félag áhugamanna um minja- safn FÁUM var stofnað fyrir tæp- um 3 árum á Siglufirði og sér það um allar framkvæmdir og ijáröflun við að koma safninu fyrir í Roalds- brakka. Örlygur Kristinsson, for- maður FÁUM, veitti styrknum við- töku á Siglufirði úr hendi Vals Valssonar bankastjóra íslands- banka. Styrkurinn er jafnframt sá hæsti sem veittur hefur verið úr sjóðnum til þessa. Fram kom við afhendingu styrksins að stofnun síldarminjasafns er merkilegt menriingarlegt framtak til að minn- ast síldarævintýrisins sem átti svo stóran hlut í efnahagslegum fram- förum íslensku þjóðarinnar fyrri hluta þessarar aldar. Stjórn sjóðsins er kosin af banka- ráði íslandsbanka og eru tekjur hans fyrst og fremst framlag frá aðalfundi hveiju sinni. í stjórn sjóðsins sitja Valur Valsson banka- stjóri, Brynjólfur Bjarnason fram- kvæmdastjóri og Matthías Johann- essen ritstjóri. Björg Atla í Café Mílano í KAFFIHÚSINU Mílanó, Faxa- feni 11, eru nú til sýnis myndir eftir Björgu Atla myndlistar- mann. Verkin eru 16 talsins, málverk og smámyndir, flest þeirra ný. Björg Útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla íslands 1982. í sumar verður svifflugkennsla á toguð upp í 400 metra hæð af spil- vegum Sviffiugfélags Islands á bíl eða er dregin upp í um 2.000 Sandskeiði. Kennt verður á tveggja metra hæð af vélflugu félagsins. sæta svifflugu sem annað hvort er Þegar tilskildum fjölda flugtíma og Morgunblaðið/Benedikt Sviffluga dregin á loft á Sandskeiði um seinustu helgi. HEILSU NÝBÝLAVEGI24 LINDIN SÍMI46460 3ja ára afmæli OPIÐ HÚS • Frítt í ljós • Nuddarar verða með nuddkynningu • Kaffi á könnunni og með því. Laugardaginn 16. maí frá kl. 11-17. Allir velkomnir. Sími 46460. Mercedes-Benz 200E Ó viðj afnanlegur! Mercedes-Benz Stjarnan sem vísar veginn. ► Eigum fyrirliggjandi nýjan Mercedes-Bens 200E, vel búinn aukahlutum. Nánari upplýsingar gefa sölumenn Ræsis hf. RÆSIR HF Skúlagötu 59, Reykjavík S. 619550

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.