Morgunblaðið - 16.05.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992
Míkhaíl Gorbatsjov og George Bush.
Bandaríkjaheimsókn Gorbatsjovs lokið:
Engin áform um frek-
ari sljómmálafskipti
Washington. Reuter, The Daily Teiegraph.
TVEGGJA vikna Bandaríkjaferð Míkhaíls Gorbatsjovs, fyrrum
Sovétforseta, lauk í gær. Á fimmtudag hélt hann ræðu í bandaríska
þinginu og snæddi kvöldverð með George Bush, Bandaríkjaforséta.
Gorbatsjov hefur á ferð sinni m.a. reynt að afla Gorbatsjov-stofnun-
inni, sem starfrækt er í Moskvu og San Francisco, fé og er talið
að honum hafi tekist að safna megninu af þeim þremur milljónum
dollara sem hann stefndi að.
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
heldur í næsta mánuði í opinbera
heimsókn til Bandaríkjanna og
hafði hann lagt mikla áherslu á það
að heimsókn sín myndi ekki falla
í skuggann af heimsókn Gorbatsj-
ovs. Þannig var Gorbatsjov, sem
óbreyttum borgara, ekki boðið að
halda ræðu sína í aðalsal þingsins
heldur hliðarsal og fundi hans með
Bush var heldur ekki slegið upp.
Lengi vel var hann ekki merktur
inn á hina opinberu áætlun Hvíta
hússins en því var síðan breytt og
ljósmyndurum leyft að taka mynd-
ir. Var það gert að ráði ráðgjafa
Bandaríkjaforseta sem töldu að
annars væri verið.að sýna Gorbatsj-
ov og framlagi hans til heimsfriðar
óvirðingu.
Blaðamenn spurðu Gorbatsjov
eftir að hann flutti ræðu sína á
þinginu hvort að hann hyggði á
frekari frama í stjórnmálum. „Ég
verð að svara þessu mjög afger-
andi. Ég hef engin slík áform,“
svaraði Gorbatsjov en bætti síðan
glottandi við að „állt væri breyting-
um háð“. Ef lýðræði í Rússlandi
myndi virðast í hættu yrði hann
að meta stöðuna upp á nýtt og
taka síðan ákvörðun.
jfyrír
viðkvœma
staði
Lactacyd léttsápan styrkir
náttúrulegar varnir húðar-
innar og kemur í veg fyrir
kláða og óþægindi við
kynfæri, endaþarm og
undir brjóstum ■
Lactacyd léttsápan hefur
lágt pH-gildi (3,5) eins og
húðin sjálf og styrkir því
eðlilegar varnir hennar ■
■ Lactacyd
léttsápan
fæst í helstu
stórmörkuð-
um og að
sjálfsögðu
öctacýd í næsta
apóteki ■
tóacyd
IAk4|»
Undirboð á norskum laxi í Evrópu:
EB sakað um línkind
í garð Norðmanna
Framkvæmdastjórnin sögð varast að styggja Norðmenn
vegna viðræðna um mögulega EB-aðild þeirra
Strasborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞINGMENN á Evrópuþinginu
sökuðu í gær framkvæindasljórn
Evrópubandalagsins (EB) um að
sýna norskum laxeldisfyrirtækj-
um linkind vegna undirboða á
laxi á mörkuðum EB. Þingmenn-
irnir töldu að framkvæmdastjórn-
in vildi ekki styggja Norðmenn á
meðan viðkvæmar umræður um
mögulega aðild þeirra að banda-
iaginu fara fram í Noregi. Þetta
kom fram í umræðum um yfirlýs-
ingu frá Manuel Marin, fram-
kvæmdastjóra sjávarútvegsmála,
um þá ákvörðun að framlengja
reglur um lágmarksverð á inn-
fluttum laxi fram að næstu ára-
mótum.
Reglur um lágmarksverð á laxi
voru settar vegna undirboðs Norð-
manna á mörkuðum aðildarríkja EB.
Framkvæmdastjórn bandalagsins
hefur frestað að taka fyrir kæru frá
Skotum og Irum vegna norskra und-
irboða frá apríl síðastliðnum.
Þeir þingmenn sem tóku til máls
í stuttum umræðum um yfirlýsingu
Marins töldu aðgerðarleysi fram-
kvæmdastjórnarinnar byggjast á
feimni við Norðmenn sem hugsan-
lega sæktu um aðild að EB fyrir
áramót. Manuel Marin staðfesti að
líkur væru á því að enn væru stund-
uð undirboð á norskum laxi innan
bandalagsins en taldi að mjög hefði
dregið úr þeim. Þingmenn töldu eng-
ar líkur á því að þessi breyting
reyndist varanleg, 26% refsitollur á
norskan lax til Bandaríkjanna hlyti
að auka innflutning Norðmanna til
EB.
Róm. Reuter.
ÞINGMENN Kristilega demó-
krataflokksins á Ítalíu tilnefndu
í gær Arnaldo Forlani, leiðtoga
flokksins, sem forsetaefni sitt.
kvösi ákvörðun var tekin eftir að
Guilo Andreotti, sem er forsætisráð-
herra í sitjandi starfsstjórn, hafði
hætt við að falast eftir stuðningi
flokksins til forsetaembættisins.
til máls tóku töldu að yrði ekki þeg-
ar gripið til harðra aðgerða til að
koma í veg fyrir undirboð myndi
laxeldi í írlandi og Skotlandi hrynja
innan skamms. Niðurgreiðslur og
styrkir Norðmanna til fiskeldis
mættu ekki verða til þess að eyði-
teggja lífsafkomu átta þúsund.Skota
og Ira. Það væri hlutverk fram-
kvæmdastjórnarinnar að taka þetta
mál föstum tökum og óhjákvæmilegt
væri að framfylgja þeim reglum sem
í giidi væru um þessi efni.
Segja má að Ítalía hafi verið án yfirs-
stjórnar frá því síðasta mánuði en
eftir þingkosningar sem þá voru
haldnar hefur ekki tekist að mynda
stjórn með starfhæfan meirihluta. í
kjölfar þess sagði Francesco Cos-
siga, forseti Italíu, af sér tveimur
mánuðum áður en kjörtímabil hans
rann út.
Skoskir og írskir þingmenn sem
Forsetakjörið á Italíu:
Forlani tilnefndur
Leiðtogafundur fyrrverandi sovétlýðvelda;
Líklega síðasta tilraunin
til að bjarga samveldinu
Reuter
Borís Jeltsín, forseti Rússlands (t.h.), ræðir við Jegor Gajdar forsæt-
isráðherra (f.m.) og Andrej Kozrav utanríkisráðherra (t.v.) á leið-
togafundi Samveldis sjálfstæðra ríkja í gær.
Tashkent. The Daily Telegraph.
Leiðtogafundur Samveldis
sjálfstæðra ríkja hófst í gær í
Tashkent, höfuðborg Úzbekíst-
ans, og leiðtogarnir hyggjast
freista þess að koma í veg fyrir
að ríkjabandalagið liðist í sund-
ur. Fundurinn kann að verða
síðasta tilraunin til að bjarga
samveldinu. Margir telja að sú
ákvörðun Leoníds Kravtsjúks,
forseta Úkraínu, að mæta ekki
á fundinn verði óhjákvæmilega
til þess að samveldið líði undir
lok, aðeins fimm mánuðum eftir
að það var stofnað.
Fyrir fundinn var ijóst hvaða
mál yrðu til umræðu en hins vegar
ríkti mikil óvissa um hvaða leiðtog-
ar myndu ákveða að sitja hann.
Kravtsjúk gaf þá skýringu á
ákvörðun sinni að hann þyrfti á
fund við Finnlandsforseta og tíma-
áætlanir flugfélaga væru þannig
að hann kæmist ekki tímanlega til
Mið-Asíu.
Fimm leiðtogar mættu ekki
Fjórir leiðtogar fóru að dæmi
Kravtsjúks. Mircea Snegur, forseti
Moldovu, kvaðst ætla að sniðganga
fundinn til að sýna reiði sína yfir
stuðningi rússneskra stjórnvalda
við rússneska minnihlutann í
Dnjestr-héraði, sem hefur hafíð
vopnaða baráttu fyrir sjálfstæði.
Askar Akajev, forseti Kírgízístans,
ákvað að mæta ekki á fundinn, en
til þess hefði hann þurft að fresta
heimsókn til Kína. Hann var áður
einn af stuðningsmönnum hug-
mynda Míkhaíls Gorbatsjovs, fyrr-
verandi forseta Sovétríkjanna, um
laustengt samband sovétlýðveld-
anna fyrrverandi.
Tveir leiðtogar komust ekki á
fundinn vegna óvissu í stjórnmál-
unum heima fyrir. Rakhmon
Nabijev, forseti Tadzhíkístans,
afréð að senda aðstoðarforsætis-
ráðherra í sinn stað vegna upp-
reisnar múslíma og frjálslyndra
afla gegn kommúnistastjórn hans.
Þá var Ajaz Mútalíbov, forseta
Azerbajdzhans, steypt af stóli um
það leyti sem fundurinn var settur.
Fundinn í gær sátu því aðeins
sex leiðtogar af ellefu. Fundarstað-
urinn heitir því vinalega nafni
„Hús vináttu þjóðanna".
Mið-Asíulöndin beina sjónum
sínum til múslima
Embættismenn í föruneyti Borís
Jeltsíns, forseta Rússlands, sögðu
að þrátt fyrir fjarveru Kravtsjúks
yrðu Rússar ekki fyrstir til að losa
sig við samveldið. Samveldi sjálf-
stæðra ríkja var stofnað fyrir fimm
mánuðum eftir að Kravtsjúk og
Jeltsín höfðu náð samkomulagi um
samvinnu. Leiðtogafundur sam-
veldisins í Kíev fyrir tveimur mán-
uðum einkenndist hins vegar af
harkalegum deilum milli forset-
anna tveggja, meðal annars um
framtíð Svartahafsflotans.
Framtíð sovéthersins fyrrver-
andi verður helsta umræðuefni
fundarins, sem stendur í tvo daga.
Meðal annars verður rætt um
hvernig fjármagna beri sameigin-
legan her samveldisríkjanna og til-
lögu Rússa um að stofnað verði
hernaðarbandalag í líkingu við
Atlantshafsbandalagið. Sú ákvörð-
un Jeltsíns að stofna rússneskan
her leiðir að öllum líkindum til
þess að aðeins kjarnorkuheraflinn
lúti „sameiginlegri" stjórn sam-
veldisríkjanna. Og kjarnorkuvopn-
in yrðu þá í reynd undir stjórn
Jeltsíns.
Leiðtogar ríkja eins og Úzbek-
ístan eru óánægðir með ósætti
Kravtsjúks og Jeltsíns enda eru
þau enn mjög háð Rússlandi efna-
hagslega og það tekur þau nokkur
ár að bijótast úr þeim viðjum. Við-
búið er að Mið-Asíulöndin fimm
beini í framtíðinni sjónum sínum
til nágrannaríkjanna Irans, Tyrk-
lands og Pakistans. Líklegt er að
samvinna þessara múslimalanda
verði mun langvinnari og árang-
ursríkari en Samveldi sjálfstæðra
ríkja.