Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 C 3 Pavol Kovac Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sumartónleikar að hefjast ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKAR í Listasafni Sigarjóns hefjast nk. þriðju- dag 23. júní kl. 20.30. Tónlistarmaður kvöldins er píanóleikarinn Pavol Kovac, sem getið hefur sér orðstír sem framúrskarandi kon- sertpíanisti og túlkandi kammertónlistar og einnig sem mikilsvirtur kennari. Pavol Kovac, sem er fæddur árið 1946 í Slovakíu, er sonur tónlistar- fólks og hóf tónlistarnám sitt 5 ára að aldri. Hann hlaut framhalds- menntun í Tónlistarskólanum í Pressburg og meðal kennara hans var prófessor Rudolf Macudzinski. Pavol Kovac hefur glæstan feril að baki og hefur haldið tónleika víða um heim, meðal annars í Japan. Til íslands kemur Kovac fyrir milli- göngu Margrétar Bóasdóttur, söng- konu. Á efnisskrá tónleikanna í Lista- safni Sigurjóns á þriðjudagskvöld eru eftirtalin verk: Sónata nr. 27, e-moll, opus 90 eftir Beethoven, Dansar eftir Smetana, Metamorfos- is IV eftir E. Suchon, Scherzo nr. 1, h-moll, opus 20 eftir Chopin og Polonaise nr. 2, E-dúr eftir Franz Liszt. Sumarhátíð á Kópavogshæli HIN árlega Sumarhátíð verður haldin á Kópavogshæli dagana 21.-27. júní. Þessa viku leggur heimilisfólk að mestu niður vinnu til að taka þátt í hátiðarhöldun- um. Dagskrá hátiðarinnar byggist á skemmtidagskrá á sunnudag, mið- vikudag og laugardag, sem verður haldin undir beru lofti á Kópavogs- hæli. Þar verður margt til skemmt- unar. Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir dansa, leikhópurinn Perlan verður með sýningu, Björn Thor- oddsen sýnir listflug em er styrkt af Shell og skátar úr Kópavogi sjá um kvöldvöku. Þá mætir Ari Jóns- son, söngvari, ásamt hljómsveit Stefáns P. og kemur fólki í ærlegt hátíðarskap eins og honum einum er lagið. Heimatilbúið efni skipar stóran sess á hátíðinni, leikfélagið Loki á Kópavogshæli sýnir Árstíð- irnar eftir Vivaldi. Heimakórinn syngur en það er kór starfsmanna og heimilisfólks. Einnig verður starfsfólk með ýmsar uppákomur og sprell og aðalnúmerið er hljóm- sveitin Draumur Rauðhettu sem er hljómsveit áhugasamra starfs- manna. Farið verður í ýmsar ferðir, s.s. Viðeyjarsiglingu, Þingvallaferð. bíóferð í boði Háskólabíós og siglt um Fossvoginn i boði siglingafé- lagsins Ýmis úr Kópavogi. Þess má geta að nær allir sem leggja okkur lið á Sumarhátíðinni gera það endurgjaldslaust og gefst okkur með því tækifæri til að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmti- lega. (Fréttatilkynning) Frá sumarspilamennskunni sl. þriðjudag. __________ Brids____________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sumarbrids í Reykjavík Góð þátttaka var í sumarbrids sið- asta þriðjudag, þrátt fyrir EM í knatt- spyrnu. 36 pör mættu til leiks. Úrslit urðu (efstu pör). N/S: Þröstur Ingimarsson - Ulfar Om Friðriksson 568 Höskuldur Gunnarsson - Ómar Olgeirsson 479 DanHansson-ElvarGuðmundsson 471 Halla Bergþórsd. - Kristjana Steingnmsd. 462 Bergljót Sigurbjömsd. - Guðm. Guðmundss. 456 A/V:' Ingibjörg Grimsdóttir - Þórður Björnsson 517 Lárus Hermannss, - Guðlaugur Sveinss. 513 Dröfn Guðmundsd. - Ásgeir P. Ásbjömss. 503 VignirHauksson-HaukurHarðarson 471 GuðjónJónsson-MagnúsSverrisson 452 Og enn spilaði boltinn inn í dæmið á fimmtudgeinum. 26 pör mættu þó til leiks, sem verður að teljast góð mæt- ing. A-riðils úrslitin urðu; Guðrún Jóhannesd. - Jón Hersir Elíass. 257 Albert Þorsteinss. - Kristófer Magnúss. 249 Unnar A. Guðmundss. - Eyjólfur Magnúss. 245 SveinnSigurgeirsson-ÞórðurSigfússon 243 Láms Hermannss. - Guðlaugur Sveinss. 223 Guðmundur K. Sigurðss. - Oli B. Gunnarss. 221 Gamla kempan, Guðmudur Kr., lætur ekki deigan síga, þótt níræðis afmælið sé ekki langt undan. Urslit í B-riðli urðu: Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 129 Andrés Asgeirss. -Jón ViðarJónmundss. 119 Ragnheiður Nielsen - Sigurðra Ólafsson 117 Dan Hansson - Jóhannes Laxdal 116 Og staða efstu manna hefur lítið breyst. Þröstur Ingimarsson leiðir enn, er með yfirburðarstöðu á næstu menn, sem eru: Lárus Hermannsson, Guð- laugur Sveinsson og Þórður Björnsson. Yfir 160 spilarar hafa þegar hlotið stig í sumarbrids, sem telst góður árangur á 17 spilakvöldum, sem lokið er. Meðalþátttakan er um 35 pör á kvöldi. Spilað er alla mánudag, þriðju- daga (hefst kl. 19), fimmtudaga (hefst kl. 17) og iaugardaga (hefst kl. 13.30) í sumarbrids. Spilað er í húsi Brids- sambandsins, Sigtúni 9. Allt spila- áhugafólk velkomið. ★ Makrobiofískt fæói (fi ★ Líkamsæfingar, yogo ★ Huqkyrrð, slökun ★ Sérstakir gestir verða í hverjum hóp (möguleiki á eins manns) A staðnum er glæsileg sundlaug og nuddpottar Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hannesdóttir í síma 35060 milli lil. 9 og 12 á morgnana. V Sigrún Olsen Kær kveðja, Þórir Barðda 0 Ohifsílóttir, sdóttir ftfi uröardóttir Líkamsrœht er mi IP. Iiw « • peirra Iffss - mæting 5x í viku í leikfimi - fitumælingar og vigtun - matardagbók- þátttakendur skila matardagbók og fá umsögn og ráðgjöf um breytt mataræði - Ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði - aðhald og hvatning Skemmtilegir tímar í góðum félagsskap og þú losnar við óvelkomna fitu og lærir að tileinka þér nýjan lífsstíl svo að aukakílóin verði ekki framar vandamál. Þú færð allar upplýsingar í síma 68 98 68.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.