Morgunblaðið - 21.06.1992, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.06.1992, Blaðsíða 11
C 11 fyrir hjúskapinn en afrek í leiklist. Umtalaðasta atriði myndarinnar sýnir Cruise liggja meðvitundar- lausan og nakinn hjá Kidman með kopp yfir kynfærunum og hún freistast til að kíkja. Howard byggði myndina að einhveijum hluta á eigin ijölskyldusögu en hún er 70 mm stórmynd, sem sjaldgæf- ar eru orðnar í dag með stórum landslagssenum og mannlegum átökum. í Stjörnubíói verður sýnd tvö- föld harðhausamynd sem heitir „Universal Soldier“ og er með tveimur gallhörðum Evrópumönn- um: Jean-Claude Van Damme hin- um belgíska og Svíanum Dolph Lundgren. Þeir leika bardagam- askínur framtíðarinnar (þó ekki Evrópubandalagsins), hafa verið lífgaðir við og gerðir ómennskir en hver nema Van Damme tekur að gerast mennskur á ný og Lund- gren er sendur til höfuðs honum. Það má búast við ærlegum hasar þar sem þessir tveir eru enda myndin hugsuð til að sameina aðdáendur Lundgren og Van Damme. í þessu tilviki eru „einn plús einn sama og þrír“, segir Lundgren. Leikstjóri er Roland Emmerich, sem kallaður hefur verið hinn nýi Renny Harlin, án þess að hafa gert neina mynd reyndar. í mánuðinum frumsýna Sam- bíóin einnig nýjustu gamanmynd Whoopi Goldbergs, „Sister Act“. í henni leikur Whoopi söngkonu í næturklúbbi á flótta undan maf- íunni. Hún felur sig í nunnuk- laustri, æfir nunnukórinn og held- ur með hann til Reno þar sem mafían er mætt. Disneyfyrirtækið gerir myndina, sem upprunalega var ætluð Bette Midler, en leik- stjóri er Emile Ardolino („Dirty Dancing"). Maggie Smith fer með hlutverk abbadísarinnar. SEPTEMBER „Þetta er svona vit- rænt, tilvistarfræðilegt hasardr- ama,“ segir leikkonan Sigoumey Weaver um þriðju Alienmyndina sína, „Alien3“, sem Sambíóin frumsýna í september. Mynd núm- er eitt markaði tímamót í gerð hryllingsmynda, númer tvö var kraftmikil stríðsmynd og að margra mati betri en frummyndin. Númer þijú er gerð af nýliða í leikstjórastéttinni, David Fincher, sem helst hefur gert tónlistar- myndbönd með Madonnu. í þetta sinn lendir hin langþreytta Weaver á fangaplánetu þar sem lúsafar- aldur geisar svo hún verður að raka á sér kollinn. Geimskrímsli er ekki fjarri og enn hefst eltingar- leikur upp á líf og dauða nema í þetta sinn hefur Weaver engin vopn í höndunum. Fjöldi handrits- höfunda og leikstjóra tengdust undirbúningi myndarinnar og hún rauk fram úr fjárhagsáætlun en hún tók inn mikinn pening helgina sem hún var frumsýnd og hefur fengið góða dóma vestra. Háskólabíó frumsýnir nýjustu mynd Eddie Murphys, „Boomer- ang“. Stórstjaman fer með hlut- verk auglýsingamanns sem fellur fýrir hinni glæsilegu Robin Gi- vens. Murphy fær 720 milijónir króna fyrir hlutverkið og valdi sjálfur samstarfsmennina þá Warrington og Reginald Hudlin, sem gerðu gamanmyndina „House Party“. Myndin er í og með tilraun Murphys til að breyta um ímynd: Hann er orðinn þrítugur og vill ekki lengur láta líta á sig sem götustrák í gallabuxum heldur klæðist hann smóking og þykist veraldarvanur heimsborgari. Sjálf- ur segir hann að þetta sé fyrsta myndin þar sem hann leikur á móti öðrum leikurum án þess að standa í sprengjuregni. í Laugarásbíó kemur fyrri Kól- umbusarmyndin á árinu. Hún heit- ir „Christopher Columbus: The MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992 Tvöföld harðhausamynd; Lundgren og Van Damme í „Universal Soldier“. 500 ára afmæli; Selleck og Ward í Kól- umbusarmyndinni fyrri. Skotheld formúla; Glover og Gibson enn á ferð í „Lethal Weapon 3“ írsk hryðjuverk; Harrison Ford tekur við yfirmannsstöðunni af Alec Baldwin í „Patriot Games“. Discovery" og er með óþekktum leikara í titilhlutverkinu, George Corraface að nafni. Timothy Dal- ton hætti við að leika Kólumbus vegna ágreinings við framleiðend- urna. Stjömur myndarinnar eru Marlon Brando og Tom Selleck og Rachel Wayd en þau tvö leika Ferdinand og ísabéllu. Súperman- framleiðendurnir Alexander og Ilya Salkind söfnuðu þremur millj- örðum í gerð Kólumbusar en leik- stjóri er Bond-fræðingurinn John Glen. Sagan segir að Brando hafi ekki verið allskostar ánægður með þá jákvæðu mynd sem gefin er af sægarpinum, sem Brando segir hafa verið ábyrgan fyrir „fyrstu öldu útrýmingar á frumbyggjum N-Ameríku“. Glen segir þá hafa reynt að laga það til sem fór í taugarnar á stórstjömunni. Enn gegn ófreskjunnl; Sigourney Weaver í „Alien’" Vesturfararnlr; Tom Cruise þeysir yfir slétt- urnar í „Far and Away“. Allar tímasetningar hér em byggðar á áætlunum og það er m.a. áætlað að sýna nýjustu mynd Michaels Manns, „The Last of the Mohicans" með Daniel Day Lewis í Regnboganum september. Hvort það takist er annað mál. Síðasti Móhíkaninn eftir sögu James Feni- more Coopers hefur löngum þótt gott bíómyndaefni. Lewis er hvítur maður sem alinn er upp meðal indjána og kynnist breskri liðsfor- ingjadóttur, sem Madeleine Stowe leikur. Mann, sem frægur er fyrir að hanna „Miami Vice“ þættina og gerði sjónvarpsmyndina „Man- hunter“ þar sem Hannibal „The Cannibal" Lecter kom fyrst fram, leikstýrir. ADRAR MYNDIR Af öðram myndum sem áætlað er að sýna yfír sumartímann má nefna gamanmyndina „Beethov- en“, spennumyndina „Split Sec- ond“ með Rutger Hauer, kín- versku myndina Rauða ljóskerið, sem keppti ásamt Bömum náttúr- unnar um Óskarinn, gamanmynd- ina „Strictly Ballroom“ frá Ástral- íu sem kom á óvart á síðustu Can- neshátíð, Hollywoodsatírana „The Player" eftir Robert Altman, spennumyndina „Year of the Gun“ eftir John Frankenheimer, „The Naked Lunch“ eftir David Cronen- berg, „White Men Can’t Jump“, „Encino Man“, „Rush“ og „Comp- any Business". Skanhár Klapparberg 25, 111 Reykjavik Við veitum þér: ★ Pitt eigið eðlilega hár sem vexþað sem þú átt efiir ólifað. ★ Ókeypis ráðgjöf hjá okkur eða heima hjá þér. ★ Framkvœmt af færustu lœknum hjá einni elstn og virtustu einkastofnun í Evrópu. Hringið á kvöldin eða um helgarf SÍMI 91-678030 eða skrifið tíl: S HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1992 1. Uppboð - 23. júní 1992 Fyrsta uppboð húsnæðisbréfa fer fram þriðjudaginn 23. júní n.k. Frestur til þátttöku rennur út kl. 14:00 þann dag og þá þurfa bindandi tilboð í bréfín að hafa borist VIB. Húsnæðisbréf eru gefin út í tveimur einingum, 1 m.kr. og 10 m.kr. að nafnverði og þurfa tilboð að miðast við þessi verðgildi eða margfeldi af þeim. Húsnæðisbréf eru verðtryggð með lánskjaravísitölu til 20 ára með 39 jöfnum greiðslum vaxta og- afborgana. Upplýsingarit ásamt tilboðsblöðum liggja frammi hjá VÍB og nánari upplýsingar um uppboðið veita Jóhann V. Ivarsson og Svanbjörn Thoroddsen. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármula 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.