Morgunblaðið - 21.06.1992, Síða 5

Morgunblaðið - 21.06.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JUNI 1992 C 5 —m— segir Steinþór Kári, aðstoðarbílstjóri og siglingafræðingur hjá Sigurði bróður sínum. Samstarf bílstjóra og aðstoðarbíl- stjóra er gífurlega mikilvægt. „Það er oftast nóg að gera við að koma bílnum áfram, það verður að hafa góðan mann til að hanga út um gluggann eða ganga á undan þegar ekkert sést,“ segir Villi og stundum fannst manni aðstoðarbílstjórinn hans, Páll Gestsson, eyða meiri tíma utan á bílnum en inni í honum. „Það er líka gott að hafa einhvem til að hleypa úr dekkjunum fyrir sig,“ seg- ir Gunni og glottir. Ámi Pálsson aðstoðartökumaður hafði líka ærinn starfa að sjá um loftið í deklq'unum sex. Á Hofsjökli Frá Setrinu var ætlunin að halda yfir Hofsjökul. En það var sama sag- an og áður, við gátum ekki hreyft okkur fyrir snjóblindu og urðum að bíða myrkurs og fara austur fyrir jökulinn og í skálann í Laugafelli. Jökullinn yrði að bíða betri tíma en enginn okkar þekkti hann af reynslu enda er hann sjaldan farinn. Hann er iíka mjög sprunginn og því ekki ráðlegt að fara hann nema í björtu. Tækifærið gafst hinsvegar daginn eftir. Það hafði birt lítillega og öðru hvoru sást til sólar. Við ákváðum þess vegna að fara í áttina að jöklin- um á tveimur bílum og sjá svo til hvað við kæmumst langt. Það er skemmst frá því að segja að við kom- umst á toppinn án teljandi vand- ræða, að vísu komumst við í tæri við sprungur neðarlega á jöklinum, en þær voru litlar og ekki hættuleg- ar bílum þó svo að þær hefðu getað reynst gangandi mönnum skeinu- hættar. Þunn snjóskánin yfir þeim var engan veginn mannheld og þegar við brutum hana féll niður stórt snjó- stykki sem hvergi heyrðust koma við botn. Það er hætt við því að maður hefði ekki átt afturkvæmt ef hann hefði fylgt á eftir. En bílamir stóðu sig vel í viðureigninni við sprungurn- ar og það var ekki annað að sjá en Aron væri hæstánægður með nýja bílinn. En það er skrítin tilfinning að standa á toppi Hofsjökuls, stað sem svo fáir hafa komið á. Það er að vísu ekki mikið að sjá. Jökullinn er kúpt- ur og það var tiltölulega dimmt yfir. Þetta var eins og að standa á þaki Laugardalshallarinnar ef hún væri þúsund sinnum stærri. En maður ber einhvemveginn einkennilega virð- ingu fyrir þessum aldna höfðingja. Við höfðum aðeins verið þama skamma stund þegar jökulþokan fór að læðast inn og Aron og Gunnar ákváðu að best væri að koma sér til baka. Það var eins og sá gamli væri segja okkur eitthvað: „Ég er búinn að sýna ykkur nóg. Komið ykkur nú niður aftur.“ Niður um ís Næst lá leiðin norður Sprengi- sandsleið niður í Bárðardal og stans- að á bænum Víðikeri þar sem við fengum húsaskjól til að hlynna að ökutækjunum. Þaðan var svo haldið austur í Mývatnssveit þar sem öll bensínflát vom fyllt. Ekki veitti af þar sem ætlunin var að fara sem leið lá um Herðubreiðarlindir og Öskju á Vatnajökul. Það er talsverð vegalengd og Reykjahlíð var síðasti staðurinn þar sem hægt var að fá bensín. Strax á leiðinni í Herðubreiðarlind- ir fengum við forsmekkinn af því sem við áttum í vændum. Suður á hálend- inu sást ekki ský á himni og Herðu- breið, drotting íslenskra fjalla, skart- aði sínu fegursta. Það var ekki laust við að það færi um mann spennu- hrollur. Skyldum við fá svipað veður í Öskju og á jöklinum? Það væri ein- faldlega of gott til að vera satt. Og eftir því sem Herðubreið nálgaðist urðum við vonbetri. En þá kom smávægilegt babb í bátinn. Gunni og Árni höfðu tekið forystuna og vom að leita leiða í gegnum hraunið norðan Herðubreið- arlinda þegar bíllinn pompaði skyndi- lega niður um ís. Og þarna sátu þeir; bíllinn í vökinni í vatni upp fyr- ir miðjar hurðir og þeir blautir eftir því. Þetta virðist í fyrstu ekki vera árennilegt en bfllinn var í gangi og það vom höfð snör handtök og ísinn brotinn frá bílnum. Villi slakaði út spilinu og með dyggri aðstoð Sigga var bfllinn spilaður upp. „Þetta er nú ekkert?" sagði Gunni, þó hann væri bæði blautur og kaldur. „Þegar við vomm á ferðinni um áramótin var svo mikill krapi og drulla að við vomm alvarlega famir að spá í hvað maður ætti helst að taka úr bílnum ef hann hyrfi alveg.“ Þetta kostaði hann samt tvo öxla. Við átökin við að ná bílnum upp brotnuðu bæði mið- og framöxullinn. „Maður þarf nú ekkert að hafa allt bflaverkstæðið með sér. Þetta er bara spurning um að hafa réttu hlut- ina,“ segir Gunni daginn eftir þegar hann er að gera við fyrir utan Þor- steinsskála í Herðubreiðarlindum í 10 stiga frosti. „En ég hefði nú kannski mátt eyða meiri tíma i við- haldið á honum,“ bætir hann við og horfír hugsi á bílinn. Eftir að viðgerðunum var lokið héldum við í Öskju og eyddum þar nóttinni í skálanum Dreka sem stend- ur við mynni Drekagils. Askja er dulmagnaður staður. Þögnin og TT/'-IT ro pTT/ auðnin í þessu hrikalega landslagi er með ólíkindum. Þeir sem hrifíst hafa af Víti og Drekagiii að sumar- lagi ættu ekki að láta happ úr hendi sleppa ef þeir hafa möguleika að komast þangað að vetri til. Göngu- ferðin inn í Drekagil í mjúkum ósnortnum snjónum sem hylur allt eins og dúnsæng og að sjá fossinn beinfrosinn inn í botni er lífsreynsla sem ekki gleymist. Það er eins og tlminn standi kyrr og þegar litið er um öxl á leiðinni til baka er eins og aldrei hafí nokkur maður stigið þama fæti sínum. Þá fínnst manni lífíð ósköp forgengilegt og maður sjálfur harla lítils virði. Undarlegt fyrirbæri Skáli Jöklarannsóknarfélagsins í Kverkfjöllum var næsti áfangastaður og við héldum sem leið lá úr Öskju í átt að Dyngjujökli. Veðrið lék við okkur stillt og kalt en bjart og öku- ferðin upp aflíðandi jökulinn með útsýni til Kistufells og Bárðarbungu í síðdegissólinni var hin mesta skemmtiferð. En það kólnaði hratt á leiðinni upp í Kverkfjöll, sem eru 1860 metra há, og teljast með hæstu tindum landsins. Þegar upp var kom- ið voru allir hitamælar sprungnir og frostið sennilega komið niður fyrir 25 stig. Við svoleiðis skilyrði frýs andardrátturinn I nefinu og mið- stöðvarhitaður jeppinn er mjög freistandi kostur. Næsta mál á dagskrá var að finna skálann. Enginn okkar hafði komið þangað áður en hinsvegar voru lóran- tölumar fyrir hendi. Þrátt fyrir það reyndist þetta þrautin þyngri. Við lentum í myrkri og ísnálaþoku sem er undarlegt fyrirbæri. Henni svipar til snjókomu en vegna kuldans er hún mjög fíngerð, kornin eru örþunn og flöng og varpa til baka nær öllu ljósi sem á þau fellur. Skyggnið í ljósum bílanna er þess vegna ákaf- lega takmarkað og að líta út um gluggann var engu líkara en að sjá yfir hafsjó af „glimmer". Við kom- umst á staðinn þar sem skálinn átti að vera en sáum hann ekki. Kverk- fjöll eru ekki þesskonar staður að nokkum langi að ráfa þar um I svart- nætti svo við brugðum á það ráð að ganga tveir á undan bílnum með 20 metra millibili bundnir saman með kaðli. Ef sá fremri félli niður um sprungil eða fram af hengiflugi þá yrðu einhver ráð með að komast upp aftur. Við lýstum með vasaljósum út í sortann í von um að fínna skálann. En það kom að engu haldi. Skálinn sýndi sig ekki. því var ákveðið að fara í Grímsvötn u.þ.b. 50 km leið og gista þar frekar en I bílunum og þangað komumst við áfallalaust, og sváfum þar svefni hinna réttlátu. Það var ógleymanleg sjón sem blasti við okkur morguninn eftir. Skafheiður himinn og Vatnajökull, þetta 8300 ferkflómetra flæmi, blasti við okkur með öllum sínum tindum og toppum. Maður trúði varla sínum eigin augum. Það virtist ekki nema steinsnar milli Hvannadalshnjúks og Lómagnúps og þó eru það 45 km. Fjarlægðarskynið á þessari hvítu breiðu bregst gjörsamlega. Við þessar aðstæður ákváðum við að fara aftur I Kverkfjöll og halda áfram þar sem frá var horfíð. Páll og Steinþór Kári ákváðu að það væri ófært að ferðast alltaf í bíl og lét þess vegna Gunnar draga sig á skíðum alla þessa leið. Að fara á skíðum úr Grímsvötnum í Kverkfjöll á 2 tímum verður að teljast nokkuð góður gangur. Við komumst að því þegar við sáum förin okkar frá því kvöldið áður að skálinn var aðeins tæpum hundrað metrum frá þeim stað þar sem við komumst næst honum. Og það sem virtist vera hengiflug í kvöldið áður voru kannski ekki nema skaflar og það sem virtust einungis vera smálægðir í landslaginu reynd- ust vera jökullón. Ákvörðunin að fara í Grímsvötn reyndist þess vegna hafa verið gáfuleg. Þar sem fjöllin breyta um lögun Kverkfjöll eru eitthvert öflugasta háhitasvæði á landinu. Að vera þar og virða fyrir sér Hveradalinn og gufumekkina í íjallshlíðunum með Herðubreið og Dyngjufjöll við fætur sér er ógleymanlegt. Við eyddum þama heilum degi og nutum gest- risni Kverkfjalla og héldum svo af stað til síðasta áfangastaðar ferðar- innar. Undirritaðan hafði lengi dreymt um að sjá Snæfell, íjalladrottningu Austurlands, og þangað var ferðinni heitið. Leiðin yfir Brúaijökul, sem er geysistór og sléttur, minnti mest á eyðimerkurferð. Fjallasýnin þar er mikil og fögur; Snæfell, Þjófahnjúk- ar, Herðubreið, Kverkfjöll og austar ber Goðaborg við himin. Samt eru það hillingarnar sem eru einkennileg- astar. Fjöllin breyta stöðugt um lög- un og leysast jafnvel upp í einhvers- konar mistri. Maður rifjaði ósjálfrátt upp sögumar af Fata-Morgana og munurinn á ís og sandi virtist ekki svo ýkjamikill. En það gekk nú samt ekki svo langt að við sæjum pálma- tré sem betur fer. Snæfell brást ekki vonum mínum. Þetta formfagra fjall með jökulhett- unni verðskuldar það orðspor sem af því fer. En Austurhálendið hafði ennþá að geyma mikla fjársjóði og við áttum enn eftir að reyna það, sem að öllu öðru ólöstuðu, verður að telj- ast hápunktur ferðarinnar. Páskahellir Laust upp úr 1980 fann Sveinn Sigurbjamarson á Eskifírði stóran og mikinn íshelli í Eyjabakkajökli. Það er ekki vitað til þess að hann hafí verið kannaður fyrir þann tíma enda er áin sem í honum rennur efstu upptök Jökulsár í Fljótsdal og á sumrin er með öllu ófært í hellinn. Það er ekki fyrr en farið er að ferð- ast að vetri til að fólk fer að leggja leið sína I hann. Nú orðið gera Aust- fírðingar og Héraðsbúar sér tíðförult í hellinn, sérstaklega um páska. Sveinn segist meira að segja oft hafa haft með sér páskasteikina í hellinn og grillað fyrir fjölskylduna. Það er ekki vitað til þess að hellirinn hafí nafn en Sveinn stingur uppá nafninu Páskahellir og er það vel við hæfí. Hellirinn er geysistór. Lofthæðin er víðast hvar 4-5 metrar og lengdin er að minnsta kosti 600 metrar. Hann er ólíkur öðrum íshellum að því leyti að hann er kaldur og það er ekki vitað um jarðhita á þessum slóðum. Veggimir eru sléttir og vatnssorfnir og það er líkast því að strjúka hendinni yfír postulín að snerta þá. ,Ef lýst er með sterku ljósi inn í veggina sést marga metra inn í ísinn. Það er eins og að sjá inn í aðra veröld þar sem ískristallarnir liggja djúpfrosnir eins og ekkert geti haggað þeim. Þegar komið er um það bil 200 metra inn í hellinn blas- ir við gat á loftinu þar sem sér í heiðan himininn. í þessu gati stendur risavaxið grýlukerti að minnsta kosti 12 metra hátt og 1,5 metri í þver- mál og ísmyndanimar í kringum það eru hreinasta listaverk. Gólfíð er úr glærum ís þar sem áin sytrar undir. Nokkrir okkar fóru alveg inn I botn hellisins, eða að minnsta kosti eins langt og hægt var að komast með góðu móti. Þá var lofthæðin orðin nánast engin og orðið svo loftlaust að það setti að mönnum svima og það slokknaði á kyndlunum. Þá var lítið annað að gera en að koma sér út. Hellirinn er að öllum líkindum ein- göngu myndaður af vatnsrofi og er breytilegur eftir því hvernig árar í jöklinum og stundum finnst hann alls ekki. Milli Eyjabakkajökuls og Hátungna myndast uppistöðulón af jökulbráð og leysingavatni sem venjulega hleypur fram undir jöklin- um um mitt sumar og kemur út um hellinn. Sveinn telur að þetta hlaup hafí afgerandi áhrif á mótun og myndun hellisins. En hann hefur ekki verið rannsakaður til hlítar og því margt sem ekki er vitað með vissu. En hvað sem því líður er hellir- inn stórfenglegt náttúrufyrirbæri og það eru mikil forréttindi að hafa fengið tækifæri til að kvikmynda hann, sem ég veit ekki til að hafí verið gert áður. Fráhvarfseinkenni Eftir að hafa komið á þennan stað leið manni eins og ekkert gæti kom- ið manni á óvart lengur og þá var ekki annað að gera en að halda heim á leið. Við fórum sömu leið til baka gistum í Grímsvötnum og héldum þaðan í Jökulheima og um Hrauneyj- arfoss til Reykjavíkur. Við höfðum þá lagt að baki tæpa 2000 kfló- metra. Það var ekki fyrr en þá að maður skildi hvað Villi átti við þegar hann sat á grindverkinu 10 dögum áður. Fráhvarfseinkennin voru svo sannarlega erfið og samanborið við víðáttur hálendisins virðist Lauga- vegurinn ósköp ómerkilegur. Það hefur margt misjafnt verið rætt og ritað um jeppamennsku og jeppaferðir og oft með réttu. Sá skaði sem unninn hefur verið á landinu í gegnum tíðina er óbætanlegur en það gegnir allt öðru máli um vetrarferð- irnar. Þá er ekkert tjón unnið á land- inu. Það er nú einu sinni svo, að helst er greint frá því sem úrskeiðis fer, en sem betur fer er það miklu oftar sem allt fer vel og allur sá fjöldi fólks sem stundar þessar ferðir kem- ur heilt heim. Það er von okkar að þessi kvikmynd eigi eftir að verða góður vitnisburður um fjalla- og ferð- amennsku og auki skilning allra á mikilvægi þess að bera virðingu fyr- ir þessu einstaka landi en leyfa sér samt að ferðast um það. Höfundur erkvikmynda- gerðarmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.