Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MANIMLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992
C 7
hÖGFRÆÐlHve/ýar eru helstu
hreytingamar?
Lögum
nauðungarsölu
1. JÚLÍ nk. taka gildi ný lög um nauðungarsölu nr. 90/1991. Eins og
þeir lagabálkar sem fjallað hefur verið um í síðustu pistlum, falla ný
lög um nauðungarsölu að þeirra skipan sem lög um aðskilnað dóms-
valds og umboðsvalds í héraði nr. 92/1989 mæla fyrir um.
STANCVEIDI/S#/fo/rflugan máli ?
„Sterkar“flugur
ÞEGAR VORAÐI í Iofti gerði Litli fluguhnýtingaklúbburinn hlé á störf-
um. Félagarnir höfðu hist vikulega frá því um áramót og raðað fjöð-
rum, flosi og hárbrúskum á öngla bæði eftir fyrirmyndum og eigin
hugmyndaflugi. Það var því orðið þykkt í öskjunum undir lokin en þó
fannst mönnum ráð síðustu kvöldin að hnýta sérstakar úrvalsflugur
sem þeir treystu best þegar á reyndi.
Með nauðungarsölu er í aðalatrið-
um átt við að eign er ráðstaf-
að, án tillits til vilja eiganda hennar,
á uppboði eða með sölu á almennum
markaði, til fullnustu peningakröfu.
Strangt til tekið
tekur hugtakið,
eins og það er not-
að í nýju lögunum,
þó einnig til vissra
ráðstafana sem eru
háðar samþykki
eiganda.
Aðaltilefni nýrra
laga um nauðung-
arsölu er aðskilnaður dómsvalds og
umboðsvalds í héraði, eins og áður
segir. í lögunum felst sú grundvallar-
breyting að framkvæmd nauðungar-
sölu verður stjómsýsluathöfn í stað
dómsathafnar. Nauðungarsala verð-
ur því í höndum sýslumanna, en ekki
dómara eins og núgildandi lög gera
ráð fyrir, en þau eru frá árinu 1949
(nr. 57). Sýslumaður hefur jafnframt
vald til að taka afstöðu til ýmiss
konar ágreiningsefna sem upp kunna
að koma við framkvæmd nauðungar-
sölu. Akvörðun sýslumanns má síðan
bera undir héraðsdómara og stöðvast
aðgerðir þá í flestum tilfellum á
meðan.
Jafnframt þeim breytingum sem
hér hafa verið raktar eru gerðar
ýmsar veigamiklar efnisbreytingar
varðandi framkvæmd nauðungar-
sölu. Með þeim er leitast við að bæta
úr ýmsum göllum sem menn telja
vera á núgildandi lögum og komið
hafa í ljós við framkvæmd þeirra.
Helstu breytingarnar eru eftirfar-
andi:
1) Leitast er við að tryggja að sem
hæst verð fáist fyrir eignir við nauð-
ungarsölu. Því hefur stundum verið
haldið fram að eignir seljist fyrir
óeðlilega lágt verð þegar þær eru
seldar á nauðungaruppboði. Þótt því
fari íjarri að það sé almenn regla
eru dæmi þess að fengist hafi rpjög
lágt verð fyrir slíkar eignir. Ýmsum
ákvæðum nýju laganna er ætlað að
fyrirbyggja slíkt. í fyrsta lagi má
nefna að í þeim er mælt fyrir um
heimildir til þess að ákveða að nauð-
ungarsala fari fram á almennum
markaði. Þá er eign seld með því að
leita tilboða í hana með hliðstæðum
hætti og í frjálsum viðskiptum, t.d.
með atbeina fasteignasala þegar um
fasteign er að ræða. Hliðstæð heim-
ild er ekki í núgildandi lögum. í öðru
lagi er reynt að ná þessu takmarki
með því að færa skilmála við upp-
boðssölu um annað en greiðslu kaup-
verðs nær tíðkanlegum skilmálum í
fijálsum viðskiptum og gera þá
sveigjanlegri. Þá má í þriðja lagi
nefna heimild til handa sýslumanni
til að ákveða, ýmist eftir kröfu eða
ótilkvaddur, að endurtaka skuli upp-
boð, ef hann telur fram komin boð
vera Qarri markaðsverði. Þótt hér
sé um að ræða heimild sem aðeins
verður beitt í undantekningartilfell-
um felur hún í sér ákveðna tryggingu
fyrir því að eign verði ekki seld á
óeðlilega lágu verði.
2) Ymsar breytingar eru gerðar á
framkvæmd sjálfrar uppboðssölunn-
ar, einkum fyrstu stigum hennar.
Núgildandi lög þykja vera óþarflega
þungiamaleg í þessu efni og er m.a.
á það bent í greinargerð, að þegar
þau voru sett fyrir rúmum 40 árum
hafl menn ekki haft í huga að úrræð-
ið yrði notað í þeim mæli sem raun
hefur orðið á síðasta áratuginn. Má
sem dæmi nefna að undanfarin ár
hafa komið fram í Reykjavík einni
meira en 20.000 uppboðsbeiðnir, sem
flestar eru afturkallaðar á síðari stig-
Nauðungaruppboð — Því hefur
stundum verið haldið fram að eign-
ir seljist fyrir óeðlilega lágt verð á
nauðungaruppboðum.
um. í hinum nýju lögum er reynt að
einfalda meðferð uppboðsbeiðna svo
sem kostur er á fyrstu stigum og
fram að því að eiginleg sala fer fram.
Má sem dæmi nefna reglur í 19. og
20. gr. sem kveða á um auglýsingu
uppboðs. Þar er gert ráð fyrir því
að hún verði tiltölulega einföld að
efni til og birtist aðeins einu sinni í
Lögbirtingarblaðinu, í stað þrisvar
eins og núgildandi lög gera ráð fyrir.
3) Leitast er við að draga úr íjölda
uppboðsbeiðna. Samanburður við
nágrannalöndin leiðir í ljós að íslend-
ingar skera sig úr að þessu leyti eins
og öðru sem að nauðungarinnheimtu
vanskilaskulda lýtur. I þessu efni
má einkum benda á 9. gr., en þar
segir að áður en nauðungarsölu verði
krafíst og eftir að krafan er komin
í gjalddaga skuli kröfueigandi beina
greiðsluáskorun til gerðarþola með
minnst 15 daga fyrirvara. Greiðslu-
áskorunina skal senda í ábyrgðar-
bréfi eða símskeyti eða fela stefnu-
votti birtingu hennar. Reynslan verð-
ur síðan að skera úr um það hvort
þetta úrræði er til þess fallið að draga
úr uppboðsbeiðnum.
Auk þeirra atriða sem hér hafa
verið nefnd eru gerðar margar aðrar
breytingar, misjafnlega veigamiklar,
sem ekki gefst tóm til að fjalla um
í stuttum pistli. Meðferð uppboðs-
mála samkvæmt núgildandi lögum
hefur sætt margvíslegri gagnrýni,
m.a. fyrir það að vera þunglamaleg
og seinleg. Er þess að vænta að hin
nýju lög muni stuðla að greiðari
meðferð þeirra.
Hver maður hefur sinn smekk,
sína reynslu og sína sérvisku.
Þetta var því sundurleitt safn þótt
dökkar flugur væru áberandi. Ein-
hver hefur búið til þá „reglu“ að
dökkar flugur séu
bestar í dimmviðri
en ljósar í bjartviðri
og rauðgular flug-
ur í lituðu vatni.
Eftir þessu úrvali
gera þeir félagar
ráð fyrir heldur
þungbúnu veðri í
sumar og jafnvel
skoluðum ám. Sá fyrsti lagði allt sitt
traust á Garry sem sumir nefna
Gulan hund enda hefur hann af henni
góða reynslu, hún hefur gefið honum
marga verðiaunafiska. Flugan er
áberandi, vængurinn rauður og gul-
ur, skeggið bláleitt, búkurinn svart-
ur, silfurvafinn.
Sá næsti hefur miklar mætur á
Munroes Killer en hún er eins konar
einfölduð Þrumur og eldingar. Sem
flaðrafluga átti sú fluga sér langa
og glæsta sögu. Litaraftið er rauð-
gult en mun dekkra en á Garry.
Þetta er ótrúlega mögnuð fluga og
skal eitt dæmi tilfært hér.
Ég var að veiðum í Höfuðhyl á
sólbjörtum sumardegi og kasta MK
nr 10, þríkrækju, svonefndum sjó-
birtingsöngli úr grönnum vír. Byija
efst í strengnum þar sem sjaldnast
er reyndar friður fyrir urriða; en eins
og svo oft tók lax eftir að flugan
hafði fallið fast við litla grastoppinn
ofan við beygjuna austan megin.
Þetta er stór fískur og hann kafar
í dýpið neðan við hornið, snýr svo
við, þýtur upp hylinn og stekkur.
Félagi minn sem er að hnýta nýjan
taum á línuna sína segir:
„Þú ert með vænan fisk, hann er
örugglega 10 pund.“
Eg samsinni því en þegar ég reisi
stöngina á ný finn ég ekki fyrir físk-
inum og segi:
„Þetta var sýnd veiði en ekki gef-
in. Hann er farinn. - En nei, bíddu,
hann er á! “Það er rykkt í en mér
finnst rykkurinn þó daufari en ég
átti von á. Hvað um það, ég fer var-
lega að öllu og að lokum rennir félagi
minn háfnum undir 4 punda lax!
Hvað hafði gerst? Við sáum báðir
að fískurinn sem upphaflega tók var
helmingi stærri. Varla hafði hann
skroppið saman. Nei, skýringin
fékkst þegar öngullinn var losaður.
Krókarnir voru aðeins tveir. Þann
þriðja hafði stóri fískurinn brotið af
og borgið með því lífl sínu, í bili
a.m.k. Minni fiskurinn hafði svo
rennt sér á tvíkrækjuna þegar öng-
ullinn varð laus.
Þriðji hnýtarinn birgði sig upp af
Black Brahan, svartklæddri flugu
með rauðglitrandi búk. Hún minnir
á stássbúna glæsimeyju á leið á gala-
ball enda mafa margir hængarnir
fallið fyrir henni.
Sá fjórði treysti Útfararstjóranum
best til að leiða laxana til hinstu
hvílu. Þetta er dökk fluga í sorgar-
búningi sem hæfír nálægð dauðans,
búkurinn vaflnn páfuglsfön, sumir
vefja grönnum vír yflr til styrktar.
Þá er hann með flngerða litaborða,
rauðan og gulan, hringvafða við stél-
rótina. Þetta er stflhrein og falleg
fluga sem ég læt ekki vanta í boxið
mitt.
Þá er að segja frá þeim fímmta
sem valdi sér flugu sem getið hefur
sér gott orð í kunningjahópi undan-
farin sumur en hún ber einmitt nafn-
ið Kunningi og er ættuð frá Patreks-
flrði. Hún hefur reynst veiðin í Laxá
í Dölum, Hrútafjarðará, Laxá í Aðal-
dal, Sogi og Elliðaám og e.t.v. víðar.
Hún er svona:
Stélrót: 3 vafningar ávalt silfur,
rautt og gult flos.
Stél: Fanir úr gulri hænsnafjöður,
3-4 rauðar glitræmur.
Búkur: Dimmblár, silfurvafinn.
Skegg: Gul hænsnafjöður.
Vængur: Gult íkomahár' næst búk,
3-4 glitræmur, svart íkornahár yfír.
Kinnan Fjöður af skógarhana.
Haus: Rauður.
eftir Dovíó Mr
Björgvinsson
eftir Gylfo
Pólsson
Glæsileiki og þægindin í Hobby hafa svo sannarlega fallið vel í
kramið hjá viðskiptavinum okkar enda þurfa þeir ekki að skilja
huggulegheitin eftir heima þegar farið
er í sveitina.
Þú ættir að líta á Hobby hjá eina fyrirtæki landsins sem hefur
áratuga reynslu í sölu hjólhýsa. Verðið er mjög gott og greiðslu-
kjörin líka: lág útborgun og eftir-
stöðvar dreifast á allt að 30 mánuði.
Gisli Jónsson & Co.
Bíldshöfði 14 Sími 91-686644
Opið um helgar í sumar. Umboðsmenn: B.S.A hf. á Akureyri og bílasalan Fell á Egilsstöðum.