Morgunblaðið - 25.09.1992, Page 4

Morgunblaðið - 25.09.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992 Bæjarráð Kópavogs Litið jákvætt á lóðarum- sókn Digranessafnaðar BÆJARRAÐ Kópavogs leit já- kvætt á lóðarumsókn sóknar- Minningar- athöfn um sjómennina MINNINGARATHÖFN verð- ur 10. október nk. um Þor- stein Einarsson og Ásmund Stein Björnsson, sem fórust með rækjubátnum Sveini Guð- mundssyni GK 315 suðvestur af Eldey 10. september sl. Athöfnin fer fram frá Út- skálakirkju. Svavar Páll Óskars- son, sem einnig fórst með bátn- um, hefur verið jarðsettur. nefndar Digranessöfnuðar neðan Hlíðarvegar og vestan Digranesvegar á fundi sínum í hádeginu í gær. Gunnar Birg- isson, oddviti sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn og for- maður bæjarráðs, segir að næsta skref sé að gera tillögu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi. Hann segist vona að menn taki þessu vel og lyktir málsins yrðu farsæl- ar. „Bæjarráð leit jákvætt á málið og meira getur það ekki gert fyrr en búið er að breyta aðalskipulagi þannig að lóðin breytist úr grænu svæði yfir í svæði þar sem stofnan- ir eru,“ sagði Gunnar eftir fundinn og bætti við að bæjarráð hefíð óskað eftir umsögnum skipulags- nefndar og umhverfísráðs. „I öðru lagi óskaði bæjarráð eftir því við skipulagsnefnd og umhverfísráð að fá tillögur um frágang á Heið- arvallasvæðinu við Víghól," sagði Gunnar. „Næsta skref í málinu er að undirbúa á næsta bæjarstjórnar- fundi að gera tillögu að breytingu að aðalskipulagi og deiliskipulagi. Það verður að vera til sýnis hjá skipulagsstjóra í bæjarskipulagi Kópavogs í 4 vikur og síðan hafa menn 2 vikur til að svara fyrir- spumum. Og ef það allt gengur í gegn getur bæjarstjóm heimilað þetta með fyrirvara um samþykki skipulagsstjórnar ríkisins eftir um 2 mánuði," sagði Gunnar í sam- tali við Morgunblaðið. VEÐUR l/EÐURHORFURIDAG, 25. SEPTEMBER YFIRLIT: Við suðvestur Grænland er aildjúp og víðáttumikil lægð sem hreyfist norðaustur. 8PA: Sunnanátt, stinningskaldi eða allhvasst vestan til en gola eða kaldi um landið austanvert. Rigning eða súld sunnanlands og vestan en bjart veður norðaustan tll. Hiti á bilinu 8-15 stig, hlýjast á norðaustur- landi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Sunnan strekkingur vestan- lands en hægari austan til. Rigning eða súld á suður- og vesturlandi en lengst af þurrt norðaustan tii. Hlýtt í veðri, einkum norðaustan tands. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Q Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V V r r * r * * Ýj r r r r * r * * * V Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka Sunnan, 4 vindstig. Vindðrin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.. 10° Hifastig V Súld FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú greiðfærir. Ýmsir hálendisvegir eru ennþá taldir þungfærir eða ófærir vegna snjóa. Má þar nefna Sprengisandsveg norðanverðan, Eyjafjarðarleið, Skagafjarðarleið og Kverkfjallaleið en Kjalvegur er fær fjallabílum. Fjallabaksleiðir, nyrðri og syðri, eru snjólausar og sama er að segja um Lakaveg. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðln. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 f gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 7 skýjað Reykjavík 9 léttskýjað Bergen 12 alskýjað Helslnki 15 léttskýjað Kaupmannahöfn 19 hálfskýjað Narssarssuaq 6 rigning Nuuk 0 slydda Ósló 17 skýjað Stokkhólmur 16 mistur Þórshöfn 10 léttskýjað Algarve 25 heiðskírt Amsterdam 16 alskýjað Barcelona 24 léttskýjað Berlín 16 rigning Chicago 8 heiðskírt Feneyjar 18 þokumóða Frankfurt 18 iéttskýjað Glasgow 11 rigning Hamborg 18 léttskýjað London 18 skýjað LosAngeles 19 heiðskírt Lúxemborg 15 skýjað Madríd 22 léttskýjað Malaga 25 iéttskýjað Mailorca 27 lóttskýjað Montreal 3 heiðskfrt NewYork 9 léttskýjað Orlando 24 skýjað Parls 14 alskýjað Madeira 19 skúr Róm 25 hálfskýjað Vín 22 skýjað Washington 9 léttskýjað Winnipeg 15 háif8kýj8ð / / / V/ íDAG kl 12.00 Heimitd: Veöurstofa íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 (gœr) Unnið að því að mála Hótel Borg. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Hótel Borg verð- ur ljósgul á litinn VEGFARENDUR um Austur- völl hafa eflaust tekið eftir því að Hótel Borg er að breyta um svip. Tómas Tómasson veit- ingamaður tekur við rekstri hótelsins 1. október og hann hefur ákveðið að mála neðstu hæð hótelsins sandgula. Tómas hafði haft augastað á hótelinu í mörg ár áður en hann festi kaup á því fyrr í þessum mánuði. Raunar segist hann hafa fengið Hótel Borgar-bakterínuna árið 1984 og þá hafí hann gist þar heila viku. Aftur gisti Tómas á hótelinu áður en kaupsamning- urinn var gerður og nokkrar næt- ur eftir það. Hann segir að til- gangurinn sé að fá tilfinningu fyrir hótelinu. „Hótel er eins og við vitum heimili að heiman. Heimili er eitthvað sem þú byggir upp af tilfinningu. Alls ekki eitt- hvað sem þú skipuleggur og er síðan byggt, eins og t.d. skrif- stofuhúsnæði," sagði Tómas. Með útlitsbreytingunni segist hann vera að stíga fyrsta skrefíð í þá átt að lagfæra hótelið. Síðar verða m.a. gerðar breytingar í herbergj- um. Þess má geta að í kaupsamn- ingi Tómasar við Reykjavíkurborg er kveðið á um forkaupsrétt hans á Pósthússtræti 9, næsta húsi norðan við Hótel Borg. Tómas sagði að greinin hefði verið sett í samninginn þar sem nokkrir arkitektar hefðu í könnun Reykja- víkurborgar um hvernig best væri að haga endurbyggingu hótelsins komið inn á að skynsamlegast væri að stækka hótelið í þessa átt. Aðspurður sagðist Tómas ekki hafa tekið ákvörðun um hvort forkaupsrétturinn yrði nýttur. Dráttarskip hf. Danskt útgerðafélag kaupir Erik Boye DRÁTTARSKIP hf. á Siglufirði er um þessar mundir að ganga frá samningum um sölu á danska flutningaskipinu Erik Boye, sem strand- aði fyrir utan höfnina í Breiðdalsvík 28. júlí sl. Það er danskt útgerð- arfélag sem ætlar að kaiipa skipið. Skipið liggur í höfn á ísafirði og hefur viðgerðum á því verið hæ hyggjast sjálfir gera við skipið. Jóhannes Lárusson hjá Dráttar- skipum kvaðst eiga von á því að gengið yrði frá samningum um næstu helgi. Dráttarskip, __ sem á Hvanneyri, áður vitaskipið Árvakur, mun sjá um að draga Erik Boye og verður hann afhentur í Svendborg á Fjóni. Jóhannes sagði að mikið hefði verið gert við skipið innanborðs en helstu viðgerðir á skrokk skipsins eru enn óunnar. Viðgerðakostnaður væri orðinn hærri en sem næmi upphæðinni sem félagið fékk greitt með skipinu. Tryggingafélag danska skipsins greiddi Dráttarskipum eina milljón þar sem væntanlegir kaupendur kr. fyrir að .draga skipið af strand- stað og jafnframt eignaðist fyrirtæk- ið skipið. Jóhannes sagði að enginn vafi léki á því að Dráttarskip hagn- aðist á þessum viðskiptum, spurn- ingin væri aðeins hve mikill hagnað- urinn yrði. Hann kvaðst ekki geta gefið upp söluverðið, en skip af svip- aðri stærð, Ljósafoss, sem var í eigu Eimskipafélagsirts, var seldt á um 22 milljónir kr. Þess ber þó að geta að enn á eftir að gera endanlega við Erik Boye og auk þess þurfa báðir aðilar að hagnast á viðskiptun- um, að sögn Jóhannesar. Ríkissaksóknari gefur út ákæru Leystu handtekinn mann frá lögreglu RÍKISSAKSÓKNARI hefur höfðað mál fyrir héraðsdómi Reykjavíkur gegn átta ungmennum fyrir að aðild að fíkniefnamisferli og fyrir að hafa skipulagt og staðið að því að ráðast að tveimur lögreglumönn- um, sem handtekið höfðu tvo úr hópnum, og leysa annan hinna handte- knu úr höndum þeirra. Einn áttmenninganna er talinn höfuðpaur málsins og skipuleggj- andi. Hann er talinn hafa farið til Kaupmannahafnar síðastliðinn vet- ur, keypt þar 270 grömm af hassi og sent í pósti til landsins. Lögregla fann hassið, tók efnið úr pakkanum og beið þess síðan að eigandinn kæmi á pósthúsið að vitja um send- inguna. Þegar tveir menn, sem talið er að höfuðpaurinn hafi fengið til verksins, vitjuðu síðan um sénding- una og framvísuðu á pósthúsi föls- uðu ökuskírteini, voru þeir hand- teknir. Þegar verið var að færa mennina á lögreglustöð réðist hópur fimm manna að lögreglumönnunum tveimur sem framkvæmdu handtök- una, náðu að losa annan hinna hand- teknu og komast undan með hann og pakkann. Fólkið var handtekið í framhaldi af þessu og nýlega er meðferð máls- ins hafin fyrir dómstólum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.