Morgunblaðið - 25.09.1992, Page 18

Morgunblaðið - 25.09.1992, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992 Útvarpsstjóri fór að vilja útvarpsráðs við ráðningu íþróttafréttamanns Ríkisútvarpsins Afskipti útvarpsráðs hemill á fréttastofuna - segir fréttastjóri Utvarps HEIMIR Steinsson útvarpssljóri réð í gær að fenginni tillögu út- varpsráðs Adolf Inga Erlingsson í stöðu íþróttafréttamanns við Ríkissjónvarpið þrátt fyrir tillögur og óskir frá íþróttadeildinni og fréttastjórum Útvarps og Sjónvarps um að Logi Bergmann Eiðsson, sem starfað hefur um 15 mánaða skeið sem afleysinga- maður hjá íþróttadeildinni, yrði ráðinn. í útvarpsráði hafði Adolf hlotið 6 atkvæði en Logi ekkert. Kári Jónasson, fréttastjóri Út- varpsins, segir að vinnubrögð útvarpsráðs vinni gegn fréttastof- unni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins ríkir mikil óánægja innan stofnunarinnar með ákvörðun útvarpssljóra og verður Ing- ólfur Hannesson, forstöðumaður íþróttadeildarinnar, frá störfum vegna þessa máls í næstu viku. Heimir Steinsson sagði aðspurð- ur um hvort hann ætti von á eftir- málum vegna þessarar ráðningar að hann vonaðist til þess að allir yrðu sáttir við þessa niðurstöðu. Hann kvaðst ekki hafa skoðun á því hvort rétt væri að útvarpsráð fjalli um ráðningamál stofnunar- innar, en vitnaði þess í stað til útvarpslaga. Útvarpsstjóri réð til starfa í gær Adolf Inga Erlingsson í stöðu íþróttafréttamanns; Sigrún Stefánsdóttir og Vilhelm G. Krist- insson voru ráðin í innlendar frétt- ir Sjónvarpsins, Sigrún Ása Markúsdóttir og Jón Óskar Sólnes í erlendar fréttir Sjónvarpsins og Kristinn Hrafnsson í innlendar fréttir Útvarpsins. „Gerði ráð fyrir að frammi- staða mín yrði metin“ „Ég kom hingað eftir að hafa verið blaðamaður í rúm fjögur ár. Þá gerði ég ráð fyrir að frammi- staða mín hér kæmi til með að ráða úrslitum um hvort ég yrði ráðinn, en það virðist hafa verið á misskilningi byggt og ég er að taka út fyrir það núna,“ sagði Logi Bergmann Eiðsson. „Verð að sanna mig“ Adolf Ingi Erlingsson sagði að sér þætti leitt að ráðningin hefði orðið að blaðamáli. „Þessi staða var auglýst og hveijum sem var frjálst að sækja um. Ég gerði það og hlaut stuðning í útvarpsráði sem mér skilst að sé vegna sam- spils reynslu og menntunar. Ég er þakklátur fyrir það traust sem útvarpsráð sýndi mér,“ sagði Adolf. Aðspurður um hvort ekki gæti verið erfitt að koma til starfa hjá íþróttadeildinni vegna þess and- rúmslofts sem skapast hefði í kringum ráðninguna sagði Adolf að síðustu tvo daga hefði málið ekki snúist um umsækjendurna heldur valdsvið Ingólfs Hannesson- ar gagnvart útvarpsráði. Starfs- menn deildarinnar hefðu lýst yfir stuðningi við deildarstjóra sinn í deilunni við ráðið. „Ég var fullviss- aður um það að þessu væri ekki beint gegn mér persónulega. Ég kannast við alla starfsmennina og kvíði ekki samstarfínu. Ég veit að það verður mitt fyrsta verk að sanna mig, jafnt innan deildarinn- ar sem utan, og kvíði því ekki,“ sagði Adolf. Hann sagði að umsókn sín um starf íþróttafréttamanns hefði ekki beinst gegn Loga, held- ur hafi hann aðeins verið að sækja um starf sem hann hefði áhuga á. „Skákað í skjóli menntahroka" Ingólfur Hannesson, deildar- stjóri íþróttadeildar RÚV, var ómyrkur í máli í samtali við Morg- unblaðið. „Það er auðvitað áfall að komast að því að þessi stofnun í eigu almennings beitir aðferðum við mannaráðningar sem eru full- komlega úr takt við þann tíma sem við lifum á. Hér er skákað í skjóli menntahroka og valds. Fórnar- lambið er einstaklingur sem ein- ungis hefur sinnt sínum störfum af kostgæfni og verið treyst fyrir ýmsum vandasömum verkefnum. Dæmi um slíkt -verkefni sáum við í Sjónvarpinu á miðvikudagskvöld, sem Logi Bergmann Eiðsson leysti með prýði. Á að henda þessum fjöl- skyldumanni út á götu og þakka honum þannig fyrir ánægjulegt samstarf? í slíkum leik tek ég ekki þátt,“ sagði Ingólfur. „Ottast afleiðingarnar" Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins, segir ljóst að stofnun í eigu almennings hljóti að bera ábyrgð gagnvart eigendum sínum og í fljótu bragði sjái hann ekki betri leið en valin hafí verið. „Út- varpsráð, fulltrúi eigendanna, á hins vegar að móta heildarstefn- una en ekki skipta sér af ráðning- um einstakra fréttamanna, alveg eins og það er löngu hætt að ákveða hveijir stjórni einstökum þáttum,“ segir Bogi. Hann bendir á að á síðustu árum hafi útvarps- ráð tekið fullt tillit til óska stofn- unarinnar varðandi mannaráðn- ingar þar til nú, „Því tel ég niður- stöðuna í útvarpsráði skref aftur á bak. Það er mjög alvarlegt mál að útvarpsráð tók ekkert tillit til vilja stofnunarinnar og virðist þar með hafa breytt fyrri stefnu. Ég óttast afleiðingarnar. Þó að málið snerti fréttastofu Sjónvarps ekki beint getur það haft áhrif á manna- ráðningar okkar í framtíðinni. Þeir menn sem hafa áhuga á að sækja um en vilja ekki láta vitnast að þeir vilji breyta til, vinna ef til vill hjá keppinautum okkar, verða að geta treyst því að fréttastjórar RÚV hafi vald til að ráða þá. Hvernig getur fréttastjóri náð árangri í kappróðri við Stöð 2 ef hann ræður ekki einu sinni hveijir sitja undir árum?“ Afskipti útvarpsráðs af ráðningamálum tímaskekkja Kári Jónasson, fréttastjóri Út- varps, segir að útvarpsráð fjalli aðeins um ráðningu í stöður frétta- stofa Útvarps og Sjónvarps en ekki um ráðningar í aðrar deildir stofnunarinnar. Fjöldi manns hefði verið ráðinn til starfa við Rás 2 að undanförnu og kæmi útvarps- ráð ekki nálægt þeim ráðningum, þótt þau störf væru mörg hver sambærileg við störf fréttamanna. Jafnvel væru dæmi um að deildar- stjórar hefðu verið ráðnir án þess að útvarpsráð hefði af því afskipti. „Það er tímaskekkja að útvarps- ráð sé að greiða atkvæði um menn sem starfa í fréttum og þetta hef- ur hamlað fréttastofunni. Þetta kemur okkur oft mjög illa. Við höfum e.t.v. komið auga á mjög gott fólk sem við viljum fá til starfa en þá eigum við það undir duttl- ungum útvarpsráðs, sem greiðir atkvæði samkvæmt einhveijum óskiljanlegum reglum, hvort við fáum þetta fólk. Það að útvarpsráð fjalli um ráðningamál er staðnað kerfi sem á alls ekki heima í dag vegna þess að Ríkisútvarpið er í harðri samkeppni, bæði um fréttir og starfsmenn," sagði Kári. Hann sagði að hjá Útvarpinu hefði yfírleitt verið lögð að jöfnu menntun og starfsreynsla og yfír- leitt hefði starfsreynsla verið tekin fram yfír menntun, því það væri fyrst og fremst reynt fólk sem verið væri að leita eftir. „Við lögð- um mikla áherslu á að fá reyndan mann hingað inn og sá maður var Logi Bergmann Eiðsson, að öðrum umsækjendum ólöstuðum," sagði Kári. Engar umræður í útvarpsráði Valþór Hlöðversson, fulltrúi Al- þýðubandalagsins í útvarpsráði, sat hjá við atkvæðagreiðslu um ráðningu fréttamanna. Hann segir að þessi ákvörðun útvarpsráðs sé í stíl við það sem áður fyrr hafí tíðkast og telur fráleitt að ráðið hafí afskipti af þessum málum. „Ég hef mótmælt því að pólitísk- ir fulltrúar útvarpsráðs hafí með Logi Bergmann Eiðsson. það að gera hvaða fréttamenn séu ráðnir inn á þessa stofnun. Ég tel að ef yfírstjórn stofnunarinnar treysti sínum fréttastjóra til þess að fara með rekstur fréttastofunn- ar og fjármál hennar þá hljóti hún að treysta honum til að ráða sína starfsmenn. Það þykir mér verst í þessu máli að allir sem greiddu atkvæði í útvarpsráði mæla með ákveðnum umsækjanda. Allir deildarstjórar, fréttastjórar og framkvæmdastjórar, bæði hljóð- varps og sjónvarps, mæla með öðrum umsækjanda. Þegar þessi staða kemur upp fínnst mér mjög mikilvægt að útvarpsráð færi í það minnsta mjög góð rök fyrir sinni afstöðu," sagði Valþór. Hann sagði að í þessu máli líkt og öðrum sambærilegum málum hefði kosning verið leynileg í út- varpsráði og menn ekki fært rök fyrir afstöðu sinni. „Mér fínnst það býsna mikil vanvirða við umsækj- endur, bæði þá sem er hafnað og þann sem hreppir hnossið, að eng- inn rökstuðningur liggi fyrir af- stöðunni." Um fullyrðingu Halldóru Rafn- ar, formanns útvarpsráðs, í Morg- unblaðinu í gær að miklar umræð- ur hefðu orðið fyrir atkvæða- greiðsluna, sagði Valþór: „Því mið- ur er það ekki venja á fundum útvarpsráðs að rætt sé um um- sækjendur heldur er gengið beint til atkvæðagreiðslu. Ég vil að deildarstjórar og fréttastjórar ráði sína undirmenn. Þess vegna hef ég verið andvígur því að taka þátt í þessum skrípaleik,“ sagði Valþór. Hann bætti því við að skýrslur um starfsferil, menntun eða meðmæli umsækjenda væru ekki lögð fyrir á fundum útvarpsráðs þegar það fjallaði um þessi mál. m \ i i íí l ® TOYOTA TOYOTA <&) TOYOTA ® TOYOTA <$g) TOYOTA Kostnaðarverö á notuðnm bílum! i Opið alla helgina i < i Úg> TOYOTA ® TOYOTA ® TOYOTA TOYOTA <$£> TOYOTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.