Morgunblaðið - 25.09.1992, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992
Þýskaland
Wolf kærður
fyrir njósnir
og landráð
Bonn. Reuter.
ÞÝSK stjórnvöld lögðu í gær fram formlega kæru á hendur Markus
Wolf, fyrrum yfirmanni austur-þýsku leyniþjónustunnar, HVA. Wolf
er kærður fyrir njósnir og landráð og er sakaður um að hafa persónu-
lega stjórnað allt að tóif njósnurum í Bonn, þ.á m. Glinther Guil-
laume, njósnaranum er varð til að Willy Brandt varð að segja af sér
kanslaraembætti á áttunda áratugnum.
Wolf var lengi kallaður „andlits- mörgum njósnamálum hann átti alls
lausi maðurinn" þar sem vestrænar aðild að. Stjórnlagadómstóll
leyniþjónustu komust ekki að því
hvemig hann leit út fyrr en 1978
þó að hann hafi stjómað HVA síðan
1953. Er hann talinn vera fyrirmynd
rússneska njósnarans Karla í skáld-
sögum breska rithöfundarins John le
Carré.
Wolf flúði til Moskvu áður en
Þýskaland sameinaðist árið 1990 en
sneri til baka fyrir skömmu og gaf
sig fram við stjómvöld. Hann hefur
verið látinn laus gegn tryggingu.
í yfírlýsingu frá skrifstofu þýska
ríkissaksóknarans segir að ekki hafí
enn tekist að komast að því hversu
Þýskalands á eftir að úrskurða um
hvort þýskum stjómvöldum sé heim-
ilt að kæra Austur-Þjóðveija fyrir
njósnir og landráð. Margir sérfræð-
ingar á sviði lögfræði eru þeirrar
skoðunar að það sé ekki hægt þar
sem þeir hafí í raun farið eftir þeim
lögum sem giltu í eigin landi, sem
var fullvalda ríki, og ekki gert annað
en það sem vestur-þýskir njósnarar
gerðu í Austur-Þýskalandi.
Mikið manntjón í Frakklandi
EMBÆTTISMENN í Frakklandi óttuðust í gær að
hartnær 80 manns hefðu farist i flóðum og ofsaveðri
í suðausturhluta landsins á þriðjudag. Um 33 lík
höfðu fundist í gær og að minnsta kosti 43 manna
var saknað í héruðunum Ardeche, Drome og Vaucl-
use eftir flóðin og ólíklegt var talið að nokkrir þeirra
fyndust á lífi. Á myndinni bera björgunarmenn lík
konu sem fannst í rústum húss sem hmndi yfír hana.
Vamarmálaráðuneyti Bretlands og Bandaríkjanna
Komið
sem fyllti
mælmn
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELI nokkur krafðist ný-
lega skilnaðar við eiginkonu
sína, af því að hún nefndi
kjölturakkann á heimilinu í
höfuðið á honum.
„Hann færði dætrum þeirra
tveimur, fjögra og sjö ára göml-
um, hundinn að gjöf,“ sagði heim-
ildamaður hjá rabbínadómstóln-
um í Tel Aviv. „En þegar hann
kom heim daginn eftir, heyrði
hann þær kalla á hundinn:
„Zvika, Zvika, komdu hingað."
Þá varð hann ofsareiður og ákvað
hann að fara til rabbínans."
Að því er eiginmanninn varð-
aði var þetta komið, sem fyllti
mælinn í erfíðu hjónabandi. Hann
krafðist skilnaðar og úrskurðar
um að eiginkonan mætti ekki
kalla hundinn Zvika.
Efast umaðBorís Jelt-
sín hafi stjóm á hemum
Lundúnum. The Daily Telegraph.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og Bretlandi eru enn mjög efins um
að Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hafí stjórn á Sovéthernum fyrrver-
andi þrátt fyrir mikilvægan samning, sem kynntur var í Moskvu í
síðustu viku, þar sem Rússar skuldbinda sig til að hætta efnavopna-
framleiðslu sinni.
Það var ekki fyrr en nýlega sem
rússnesk stjómvöld viðurkenndu að
þúsundir manna hefðu ámm saman
starfað í verksmiðjum við að und-
irbúa framleiðslu efnavopna, sem
einkum átti að beita í hugsanlegu
stríði við Vesturlönd. Rússneskur
flóttamaður veitti bresku leyniþjón-
ustunni ýtarlegar upplýsingar um
þetta nýlega og það var ekki fyrr
en þær lágu fyrir sem Jeltsín knúði
á yfirmenn hersins um að hætta
starfseminni, sem hefur verið helsta
þrætueplið í samskiptum Rússlands
og Bandaríkjanna og Bretlands.
Þótt rússneska stjómin hafi sam-
þykkt að breskir og bandarískir eft-
irlitsmenn fái að rannsaka tilrauna-
stöðvar í Rússlandi í tengslum við
efnavopnaáætlunina hafa sérfræð-
ingar enn efasemdir um hernaðará-
form Rússa. „Jeltsín virðist hafa
unnið sigur á hemum í þessari orr-
ustu vegna þess að hann veit að það
skiptir hann afar miklu máli að fá
vestræna aðstoð og lán,“ sagði hátt-
settur embættismaður í bandaríska
vamarmálaráðuneytinu. „Hann virð-
ist hins vegar hafa orðið að gjalda
þess dým verði á öðrum sviðum
hermála.“
Sérfræðingarnir telja ýmislegt
benda til þess að yfirmenn hersins
hafí tök á Jeltsín og segja að forset-
inn hafí meðal annars frestað heim-
sókn sinni til Japans vegna andstöðu
þeirra. Þeir segja að stöðuveitingar
innan hersins að undanförnu og birt-
ing skýrslu um nýtt samhengi í rúss-
neskum hermálum sýndu að „gamli
sovéski hugsunarhátturinn" gagn-
sýri enn viðhorf yfírmanna hersins.
„Það em ótrúlega litlar breytingar
á viðhorfum þeirra og þeir líta enn
á Vesturlönd sem óvininn þótt þeir
segi það ekki berum orðum,“ sagði
hermálasérfræðingur í Lundúnum.
„Ég vil fá afdráttarlausar sannanir
fyrir því að þeir hafi í reynd hætt
við efnavopnaáætlunina. Þetta eru
árásarvopn," bætti hann við.
Sérfræðingamir segja það alvar-
legt mál að leiðtogar Sovétríkjanna
skuli hafa logið um tilvist áætlunar-
innar í tuttugu ár eftir að hafa undir-
ritað samning sem bannar efnavopn
árið 1972. Þótt Vesturlönd legðu
fram sannanir fyrir henni gáfu Mík-
haíl Gorbatsjov, fyrrverandi Sovét-
forseti, og síðan Jeltsín aðeins loðin
svör um hana.
„Þeir hafa aldrei viðurkennt að
hafa haft umfangsmikla og óheimila
efnavopnaáætlun, hafa lagt mikið á
sig til að halda henni leyndri og stað-
reyndin er sú að vafí leikur á gagn-
semi vopnanna á vígvelli. Þetta em
vopn til hryðjuverka," sagði breskur
embættismaður.
Cg> TOYOTA Cg> TOYOTA TOYOTA Cg> TOYOTA <«£> TOYOTA
Þú qerir qóð kaup
í notuðum bíl
bjá okkur núna!
TOYOTA <Sg> TOYOTA <Sg> TOYOTA <®> TOYOTA TOYOTA