Morgunblaðið - 25.09.1992, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992
fclk f
fréttum
TRÚARBRÖGÐ
Gere við rætur Himalaya
Sumarfrí kvikmyndaleikarans
Richards Geres og konu hans,
fyrirsætunnar Cindy Crawford,
var á margan hátt frábrugðið því
sem starfsbræður og -systur
þeirra nutu. í stað þess að njóta
lífsins lystisemda, héldu hjóna-
kornin að hlíðum Himalaya-fjalla.
Þar tóku þau þátt í mikilli trúarat-
höfn búddamunka en Gere er
búddatrúar. Hefur hann starfað
ötullega með trúbræðrum sínum
og hitt sjálfan Dalai Lama í all-
nokkur skipti. Þetta er í þriðja sinn
sem Gere er viðstaddur athöfnina,
sem kallast Kalachakra Tantra.
Hún stendur í fjóra daga og er
ætlað að draga úr spennu og of-
beldi í heiminum.
Það vakti að vonum athygli við-
staddra að sjá stórstjörnur á borð
við Gere og Crawford klædd á
látlausan hátt og laus við alla
stjörnustæla. Þess ber að geta að
frú Crawford er ekki búddatrúar
en hún segist hafa lært margt af
búddatrúnni þrátt fyrir að skoðan-
ir hennar stangist að mörgu leyti
á við það sem trúin boðar. Þar kom
þó ekki í veg fyrir að Crawford
léti sig hafa það að sitja með kross-
lagða fætur í átta klukkutíma á
dag þá fjóra daga sem athöfnin
stóð, til þess eins að fá betri inn-
sýn inn í trú manns síns.
ÞAKKIR
Fjölbrautarskóla
færðar góðar gjafir
SÝNENDUR á sýningu Lagnafé-
lags íslands sýndu Fjölbrauta-
skóla Suðurlands þakklæti sitt í lok
sýningar félagsins um síðustu helgi
og afhentu skólanum nytsamar
gjafír.
Sýningin var nokkuð viðamikil
og þar mátti sjá ýmsa þætti hvers
kyns lagna, efni og tæknibúnað.
Nokkur áhugi var fyrir sýningunni,
einkum þó af þeim sem nýta sér
þá tækni við vinnu sína eða nám.
Sýnendur iýstu margir hrifningu
sinni með þá umgjörð sem Fjöl-
brautaskólinn gefur slíkum sýning-
um og mannamótum en arkitektúr
skólans er einstakur og eftirtektar-
verður.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá sýningu Lagnafélags íslands í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
FÉLAGSSKAPUR
Gere og Crawford á tali við trúbróður hans.
Stórsljörnurnar fylgjast með athöfninni við hlíðar Himalaya.
ÍÞRÓTTIR
Borgin styrkir Knatt-
spyrnufélagið Val
Nýlega undirrituðu borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Öm
Antonsson, f.h. borgarsjóðs, og formaður Knattspyrnufélags-
ins Vals, Jón Gunnar Zoéga, samning um styrk borgarinnar til
félagsins að upphæð 36 milljónir króna vegna framkvæmda við
tengibyggingu milli íþróttahúsa á svæði félagsins.
Saumaklúbbsfundir
eru orkugefandi
Við hittumst á þriggja vikna
fresti og það er rosalega
gaman á fundum hjá okkur. Það
er algjör mætingaskylda og rétt
að taka það fram að það er aldrei
tekin fram handavinna," sögðu
átta hressar konur úr sauma-
klúbbnum Símalandi sem hreppti
silfurverðlaunin í landskeppni
saumaklúbba sem fram fór í þætti
Sigurðar Péturs á Rás tvö fyrr á
árinu.
Silfurverðlaunin voru helgar-
dvöl á Hótel Örk og þar mættu
konurnar hressar og kátar og stað-
ráðnar að eiga þar góða helgi.
Þetta er samstæður hópur og sam-
eiginlegt áhugamál nær allra er
hestamennska.
„Við erum allar útivinnandi og
okkur dettur ekki í hug að vinna
á klúbbfundum. Já, já, við tölum
mikið um hesta og karla, kryfjum
þjóðmálin og líka það hveijir eru
sexí og hveijir ekki í ríkisstjórh-
inni og þar eru skiptar skoðanir,“
sagði ein kvennanna og hópurinn
skellihló að þessari athugasemd.
„Við veltum öllu fyrir okkur sem
máli skiptir í Iífínu.“
Þátttakan í spurningakeppninni
kom öllum á óvart því klúbburinn
var skráður án þess að hópurinn
vissi allur. Þegar til kastanna kom
héldu þær að aðeins yrði um eitt
skipti að ræða en þau urðu sjö og
þar með þurfti ein þeirra að halda
sjö klúbbfundi heima hjá sér. Svo
stóð á að ein úr hópnum hélt upp
á fertugsafmæli sitt á spurninga-
keppnisfundi. Svo skemmtilega
vildi til að ein kvennanna átti dótt-
ur og tengdadóttur í klúbbnum
sem sigraði. En sigurvegararnir
fengu að launum dvöl á Akureyri
þessa sömu helgi.
„Það er meiriháttar að koma
hér á Örkina,“ var einróma álit
þeirra allra. Hressileikinn var alls-
ráðandi og auðvitað einróma álit
þeirra að saumaklúbbar væru
nauðsynlegir. „Það er á hreinu að
maður nær sér í ómælda orku með
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Saumaklúbburinn Símalandi í verðlaunadvöl, umvafinn gróðri á
Hótel Örk.
því að fara í saumaklúbb," lýsti og hláturinn lengir lífið,“ voru
ein konan yfir og hinar tóku und- lokaorð samtalsins.
ir. „Mottóið er að lifa lífinu lifandi Sig. Jóns.
COSPER
0.9
COSPfft