Morgunblaðið - 25.09.1992, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FOSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992
FOLK
■ ANDRZEJ Strejlau, fyrram
þjálfari Fram og nú landsliðsþjálfari
Póllands, setti þrjá lykilmenn út
úr iandsliðinu, sem lék gegn
Tyrkjum í fyrrakvöld, vegna þess
að þeir mættu ekki til lokaundirbún-
ings á réttum tíma.
■ JOZEF Wandzik, markvörður,
og Krzysztof Warzycha, framherji,
sem báðir leika með gríska liðinu
Panathinaikos, og Marek Kozm-
inski, varnarmaður hjá ítalska lið-
inu Udinese, fengu sig ekki lausa
s.l. fimmtudag vegna leikja félagsl-
iðanna um helgina, en Strejlau hafði
sagt landsliðsmönnum sínum að
koma til Póllands ekki seinna en
fyrrnefndan dag.
■ STREJLAU sagði fordæmið
slæmt, ef hann viki frá settri reglu
og léti mennina spila. Tveir fasta-
menn að auki vora meiddir, en Strej-
lau heimtaði sigur og það gekk eftir.
■ PÓLSKIR knattspyrnumenn era
að reyna að koma á leikmannasam-
tökum til að eiga auðveldara með
að gæta réttar þeirra. „Pólska knatt-
spyrnusambandið viðurkennir okkur
ekki og enginn hefur áhuga á okk-
’ ur,“ sagði Roman Kosecki, einn
reyndasti og virtasti knattspyrnu-
maður landsins. Hann bætti við að
margir leikmenn væru ekki studdir
fjárhagslega og sárabætur fyrir að
fótbrotna í leik væru um 40 þús.
ÍSK. „Þetta er hlægileg upphæð.“
■ RUUD Krol hefur farið fram á
4,5 millj. dollara í skaðabætur (um
253 millj. ÍSK) frá belgíska félaginu
Mechelen fyrir samningsbrot. Fyrir
liðlega tveimur árum gerði hann
tveggja ára samning við félagið en
'j'dr rekinn eftir sjö mánuði.
■ CARUNAS Marciulionis, einn
besti körfuknattleiksmaður Lithá-
en, sem leikur með Golden State
Warriors í NBA-deildinni í Banda-
ríkjunum, datt í stiga í heimaland-
inu, fótbrotnaði og verður frá keppni
í tvo mánuði.
I MARINO Lejarreta, einn
þekktasti hjólreiðakappi Spánar, er
byijaður að keppa aftur, en hann
slasaðist lífshættulega í keppni fyrir
fimm mánuðum. „Eg byijaði aftur
til að sýna að ég væri búinn að ná
mér. Ég vil að fólk muni eftir mér
sem hjólreiðakappa en ekki vegna
slyssins."
KNATTSPYRNA
Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri
Blackburn, hefur oft verið nefndur
sem sá bjargvættur, sem vanti á
Anfield. Hann sagði stjórastarfinu hjá
Liverpool lausu fyrir tæplega tveimur
árum.
Hvaðeraðger-
ast á Anfíeld?
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
Liverpool-liðið er ekki það sama
og áður, enda hefur það ekki
byijað keppnistímabil eins illa í 38
ammmmmmmm ár. Mikið hefur verið
Frá rætt og ritað um
ástandið á Anfield
og- Emlyn Hughes,
fyrrum fyrirliði
Liverpool, spurði einfaldlega í einu
ensku blaðanna á dögunum: „Hvað
er að gerast?“ Nú þegar era menn
byijaðir að spá í eftirmann Graeme
Souness í framkvæmdastjórahlut-
verkið. Þrír hafa verið nefndir og
eru það allt fyrrum leikmenn
Liverpool. Kevin Keegan, fram-
kvæmdastóri Newcastle, Kenny
Dalglish, framkvæmdastjóri Black-
burn og John Toshack, þjálfari Real
Sociedad á Spáni.
Liverpool varð fyrir enn einu
áfallinu á þriðjudagskvöldið. Þá
mátti liðið þola jafntefli, 4:4, gegn
3. deildarliðinu Chesterfield í fyrri
leik liðanna í deildarbikarkeppninni.
Andrúmsloftið á Anfield Road var
ekki uppörvandi, en aldrei hefur
verið eins mikil þögn á heimaleik
Liverpool. 5.000 stuðningsmenn
Chesterfield kváðu stuðningsmenn
Liverpool í kútinn, en 12.500 áhorf-
endur sáu leikinn.
Liverpool lék án níu fastamanna.
John Bames, Rob Jones, Michael
Thomas, Steve McManaman,
Ronnie Whelan, Paul Stewart, Ian
Rush og Steve Nicol eru meiddir,
en Daninn Torben Piechnik var í
Danmörku.
KORFUKNATTLEIKUR
Körfuknattleikssambandið
gerir samning við Hagvagna
Körfuknattleikssamband Is-
lands og Hagvagnar h/f hafa
gert með sér samkomulag
þess efnis að KKÍ sjái um sölu
á auglýsingum á alla strætis-
vagna fyrirtækisins og er
samningurinn til tveggja ára.
Hagvagnar verða þar með einn
af helstu stuðningsaðilum KKÍ,
en sambandið gerir ráð fyrir
að samningurinn færi því og
aðildarfélögum þess sextil
átta milljónir á næstu tveimur
árum.
Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ,
sagði að velta sambandsins
væri um 24 milljónir. Lottóið og
aðrir styrkir gæfu um þijár milljón-
ir, en gert væri ráð fyrir ámóta
upphæð vegna þessa samnings, sem
sýndi mikilvægi hans fyrir hreyfing-
una.
Hagvagnar era með 20 til 22
vagna og hafa öll aðildarfélög innan
KKÍ heimild til að selja auglýsingar
á langhliðar og bakhlið þeirra, en
sambandið sér um framkvæmdina.
Þetta kallar á aukna vinnu og verð-
ur starfsmaður ráðinn við hlið fram-
kvæmdastjóra á næstunni.
Gísli Friðjónsson, forstjóri Hag-
vagna, sagði að jákvætt væri að
tengjast íþróttahreyfingunni og í
þessu færa hagsmunir beggja sam-
an. „íþróttir era fyrir alla og Hag-
vagnar era fyrir alla.“
Verðlagning auglýsinganna mið-
ast við tveggja vikna tímabil og er
frá 15.000 kr. til 250.000 kr., en
fyrsta tímabilið hefst 27. septem-
ber.
Tannlsknastofa
Hef opnaó tannlæknastofu á Barónsstíg 5,
Reykjavík. Tímapantanir í síma 11001
Sveinn Ásgeirsson,
tannlæknir.
ísland í 4. sæti
Islenska kvennalandsliðið í körfu-
bolta tók fyrir skömmu þátt í
æfingamóti i Wales. Auk íslenska
Iiðsins léku í mótinu þijú fyrstu
deildar lið frá Irlandi, eitt frá
Wales og annað frá Englandi.
Leikið var í riðlum og síðan kepptu
liðin í neðstu sætum riðlanna um
sæti í undanúrslitum.
Úrslit leikja í riðlinum:
ísland — Waterford (írlandi)
50—55. Stigahæstar: Linda Stef-
ánsdóttir, Kristín Blöndal og Anna
María Sveinsdóttir, allar með 12
stig.
Island — Northampton (Eng-
landi) 42—66. Stigahæstar: Kristín
Blöndal með 12 stig og Linda Stef-
ánsdóttir og Hildigunnur Hilmars-
dóttir 10.
Undanúrslit:
ísland — Northampton 41—64.
Stigahæstar: Linda Stefánsdóttir
og Guðbjörg Norðfjörð með 7 stig
hvor. í hinum leiknum vann heima-
liðið BVC Rhondda, Waterford.
Leikur um þriðja og fjórða sæti:
ísland — Waterford 51—63.
Stigahæstar: Anna María Sveins-
dóttir 12, Linda Stefánsdóttir 10
og Kristín Blöndal 9.
í úrslitaleiknum vann Nort-
hampton BVC Rhondda.
Anna María Sveinsdóttir vann í
þriggja stiga keppni sem efnt var
til meðal leikmanna frá öllum
liðunum.
URSLIT
Golf
Punktakeppni á Hellu
Opið golfmót, punktamót,' var haldið á
Hellu. Betri bolti taldi og tóku 40 pör þátt
i keppninni. Efstir urðu:
Haukur Gíslason
og Samúel Hreggviðsson, GOS........51
Bjarki Sigurðsson
og Jón Þ. Hjartarson, GKJ............50
Ólafur H. Jónsson
og Stefán Gunnarsson, GR.............48
Eyjólfur Bergþórsson
og Einar Árnason, GR.................48
Jón H. Karlsson
og Jón Pétur Jónsson, GR............47
■Haukur A. Gíslason úr GOS fór holu í
höggi á 9. brautinni og er þetta í fyrsta
sinn sem hann fer holu í höggi.
Styrktarmót hjá GR
Mót til styrktar sveit GR á Evrópumót fé-
lagsliða var haldið um helgina.
Hörður Már Gylfason, GR..............67
Halldór Sigurðsson, GR..............68
Ólafur Skúlason, GR.................71
■Besta skori náði Tryggvi Pétursson, GR,
lék á 73 höggum.
Firmakeppni GR
Þetta var í 48. sinn sem firmakeppni GR
fór fram og 203 fyrirtæki tóku þátt að
þessu sinni. Leiknar voru 18 holur án for-
gjafar.
Blómabúðin Vor/ Siguijón Arnarsson..71
Ferðaskr. Alís/Þorkell Sigurðarson..75
GOS/Haraldur Þórðarson...............76
Borðtennis
Punktamót Víkings
Fyrsta borðtennismót vetrarins fór fram í
TBR-húsinu við Gnoðarvog um síðustu
helgi. Keppt var í 6 flokkum og sigruðu
Víkngar í fjórum þeirra. Helstu úrslit:
Meistaraflokkur karia:
1. Peter Nilsson (Sænskur leikmaður)
2. Kristján V. Haraldsson, Vikingi
3. - 4. Kristján Jónasson, Víkingi
3. - 4. Jóhannes Hauksson, KR
Meistaraflokkur kvenna:
1. Ingibjörg Ámadóttir, Víkingi
2. Hrefna Halldórsdóttir, Víkingi
3. Líney Árnadóttir, Víkingi
1. flokkur karla:
1. Ingólfur Ingólfsson, Víkingi
2. Ólafur Eggertsson, Víkingi
3. - 4. Ólafur P. Stephensen, Víkingi
3. - 4. Helgi Gunnarsson, Víkingi
1. flokkur kvenna:
1. Líney Árnadóttir, Víkingi
2. María, Víkingi
3. Elísabet, Víkingi
2. flokkur kvenna:
1. Ólafur Rafnsson, Víkingi
2. Jón I. Árnason, Víkingi
-3. - 4. Davíð S. Jóhannsson, Víkingi
3. - 4. Smári Einarsson, Víkingi
Eldri llokkur karla:
1. Árni Siemsen, Erninum
2. Pétur Ó. Stephensen, Víkingi
3. Sigurður Herlufsen, Víkingi
Körfuknattleikur
Reykjanesmótið
Síðustu leikir:
Haukar - Njarðvík........101:97
111:102
63:82
101:93
107:93
Keflavík - Njarðvík 117:98
Njarðvík - Breiðablik 104:91
Keflavík - Grindavík 89:93
■Lið ÍBK er efst með 10 stig eftir 6 leiki,
Haukar með 8 eftir 5 leiki, UMFN hefur 6
eftir 6 leiki, UMFG 4 eftir 6 leiki og Breiða-
blik rekur lestina, hefur ekkert stig eftir
fimm leiki. Pétur Guðmundsson leikur með
UBK gegn Haukum í Digranesi í kvöld kl.
20, en Haukar og ÍBK mætast á laugardag-
inn kl. 14 í Hafnarfírði og gæti það orðið
úrslitaleikur. Með sigri tryggja Keflvíkingar
sér sigur í mótinu.
IMámskeið í íþróttalæknisfræði
Eins og áður hefur komið fram verður námskeið um íþróttalækn-
isfræði á vegum Ólympíunefndar íslands haldið í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal dagana 1. til 3. október nk. Forstöðumenn
verða læknarnir Birgir Guðjónsson og Sigurjón Sigurðsson.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 1. október kl. 17.15 og verður
fram haldið á sama tíma daginn eftir, en laugardaginn 3. októ-
ber hefst námskeiðið að morgni kl. 9.15.
Námskeiðið stendur yfir í 4-5 klst. hvern dag með stuttu matar-
hléi.
Námskeiðið er einkum ætlað læknum, sjúkraþjálfurum, og
íþróttaþjálfurum. Gestur á námskeiðinu verður prófessor Ing-
ard Lereim frá Þrándheimi, sem mun fjalla um mjúkparta-
meiðsli (soft tissue injury) og einnig um blóðdóping.
Sérfræðingar í læknisfræði og sjúkraþjálfarar munu fjalla um
helstu meiðsli, sem fyrir koma hjá íþróttamönnum, meðferð
þeirra og endurhæfingu.
Fjallað verður ítarlega um lyfjamisnotkun í íþróttum, um regl-
ur, töku sýna, líkamlegar afleiðingar og refsingar.
Kynnt verða nýjustu viðhorf í kyngreiningu, bæði með tilliti til
almennrar skoðunar og sérhæfðra litningarannsókna.
Þátttaka er ókeypis og hafa allmargar umsóknir um þátttöku
þegar borist, en heildarfjölda getur þurft að takmarka.
Umsóknir um þátttöku berist til skrifstofu Ólympíunefndar ís-
lands eða Í.S.I. í síma 813377 fyrir 29. september nk.
Undirbúningsnefnd.
Ijósmynd/Pétur Ingi Björnsson
Tindastóll sigurvegari í 3. deild
Tindastóll frá Sauðárkróki sigraði með yfirburðurn í 3. deild karla á íslandsmótinu ! knattspyrnu 1992. Liðið var skipað eftirtöldum
leikmönnum: Efsta röð f.v.: Daníel Kristjánsson, Lýður Skarphéðinsson, Grétar Karlsson, Bergur Stefánsson, Sverrir Sverrisson, Björn
Björnsson, Finnur Kristinsson og Guðbrandur Guðbrandsson. Miðröð f.v.: Ólafur Jónsson, Magnús Sverrisson, Hólmar Ástvaldsson, Pét-
ur Pétureson, aðst. þjálfari, Gunnar Gestsson, Bjöm Sigtryggsson, Bjarki Pétureson, Ingi Þ. Rúnarsson, Smári Eiriksson, Guðbjörn
Tryggvason, þjálfari, Þorsteinn Birgisson, framkvæmdastjóri og Ómar B. Stefánsson, formaður. Fremsta röð f.v.: Tryggvi Tryggvason,
Þórður Gíslason, Stefán Vagn Stefánsson, Guðbjartur Haraldsson, fyrirliði, Gísli Sigurðsson, Sigurjón Sigurðsson og Stefán Pétursson.