Morgunblaðið - 25.09.1992, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.09.1992, Blaðsíða 44
T««— Hálfúldinn hrefnutarf rak upp í fjöru í Garðinum í fyrrinótt Hrefnutarfurinn í fjöruborðinu í Garðinum í gærmorgun. Morgunbiaðið/Björn Biöndai Tungan eins og uppblásinn bolti STÓRAN hrefnutarf rak á land í Garðinum og fannst hann I fjöruborðinu þar í gær- morgun. Dýrið hafði greinilega legið nokk- urn tíma í sjó því það var farið að rotna og tunga þess útblásin af þeim sökum. Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur segir að í fyrstu hafi verið talið að um búrhval væri að ræða og því menn frá Hafrannsókn sendir á staðinn til sýnatöku. Brátt kom í ljós að þetta var hrefna og þar að auki orðin of rotin til að gagn væri í sýnatöku. Jóhann segir að hrefnu reki af og til á land hérlendis en samt í minni , mæli en búast mætti við ef mið er tekið af fjölda hennar í sjónum við lándið. Síðdegis í gær var hrefnan síðan dregin á haf út og sökkt. 18-19 arnar- ungar kom- ust á legg TALIÐ er að 18-19 arnarungar, úr 14-15 hreiðrum um vestanvert landið, hafi komist upp i sumar og er arnarvarp því talið afar vel heppnað að þessu sinni, að sögn Björns Guðbrandssonar læknis, formanns Fuglaverndarfélags Is- lands. Nú eru tæplega 100 hafernir hér á landi og að sögn Björns hefur þeim farið heldur fjölgandi en þó eru fuglarnir enn það fáir að lítið má út af bregða til að hætta steðji að stofninum. Björn sagði að auk þess sem svo virtist sem tíðarfar hefði verið örnum hagstætt væri ljóst að miklu skipti fyrir það hve varpið hefði tekist vel, að bændur hefðu sýnt fuglunum mikla nærgætni. Haförninn væri einhver viðkvæmasti varpfugl lands- ins og við minnsta rask væri hætta á að varpið misfærist. ----» ♦ ♦---- Vínveitinga- stöðum fjölg- ar stöðugt Rekstrarerfíðleikar Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga 38 mönnum sagt upp og tekjur annarra skertar UM mánaðamótin verður 38 af 178 starfsmönnum Járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga sagt upp störfum í því skyni að lækka framleiðslukostnað fyrirtækisins, og er uppsagnarfrestur þeirra 3-6 mánuðir. Fyrirtækið var rekið með 220 milljóna króna tapi á fyrri helmingi ársins, og að sögn Jóns Sigurðssonar forstjóra verk- smiðjunnar mun starfsmanna- kostnaðurinn lækka um rösklega 90 milljónir á ári í kjölfar upp- sagnanna, sem að hans sögn eru liður í umfangsmeiri aðgerðum til að lækka framleiðslukostnað lands og japanska fyrirtækinu Sumi- tomo, væri sá aðili sem þar hefði tekið frumkvæði, en í fjárhagslegri skipulagningu sinni setti Elkem sér viðmiðun um hvaða verð fyrirtækið yrði að geta þolað til að lifa, og það yrði Jámblendiverksmiðjan einnig að gera. „Þetta er því aðgerð til að ná slíku markmiði. Þar fyrir utan erum við í greiðsluþröng þar sem sölubrestur hefur orðið hjá okkur, og hún knýr líka á okkur mjög grimmt. Þetta tvennt gerir það að verkum að við verðum að búa okkur undir svona óáran eins og Elkem gerir og það getum við ekki nema leita út fyrir fyrirtækið eftir aðstoð. Það þykir okkur hins vegar ekki mögulegt að gera öðruvísi en að við séum búnir að taka rekstrinum héma og okkur sjálfum tak á allt öðrum og róttæk- ari forsendum heldur en við höfum gert áður bæði í almennum rekstrar- gjöldum og mannahaldi og starfs- mannakostnaði. Við emm því búnir að búa tii neyðaráætlun þar sem þessi aðgerð er liður í henni,“ sagði hann. 105 veitinga- og skemmtistaðir í Reykjavík eru nú með vínveit- ingaleyfi, og 5-10 umsóknir fyrir nýja staði eru óafgreiddar, að sögn Elínar V. Hallvarðsdóttur hjá iögreglustjóraembættinu í Reykjavík. Langflestir staðirnir eru með almennt vínveitingaleyfi, en nokkrir eru einungis með leyfi til að selja léttvín og bjór. Elín sagði að á síðasta ári hefðu 99 staðir í Reykjavík verið með vín- veitingaleyfi, árið 1990 voru staðirn- ir 91 talsins, en 1989 vora þeir 79 talsins. Mest var fjölgunin hins veg- ar milli áranna 1988 og 1989 þegar sala á áfengum bjór var heimiluð, en þá fjölgaði þeim um 26, eða úr 53 í 79. Hún sagði að talsvert væri um breytingar á listanum yfir vín- veitingaleyfin, og þannig hefðu 25 breytingar orðið á listanum það sem af er þessu ári. Þar væri aðallega um það að ræða að eigendaskipti yrðu á viðkomandi stöðum. Gæsluþyrlan bjargar sjómanni Járnblendiverksmiðjunnar. Kjart- an Guðmundsson aðaltrúnaðar- maður starfsmanna verksmiðj- unnar sagði þá vera slegna yfir þessum aðgerðum, en þeir hefðu hins vegar skilning á ástæðum þeirra. úr gúmbjörgunarbát á Faxaflóa Stysti útkallstími þyrluáhafnarinnar frá upphafi þyrlureksturs Jón Sigurðsson sagði í samtali við Morgunbiaðið að uppsagnirnar og aðrar aðgerðir þeim tengdar hefðu áhrif á störf ríflega 40 starfsmanna Jámblendiverksmiðjunnar. Jafn- framt hefði þess verið farið á leit við þá starfsmenn sem eftir verða hjá Jámblendifélaginu að þeir leggi sitt af mörkum til að draga úr fram- leiðslukostnaðinum með því að taka skerðingu á kjörum sínum og lægju fyrir drög að samkomulagi um það. Þá sagði Jón að launahæsti hópur starfsmannanna tæki að auki á sig 7% iaunaskerðingu. Jón sagði að sú von sem undanfar- in 2-3 ár hefði verið um að bati á markaðnum væri á næsta leyti hefði verið gefín upp. Norska fyrirtækið Elkem, sem er eigandi Jámblendi- verksmiðjunnar ásamt ríkissjóði ís- ÞYRLA Landhelgisgæslunnar TF-SIF bjargaði manni úr gúmmí- björgunarbát í gærkvöldi eftir að trilla hans, Nonni HF 35, sökk á Faxaflóa suður af Breiðuvík. Maðurinn var einn um borð. Honum tókst að senda út neyðarkall þegar báturinn sökk, komast í gúmmí- björgunarbát og skjóta upp neyðarblysum. Ekki er vitað um ástæð- ur þess að báturinn sökk en þegar maðurinn sendi út neyðarkallið taldi hann sig hafa siglt á eitthvað. Áhöfn þyrlunnar var heima þjá sér þegar hún var kölluð út en þyrlan var þó komin í loftið sautján mínútum síðar. Er það stysti útkallstími í sögu þyrlurekst- urs Landhelgisgæslunnar, að sögn flugstjórans. Varðskipið Týr nam neyðarkall frá Nonna HF 35 og lét stjómstöð Landhelgisgæslunnar vita klukkan 20.03. Sagði skipstjórinn að bátur- inn hefði rekist á eitthvað og væri að sökkva. Skömmu síðar sáu nær- staddir bátar neyðarblys. Tilkynn- ingaskyldan bað þijá nærstadda báta að halda þegar á staðinn og þeir létu fleiri vita. Neyðarblysin sáust víða og var því hægt að miða gúmmíbátinn nokkuð vel út. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SIF var þegar kölluð út og var komin í loft- ið klukkan 20.21, eða sautján mín- útum eftir að hún var kölluð út og er það mettími. Benóný Ásgrímsson þyrluflug- stjóri sagði að fljótlega eftir að þeir fóra af stað hafí þeir séð neyð- arblys og síðan fengið lítið endur- kast á ratsjána. Reyndist það vera af björgunarbát frá Nonna og var sjómaðurinn í honum. Þegar þeir komu yfir bátinn köstuðu þeir blys- um í sjóinn. Sigmaðurinn seig niður í bátinn og var hífður með sjómann- inn aftur upp í þyrluna. Voru þeir búnir að bjarga manninum klukkan 20.48 og þyrlan lenti við Borgar- spítalann klukkan 21.13. Maðurinn var blautur og kaldur en ómeiddur. Var hann til eftirlits á spítalanum í nótt. Varðskipið Týr tók björgun- arbátinn um borð ásamt braki úr Nonna. Nonni HF 35 var tæplega 6 tonna trébátur skráður í Hafnar- firði. Var verið að sigla honum frá Tálknafírði, þar sem hann var gerð- ur út í sumar, til heimahafnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.