Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 24

Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 25 Útgefandi Árvakur h.f., Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Ovænt kosninga- úrslit í Litháen Urslit þingkosninganna í Lithá- en, sem haldnar voru um síðustu helgi, koma á óvart. Sajud- is-hreyfingin, sem undir forystu Vytautas Landsbergis, forseta, hefur leitt baráttu Litháa fyrir sjálfstæði og umbótum í efnahags- lífi, beið afhroð í kosningunum og fékk aðeins um 20% atkvæða. Lýðræðislegi verkamannaflokkur- inn, arftaki Kommúnistaflokks Litháens, vann hins vegar stórsig- ur. Flokkurinn fékk um 47% at- kvæða og myndar að öllum líkind- um næstu ríkisstjóm undir forystu Algirdas Brazauskas, sem var leið- togi Kommúnistaflokksins og for- seti Litháens áður en Landsbergis tók við embætti fyrir hálfu þriðja ári. Margir spyrja eflaust hvers vegna ftilltrúar hins gamla kúgun- arvalds kommúnista skuli eiga svo góðan stuðning meðal þjóðarinnar, ekki sízt með tilliti til þess að í fyrstu fijálsu þingkosningunum í Litháen, í febrúar og marz 1990, hlutu stuðningsmenn Sajudis hreinan meirihluta atkvæða. Hluti skýringarinnar kann að vera að Kommúnistaflokkur Litháens, for- veri Lýðræðislega verkamanna- flokksins, var á margan hátt fijálslyndari en aðrar deildir í sovézka kommúnistaflokknum. Strax á árinu 1988 kom flokkurinn til móts við þá, sem kröfðust auk- ins sjálfsákvörðunarréttar Litháa innan Sovétríkjanna og að lithá- íska yrði opinbert mál í landinu. Árið 1989 samþykktu þingmenn flokksins fullveldisyfirlýsingu Lit- háens og seinna á því ári sagði Kommúnistaflokkur Litháens sig úr lögum við Kommúnistaflokk Sovétríkjanna og lýsti yfír stuðn- ingi við íjölflokkalýðræði og sjálf- stæði landsins. Upp úr því klofn- aði flokkurinn og fijálslyndari armur hans stofnaði Lýðræðislega verkamannaflokkinn» Kosningaúrslitin í Litháen sýna að erfítt er að ryðja hinu gamla kerfí kommúnismans úr vegi í einu vetfangi. Gamlir kommúnistar, stundum undir nýjum merkjum, hafa unnið lýðræðislegar kosning- ar í Slóvakíu, Búlgaríu, Rúmeníu og Úkraínu, svo dæmi séu nefnd, þrátt fyrir að kommúnískt alræði hafí formlega verið lagt af í þess- um ríkjum. Hugarfar almennings er þar með þeim hætti, að oft er erfítt að fá fólk til að styðja nauð- synlegar umbætur á stjómkerfí og efnahagslífi. Rússneski pró- fessorinn Valeríj Bérkov orðar þetta svo í grein, sem hann ritaði í Morgunblaðið fyrir skömmu um hið sovézka hugarfar: „Efnalegt ósjálfstæði hefur leitt til þess, að menn gera helzt ráð fyrir því, að helztu nauðsynjar eigi að koma að ofan frá æðri stöðum, þ.e.a.s. að ríkisvaldinu beri skylda til að leysa málin varðandi nauðþurftir hvers einstaklings." Ekki er ósennilegt, að þessi lýs- ing Bérkovs eigi við um almenning í Litháen. Mikilvægasta undirrót sigurs fyrrverandi kommúnista er líklega efnahagsástandið í landinu. Tilraunir stjómarflokks Lands- bergis til að koma á markaðskerfi hafa reynt á þolrifín í almenningi og sumir hafa haldið fram, að þær hafí ekki verið nægilega markviss- ar. Niðurgreiðslum á matvæla- verði var hætt fyrir réttu ári og dýrtíð er hrikaleg. Verðbólgan hefur verið 2.000% á síðastliðnum 12 mánuðum. Atvinnuleysi er mik- ið. Rússar hafa ekki getað staðið við samninga um að sjá Litháum fyrir ýmsum nauðsynjum og tveimur vikum fyrir kosningar margfölduðu Rússar verð á olíu, sem þeir selja Litháum. Almenn- ingur hírist í köldum húsum við þröngan kost og kennir valdhöfun- um um ástandið. Reynsla annarra fyrrverandi kommúnistaríkja sýnir hins vegar, að tímabundnir erfið- leikar hljóta að fylgja efnahags- umbótum og alltént er svo mikið víst að afturhvarf til kommúnísks áætlanabúskapar er ekki rétta leiðin til að renna stoðum undir efnahag neins ríkis. Sigur gamalla kommúnista á þeim öflum, sem verið hafa í fylk- ingarbijósti í stjómmála- og efna- hagslegri frelsisbaráttu Litháa, vekur upp spumingar um framtíð lýðræðis og efnahagsumbóta í landinu. Margir spyija líka hvort afleiðingin verði sú að þjóðernis- sinnar og harðlínumenn í Rúss- landi seilist til áhrifa í stjóm lands- ins. „Sigri afturhaldið í Moskvu getur farið svo að Litháar, sem fyrstir kröfðust sjálfstæðis frá Kreml, verði fyrstir til að glata því á ný,“ sagði Andrius Kubilus, ritari Sajudis-hreyfíngarinnar, í samtali við Morgunblaðið í gær. Slík var varla ætlan litháensks almennings, sem greiddi Lýðræð- islega verkamannaflokknum at- kvæði sitt, en yfírlýsingar tals- manna flokksins benda þó til að hann tengist einkum afturhalds- samari öflum í Rússlandi, sem beijast gegn Borís Jeltsín forseta og umbótastefnu hans. íslendingar hafa verið í farar- broddi þeirra þjóða, sem stutt hafa Litháa í frelsisbaráttu sinni. Ein- stök og náin vinabönd hafa af þessum sökum skapazt milli þjóð- anna og þegar hefur verið komið á margvíslegu samstarfi þeirra á milli. Litháar hafa sótt í smiðju til íslendinga ýmsar hugmyndir varðandi viðskipti, efnahagsmál og stjómsýslu. Miklu máli skiptir nú, þegar framtíð þessarar vina- þjóðar er í óvissu, að íslendingar veiti henni áfram öflugan stuðning og styrki þau öfl, sem vilja standa vörð um sjálfstæði, lýðræði og fijálst markaðshagkerfi. Gengisstefna og efnahagsvandi Hér fer á eftir forystugrein úr Fjár- málatíðindum, 2. hefti 1992, eftir Jóhannes Nordal seðlabankastjóra i. Mikil og óvænt tíðindi hafa orðið á gjaldeyrismörkuðum Evrópu á und- anfömum tveimur mánuðum. Eftir langt tímabil stöðugleika í gengis- málum innan Evrópubandalagsins og markvissrar stefnu í átt til fastr- ar gengisskráningar og jafnvel sam- eiginlegs gjaldmiðils hefur skyndi- lega slegið í bakseglin vegna óróa á gjaldeyrismörkuðum og vantrúar markaðarins á gengi nokkurra mikil- vægra mynta. Afleiðingar hafa þeg- ar komið fram í gengisbreytingum, þ. á m. tímabundnu fráhvarfí tveggja stórþjóða álfunnar, Breta og ítala, frá fastri gengisskráningu. Enn er atburðarásin, sem leiddi til þessarar niðurstöðu, of nálæg til þess, að menn séu á eitt sáttir um orsakir hennar eða afleiðingar, enda er hér ekki eingöngu um áhrif efnahags- legra afla að ræða, heldur einnig stjómmálalegs ágreinings um fram- tíðarstefnu Evrópubandalagsins í efnahags- og gengismálum. Tvær ályktanir virðist þó mega draga af þeim umræðum, sem farið hafa fram í kjölfar þessara atburða varðandi framtíðarstefnu Evrópuþjóða í geng- ismálum. Annars vegar er mjög ólíklegt að þessir atburðir muni breyta rikjandi skoðunum innan Evrópu á því að gengisfesta eigi í framtíðinni að vera kjölfesta stefnunnar í efnahagsmál- um bæði til þess að tryggja stöðug- leika í verðlagi og greiða fyrir hag- kvæmum viðskiptum álfunnar. Hins vegar hafa umbrotin á gjald- eyrismörkuðunum að undanfömu enn á ný undirstrikað, hvaða for- sendur þarf að uppfylla til þess, að stöðugleika verði haldið milli gjald- miðla við skilyrði fijálsra viðskipta með vörur, þjónustu og fjármagn. Sé stefna einstakra ríkja í ríkisfjár- málum og peningamálum ekki nægi- lega samræmd og mismunur á verð- bólgustigi svo mikill að samkeppnis- staða raskist verulega, verður fyrr eða síðar að grípa til gengisbreyt- inga, hvort sem það gerist með skipulegum hætti eða fyrir áhrif markaðsafla í formi óróa á gjaldeyr- ismörkuðum og fjárflótta. Með þessu hafa eingöngu verið staðfest þau gamalkunnu sannindi, að yfirlýst fastgengisstefna tryggi ekki stöðugleika í gengi til lang- frama, nema hún sé studd af viðeig- andi aðgerðum á öðrum sviðum efna- hagsmála, er tryggi svipað verð- bólgustig og í öðrum löndum. Engu að síður hefur það markmið að halda gengi stöðugu reynzt flestum þjóðum mikilvægur grundvöllur almenns stöðugleika í efnahagsþróun. Hefur þetta sérstaklega reynzt svo fyrir smærri þjóðir, þar sem utanríkisvið- skipti eru dijúgur hluti þjóðartekna. n. Eftir tímabil breytilegs gengis og mikillar verðbólgu sigldu íslendingar loks fyrir tæpum þremur árum í kjöl- far annarra Vestur-Evrópuþjóða með því að taka upp markvissa fastgeng- isstefnu. Á þeim tveimur árum og tíu mánuðum sem síðan eru liðnir hefur gengi krónunnar verið haldið algerlega föstu miðað við gengisvog Seðlabankans, sem þó var breytt um síðustu áramót í meðaltal þriggja eininga, ECU, Bandaríkjadollars og japansks jens. Á þessu tímabili hafa tvívegis verið gerðir víðtækir kjara- Dr. Jóhannes Nordal samningar, er stefndu að lækkun verðbólgu á grundvelli stöðugleika í gengi krónunnar. Árangur þessarar samræmdu stefnu hefur ekki látið á sér standa. Þegar á fyrsta ári lækkaði verðbólg- an um tvo þriðju frá árinu áður og komst niður fyrir 10% í fyrsta skipti í tvo áratugi. Á því ári, sem nú er að líða, hefur dregið enn meir úr verðbreytingum og bendir nú allt til þess, að verðbólgan verði innan við 2% á árinu og þá jafnvel lægri en í nokkru öðru landi í Vestur-Evrópu. Með þessum hætti hefur í fyrsta skipti í tvo áratugi gefízt tækifæri til þess að bæta samkeppnisstöðu og auka vaxtarmegin íslenzks at- vinnulífs á grundvelli stöðugs verð- lags. Þótt ávinningurinn fyrir at- vinnulífíð láti enn á sér standa vegna erfíðra ytri skilyrða, einkum minnk- andi sjávarafla og efnahagssam- dráttar i umheiminum, hefur samt þegar mikið áunnizt. Efnahagslegiir stöðugleiki hefur bætt skilyrði fyrir- tækja til þess að endurbæta rekstur sinn, og aukin verðsamkeppni skilar sér í æ ríkari mæli til hagsbóta fyr- ir neytendur. Út á við hefur lækkun verðbólgu aukið traust á íslenzku atvinnulífí og tryggt hagstæðari lánskjör á tímum óvissu á fjármagns- mörkuðum. Loks er enginn vafí á því, að þessi og önnur hagstæð áhrif stöðugleika í verðlagi og kostnaði munu koma þeim mun betur fram, því lengur sem hann varir. ra. Færi hins vegar svo, að menn brygðust við þeim efnahagssam- drætti, sem nú heijar á íslenskt at- vinnulíf vegna aflabrests og kreppu í heimsbúskapnum, með lækkun á gengi krónunnar, yrði þessum árangri öllum fómað fyrir skamm- góðan vermi, sem útflutningsat- vinnuvegimir mundu njóta, unz verð- bólgan gleypti allan ávinninginn og meira til. Vantrú á þróun islenzks efnahagslífs mundi væntanlega blossa upp á ný og hafa í för með sér vaxtahækkun á innlendum mark- aði, ftárflótta og versnandi lánskjör íslenzkra aðila á erlendum lánsfjár- mörkuðum. Er reynsla Finna af tveimur gengislækkunum á einu ári til dæmis um þann vítahring sem þjóðarbúskapur íslendinga gæti lent í, ef aftur yrði farið út á braut geng- islækkana. Sá efnahagsvandi sem íslendingar eiga nú við að etja, er ekki þess eðlis, að úr honum verði bætt með skyndilausnum eins og lækkun á gengi íslenzku krónunnar. Ekki er heldur lengur neitt svigrúm til þess að halda vísvitandi uppi atvinnu á íslandi með erlendum lántökum til að standa undir hallarekstri ríkis og annarra opinberra aðila. Með því yrði auk þess stórlega dregið úr möguleikum Islendinga til þess að afla fjár til arðbærra framkvæmda síðar meir, þegar skilyrði til hagvaxt- ar batna að nýju. Tvenns konar að- gerðir eru hins vegar líklegastar til þess að treysta stöðu og vaxtar- möguleika íslenzks atvinnulífs við núverandi aðstæður. í fyrsta lagi er mikil þörf áfram- haldandi endurskipulagningar í flest- um greinum íslenzks atvinnulífs, ekki sízt í sjávarútvegi, þar sem markaðsaðstæður og framboð á afla til vinnslu innanlands hefur hvort tveggja gerbreytzt á undanfömum árum. Reynsla síðustu þriggja ára sýnir, að efnahagslegur stöðugleiki skapar bezta jarðveginn fyrir þær skipulagsbreytingar sem nauðsyn- legar eru, en fmmkvæðið að þeim þarf fyrst og fremst að koma frá stjórnendum fyrirtækjanna sjálfra í samvinnu við lánastofnanir, sem hlut eiga að máli. Á þessu er nú vaxandi skilningur, þótt furðu margir trúi því enn þrátt fyrir bitra reynslu und- anfarinna ára, að ríkisforsjá geti all- an vanda leyst í þessu efni. Á hinn bóginn er enginn vafí á því að ríkisvaldið getur bætt rekstr- arskilyrði atvinnuveganna með margvíslegu móti, ekki sízt með því að lækka skattlagningu fyrirtækja og breyta henni til samræmis við það sem nú er að verða í helztu viðskipta- löndum íslendinga. Einnig er öflugur stuðningur við rannsóknir og þróun í þágu atvinnuveganna og aukna menntun og þjálfun starfsmanna mikilvæg forsenda efnahagslegra framfara. Kostnað slíkra aðgerða verður hins vegar að greiða með hærri sköttum á einstaklinga og fjöl- skyldur og með því að draga úr fé- lagslegri þjónustu og fyrirgreiðslu, þar á meðal til húsnæðismála. Þessi leið er þó áreiðanlega léttbærari öll- um almenningi þegar til lengdar lætur heldur en lækkun rauntekna, sem knúin væri fram með gengis- lækkunum og verðbólgu, eins og svo oft hefur gerzt hér á Iandi á liðnum árum. IV. Umbrotin á gjaldeyrismörkuðum Evrópu, sem vikið var að í upphafi, ber tvímælalaust að skoða sem eitt merki um hið ótrausta ástand, sem nú ríkir í efnahagsmálum iðnríkj- anna. Vonir og spár um skjótan efna- hagsbata hafa hvað eftir annað orð- ið að engu á undanförnum tveimur árum. Margt bendir því miður til þess, að lítilla breytinga til hins betra sé að vænta í náinni framtíð. Á meðan þessar ótryggu aðstæður breytast ekki til hins betra, er því sífellt hætta á óróleika á gjaldeyris- og fjármagnsmörkuðum, sem geta valdið smáþjóð eins og íslendingum, sem eiga afkomu sína og fjárhags- stöðu undir erlendum viðskiptum og ijármagnsmörkuðum, þungum bús- iftum. Áframhaldandi stöðugleiki í íslenzkum þjóðarbúskap og það traust, sem honum fylgir, er Islend- ingum mikilvæg vöm á þessum við- sjárverðu tímum. Það sjónarmið má sízt gleymast þegar teknar eru ákvarðanir um það hvemig bregðast skuli við þeim efnahagsvanda sem nú steðjar að. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Þeir voru á meðal 112 starfsmanna íslenskra aðalverktaka sem fengu uppsagnarbréf í gær. Frá vinstri til hægri eru: Svavar Baldursson, Guðmundur G. Guðmundsson, Þórhallur Óskar Þórhalls- son, Pálmi Hannesson, Héðinn Waage og Hörður Steindórsson. * Uppsagnir hjá Islenskum aðalverktökum Sárir yfir því hvernig staðið var að málum - segir Pálmi Hannesson trúnaðarmaður sem var sagt upp Keflavík. „VIÐ EKIJM bæði sárir og svekktir yfir því hvernig staðið var að þessum uppsögnum. Það hefði átt að halda fund með öllum stárfs- mönnum og leggja þar spilin á borðið. Við vissum að uppsagnir væru yfirvofandi og þessu ástandi hefur fylgt mikið af alls konar sögusögnum um hvað væri i bígerð og mönnum hefur liðið illa i þessu andrúmslofti," sagði Pálmi Hannesson, trúnaðarmaður starfs- manna á tækjaviðgerðarverkstæði íslenskra aðalverktaka sem í gær fékk uppsagnarbréf eins og 111 aðrir starfsmenn fyrirtækisins. Hjá tækjaviðgerðardeildinni hafa starfað 19 menn en þeim verður nú fækkað um sjö og lætur nærri að þriðja hveijum manni hafí verið sagt upp hjá fyrirtækinu. Af sjö- menningunum, sem gætu verið þverskurður af hópnum sem fékk uppsagnarbréfin í gær, voru sex fúsir að tjá sig við Morgunblaðið um hagi sína og framtíðarhorfur, sem þeir sögðu vera heldur dapur- legar eins og staðan væri. Svanur Baldursson er úr Reykja- vík og hann hefur starfað hjá Aðal- verktökum í 18 ár, Hörður Stein- dórsson úr Keflavík hefur 17 ára starfsferil að baki, Pálmi Hannes- son úr Njarðvík tæp sjö ár, Þórhall- ur Óskar Þórhallsson, Keflavík, rúm ftögur ár, Guðmundur G. Guð- mundsson, Reykjavík, þijú ár og Héðinn Waage úr Keflavík hefur starfað í tvö ár. Þeir eru flestir fjöl- skyldumenn og saman hafa þeir 13 böm á framfæri. „Ég er ákveðinn í að reyna allt áður en ég læt skrá mig atvinnu- lausan, en það verður að segjast eins og er að útlitið hér er allt annað en gott,“ sagði Þórhallur Óskar Þórhallsson. „Þegar maður er með fjölskyldu og börn sem em í skóla og hefur komið sér fyrir er áreiðanlega ekki auðvelt að taka sig upp til að flytja út á land þar sem atvinnu væri von. Þetta er hálfdapurt og við emm sárir. Það hefur verið kvartað mikið yfír því að Bandaríkjamenn séu að yfírtaka störf íslendinga og það gengur lítið að stöðva það. En á sama tíma kvartar pylsusali í Keflavík sem hefur rétt sambönd yfír því að við sem störfum á vellin- um getum keypt okkur að borða, þá stendur ekki á þessum aðilum að loka,“ sagði Pálmi Hannesson trúnaðarmaður. - BB Notuðum ínnanhússefni og héldum að náttúran mundi afmá þetta á skömmum tíma - segir Gerhard Lentink, annar höfunda ættartölunnar í Jökulsárgljúfri „ÉG ER mjög hissa á að heyra þetta og hálfsleginn. Þetta verkefni var hugsað þannig að aðeins ljósmyndirnar í bókinni yrðu til staðar að minna á það. Ég hélt að þetta ætti að vera orðið fullkomlega ósýnilegt eftir svona langan tima. Hvemig bregst fólk við?“ sagði hollenski myndhöggvarinn Gerhard Lentink, sem ásamt Jjósmyndar- anum Reinout van den Bergh bjó til ættartöluna í Jökulsárgljúfri sem hluta af umhverfislistaverkinu Upptyppingum sumarið 1987. Morgun- blaðið náði tali af Lentink á vinnustofu hans í gær. Orðalag bókar sem Lentinkt talar um styður mé hafi búið til tákn fyrir hugsun fjjótt og mögulegt væri. „Við vorum fímm vikur á íslandi en áður hafði undirbúningurinn í Hollandi tekið þijá mánuði. Nei, við sóttum ekki um leyfi til ís- lenskra yfirvalda. Þegar maður fær svona hugmynd verður að hrinda henni í framkvæmd, það má ekki tefjast of lengi. Ef farið er opinber- ar leiðir kostar það bæði mikla peninga og mikla fyrirhöfn, sem tekur mikinn tíma. Við greiddum allan kostnað við þetta sjálfír en nutum engra styrkja. Við notuðum latex, það er efni til notkunar inn- anhúss, og töldum að náttúran mundi ljarlægja þetta á skömmum tíma,“ sagði hann. hans en þar segir að þeir Reinout sem sjálft hafi átti að hverfa eins Aðspurður sagði Gerhard Lent- ink að þeir félagar hefðu komið með málningarefnið og annað sem þeir hefðu þurft til landsins og hefðu dvalist við Jökulsárgljúfur í fímm vikur og búið þar í helli. Þeir hefðu tínt hraun og vikur- steina til að nota til hleðslu í sand- brekkuna vestan árinnar og flutt þá á milli í Land Rover sem þeir höfðu á leigu en aðrar vinnuvélar hefðu þeir ekki notað heldur bara hendumar. „Þetta var erfítt verk en við vorum heppnir að vera þama að sumri til því þótt það væri vinda- samt voru næturnar bjartar og við gátum unnið langt fram á nótt,“ Gerhard Lentink sagði hann. Hann sagði að þeir hefðu endrum og sinnum orðið varir við umferð yfír brúna skammt frá en enginn hefði orðið þeirra var og eina fólkið sem þeir hefðu hitt þessar fímm vikur hefði verið hóp- ur belgískra ferðamanna en farar- stjóri þess hóps hefði vitað af þeim þama á staðnum og komið með hópinn í heimsókn þegar verkið var komið vel á veg. „Þama var algjör þögn og friður og það var meðal annars vegna þess sem við völdum þennan stað. Kyrrðin og þögnin skipta máli þegar menn eru að vinna verk eins og þetta, einir í sambandi við náttúruna," sagði Gerhard Lentink. Félagi hans Reinout van den Bergh er nú stadd- ur í Afríku við störf. Bók sem gefín var út um verkið hefst á því að vísað er til þess hversu oft ferðalög komi fyrir í list- um, einkum í bókmenntum, sem eins konar tákn. Kaflinn er fremur háfleygur en að honum loknum er vikið að eðli verksins. „Gerhard og Reinout gerðu minnisvarða hins norræna rýmis. Aðeins er hægt að bera hann saman við „soccle du monde“ sem Piero Manzoni skap- aði í Danmörku, stein með áletrun- um á hvolfí, auðvitað. Hinir ungu vinir okkar bjuggu til tákn fyrir hugsun sem sjálft átti að hverfa af sjálfu sér eins fljótt og mögu- legt var. Þetta er fallegt bókband fyrir bók gleymskunnar, merking- arlaust verk Herkúlesar sem aðeins átti að vera áfram til sem ljóð í hjarta mannanna, sem gral sem er í leiðarlokum allra þeirra sem upp- lifa ferðalag sem leið en ekki við- komustað," segir meðal annars í bókinni og seinna: „Fóru þeir þang- að í raun og veru? Til eru frábærar ljósmyndir sem ættu að sanna hvað var þama, myndir sem færa sterk- ari rök fyrir þá sem ekki sjá en trúa þó á goðsögur." Flugstöð Leifs Eiríkssonar Óskað er eftir hertu eftirliti en tollvörð- um verður fækkað „VIÐ stöndum að tollgæslunni á sama hátt og áður. Það eina, sem við getum gert til að koma til móts við óskir Qármálaráðuneytisins um hert eftirlit, er að taka lengri tíma í tollafgreiðslu og þétta úr- tak. Það skýtur hins vegar skökku við, að samkvæmt fjárlagafrum- varpi á að fækka starfsmönnum hér um þijá, sem þýðir að jafnvel yrði aðeins einn starfsmaður í græna hliðinu," sagði Gottskálk Ólafs- son, deildarstjóri tollgæslunnar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Eins og komið hefur fram í frétt- um óskaði íjármálaráðuneytið eftir að tollgæsla yrði hert í flugstöðinni og sérstaklega yrði fylgst með far- þegum í svokölluðum verslunarferð- um. „Við höfum ekki breytt vinnuaðferðum okkar, en hins vegar tökum við lengri tíma í afgreiðslu og við höfum einnig reynt að þétta úrtak,“ sagði Gottskálk. „Við höfum hingað til að meðaltali kannað far- angur hjá fimmta til sjötta hverjum farþega, sem fer um græna hliðið. Nú reynum við að taka þéttara úr- tak, en það fer mikið eftir fjölda farþega, hvort það er mögulegt. Þegar vélar með 6-700 manns lenda samtímis þá eigum við auðvitað ekki auðvelt um vik.“ Gottskálk sagði að það kæmi sér spánskt fyrir sjónir, að um leið og fjármálaráðuneytið færi fram á hert eftirlit reyndi utanríkisráðuneytið, sem flugstöðin heyrir undir, að draga úr kostnaði við tollgæslu. „Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á að fækka starfsmönnum tollgæsl- unnar hér um þrjá. Það þýðir, að aðeins einn starfsmaður yrði í græna hliðinu og þá gæti reynst erfitt að sinna því eftirliti, sem fjár- málaráðuneytið fer fram á. Það virð- ist því í þessu tilfelli sem vinstri höndin viti ekki hvað sú hægri er að gera,“ sagði Gottskálk. Einar Birgir Eymundsson, yfír- tollvörður, sagði að honum virtist sem innkaup fólks í útlöndum væru heldur minni í ár en á undanförnum árum, hver sem skýringin væri. • Helsta breytingin væri sú, að fólk, sem ferðaðist til Bandaríkjanna, notaði tækifæri til að versla í mun meiri mæli en áður. Fyrsta útboð ríkisvixla í byrjun næsta mánaðar FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að efna til fyrsta útboðs á stöðluð- um ríkisvíxlum 4. nóvember nk. í boði verða vixlar til þriggja mánaða og er heildarfjárhæð útboðsins áætluð um 2 miRjarðar króna. Þar af mun Seðlabanki íslands kaupa fyrir 300-500 milliónir á meðalverði sam- þykktra tilboða. Stefnt er að því að fyrirkomulagi 1. febrúar nk. og ai seldir i útboðum. í útboðinu verða gefnir út ríkis- víxlar í fjórum verðgildum, 1 millj- ón króna, 10 milljónir, 50 milljónir og 100 milljónir að nafnvirði. Lág- markstilboð er 5 milljónir sam- kvæmt tilteknu tilboðsverði en lág- markstilboð á meðalverði sam- þykktra tilboða er 1 milljón. Er þetta veruleg hækkun frá núver- andi fyrirkomulagi þar sem hægt hefur verið að kaupa ríkisvíxla fyr- ir 500 þúsund krónur. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, löggiltum verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum er einum heimilt að gera tilboð samkvæmt tilteknu til- boðsverði. Aðrir geta snúið sér til þessara aðila og látið þá gera tilboð fyrir sig. hætta sölu ríkisvíxla með núverandi þeir verði frá þeim tíma einungis Ríkissjóður hefur efnt til nokk- urra útboða á ríkisbréfum á þessu ári og fyrsta útboð spariskírteina fór fram 14. október sl. Með útboði ríkisvíxla er stigið lokaskefið í þá átt að öll lánsfjáröflun ríkissjóðs innanlands fari fram með þessum hætti. Vextir af ríkisvíxlum lækkuðu á mánudag úr 8,25% í 7,75%. Kemur þessi lækkun í framhaldi af 0,35 pró- sentustiga lækkun á ávöxtun ríkis- bréfa á Verðbréfaþingi íslands í sl. viku. Þá hefur verið ákveðið að fella niður sérstakt álag á vexti til stærri kaupenda jafnframt því sem sölu á víxlum til skemmri tíma en 45 daga verður hætt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.