Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
-MJ 1 ■■■■■>■ ----4 M 1 i 'f * * ■ ! -i I 1
Zontaklúbbamir
Niðurskurði
til Kristnes-
Grenivík
Góð þátttaka
í göngudegi
spítala
mótmælt
Á sameiginlegum fundi Zon-
taklúbbs Akureyrar og Zonta-
klúbbsins Þórunnar hyrnu var
mótmælt harðlega fyrirhuguð-
um niðurskurði á fjárveitingum
til Kristnesspítala.
„Eftir rúmlega 60 ára dygga
þjónustu við sjúka og aldraða hafa
stjórnvöld nú áform um að loka
Kristnesspítala og þar með að
skerða möguleika okkar hér á Norð-
urlandi fyrir endurhæfmgu og að-
hlynningu heima í héraði. Það er
hryggilegt til þess að vita að góð
tæki sem félagasamtök hafa gefið
til endurhæfingarstarfsins í Krist-
nesspítala standi ónotuð þrátt fyrir
brýna þörf fólks fyrir endurhæfingu
og biðlista eftir henni.
Það hlýtur að vera hagkvæmara
fyrir samfélagið að koma sjúkling-
um til sjálfsbjargar og sem bestrar
heilsu en að láta fjárfestingar
standa ónotaðar vegna handahófs-
kenndra niðurskurðaraðgerða,“
segir í ályktun frá zontaklúbbunum
og hvetur fundurinn alla Norðlend-
inga að standa vörð um spítalann
og kreíjast þess að ráðamenn þjóð-
arinnar standi við gefin loforð um
áframhaldandi uppbyggingu hans.
Óperusmiðjan
Galakonsert
fluttur í Sam-
komuhúsinu
Óperusmiðjan í Reykjavík heldur
Galakonsert í Samkomuhúsinu á
Akureyri á föstudagskvöld, 30.
október, kl. 21, en svipaðir tónleik-
ar voru haldnir í Borgarleikhús-
inu sl. laugardag.
Fram koma margir af fremstu
einsöngvurum landsins auk hljóð-
færaleikara og kórs Óperusmiðj-
unnar undir stjóm Ferencs Utassys,
en alls taka þátt í Galakonsertnum
14 einsöngvarar, fjórir hljóðfæra-
leikarar og 20 manna kór. Kynnir
er Kristinn Hallsson.
Einsöngvararnir sem fram koma
eru; Elín Ósk Óskarsdóttir, Esther
H. Guðmundsdóttir, Hlíf Káradótt-
ir, Inga J. Backman, Ingibjörg Guð-
jónsdóttir, Jóhanna G. Linnet, Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir, Kristín
Sigtryggsdóttir, Margrét J. Pálma-
dóttir, Bjöm Bjömsson, Ragnar
Davíðsson, Stefán Amgrímsson og
Þorgeir J. Andrésson. Leikstjóm
Galakonsertsins er í höndum Hall-
dórs E. Laxness.
RANNSÓKNASTOFNUN Háskólans á Akureyri va.r í gær afhent
húsnæði til afnota á þriðju hæð Glerárgötu 34, en íslandsbanki af-
hendir stofnuninni eignarhluta bankans á hæðinni endurgjaldslaust
í eitt ár. Framlag bankans er metið á 900 þúsund krónur. Lög um
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri voru samþykkt síðastliðið
sumar, en áður hafði vísindanefnd starfað við skólann, en hún var
hugsuð sem nokkurs konar undanfari stofnunarinnar. Rannsókna-
stofnunin hefur þrátt fyrir ungan aldur unnið að nokkrum verkefn-
um, en starfsemi stofnunarinnar var kynnt við formlega afhendingu
húsnæðisins.
Kristján Kristjánsson, formaður
stjómar Rannsóknastofnunar Há-
skólans á Akureyri, greindi frá hlut-
verki stofnunarinnar, sem er m.a.
að efla rannsóknir við skólann, hafa
samstarf við innlenda og erlenda
rannsóknaraðila, veita upplýsingar
og ráðgjöf, standa fyrir námskeið-
um, fyrirlestmm og ráðstefnum og
selja þjónustu. Hann kvaðst vona
að stofnunin mætti leggja nokkurt
lóð á vogarskál til að efla rann-
sóknastarf hér á landi.
Jón Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Rannsókn&stofnunar Háskól-
ans á Akureyri, kynnti þau verkefni
sem stofnunin hefur unnið að, en í
samvinnu við Félag rækju- og
hörpudiskframleiðenda var þróuð
aðferð til að athuga afkomu í grein-
inni. Aðferðin er byggð á samsvar-
andi rannsóknum sem stundaðar
hafa verið í Noregi, en lykiltölum
úr rekstri er stillt upp þannig að
samanburður getur orðið milli fyrir-
tækja. Þá vann stofnunin að beiðni
Dalvíkurbæjar að verkefni sem
Fyrirlestur um strauma
og vinda í Norðurhöfum
Steingrímur Jónsson flytur
fyrirlestur á vegum Rannsóknar-
stofnunar Háskólans á Akureyrí
á morgun, fimmtudag, kl. 15 í
húsnæði skólans við Glerárgötu
36.
Fyrirlestur Steingríms nefnist
Hafstraumar og vindar í Norðurhöf-
um. Steingrímur er forstöðumaður
Hafrannsóknastofnunar á Akur-
eyri.
Þetta er fyrsti fyrirlesturinn í röð
fyrirlestra sem stofnunin efnir til
fram að áramótum. í byijun nóvem-
ber flytur Patricia Tumer erindi um
jarðfræði Austur-Grænlands og Is-
lands. Þá flytur Valdimar Gunnar-
son fyrirlestur um vistfræði þorsks
og Anette Jörgensen um seiðaeldi
þorsks síðari hluta nóvember.
Tveir fyrirlestrar verða einnig í
desember, Rannveig Bjömsdóttir
ræðir um fisksjúkdóma og ónæmis-
kerfi fiska og Gunnar Ólafsson um
árstíðabreytingar í vexti og líffræði
þara.
snerist um atvinnusköpun á Dalvík,
en m.a. voru kannaðir möguleikar
á flutningi stofnana og fyrirtækja
til bæjarins og var t.d. óskað eftir
að ríkisfangelsi yrði byggt þar í bæ.
Stofnunin tók þátt í að koma á
netsamstarfi fyrirtækja á Norður-
landi með því markmiði að auka
viðskipti við Kólasvæðið í Rússlandi
og voru m.a. athugaðir möguleikar
á fiskkaupum og sölu á vöru og
þjónustu á vegum netsamstarfsins.
Loks má nefna að stofnunin skipaði
að ósk Akureyrarbæjar fulltrúa í
nefndir sem eiga að vinna að hag-
ræðingu á ýmsum rekstrarþáttum
bæjarins.
„Einmitt í mótlæti eiga menn að
leita ljóssins, nýrra tækifæra. Há-
skólinn á Akureyri hefur sýnt
ákveðið frumkvæði í þessa veru svo
athygli hefur vakið og það frum-
kvæði viljum við styðja," sagði Skúli
Sveinsson, forstöðumaður útibúa-
þjónustu Islandsbanka, en hann
afhenti stofnuninni húsnæði bank-
ans. Hann sagði framlag bankans
metið á 900 þúsund krónur. „Þessi
ákvörðun bankastjómar íslands-
banka er tekin í þeirri vissu að
þetta húsnæði verði til þess að efla
aðstöðu til rannsókna við skólann
er leiði til þess að skólinn verði
betur í stakk búinn en ella að ann-
ast þjónustuverkefni við stofnanir
og fyrirtæki,“ sagði Skúli.
Haraldur Bessason, rektor Há-
skólans, sagði daginn merkan í sögu
skólans, hann hefði enga sjálfstæða
tekjustofna og því væri öllum stuðn-
ingi einstaklinga, fyrirtælqa og
stofnana ávallt vel fagnað.
í umræddu húsnæði mun Félag
rækju- og hörpudiskframleiðenda
og Fiskeldi Eyjafjarðar hafa að-
stöðu, þá er þar rými fyrir gisti-
fræðimenn, sem ætlað er að styrkja
skólann í sessi sem fræðasetur.
ALLIR í STRÆTÓ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Grenivík.
MJÖG góð þátttaka var meðal
Grenvíkinga á göngudeginum í
liðinni viku og greinilegt að íbúar
ætluðu ekki að láta sitt eftir
liggja.
Allir krakkarnir á leikskólanum
fóru í gönguferð með fóstrum sínum
og eins fóru allir nemendur og kenn-
arar Grenivíkurskóla í langa göngu
þennan dag. Gengið var umhverfis
Höfðann, eða um 10 til 15 kílómetra
leið með Björn Ingólfsson skólastjóra
í broddi fylkingar.
Um kvöldið var síðan skipulögð
gönguferð sem 53 einstaklingar á
aldrinum 3 mánaða til sjötugs tóku
þátt í, en þetta er um 15% af íbúum
þorpsins. Farinn var fjögurra kíló-
metra hringur og að því loknu hélt
hersingin upp í barnaskóla þar sem
gerðar voru teygjuæfingar undir
stjórn Ingibjargar Hreinsdóttur, en
hún sér um kvennaleikfimi á Greni-
vík. Á eftir hélt Friðrik Vagn Guð-
jónsson læknir á Akureyri fróðlegt
erindi um heilsurækt.
Haukur
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Islandsbanki hefur fengið Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri
húsnæði við Glerárgötu til endurgjaldslausra afnota I eitt ár og var
það afhent stofnuninni í gær. Frá vinstri: Haraldur Bessason, Guð-
jón Steindórsson og Sveinn Skúlason við undirritun samninganna.
Útgerðarfélag Akureyringa
Eldeyjarbátarnirog
Frosti skipta við ÚA
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hefur að undanförnu keypt nokkurt
magn af fiski af bátum, en m.a. er Frosti ÞH frá Grenivík í viðskipt-
um við ÚA um þessar mundir og þá hefur félagið keypt fisk af El-
deyjarboða og Eldeyjarhjalta og hefur honum ýmist verið ekið frá
Grindavík norður í íand eða bátar landað á Akureyri.
Einar Óskarsson hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa sagði ástæða þess
að félagið keypti nú fisk af öðrum
bátum væri tvíþætt, annars vegar
væru aflabrögð treg og hins vegar
væri eitt skipa félagsins, Harðbakur
EA í endurbótum í Póllandi. „Það
þarf að halda vinnslunni gangandi
og aflabrögðin hafa ekki verið góð
upp á síðkastið," sagði Einar og
hann bætti við að auk þess að kaupa
fisk af aðkomubátum væri einnig
nokkuð um að frystihúsin á Eyja-
fiarðarsvæðinu lánuðu fisk sín á
milli þegar þannig stæði á.
Nújpur BA frá Patreksfirði landaði
hjá UA í gær, um 36 tonnum af
þorski, en sigldi eftir löndun til Dal-
víkur og seldi þar á gólfmarkaði
Fiskmiðlunar Norðurlands m.a. ýsu
og steinbít. Núpur hefur landað
tvisvar sinnum hjá ÚA, en Einar
bjóst ekki við að framhald yrði þar á.
Frosti ÞH frá Grenivík hefur selt
Útgerðarfélagi Akureyringa afla
sinn að undanförnu, en hann hefur
einnig landað tvisvar hjá félaginu
og sagði Einar að hann yrði áfram
í viðskiptum eitthvað áfram, senni-
lega fram til áramót. Von var á
Frosta inn til löndunar í dag, mið-
vikudag.
Þá hafa Eldeyjarbátarnir tveir,
Eldeyjarboði og Eldeyjarhjalti báðir
landað afla hjá ÚA og eins hefur
afla af bátunum verið ekið frá
Grindavík til vinnslu norður, en sam-
tals hefur ÚA keypt um 120 tonn
af Eldeyjarbátunum. Einar sagði að
þeir yrðu væntanlega báðir í við-
skiptum við félagið áfram og jafnvel
til loka febrúarmánaðar.
íslandsbanki lánar Háskólan-
um húsnæði undir rannsóknir