Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
Skagaströnd
Sameining Skag-
strendings og Hóla-
ness hf. í athugun
STJÓRN Hólaness hf. var öll endurkjörinn á aðalfundi fyrirtækisins
nú fyrir skömmu. Aðalfundurinn nú var haldinn stuttu eftir að fyrir
lá sú ákvörðun stjórnar Skag-strendings hf. að selja ísfiskstogarann
Arnar sem séð hefur að langmestu leyti fyrir hráefni til fiskvinnslu
félagsins.
Launagreiðslur Hólaness hf.
numu um 114 milljónum króna á
síðasta ári en nokkurt tap var á
rekstri fyrirtækisins á árinu. Á að-
alfundinum var samþykkt ályktun
sem framkvæmdastjóri Hólaness bar
fram þess efnis að sameina beri eða
samtvinna í eina hendi þá útgerð
og fískvinnslu sem verið hefur í
höndum Skagstrendings hf. og Hóla-
ness hf. Var það skoðun fundarins
að með því móti megi vænta þess
að staða atvinnulífs á Skagaströnd
verði sterkari en ella.
Til að ná ofangreindum markmið-
um er bent á þijár leiðir sem allar
fela í sér nokkurn samruna fyrir-
tækjanna þó í mismiklum mæli sé.
Fyrsta leiðin gerir ráð fyrir að físk-
vinnsluþáttur Hólaness verði í hönd-
um Skagstrendings en rækju-
vinnsluþátturinn áfram hjá Hóla-
nesi. Önnur leiðin væri sú að sam-
eina fyrirtækin í eitt þannig að út-
gerð, fískvinnsla og rækjuvinnsla
væri á einni hendi. Þriðja leiðin sem
um er að ræða að áliti fundarins er
að Skagstrendingur verði meiri-
hlutaeigandi í Hólanesi með hluta-
fjárkaupum í fyrirtækinu. Fundurinn
taldi eðlilegast að hreppsnefnd
Höfðahrepps hefði forystu í þessu
máli þar sem hann er stærsti hlut-
hafmn bæði í Hólanesi og Skag-
strendingi.
Eftir að þessi ályktun hafði verið
samþykkt kom fram tillaga á fund-
inum þess efnis að aðalfundurinn
skoraði á stjóm Skagstrendings að
fresta sölu Ámars meðan reynt yrði
til þrautar að fínna önnur úrræði.
Tillaga þessi var felld með litlum
meirihluta greiddra atkvæða en full-
trúar tæplega helmings atkvæða á
fundinum sátu hjá við afgreiðslu til-
lögunnar.
- Ó.B.
„Við höfum séð um uppboðin fyrir
Fiskmarkað Suðurnesja og það hef-
ur gengið mjög vel. Síðan ákváðu
þeir einhliða að setja upp þessa
afgreiðslu og leituðu ekki til okkar
eftir neinu í sambandi við það,“
sagði Grétar.
Hann sagði að jafnframt þyrfti
íslandsmarkaður, sem tekur til
starfa um næstu áramót, að huga
að því að setja upp útibú á Suður-
nesjum. íslandsmarkaður er sam-
eiginlegur markaður Fiskmarkaðs
HafnarQarðar, Faxamarkaðar og
fískmarkaða á Snæfellsnesi og
Vestmannaeyjum og víðar. „Eg
Morgunblaðið/Sverrir
Finnur Guðsteinsson deildarstjóri fjölskyldusambýlisins við Sólheima 17, Margrét Halldórsdóttir sálfræð-
ingur og deildarstjóri Unglingaráðgjafar, Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur og forstjóri Unglingaheimil-
is ríkisins, Áskell Örn Kárason sálfræðingur og deildarsljóri í Efstasundi, með bol dagsins, og Sigrún
Hv. Magnúsdóttir félagsráðgjafi og deildarstjóri meðferðarheimUisins að Tindum.
Unglingaheimili ríkisins 20 ára
Athygli vakin á lífi og starfi
unglinga á unglingadegi
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
Opnum áreiðanlega
útibú á Suðumesjum
-segir Grétar Friðríksson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðar Hafnarfjarðar
„VIÐ munum skoða það alvariega hvort við setjum upp útibú á
Suðurnesjum. Ég held að það sé alveg öruggt að það verður sett
upp einhver aðstaða á Suðurnesjum,“ sagði Grétar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar Hafnarfjarðar, um ákvörðun Fiskmark-
aðar Suðurnesja að opna útibú í Hafnarfirði.
held að það sé alveg öruggt að það
verður sett upp einhver aðstaða á
Suðumesjum. Ástæðan fyrir stofn-
un útibús Fiskmarkaðs Suðurnesja
í Hafnarfírði er sú að þeir selja físk
frá ísafirði og Homafirði sem fer
mikið á suðvesturhomið, og mikið
af þessum físki hefur verið fluttur
til Keflavíkur. Kaupendur hérna í
Hafnarfirði hafa því lent í auka-
kostnaði við að sækja fískinn til
Keflavíkur. Hins vegar höfum við
tæki og aðstöðu til að sinna þessu
fyrir þá, en það var aldrei leitað
eftir því,“ sagði Grétar.
SÉRSTAKUR unglingadagur verður haldinn á vegum Unglingaheim-
ilis ríkisins á morgun, 29. október. Tilgangurinn er að vekja athygli
á lífi og starfi unglinga, og á þvi umhverfi sem unglingar alast upp
í, bæði jákvæðum og neikvæðum hliðum. Þá er vakin athygli á þeim
hættum sem unglingar standa frammi fyrir í nútíma þjóðfélagi og
gildi forvarnarstarfs.
Einar Gylfí Jónsson forstjóri
Unglingaheimilisins, sagði að heim-
ilið ætti 20 ára afmæli um þessar
mundir og því hefði verið ákveðið
að vekja athygli á málefnum ungl-
inga og helga þeim einn dag með
sérstakri dagskrá. í Kópavogi hefur
verið ákveðið að efna til pallborðs-
umræðu forsvarsmann bæjarfé-
lagsins og unglinga um aðstæður
þeirra síðamefndu. Fara umræð-
umar fram í íþróttahúsinu Digra-
nesi kl. 13 til 17. í Mosfellsbæ verð-
ur sérstakur temadagur í gagn-
fræðaskólanum, þar sem unglingar
fá að móta kennsluna.
í Tónabæ í Reykjavík, fer fram
spumingakeppni, vináttuleikur og
dansleikur fyrir nemendur í skólum
hverfísins. I Fellahelli verður rat-
leikur fyrir unglinga og opið hús
fyrir foreldra á sama tíma. I Þrótt-
heimum verður íslandsvika, þar
sem eingöngu verður flutt íslensk
'tónlist, húsnæðið skreytt í þjóðleg-
um stíl og íslensk kvikmynd verður
sýnd á breiðtjaldi. Á föstudag verð-
ur haldinn dahsleikur með íslenskri
tónlist og íslenskum klæðnaði. í
Grafarvogi munu skólinn, íþróttafé-
lagið, hverfasamtökin, félagsmið-
stöðin og fleiri sameinast um sér-
staka dagskrá. Þar verður kynnt
sú starfsemi sem fram fer í hverf-
inu á vegum þessara aðila og leitað
eftir hugmyndum unglinganna um
úrbætur.
í Hafnarfirði verður sérstök dag-
skrá fyrir eldri borgara, sem ung-
lingar munu sjá um í Félagsmið-
stöðinni Vitanum. Á Akranesi verð-
ur haldið námskeið í framkomu í
félagsmiðstöðinni og á föstudag fer
fram fræðsla fyrir unglinga á veg-
um forvarnardeildar lögreglunnar.
Auk þess fer fram könnun á högum
unglinga og viðhorfum þeirra til
ýmisra mála er snerta þá sjálfa.
Þann 3. nóvember verður haldinn
fyrirlestur fyrir foreldra um ung-
lingsárin og samskipti kynslóðanna.
í Garðabæ verður opið hús fyrir
fullorðna í félagsmiðstöðinni Garða-
lundi, þar sem unglingar kynna
félagSstarf fyrir æskufólk í bæjarfé-
laginu. Um kvöldið munu unglingar
úr Æskulýðsfélagi Garðakirkju sjá
um helgistund fyrir vistfólk á Vífíl-
stöðum.
Á Húsavík munu unglingar
standa fyrir kvöldkaffí og dagskrá
fyrir foreldra og aðra fullorðna í
félagsmiðstöðinni, þar sem meðal
annars verða vígð ný karoke tæki
með sérstakri viðhöfn. í Bolungar-
vík verður opið hús í félagsmiðstöð-
inni. Kynning á Lions Quest, rat-
leikur fyrir unglinga og foreldra
auk þess smásagna- og ljóðakeppni.
í tilefni unglingadagsins fer fram
fótboltamót ISÍ kl. 13 til 16.20 á
gervigrasvellinum í Laugardal. Þá
munu KSÍ og UHR kynna sérstakt
forvarnarátak. Að kvöldi munu ÍTR
og UHR í samvinnu við ýmsa
styrktaraðila og tónlistarmenn
standa að hljómleikum í Hinu hús-
inu fyrir unglinga. Þar munu koma
fram þekktar hljómsveitir og efni-
legar unglingahljómsveitir.
í kjölfar unglingadagsins mun
UHR standa fyrir sýningu á mynd-
verkum unglinga og opnar sýningin
5. desember í Gerðubergi.
Olíuviðskipti ríkisstofnana
Ekkert hefur enn orðið
af útboði á olíuvörum
EKKERT hefur enn orðið af því að ríkið hefji útboð á olíuviðskiptum
ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja eins og fyrirhugað var fyrir um það
bil einu ári en þá lágu fyrir drög Innkaupastofnunar rikisins að
útboðslýsingu á olíuviðskiptunum í fjármálaráðuneytinu. Ástæðan
fyrir því að frestað var að olíufélögin gerðu afsláttartilboð í olíukaup-
in var sú að frumvarp viðskiptaráðherra um flutningsjöfnun olíu-
vara á landsbyggðinni náði ekki fram að ganga á Alþingi sl. vor.
„Það hefur ekki komið að útboði un átti að auka ennfrekar frelsi í
á olíuvörum ennþá vegna þess að olíuviðskiptum. Frumvarpið mætti
menn telja að áður þurfí að rýmka hins vegar andstöðu nokkurra þing-
enn meira um heimildir til innkaupa
og sölu olíuvara," segir Magnús
Pétursson ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu.
Innflutningur á olíuvörum og
bensíni var gefínn frjáls um síðustu
áramót og felld voru úr gildi af-
skipti verðlagsyfirvalda af há-
marksverði á olíuvörum. Frumvarp
viðskiptaráðherra um flutningsjöfn-
manna og fékkst ekki afgreitt sem
lög.
I september á síðasta ári var
áætlað að árlegt verðmæti olíuinn-
kaupá ríkisins væri 350 milljónir
króna og samkvæmt útboðslýsingu
sem samin var átti útboðið m.a. að
ná til kaupa á bensíni fyrir um 1.000
ríkisbifreiðar, 5-6 millj. lítra af gas-
olíu, og um 13 þúsund tonna af
svartolíu. Meðal stærstu notenda
eru skip Hafrannsóknarstofnunar
og Landhelgisgæslu, Flugmálas-
stjóm, Síldarverksmiðjur ríkisins og
Vegagerð ríkisins.
„Ég tel að enn sé full ástæða til
að bjóða þessi viðskipti út. Það má
búast við að af því yrði sparnaður
fyrir ríkið ef einhver samkeppni er
í þessu á annað borð. Við erum
sannfærðir um að eftir nokkru sé
að slægjast," sagði Magnús Péturs-
son. Hann sagði það sína skoðun
að bjóða hefði mátt upp á sam-
keppni um þessi viðskipti óháð því
hvort lagafrumvarpið næði fram að
ganga en rýmri lagaákvæði um ol-
íuviðskipti myndu hins vegar gera
þetta auðveldara viðfangs.
Samþykkt ráðherraráðs EB
Fæðingarorlof
lengra hér á landi
TILSKIPUN um réttindi og öryggi barnshafandi kvenna, sem ráð-
herraráð EB hefur samþykkt er ekki sambærileg því sem íslensk
lög segja til um. Samkvæmt tilskipun ráðherraráðsins er gert ráð
fyrir að fæðingarorlof verði minnst 14 vikur og að greiðslur í leyf-
inu verði ekki minni en í veikindaleyfum. Hér á landi er barnsburðar-
leyfi 6 mánuðir og þann tima eiga konur rétt á mánaðarlegum
greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins.
Mikill ágreiningur hefur verið um
þessa tilskipun milli aðildarríkja EB
og telja sum ríkin hana ganga of
langt en önnur að hún gangi of
skammt. Samkvæmt íslenskum lög-
um eiga konur rétt á sex mánaða
bamsburðarleyfi og sitja allir við
sama borð er varðar fæðingarstyrk
en hann er rúmar 25 þúsund krón-
ur á mánuði. Auk þess fá útivinn-
andi konur og konur í námi fæðing-
ardagpeninga, sem hækkar greiðsl-
ur til þeirra í um 57 þúsund krónur
á mánuði þá sex mánuði sem bams-
burðarleyfíð varir. Greiðsla fæðing-
ardagpeninga er háð því að konan
hafi unnið í hálfu starfí í tólf mán-
uði eða í fullu starfí í tólf"mánuði
fyrir fæðingu.
Lögin gera ekki ráð fyrir að
launagreiðandi greiði bætur en í
samningum stéttarfélaga er gert
ráð fyrir bótum. Ríkisstarfsmenn
halda fullum launum í sex mánuði,
blaðamenn halda launum í fjóra
mánuði og bankastarfsmenn fá full
laun í þijá mánuði en Trygginga-
stofnun greiðir fæðingardagpen-
inga þá mánuði sem upp á vantar.
1 samþykkt ráðherraráðsins er
jafnframt kveðið á um að konur
haldi fullum réttindum á meðan á
fæðingarorlofi stendur og að óheim-
ilt sé að segja þeim upp störfum
nema hægt sé að sýna fram á að
uppsögnin sé ástandi konunnar
óviðkomandi. íslensk lög tryggja
konum þessi sömu réttindi.