Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C
247. tbl. 80. árg.
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Kosningaúrslitum mótmælt
Námsmenn í Litháen gengu í gær um götur höfuðborgarinnar, Vilnius, og mótmæltu sigri Lýðræðislega
verkamannaflokksins, flokks fyrrverandi kommúnista, í þingkosningunum síðastliðinn sunnudag. Hlaut
hann næstum helming greiddra atkvæða og mun því verða við stjórnvölinn á næstunni. Ekki er vitað til
annars en að heiðarlega hafi verið staðið að kosningunum en efnahagshrunið og örbirgð meðal lands-
manna eru sögð meginskýringin á úrslitunum.
Neyðarkall heyrist frá íbúum umsetins bæjar í Bosníu
íranir vilja aðgerðir
til hjálpar múslimum
Sarajevo. Reuter.
ÍBÚAR í bosníska bænum Jajce, sem Serbar hafa setið um í nokk-
urn tíma, sendu frá sér neyðarkall í gær og báðu umheiminn um
hjálp. Hafa þeir hafst við í kjöllurum og byrgjum í marga daga
vegna stanslausrar sprengjuhríðar Serba og matur og aðrar vistir
þrotnar. Eru múslimar í meirihluta meðal bæjarbúa og verjast enn
þótt Serbar hafi í þrígang lýst yfir töku bæjarins. SQ'órnvöld í
Iran hvöttu í gær til skyndifundar utanríkisráðherra íslamskra
ríkja til að ræða aðstoð við múslima í Bosníu.
Bærinn Jajce, sem er hernaðar-
lega mjög mikilvægur, er í rústum
að verulegu leyti og vistaflutning-
ar til hans litlir sem engir. Tals-
Brent-hráolía úr Norðursjó, sem
höfð er til verðviðmiðunar, var í
21 dollara fatið fyrir viku en í gær
var verðið komið niður í 19,65
dollara. Stafar lækkunin af miklum
birgðum og lítilli eftirspurn vegna
efnahagssamdráttarins en það fer
eftir ýmsu hvort verðið lækkar
enn. Miklir vetrarkuldar yrðu til
að auka eftirspurnina og hækka
verðið en á móti kemur áframhald-
andi óvissa um framboð á rúss-
neskri olíu.
Kristinn Björnsson, forstjóri
maður Bosníuhers, sem er skipað-
ur múslimum, sagði í gær að veij-
endur bæjarins myndu aldrei gef-
ast upp fyrir Serbum en talsmaður
Skeljungs, sagði í viðtali við Morg-
unblaðið í gær, að heimsmarkaðs-
verð á unnum olíuvörum í Rotterd-
am hefði að undanfömu heldur
verið að hækka og líklega væri
söluverðið hér heima og víða er-
lendis of lágt ef eitthvað væri. Því
væri ekki að vænta að sinni verð-
breytinga vegna fyrmefndrar
lækkunar á hráolíuverðinu enda
óvíst hver þróunin yrði á næstunni
auk þess sem allnokkur tími liði
áður en hráolíá kæmi á markað
sem unnin vara.
Króata, sem einnig taka þátt í
vöminni, sagði að henni væri ekki
hægt að halda lengi áfram. í gær
heyrðust útvarpssendingar frá
Jajce þar sem hörmungum íbú-
anna var lýst og skorað á önnur
ríki að koma þeim til hjálpar.
Ali Akbar Velayati, utanríkis-
ráðherra írans, bað í gær Samtök
íslamskra ríkja að boða til fundar
með utanríkisráðherrum þeirra
þar sem ræddar yrðu sameiginleg-
ar aðgerðir til varnar múslimum
í Bosníu. Nefndi hann ekki í hveiju
þær gætu falist en íranir hafa
margoft sakað vestræn ríki og
Sameinuðu þjóðirnar um að láta
sig örlög múslima í Bosníu engu
skipta.
Sérstakir milligöngumenn Evr-
ópubandalagsins og Sameinuðu
þjóðanna, Owen lávarður og Cyrus
Vance, hafa gert drög að nýrri
stjórnarskrá fyrir Bosníu þar sem
gert er ráð fyrir takmörkuðu mið-
stjómarvaldi og sjö eða tíu sjálf-
stjórnarsvæðum. Fulltrúar þjóðar-
brotanna skiptist á um að gegna
æðstu valdastöðum og utanríkis-
og hermál falli undir miðstjómina.
Leggja þeir Owen og Vance
áherslu á að hafna verði skiptingu
Bosníu í þijú ríki.
Búist er við að Króatar jafnt
sem Serbar vísi tillögunum á bug
enda hafa hvorirtveggju lýst yfir
stofnun sjálfstæðs ríkis í Bosníu.
Hráolíuverð lækkar
VERÐ á hráolíu hefur lækkað um meira en dollara fatið á tæpri
viku. Að sögn jReuters-fréttastofunnar er ástæðan miklar birgðir
í byijun vetrar á norðurhveli en óljóst er hver verðþróunin verður
á næstunni eða hvort þessi lækkun skilar sér í lægra verði á unn-
um afurðum, bensíni og gasolíu. OPEC, Samtök olíuútflutnings-
ríkja, hafa brugðist við lækkuninni með því að skora á aðildarrík-
in að draga úr framleiðslunni.
Hitnar undir í baráttunni vestra
Bush og Clinton
næstumjafnir
í nýrri könnun
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun CiW-sjónvarpsstöðvarinnar,
sem birt var í gær, hefur Bill Clinton, forsetaframbjóðandi demó-
krata, aðeins tveggja prósentustiga forskot á George Bush for-
seta eða 40% á móti 38%. Hefur verið að draga saman með þeim
síðustu daga og nú virðist útlit fyrir, að kosningarnar geti orðið
mun tvísýnni en nokkurn óraði fyrir. Mikil harka hefur hlaupið
í kosningabaráttunni síðustu dagana og hefur Clinton hert árásir
sína á Bush forseta.
Bush sagði í Ohio í gær, að nýj-
ar tölur um 2,7% aukningu þjóðar-
framleiðslu miðað við heilt ár á
tímabilinu júlí-september gerðu að
engu tilkall Clintons til Hvíta húss-
ins og vitnaði því næst sigurviss til
síðustu skoðanakannana.
í viðtali, sem Bill Clinton átti við
sjónvarpsstöðina NBC, sagði hann
hins vegar, að þrír mánuðir væru
ekki marktækir og líta yrði á
„stefnu undanfarinna tíu ára“.
Sagði hann, að fréttirnar um aukinn
hagvöxt væru vissulega góðar en
hann væri aðallega að rekja til tíma-
bundinna þátta.
Clinton reyndi einnig að snúa
árásum forsetans um, að sér væri
ekki treystandi, upp á hann sjálfan.
Á kosningafundi í Houston í Texas
hélt hann á loft eintaki af vikuritinu
The New Yorker þar sem Míkhaíl
Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovét-
ríkjanna, segir Bush hafa sagt sér
að taka ekki mark á staðhæfingum
sínum í hita kosningabaráttunnar.
Skoraði Clinton á bandaríska kjós-
endur að gera það ekki heldur.
Flestir sérfræðingar eru sam-
mála Bush um, að aukin þjóðar-
framleiðsla sé vísbending um bata
en telja, að hann sé ekki nægilega
mikill til að hafa umtalsverð áhrif.
I skoðanakönnun sjónvarpsstöðv-
arinnar CNN og dagblaðsins USA
Today frá í fyrradag kváðust 42%
aðspurðra myndu kjósa Clinton,
36% Bush og 17% Ross Perot en í
könnuninni í gær fékk Clinton 40%,
Bush 38% og Ross Perot 16%.
-----» ♦ ♦
Evrópuþingið
Samþykki
við EES
Samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið, EES, var sam-
þykktur á Evrópuþinginu í Stras-
borg í gærkvöld með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða. Tóku þing-
menn lítið til máls i umræðum um
samninginn.
Fram eftir degi í gær voru þing-
bekkirnir fremur þunnskipaðir og
höfðu sumir á orði, að hugsanlega
yrði samningurinn um EES felldur
vegna fámennis á fundinum en úr
þessu rættist þó þegar nær dró at-
kvæðagreiðslunni og var samningur-
inn samþykktur með miklum meiri-
hluta. Þeir, sem mæltu fyrir samn-
ingnum, lögðu áherslu á, að með
honum væru EFTA-ríkin að stíga
fyrsta skrefið inn í EB.
Reuter
Tafl fyrir þrjá
Um þessar mundir er haldin í Núrnberg í Þýskalandi Alþjóðleg sýn-
ing uppfinningamanna, sú tíunda í röðinni og kennir þar margra
skemmtilegra grasa. Meðal annars er sýnt þetta tafl fyrir þijá, sem
lýtur þó að öðru leyti sömu reglum og venjuleg skák. Eru taflmenn-
irnir hvítir, svartir og rauðir. Það fylgdi hins vegar ekki fréttinni
hvort allir eigi að tefla gegn öllum eða hvort einhveijum tveimur
leyfíst jafnvel að standa saman gegn þeim þriðja. Það er höfundur-
inn, pólski heimspekidoktorinn T. Jacek Filek, sem heldur á taflinu.