Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 17 Öflugt samstarf 136 þióða eftir Önnu G. Sverrisdóttur Á þessu ári eru liðin 80 ár frá því að skátahreyfíngin barst til ís- lands og halda íslenskir skátar upg á það með margvíslegum hætti. í heiminum eru nú starfandi 26 millj- ónir skáta í 136 löndum. Á þeim 85 árum sem liðin eru síðan fyrsti skátaflokkurinn fór í fyrstu útileg- una í nágrenni London hafa tugir milijóna ungs fólks notið góðs af þeim áhrifum sem starfíð innan hreyfingarinnar hefur haft á líf þeirra. í skátastarfí er bræðralagshug- sjónin mikilvægur hlekkur. Virðing milli manna og viðurkenning á því að allir menn eru bræður er hom- steinninn. Með því að auka vitn- eskju um aðrar þjóðir og kynnast lífi ungs fólks sem býr við aðrar aðstæður eykst skilningur og virð- ing. Skátahreyfíngin er opin öllum af hvaða kynstofni sem þeir em og hvaða trú sem þau játa og hreyfing- in er óháð pólitískum flokkum og stefnum. Alþjóðabandalögin Austur-Evrópa í meira en íjörtíu ár var skáta- starf bannað í löndum Austur-Evr- ópu. í flestum landanna höfðu fyrir stríð verið starfandi skátar og er skátastarf nú hafíð í flestum löndum á þessu svæði þar með talin öll lýð- veldi Júgóslavíu fyrrverandi og í nokkmm rikjum Sovétríkjanna fyrr- verandi. Líkur em á að mörg þess- arra skátabandalaga verði fullgildir aðilar að Alþjóðsamtökum skáta á Alþjóðaráðstefnunum sem haldnar verða sumarið 1993. Áhugi bama og unglinga á þátttöku í skátastarf- inu er mikill. Ohætt er að segja að þörfin fyrir þátttöku í frjálsu upp- byggilegu æskulýðsstarfí sé mikil. „Skátar um heim allan vinna að friði milli manna, aukinni virð- ingu fyrir jörðinni okk- ar og öllu sem á henni lifir.“ Að sjálfsögðu era mörg vandamál sem verið er að vinna að lausn á, svo sem þjálfun foringja, útvegun aðstöðu, búnaðar og aðlögun fræðsluefnis. Islenskir skátar fagna því að unglingar í þessum löndum eiga þess nú kost að starfa innan hreyfingarinnar á ný. Aukin víðsýni Þátttaka í alþjóðlegu starfi gefur einstaklingum ómetanlegan þroska, þetta á ekki síst við um ungt fólk. Sama er hvort um er að ræða skáta- starf eða annað starf þar sem áhersla er lögð á mannleg sam- skipti og aukinn skilning og virðingu fyrir mannréttindum. Skátar um heim allan vinna að friði milli manna, aukinni virðingu fyrir jörðinni okkar og öllu sem á henni lifir. Höfundur er varaformaður Evrópustjómar skáta. Anna G. Sverrisdóttir E3 VETRARTILBOÐ GROHE EJ Blöndunartœki fyrír íslenskt vatn Alþjóðabandalög skáta em tvö, Alþjóðabandalag kvenskáta og Al- þjóðabandalag drengjaskáta, sam- starf milli þessara bandalaga er mikið og er Bandalag ísl. skáta að- ili að báðum. Á vegum alþjóða- bandalaganna er unnið margvíslegt starf til eflingar skátastarfs í heim- inum og til að hafa áhrif þar sem því verður við komið til að bæta þann heim sem við búum í. Nám- skeiðshald og útgáfa fræðsluefnis er mikil á vegum samtakanna. Þriðja hvert ár em haldnar alþjóða- ráðstefnur sem setja markmiðin fyr- ir framtíðina og vinna að ýmsum sameiginlegum málum. Skátar taka virkan þátt í starfi Sameinuðu þjóðanna og hafa í sam- vinnu við þær m.a. unnið að verkefn- um sem varða velferð barna og á sviði umhverfismála. Samstarf er einnig við margar aðrar alþjóðlegar stofnanir og samtök t.d. Rauða krossinn, WWF, ýmsar trúarlegar stofnanir o.fl. Þátttaka í þjóðfélagsþróun Skátar reyna að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu. Þar sem þjóðfé- lögin era eins og við vitum mjög mismunandi er þetta starf mjög margbreytilegt. Skáta á Sri-Lanka vinna að fræðslu sem einkum er beint að mæðmm um mikilvægi hreinlætis og ónæmisaðgerða á uppvöxt ung- bama. 1 Zambíu em skátar meðal annars að gera sitt til að hjálpa íbúum í fátækrahverfinu Musonda. Aðstoðin fellst í að leiðbeina við lestrar- og skriftarkepnslu, við ræktun grænmetis, fræðslu um hreinlæti og forvamir í heilbrigðis- málum. Skátar víða um heim vinna að landgræðslu t.d. plöntuðu Kana- dískir skátar 37 milljónum tijá- plantna í átaki sem þeir stóðu fyrir nýlega. íslenskir skátar hafa auðvitað líka látið til sín taka þar sem þjóðfé- lagið hefur þurft á að halda, nægir þar að nefna störf hjálparsveita skáta um langt árabil. Samstarf ólíkra þjóða Mörg samstarfsverkefni hafa á undanfömum ámm verið unnin í samvinnu skátabandalaga á Vest- urlöndum og skáta í löndum sem ekki em talin eins þróuð. Em þessi verkefni af margvíslegum toga, samvinna um að reisa skóla, byggja bmnna og margt margt fleira. Sam- starfsverkefni þessi hafa komið mörgu góðu til leiðar þar sem þörf- in hefur verið mikil. í þessum verk- efnum taka þátt unglingar frá a.m.k. tveim mjög ólíkum þjóðem- um og er sú reynsla og þroski sem skátamir öðlast við vinna saman að verkefnunum einnig mjög mikil- væg og til þess fallin að auka gagn- kvæman skilning og virðingu. Kr. 9.775,- Kr. 11.495,- Kr. 7.295,- Kr. 11.795,- A034651 AO338820 A0338910 § AO343510 tongrrfe A0317670 AO212930 A0262930 A0280S40 A0330800 REYKJAVÍK; METRO - B.B. BYGGINGAVÖRUR -Parma - baö HAFNARFJÖRÐUR; DRÖFN KEFLAVÍK; JÁRN OG SKIP AKRANES; MÁLNINGARÞJÓNUSTAN BORGARNES; K BORGFIRÐINGA STYKKISHÓLMUR; SKIPAVlK GRUNDARFJÖRÐUR; VERSL. HAMRAR PATREKSFJÖRÐUR; BYGGIR (SAFJÖRÐUR; ÁRAL BOLUNGARVÍK; VERSL. J.F.E. HVAMMSTANGI; KAUPFÉLAG V HÚNVETNINGA BLÖNDUÓS; KAUPFÉLAG HÚNVETNIGA SAUÐÁRKRÓKUR; KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA SIGLUFJÖRÐUR; TORGIÐ AKUREYRI; KEA - LÓNSBAKKA - HITI H/F HÚSAVÍK- KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA SEYÐISFJÖRÐUR; STÁLBÚÐIN EGILSSTAÐIR; KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA REYÐARFJÖROUR; KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA ESKIFJÖRÐUR; VERSL NÝJUNG NESKAUPSSTAÐUR; KAUPFÉLAGIÐ FRAM HÖFN; KAUPFÉLAG A - SKAFTFELLINGA VESTMANNAEYJAR; MIÐSTÖÐIN SELFOSS; S.G. BÚÐIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.