Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 nmmm „ tzg þarf aÁ fcc sbó meS hóum hætum oÁ -framaiA-." Ferlegt. Kúlan bara roðnar. Eitthvað er það. <^905 Hún er að leita eftir hús- næðisláni. HÖGNI HREKKVÍSI BRÉF TTL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reyly'avík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Búum nemendur undir lífið Frá Marínó G. Njálssyni: Skólum landsins er ætlað það hlut- verk að búa nemendur, sem best undir lífið. Til þess að gera það sjá þeir nemendum fyrir undirstöðu- menntun í íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, eðlisfræði, efnafræði, handmennt, heimiiisfræðum, íþrótt- um og svo mætti lengi telja. Allt er þetta mjög gott og almenn grunn- kunnátta í ofangreindum fögum kemur nemendum að sjálfsögðu til góða. Það er hollt og gott fyrir nem- endur að skilja sögu lands síns og þjóðar, geta sagt „nei“ á mörgum tungumálum og tjáð sig þolanlega í móðurmálinu. En þessi fög kenna nemendum ekki að vera góðir foreldrar, rétta samskiptatækni eða skilgreina, hvað þá leysa, vandamál sín. Að minnsta kosti ekki á markvissan máta. Það er helst að nemendur í efstu bekkjum framhaldsskólanna lesi Hávamál og Frá Halldóri Kristjánssyni: Útvarpið segir okkur að fullorðin kona hafi kært mann fyrir nauðg- unartilraun í kirkjugarðinum við Hringbraut og Suðurgötu árla morg- uns. Þetta þótti að vonum ljót frétt þó að einhveijir leituðu skýringa á því hvað fullorðin kona væri að gera úti í kirkjugarði klukkan að ganga 7 að morgni. Nánari fréttir bárust svo af til- drögum þessa máls. „Maðurinn og konan höfðu hist fyrr á föstudagskvöld í samkvæmi í einu úthverfi borgarinnar og drukkið þar saman. Konan fékk far með manninum, sem var akandi, í miðbæ- inn. Þau héldu áfram drykkju í húsi í vesturbænum og voru bæði mikið ölvuð þegar lögreglan í Reykjavík greip inn í málið." Einhver heyrði óp konunnar úr kirkjugarðinum og gerði lögreglunni aðvart. Þegar hún kom lagði maður- inn á fótta en náðist þó. Hann hafði geti lært eitthvað af þeirri speki, sem þar er. En ég læri ekkert að umgang- ast bamið mitt betur, þó ég tali ís- lensku, dönsku, ensku, þýsku og frönsku. Ekki kenna 10 áfangar í stærðfræði og eðlisfræði mér neitt hvemig ég tryggi bílinn minn eða fylli út skattaskýrsluna. Málið er nefnilega að skólamir hjálpa okkur meðan ekki þarf að takast á við raun- vemleg vandamál. Mér vitanlega er ekkert skipulagt nám í neinum gmnnskóla, fram- haldsskóla eða háskóla hér á landi, sem tekur á því að kenna nemendum að takast á við lífið. Slík þekking kemur oftast með reynslunni (sem mjög oft er full dým verði keypt), í gegnum námskeið utan skólanna eða eftir sálfræðimeðferð annað hvort af eigin hvötum eða vegna neyðartil- fella, sbr. meðferð áfengissjúkra. Hvergi í skólakerfinu er nemendum kennt að bregðast við áföllum, hjálp- að við að skiija innri hindranir og rifið föt konunnar og farið um hana hörðum höndum. Það er ekki á færi ókunnugra að dæma í þessu máli, enda verður það ekki gert hér. En án þess að gera hlut þessa fólks verri en efni standa til er rétt að líta á það að missættið í morgunsárið var undirbúið með áfengisdrykkju alla nóttina. Ódmkk- in hefði konan naumast lent í slag- togi með þessum manni og að lokum fylgt honum inn í grafreitinn. Það er líka a.m.k. óvíst að maðurinn hefði reynt að beita konuna ofbeldi ef hann hefði verið ódmkkinn. Svo mikið er víst að áfengið á þátt í þessu leiðindamáli. Að öðm leyti verður ekki dómur á það lagður hér. En vissulega tilheyrir þessi saga þeim sem snerta skömm og leiðindi, óhöpp og ógæfu sem áfengið veldur þegar fólk ætlar að skemmta sér við nautn þess. HALLDÓR KRISTJÁNSSON frá Kirkjubóli Leifsgötu 6, Reykjavík. sigrast á þeim eða taka ákvarðanir. Við tönnlumst á því að það sé heil- brigð sál í hraustum líkama. í íþrótt- um byggjum við upp líkamann, en sálin er skilin eftir í örvæntingar- hnipri innan í sterkri skel, sem felur vandamálin og vamar því að nokkur komist að. Ég veit að vísir að slíku efni er inni í námsefni LionQuest, en það er (samkvæmt mínum skilningi) því miður ekki opið hverjum sem er. Einhveijir þættir eru inni í áföngum í félagsfræði eða samfélagsfræði og er mikilvægt að halda þeirri kennslu áfram, en því miður eru þeir áfangar bæði of stuttir og of fáir. Ég tel þetta eiga að vera hluti af námsefni allra nemenda frá 6 ára aldri og upp í gegnum framhaldsskólann. Sjálfur hef ég reynt að vekja athygli nem- enda minna á sumum þessara atriða (þó svo að það falli ekki beint inn í tölvukennslu við Iðnskólann í Reykjavík) og finn í hvert sinn mik- inn áhuga fyrir efninu. Svo mikinn, að oft er erfítt að hætta umræð- unni, jafnvel þó kennslutíminn sé löngu búinn og sumir nemendur koma jafnvel til mín seinna, gagn- gert til að halda umræðunni áfram. Vissulega er það hlutverk foreldra að kenna bömum sínum mannleg samskipti, en ef foreldrar kunna þau ekki sjálfir hvemig geta þeir þá kennt þau? Foreldri, sem kann ekki frönsku, kennir ekki bami sínu frönsku. Þetta á líka við um kennar- ana. Raunar vom viðbrögð nokkurra kennara, þegar þetta mál bar einu sinni á góma, að þeir vildu gjaman læra þessa hluti sjálfir. Um þessar mundir er í gangi end- urskoðun á lögum um gmnnskóla og framhaldsskóla. Ég skora á nefndarmenn og menntamálaráð- herra að taka á þessu máli og tryggja að það verði fellt inn í námsskrá þessara skóla. Það er mín sannfæring að slík kennsla mun spara þjóðfélag- inu milljónir, ef ekki milljarða, vegna þess að skólakerfíð mun geta af sér hæfari einstaklinga, bæði fyrir at- vinnulífíð og ekki síður þjóðfélagið í heild. MARÍNÓ G. NJÁLSSON Tjamarbóli 6, Seltjamamesi A Afengi er um að kenna Víkverji skrifar Nýjasta eintak af Metal Bulletin greinir frá nýlegri heimsókn toppanna frá Kaiser Aluminium hingað til lands í lítilli klausu, með fyrirsögninni: „Óliklegt talið að Kaiser byggi álver á Islandi." Þar segir að háttsettir heimildarmenn blaðsins frá AMAX hafí afskrifað þann möguleika að Kaiser muni reisa álver á íslandi og þar með að verða á undan Atlantsáli að byggja álver hér á landi og kaupa raforku. Haft er eftir þessum háttsetta heim- ildarmanni tímaritsins orðrétt: „Við erum enn aðilar að Atlantsálverk- efninu. Okkar skilningur er sá að Kaiser hafí einungis átt í könnunar- viðræðum á Islandi við stjómvöld og muni ákveða á fyrsta ársfjórð- ungi næsta árs hvort ráðist verður í slíkt verkefni, en það er stór spurn- ing hvort landið hefur næga raforku að bjóða báðum álverunum, ef af verður. Þar að auki þarf Kaiser að tryggja íjármögnun verkefnisins og enginn banki mun taka þátt í slíkri fjármögnun á meðan álverðið er þannig að aðeins fást 56 sent fyrir álpundið." Blaðið segist ekki hafa náð í fulltrúa Kaisers til jiess að fá upplýsingar þeirra um Islandsför- ina. Loks vitnar blaðið í aðra heim- ild, sem segir það í hæsta máta ólíklegt, að í bráð verði pláss fyrir tvö álver á íslandi og er þá væntan- lega að vísa til þess að ekki verði, hægt að útvega báðum nægilega raforku á sama tíma ef gangsetning þeirra væri fyrirhuguð á svipuðum tíma. XXX Víkveiji telur að þessi litla klausa sé ákveðin aðvörun til landsmanna, í þá veru að fara nú ekki að gera sér miklar vonir um að tvö stykki álver rísi hér á landi á næstunni og renni þar með stoð- um undir efnahagslíf okkar á brauðfótum þeim, sem það stendur á í dag. Það er ekki svo langt um liðið frá því að einskonar bögg- lauppboð fór fram á milli ákveðinna sveitarfélaga um það hvar álver þeirra Atlantsálmanna skyldi reist og var sá ferill með þeim hætti að Eyfirðingar, Reyðfírðingar og Reyknesingar voru svo gott sem allir byijaðir í huganum að byggja þetta nýja álver. Það má ekki ger- ast á nýjan leik að þjóðin detti í það og vímuefnið sé fyrirsjáanlegur álgróði. Hún þarf að snúa sér að öðrum brýnni verkefnum, sem gefa árangur þegar í stað, helst strax í gær. xxx Fátt dregur jafn mikið máttinn úr þjóðinni en miklar vænting- ar, sem svo reynast bara tálvonir. Ástandið á Suðumesjum eftir að íslenskir aðalverktakar sögðu í fyrradag upp “112 starfsmönnum er auðvitað orðið skelfílegt og at- vinnuleysi í Verkamanna- og sjó- mannafélagi Keflavíkur er nú milli 12 og 13%. Þetta eru ógnvænlega háar tölur og enn ógnvænlegri fyr- ir það að ekkert virðist benda til þess að ástandið á Suðurnesjum muni lagast fyrr en í fyrsta lagi þegar líða tekur á næsta ár. Þó hlýtur það einnig að teljast hálfgerð tálvon að aðalverktakar geti aukið framkvæmdir á næsta ári, í þeim mæli sem Stefán Friðfinnsson, for- stjóri fyrirtækisins, lýsti í fyrradag að hann vonaðist til. Það ræðst af afgreiðslu Bandaríkjaþings, á um- sókn hemaðaryfirvalda um auka- fjárveitingu til Mannvirkjasjóðs NATO, sem í fyrsta lagi verður afgreidd á þinginu í apríl eða maí á næsta ári og fari svo að Bill Clint- on sigri í kosningunum nú á mánu- dag er talið harla ólíklegt að sú afgreiðsla þingsins verði með já- kvæðum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.