Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 Tyrkneska dómsmála- ráðuneytið kærir Halim TYRKNESKA dómsmálaráðu- neytið hefur kært Halim Al, fyrr- um eiginmann Sophiu Hansen, fyrir ítrekuð brot á umgengnis- rétti Sophiu og hótanir í garð Hasíps Kaplans tyrknesks lög- manns hennar. Gunnar Guðmundsson, lögmaður Sophiu, sagði að í framhaldi af sam- skiptum fulltrúa íslenska utanríkis- ráðuneytisins við mannréttinda- og dómsmálaráðuneyti Tyrklands hefði síðarnefnda ráðuneytið ákveðið að leggja fram kæru á hendur Halim Al. Að auki hefði verið farið fram á opinbera rannsókn á brotum hans gagnvart umgengnisrétti Sophiu og hótunum í garð Hasíps Kaplans tyrk- nesks iögmanns hennar. Hann sagði að einn angi þessa máls sem Hasíp hefði rekið yrði tekinn fyrir 24. des- ember en ekki væri ljóst hvort kæran nú yrði tekin fyrir um leið. Aðspurður sagði Gunnar að kæran væri mjög jákvæð fyrir málstað Sop- hiu og hún yrði líka til þess að mál- ið gengi hraðar fyrir sig. Skipverjanna á Ross Cleveland minnst með viðhöfn 1 ísafjarðardjúpi Morgunblaðið/Úlfar Blómvöndur var lagður í vota gröf ísaQSrður. SARA Hawkins frá Hull var á ísafirði í gær til. að leggja blóm- sveig í vota gröf skipverjanna af togaranum Ross Cleveland frá Hull, sem fórst í Ísaíjarðardjúpi 4. febrúar 1968. Hún starfar við leikhús í Hull sem er að hefja sýningar á leikriti sem fjallar um líf bresku togarasjómannanna og fjölskyldna þeirra. Ættingjar sjómannanna af Ross Cleveland og togaranna St. Romulus og Kingston Peridot sem fórust vikurnar tvær á undan vinna nú að því ásamt fleirum að gera minningarlund á hafnar- svæðinu í Hull um þá sjómenn frá Hull sem Ægir konungur hefur kallað til sín í gegnum árin. Þeg- ar það fréttist að Sara Hawkins væri á leið til íslands til að semja um sýningar á leikritinu Northern Trawl hér á næsta ári, báðu að- standendur sjómannanna hana að fljúga vestur á ísafjörð og leggja blómsveig, sem séra Derek Smith hafði blessað í minningu allra þeirra sjómanna sem látið höfðu lífið við ísland, í hina votu gröf. Sara fór á báti út að baujunni sem markar staðinn þar sem tog- arinn liggur á 126 metra dýpi í ísafjarðardjúpi beint fram af Isa- ijarðarkaupstað. Þar flutti hún nokkur minningarorð áður en hún lét blómsveiginn falla í hafið þar sem hann vaggaði um stund í hægum andvara og sólskini og minnti um leið á andstæður veð- urfarsins, en þegar Ross Cleve- land hvarf þarna í hafið undan ofurþunga ísingarinnar ásamt vél- bátnum Heiðrúnu úr Bolungarvík, ærðust veðurguðimir í hatrömm- um hildarleik storms og snjóa, sem enginn mátti við ráða. Úlfar Hj úkrunar fræðingar á Landspítalanum ákveða að segja upp störfum Telja laim sín vera lægiá en á öðrum sjúkrastofmmum „ÉG Á von á að 80% hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum segi upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Markmið okkar er að fá stjórnendur sjúkrahússins til að leiðrétta laun okkar, því þau eru lægri en á öðrum sjúkrastofnunum," sagði Elínborg Stefánsdóttir, fulltrúi hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum, í samtali við Morgunblaðið. Davíð Á Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Ríkisspítalanna, segir að þessi vandi hafi að undanförnu verið kynntur fyrir yfirvöldum heilbrigðismála í landinu og segist vona að lausn fínnist áður en til uppsagna komi. Hjúkrunarfræðingar á Land- spítalanum funduðu á þriðjudag og sagði Elínborg að á fundinn hefðu komið 300 hjúkrunarfræðingar af þeim 509, sem störfuðu á Landspít- alanum, að meðtöldum geðdeildum, kvennadeild, öldrunardeildum í Há- túni og Vífilsstöðum. „Á fundinum var einróma samþykkt að segja upp störfum vegna lélegra launakjara frá og með næstu mánaðamótum, sem þýðir að við munum starfa út janúar- mánuð,“ sagði hún. „Ég á von á að um 80% hjúkrunarfræðinga spítal- ans taki þátt í þessum aðgerðum, enda er óánægja með launakjör mik- II. Á öðrum sjúkrastofnunum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og lands- byggðinni, eru hjúkrunarfræðingar með hærri laun en hér. Á Landakoti og Borgarspítala hafa launin verið hækkuð með því að færa hjúkrunar- fræðinga til innan stöðuheita, sem hefur fært þeim allt að fimm launa- flokka hækkun fram yfir okkur. Þá eru aðrar sambærilegar fagstéttir innan sjúkrahússins, til dæmis sjúkraþjálfarar og sálfræðingar, með allt að 30 þúsundum króna hærri laun á mánuði.“ Elínborg sagði að hjúkrunarfræð- ingar gerðu sér grein fyrir erfíðu ástandi í efnahagslífinu. „Við höfum hins vegar horft upp á það í mörg ár, að það hefur verið hægt að greiða öðrum starfsmönnum Landspítalans, með sambærilega menntun, mun hærri laun en hjúkrunarfræðingum. Núna vonumst við til að fá leiðrétt- ingu okkar mála.“ Elínborg sagði að sér væri kunn- ugt um að innan Landakotsspítala og Borgarspítala væri nú verið að kanna hug hjúkrunarfræðinga til aðgerða, vegna óánægju með launa- kjör. Niðurstaða þeirrar könnunar lægi hins vegar ekki fyrir. Getum ekki staðið frammi fyrirslíkum uppsögnum Davíð ' Á. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Ríkisspítala, sagði að hjúkrunarfræðingarnir hefðu kynnt stjórnendum spítalans afstöðu sína þegar í sumar. „Og fulltrúar þeirra ræddu fyrirhugaðar aðgerðir á fundi með stjórnendum spítalans á föstu- dag. Síðan höfum við verið að kynna þennan vanda fyrir yfirvöldum í heil- brigðismálum í landinu, þ.e.a.s. ráð- herra og samninganefnd ríkisins," ÖLLU starfsfólki Árness hf. í fiskvinnslunni í Þorlákshöfn verður sagt upp störfum nú um mánaðamótin. Alls munu 98 manns fá uppsagnarbréf en það svarar til 60-70 heilsdagsstarfa. Pétur Reimarsson framkvæmda- sagði Davíð. Hann kvaðst vonast til að fundin yrði lausn á vandanum áður en til uppsagna kæmi.’ „Uppsagnir 80% hjúkrunarfræðinga á Landspítalan- um yrði slíkt áfall fyrir heilbrigðis- kerfið að ég held að það sé eitthvað sem við getum ekki staðið frammi fyrir," sagði hann. í samtalinu við Davíð kom fram að í kjarasamningi hjúkrunarfræðinga væri ákvæði um að framlengja mætti uppsagnarfrest þegar svo stór hópur starfsmanna segði upp samtímis. stjóri sagði að vonir stæðu til að hægt yrði að endurráða allt þetta fólk þegar vinnslan færi i gang á Stokkseyri sem vonandi yrði um mánaðamótin janúar/febrúar 1993. Árnes hf. var stofnað fyrir rétt um ári við sameiningu Hraðfrysti- húss Stokkseyrar og Glettings í Þorlákshöfn. Starfsemin hefur verið á báðum stöðum, bolfiskur unninn í hraðfrystihúsinu á Stokkseyri, en útgerðin og flatfískvinnslan hefur verið í Þorlákshöfn ásamt skrif- stofuhaldinu, vélaverkstæði er í Þorlákshöfn og verður trúlega áfram til að þjónusta bátana og togarann. Þegar fréttaritari kom við í flat- fiskvinnslu Árness í Þorlákshöfn stóð yfir fundur hjá hópi starfsfólks sem valinn var til að gera úttekt á málunum og kanna hvað fyrirhugað væri að bjóða upp á varðandi vinnu- tíma, ferðir og annað sem tengist því að sækja vinnu yfir 20 kíló- metra leið í annað bæjarfélag. Ölfushreppur lagði fram 10 milljónir „Ölfushreppur lagði fram 10 milljóna hlutafé þegar Árnes var Svo á jörðu keppir um Oskarinn KVIKMYND Kristínar Jó- hannesdóttur, Svo á jörðu sem á himni, verður framlag Islands í keppnina um Ósk- arsverðlaunin í ár í flokki kvikmynda á erlendri tungu. Meðlimir í Félagi kvikmynda- gerðarmanna greiddu atkvæði um fjórar íslenskar myndir í gærkvöldi og hlaut mynd Krist- ínar tæplega helming atkvæða, en einnig komu myndimar Ingaló, Veggfóður og Sódóma, Reykjavík til greina. Áðstand- endur Hvíta víkingsins og Æv- intýra á norðurslóðum gáfu ekki kost á myndum sínum í þessa keppni. stofnað og það var gert í þeirri góðu trú að verið væri að tryggja atvinnu hér í bæjarfélaginu," sagði Einar Sigurðsson, oddviti Ölfus- hrepps. Hann sagði að óneitanlega væri sárt að horfa upp á þetta en ef reksturinn yrði mun hagkvæmari eins og sagt er þá væri ekkert við þessu að gera, þetta væri almenn- ingshlutafélag og meirihlutinn réði. „Hvort leikskólaþjónusta verður aukin eða samfelldum skóla með skólamáltíð komið á eins og rætt er um meðal fólks er ekki gott að segja,“ sagði Einar. Það verður að ræðast í sveitarstjóm og athuga hvort hægt er að koma til móts við fólkið að einhverju leyti." Breyttir sóknarhættir Það er margt fleira en flutningur á fólki milli staða sem hefur breyst, nýlega var þremur bátum í eigu Árness lagt og togarinn Jóhann Gíslason AR 42 sem var í leigu í Kanada er nú kominn heim og mun hann afla þess botnfískkvóta sem þeir hafa veitt. Ekki hafa allir sjó- menn þessara þriggja báta fengið pláss á togaranum þó að hann sé að mestu mannaður heimamönnum. - J.H.S. Sinnuleysið er mesti andstæðingur menningarinnar 14 Tónlist_________________________ Sigrún Eðvaldsdóttir með hljóm- leika í Japan 15 Sjónvarp _______________________ Leikarinn og skemmtikrafturinn Bill Cosby vill kaupa NBC 22 Uppsagnir hjá Aðalverktökum og atvinnulíf á Suðurnesjum 24 Leiðarí Nýr tónn á Fiskiþingi 24 Handsal gerínt við- ; ---skiptji vaki húshrrín \ Skuldabréf Lindar hf. Há ávuxtun - traust fyrirtæki =«F , , JV/I Wnvmluba, Jl'ii dboskrá Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá ► 100 m.kr. gjaldþrot Sportvals ► Rithöfundurinn lifði flóknu lífi - Afkoma íslandsbanka - Ný - Hann var tvíkvæntur og átti markaðsstefna í ferðamálum - fjögur börn, sjálfur sagðist hann Deilt um framtíðarskipan RARIK í viðtali hafa sofið hjá tiu þúsund - Ikea keypti Habitat konum ... Árnes hf. í Þorlákshöfn 98 manns sagt upp og vinnslan til Stokksevrar Þorlákshöfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.