Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.10.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992 5 Jóhann Evrópumeistari með Bayem ___________Skák______________ Margeir Pétursson ÞÝSKU meistararnir í Bayern Mtinchen urðu Evrópumeistarar skákfélaga í gærkvöldi er þeir sigruðu rússneska félagið Poliot frá Tsjeljabinsk samanlagt 7-5. Jóhann Hjartarson tefldi á þriðja borði fyrir Bayern á eftir þeim Robert Hubner, kunnasta skák- manni Þjóðveija og Ungveijan- um Zoltan Ribli. Bobby Fischer vann Boris Spasskí í 25. einvígis- skák þeirra í Belgrad í gær- kvöldi og jók forskot sitt í í 9-4. Fischer þarf nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér sigur. Ungi enski stórmeistarinn Mich- ael Adams sigraði í gær á útslátt- armótinu í Tilburg í Hollandi. Byrjað verður að tefla til úrslita á Búnaðarbankamótinu í atskák í kvöid. Jóhann Hjartarson hefur verið sigursæll með Bayern Munchen. Frá því Jóhann gekk til liðs við fé- lagið hefur það þrisvar í röð orðið Þýskalandsmeistari en hápunkt- inum var náð í gærkvöldi þegar Evrópumeistaratitill taflfélaga var í höfn. Jóhann sigraði alþjóðlega meistarann Andrei Kharlov í fyrri skákinni, eftir að mannsfórn Kharlovs í jafnteflislegri stöðu mis- heppnaðist. Þeir gerðu svo jafntefli í seinni skák þeirra í gær. Fyrri daginn náði Bayem öruggu for- skoti, 4-2, sem þeir héldu með 3-3 jafntefli í gær. Jóhann gat ekki haldið lengi upp á sigurinn með félögum sínum í gær því hann varð að hraða för sinni heim til að tefla á Búnaðarbanka- mótinu sem hefst í kvöld. Hver skák getur nú orðið sú síð- asta í einvígi þeirra Bobby Fischers og Borisar Spasskí í Belgrad. Eftir níunda sigur Fischers í gærkvöldi hefur hann tryggt sér jafntefli í einvíginu, því verði staðan 9-9 verð- ur einvígið lýst jafntefli. Samkvæmt einvígisreglunum heldur Fischer líka heimsmeistaratitlinum í því til- viki. Fáir efast þó um að honum verði skotaskuld úr því að vinna eina skák til viðbótar. Einvíginu gæti lokið í dag þegar 26. skákin verður tefld. Fischer sýndi lagleg tilþrif í 25. skákinni í gær og vann á mátsókn í 35 leikjum. Það var lærdómsríkt hvemig hann notfærði sér mistök Spasskís í 14. leik til að ná yfir- burðastöðu. Sóknina tefldi hann svo af krafti og á endanum varð Spasskí svo illa settur að hann varð að nota tvípeð andstæðingsins á h línunni til að skýla kóngi sínum. Fischer braut upp þær vamir á skemmtileg- an hátt. Hann fórnaði fyrst fremra peðinu og þá gerði Spasskí sér grein fyrir að Fischer myndi líka fórna hinu og kóngur hans yrði alveg berskjaldaður. Þá lýsti hann sig sigraðan. Ein stílhreinasta skákin í einvíginu. Hvítt: Bobby Fischer Svart: Boris Spasskí Sikileyjarvörn I. e4 — c5 2. Rc3 — Rc6 3. Rge2 Báðir keppendur hafa haft dálæti á þessari óvenjulegu leikjaröð í ein- víginu. Taflið berst þó fljótt inn á kunna farvegi Scheveningen af- brigðisins í Sikileyjarvöm. 3. — d6 4. d4 — cxd4 5. Rxd4 — e6 6. Be3 - Rf6 7. Dd2 - Be7 8. f3 - a6 9. 0-0-0 - 0-0 10. g4 - Rxd4 í skák sinni við Khalifman á sov- éska meistaramótinu 1988 lék Ka- sparov hér 10. — Hb8 11. h4 og skipti þá fyrst upp á d4. II. Bxd4 - b5 12. g5 - Rd7 13. h4 - b4 14. Ra4!? - Bb7? Gefur Fischer kost á bráðsnjöllum leik. Betra var 14. — Hb8 með því markmiði að leika Re5 og Bd7. 15. Rb6! - Hb8 abcdofgh Eftir 15. — Rxb6? 16. Dxb4 vinn- ur hvítur peð, því 16. — d5 17. Dxb6 — Dxb6 18. Bxb6 — dxe4 gengur ekki vegna 19. Hd7. Fischer nær nú hagstæðum riddarakaupum og sóknaraðgerðir hans á kóngs- væng verða langt á undan gagnsókn Spasskís hinum megin á borðinu. 16. Rxd7 - Dxd7 17. Kbl - Dc7 18. Bd3 Biskupar hvíts standa afar vel bæði til sóknar og varnar. 18. - Bc8 19. h5 - e5 20. Be3 - Be6 21. Hdgl - a5 22. g6 - Bf6 23. gxh7+ - Kh8 24. Bg5 - De7 25. Hg3 - Bxg5 26. Hxg5 - Df6 27. Hhgl - Dxf3!? Virðist ekki verra en hvað annað. 27. — Kxh7 er svarað með 28. f4! 28. Hxg7 - Df6 29. h6 - a4 30. b3 - axb3 31. axb3 - Hfd8 32. Dg2 - Hf8 ( Sjá stöðumynd II ) Spasskí á enga virka leiki, en e.t.v. hefur hann talið vamarmúrinn halda. Fischer á þó einfalda og skemmtilega leið til að bera svarta ' kónginn: 33. Hg8+! - Kxh7 34. Hg7+! - Kh8 35. h7 og Spasskí gafst upp. Hann á enga vörn við þeirri hótun Fischers að fóma hinu peðinu og máta á h línunni: 36. Hg8+ — Kxh7 37. Hhl. Ungi enski stórmeistarinn Mich- Þ c d • f Q h ael Adams, 21 árs, sigraði sjötta stigahæsta skákmann heims, Boris Gelfand frá Hvíta-Rússlandi, í úr- slitum Interpolis útsláttarmótsins í Tilburg í Hollandi. Fyrst tefldu þeir Adams og Gelfand tvær skákir með venjulegum umhugsunartíma og lauk þeim báðum með jafntefli. Þá voru tefldar tvær atskákir og var Gelfand með peð yfir í þeirri fyrri en missti hana niður í jafntefli. í seinni skákinni lagði Hvít-Rússinn út í algerlega vanhugsaðar sóknar- aðgerðir snemma tafls. Adams bjargaði kóngi sínum á flótta og vann fremur auðveldan sigur: Hvítt: Michael Adams Svart: Boris Gelfand Benkö-bragð 1. d4 - Rf6 2. c4 - c5 3. d5 - b5 4. cxb5 — a6 5. f3 — axb5 6. e4 - Da5+ 7. Bd2 - b4 8. Ra3 - d6 9. Rc4 — Dc7 10. a3 — bxa3 II. Hxa3 — Hxa3 12. Rxa3 — g6 13. Rb5 - Db7 14. Da4 - Rbd7 15. Ba5 - Bh6! Hrindir hvítu sókninni. Hvitu mennimir á drottningarvæng verða strandaglópar og hann nær engu samspili. 16. Rc7+ - Kf8 17. b3 - Kg7 18. Be2 - Re5 19. Db5 - Da7 20. Db6 - Dxb6 21. Bxb6 - Bd7 22. Ba5 - Hb8 23. Bdl - Rd3+ 24. Kfl - Rcl 25. Re2 - Rxb3 26. Bc3 — Be3 og með peði meira og yfírburðastöðu vann Adams ör- ugglega. Hann átti heilar fimm mínútur eftir þegar Gelfand gaf. Sigurinn færði Adams 3,4 millj- ónir ísl. króna í aðra hönd. Hann hefur nú sigrað á tveimur stærstu útsláttarmótunum í ár, í júlí sigraði hann á SWIFT-atskákmótinu í Bmssel. Fylgjast nú skákáhuga- menn spenntir með því hvort hann verði jafnsigursæll á Immopar at- skákmótinu í París í nóvember en rétt eins og í fyrra er þess vænst að flestallir sterkustu skákmenn heims verði þar á meðal þátttak- enda. Hér á íslandi er einnig teflt eftir því fyrirkomulagi sem hefur öðlast miklar vinsældir erlendis. í kvöld hefjast úrslit á Atskákmóti Reykja- víkur, Búnaðarbankamótinu, í Faxafeni 12. Þá tefla saman: Jóhann Hjarfars. (2.595) - Haukur Angantýss. (2.285) Margeir Péturss. (2.565) - Jón G. Viðars. (2.300) Helgi Ólafsson (2.495) - Þröstur Arnason (2.295) Friðrik Ólafsson (2.530) - Ágúst S. Karlsson (2.265), Karl Þorsteins (2.480) - Ingvar Ásmundsson (2.330) Helgi Grétarss. (2,370) - Sigurður Sigfúss. (2.295) Tómas Bjömsson (2285) - Sveinn Kristinsson (2.045) Róbert Harðars. (2.345) - Áskell Ö. Káras. (2.255) Sigri þeir Jóhann Hjartarson og Karl Þorsteins, íslandsmeistari í atskák, báðir í sínum viðureignum, mætast þeir í annarri umferðinni sem fer fram strax á eftir þeirri fyrri, um kl. 21.30 í kvöld. Hannes Hlífar Stefánsson hefur átt erfítt uppdráttar upp á síðkastið á heimsmeistaramóti unglinga 20 ára og yngri í Buenos Aires í Arg- entínu. Hannes tapaði í elleftu um- ferð fyrir Markovic, Júgóslavíu, sem teflir undir fána FIDE. Hannes er í 8-9. sæti með 6'h v. en suður- afríski keppandinn, Michaelakis, var óvænt efstur með 8l/i v. Tvær umferðir eru eftir á mótinu og þarf Hannes að vinna sínar skák- ir til að forða stigatapi. Til að öðl- ast stórmeistaratitil á hann einung- is eftir að uppfylla það skilyrði að hafa 2.500 stig á lista FIDE um áramótin. Stundum eru þessar melónur kallaðar vetrarmelónur, sökum þess að þær eru einnig ræktaðar á vetuma. Vetramielónur em steinlausar og safaríkar, sannkallaður sólargeisli í skammdeginu. Fást á aðeins 79 kr. kg. í Hagkaup. HAGKAUP gíeöi úrval þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.