Morgunblaðið - 29.10.1992, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1992
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Gylfí Gunnarsson og Guðbrandur Einarsson leika fyrir dansinum.
VEITINGAHUS
Vetrardagskrá Naustsins hafin
laugardagskvöldum. Um hljómlist-
ina sjá til skiptis Gylfí Gunnarsson
og Guðbrandur Einarsson annars
vegar og Stefán Jökulsson og Ama
Þorsteinsdóttir hins vegar. Gylfí
lék um árabil í Súlnasal Hótels
Sögu og Stefán og Ama hafa
skemmt á Mímisbar.
Þeir Hafsteinn Egilsson og
Hörður Siguijónsson hafa rekið
þetta þekkta veitingahús sl. tvö
ár og hefur aðsókn farið sívax-
andi. Sérréttir af matseðli era á
boðstólum alla daga og matreiðslu-
meistarar Naustsins setja saman
sérstakan matseðil um helgar.
í desember verður að venju boð-
ið upp á jólahlaðborð og að sögn
Hafsteins og Harðar era pantanir
stax byijaðar að streyma inn. Og
eftir áramótin verður að venju boð-
ið upp á þorramat.
SKOLAFERÐALAG
Haldið á
vit haust-
blíðunnar
Sýnd verður íslensk hönnun
frá FIS-Ltrj^'
sýna
M4(I5IKJAL1ARINN
Kálfafellsstað, Suðursveit.
Nemendur Hrollaugsstaðaskóla
í Suðursveit bragðu fyrir sig
betri fætinum föstudaginn 16.
október sl., skruddunum var skellt
niður í tösku og haldið á vit haust-
blíðunnar.
Fyrst var haldið á slóðir Kára
Sólmundarsonar og Breiðárlón
skoðað og tröllslegt umhverfi þess.
Síðan var haldið í kjarri vaxinn
Eystri-Hvamm á Kvískeijum í
Öræfum þar sem Hálfdán Bjöms-
son kom með nokkur sýnishorn
úr skordýrasafni sínu sem er það
stærsta í einstaklingseigu á ís-
landi. Hálfdán er landsþekktur
fyrir skordýrasöfnun sína og hefur
m.a. fangað margan flækingsgrip-
inn frá útlöndum, flokkað og fest
á sýningarkassa. Krakkamir
höfðu haft skordýr sem þemaverk-
efni sl. haust og þótti mikill feng-
ur að því að fá að líta þama æsi-
leg skrautfíðrildi og allt niður í
smæstu vespur, vart sýnilegar
berum augum.
- Einar
Eins og endranær má merkja
árstíðaskiptin í starfsemi
Naustsins. Erlendum ferðamönn-
um fækkar í gestahópnum en ís-
lendingum Qolgar að sama skapi.
Eins og undanfarin ár er boðið
upp á danstónlist á föstudags- og
Tískusýning
í kvöld kl. 21.30
vórutn
■ V^TÍZKAN
LAUGAVEGI 71 • 2. HÆÐ
SÍMI 10770
fólk í
fréllum
Dansinn dunar á fjölum Naustsins.
Morgunblaðið/Einar Jónsson
Hálfdán Björnsson sýnir nemendum Hrollaugsstaðaskóla hluta af
skordýrasafni sínu.
DAGVISTUN
Springsteen yngri hafnað
Rokkarahjónin Brace Springsteen
og Patti Scialfa fengu að finna
fyrir því að þeir eru til sem þykja
rokktónlistarmenn lítt áreiðanlegir
og gildir þá einu hvort viðkomandi
er heimsfrægur eður ei. Þetta sann-
aðist áþreifanlega er þau sóttu um
skólavist í óskaplega fínum einka-
skóla fyrir son sinn Evan James, sem
er aðeins tveggja áa gamall. Um-
ræddur skóli er í Los Angeles og
er bæði dagheimili fyrir böm á for-
skólaaldri og bamaskóli fyrir eldri
böm. Frægt fólk á borð við Jack
Nicholson og Pia Zadora eru með
börn sín í skólanum og láta vel af,
enda eins gott, því skólagjöldin eru
í hærri kantinum svo ekki sé meira
sagt.
En Bruce og Patti fengu ekki inni
með Evan litla og var viðkvæðið að
æskilegt væri að að minnsta kosti
annað foreldrið væri ævinlega til
taks eða á staðnum fyrir yngstu
börnin. Ekki væri hægt að treysta
því þegar um Springsteen og frú
væri að ræða, þau væru rokktónlist-
armenn sem væra sífellt á ferð og
flugi og augljóst að viðvera þeirra
væri alls konar tilviljunum háð. Nið-
urstaðan var töluvert áfall fyrir
Springsteen sem er því ekki vanur
að hurðir lokist á sig, þvert á móti.
Hermt er að viðbrögð þeirra hjóna
hafi verið á þá lund að eini aðilinn
sem tapaði á þessu máli væri skólinn
sjálfur, því Evan litli væri svo greind-
ur og skemmtilegur!
Herra og frú Springsteen voru ekki nógu heimakær til að sonurinn
fengi inni í einkaskólanum.