Morgunblaðið - 29.10.1992, Side 44

Morgunblaðið - 29.10.1992, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUpAGUR-,29,- OKTÓBER 1992 Jasskvöld í Duus-húsi JASSKVÖLD verða endurvakin í Duus-húsi á fimmtudagskvöld- um í vetur og ríður Duus-gengið á vaðið annað kvöld. Duus-geng- ið er skipað Emi Arnarsyni gít- arleikara, Jóni Maller píanista, Gunnari Hrafnssyni bassaleik- ara og Alfreð Alfreðssyni trommuleikara. Duus-hús var á árum áður at- hvarf jassáhugamanna er Heiti potturinn hafði þar aðsetur. Nú verða jasskvöldin endurvakin á veitingahúsinu. Duus-gengið leik- ur þekkta jassslagara og verður flutningur laga eftir bandaríska gítarleikarann og tónsmiðinn Wes Montgomery áberandi annað kvöld. Öm Amarson gítarleikari hefur ekki komið fram opinberlega í mörg ár, en hann var einn af þekkt- ari gítarleikurum landsins á áram áður, og lék m.a. annars með dans- hljómsveit Ragnars Bjamasonar. Aðrir meðlimir Duus-gengisins hafa verið í eldlínunni undanfarin ár. Tölvunámskeið 2. -13. nóvember '92 Windows 3.1 09 Works 2.0 9. -13. nóvember kt16:00-19:00 ••• Macintosh fyrir byrjendur Ritvinnsla, gagnasöfnun og stýrikerfi 2. -16. nóv. kl. 19:30-22:30 tvisvar í viku eða 9. -13. nóvemberkl. 16:00-19:00 ••• Excel framhaldsnámskeið 2. - 5. nóvember kl. 13:00-16:00 ••• Staðarnet Undirstaða netkerfa og netvæðingar U.-13. ágústkl. 8:30-12:30 ••• PageMaker Macintosh og PC 3. -17. nóv. kL 19:30-22:30 tvisvar í viku „ ••• 1 Word 5.0 á Macintosh | 2. - 6. nóvember kl. 9:00-12:00 Tölvu- og verkfræóiþjónustan Grensásvegi 16 • stofnuó 1 mars 1986 Sími 68 80 90 BOSCH V E R S L U N Lágmúla 9 sími 3 88 20 RAFGEYMAR ALLT AÐ 28% LÆ K K U N Hoho Startkratt augh bei klirrender kalte BOSCH MIKIÐ URVAL ÓKEYPIS ÍSETNING fAein dæmi um verðlækkanír gerð NÚ áður lækkun 12 V/ 44Ah 5.276 S46Í 28,74% 12 V/ 60Ah 5.998 7??g5’ 22,46% 12 V/ 88Ah 9.582 13=552 17,05% BRÆDURNIR DJÖRMSSONHF NEYTENDAMAL Kannanir á C-vítamíni tengdar lífslíkum Vísindámenn hafa lengi deilt um það hversu öflugt C-vítamín sé sem vörn gegn hjarta- og æðasjúkdómum. I októberblaði Food Chemical News er vitnað í erindi dr. Matthiasar Raths við Linus Pauling rannsókna- stofnunina í Kaliforníu sem hann hélt á árlegu þingi um næringarfræði. Þar sagði hann að C-vítamín gegni lykilhlut- verki í baráttunni við skæðustu sjúkdóma nútímans, hjarta- og æðasjúkdóma, og ennfremur að allt samspil áhættuþátta sem leiði til hjartaáfalls megi tengja skorti á C-vítamíni. Matthias Rath og Linus Pauling, sem hafa unnið að rannsóknum á C-vítamíni, hafa sett fram þá kenningu að í C-vítamíni sé að finna lausn á hjartasjúkdómum og það geti komið í veg fyrir dauðsföll af þeim sökum í fram- tíðinni. Rath og Pauling hafa átt erfitt með að koma kenningum sínum á framfæri þar til nú en þær hafa þótt ganga þvert á viðurkenndar kenningar um kólesteról sem helsta áhættuþátt hjarta- og æðasjúk- dóma. Þessar fullyrðingar vísinda- mannanna hafa ekki fallið í góðan jarðveg hjá Fæðu- og lyfjaeftiriit Bandaríkjanna né heldur hjá fram- leiðendum lyfja sem draga úr kól- esteróli í blóð. Þeir félagar segja að því valdi efnahagslegur hagur og fastmótaðar trúarkreddur. Nú hefur dr. James E. Enstrom frá „The School of Public Health" við Kalifomíuháskóla stigið fram og ýtt undir kenninguna um áhrifa- mátt C-vítamíns sem vamarþátt gegn hjartasjúkdómum. Hann hef- ur staðið að faraldsfræðilegum könnunum á tengslum C-vítamín- neyslu og lífslíkum og hefur stuðst þar við niðurstöður eldri kannana opinberra aðila. Fyrsta könnunin var gerð. 1971-1974 á 11.338 ein- staklingum, sem valdir höfðu verið af handahófi, og voru þeir spurðir um allt sem viðkom mataræði þeirra og heilsu. Þessari rannsókn var síðan fylgt eftir 1982—1984 og jafnframt könnuð dauðaorsök þeirra sem látist höfðu á tímabilinu. Eftir niðurstöðum þessara kann- ana flokkaði Enstrom einstakling- ana í hópa eftir C-vítamínneyslu þeirra. í lægri hópnum voru þeir sem fengið höfðu 50 mg á dag eða minna í fæðunni. í hærri hópnum vom þeir sem fengið höfðu 50 mg á dag og bætiefni sem innihélt C-vítamín til viðbótar. Enstrom fann 40 prósent færri dauðsföll almennt hjá körlum sem voru í hærri neysluhópnum miðað við ein- staklinga í lægri neysluhópnum. Dauðsföllum af völdum hjartasjúk- dóma hafði fækkað um 45 prósent. Munurinn var skýrari þegar könnuð voru áhrif aukinnar C-víta- mínneyslu. Hjá einstaklingum sem neytt höfðu yfir 150 mg á dag og C-vítamín bætiefni til viðbótar fækkaði dauðsföllum um Vi miðað við þá sem neyttu minna en 20 mg daglega. Svipað hlutfall virtist vera á dauðsföllum karla af völdum krabbameins svo og dauðsfalla hjá konum úr hjarta- og æðasjúkdóma og öðrum sjúkdómum. Út frá neyslu þessara hópa reiknaði Enstrom út áframhaldandi lífslíkur hópa með hærri og lægri C-vítamínneyslu og áætlar að 35 ára karlmaður sem neytir hærra C-vítamínmagnsins geti lifað 6,3 árum lengur en félagi hans úr lægri neysluhópnum. Hann er varkár þegar hann segir að frekari rann- sóknir muni leiða í ljós hvort lífslík- ur megi rekja til C-vítamínneyslu beint eða hvort þær séu árangur heilbrigðari lífshátta yfirleitt. Að- spurður sagði Engstrom að rann- sóknarhópur hans hafi ekki séð mun á áhrifum C-vítamíns í fæð- unni og C-vítamíns sem bætiefnis en þeir einstaklingar sem neyttu hæsta C-vítamínmagnsins þ.e. um og yfir 300 mg á dag virtust vera heilbrigðastir. M. Þorv. C-vítamín í fæðunni Fyrstu skipulögðu næringar- rannsóknir sem sögur fara af voru gerðar til að kanna orsakir skyrbjúgs. Þær gerði breskur skipslæknir, James Lind að nafni, á 12 sjómönnum sem vora með skyrbjúg árið 1747. Hann flokkaði þá tvo og tvo saman í hóp og gaf hveijum hópi fyrir sig mismunandi bætiefni eins og eplasafa, edik, brennisteinssýru, sjó, appelsínur og sítrónur eða laxerandi lyf blandað kryddi. í ljós kom að þeim sem fengu sítr- ónu batnaði fljótt. Önnur mikilvæg rannsókn á skyrbjúg var gerð í Noregi af Holst og Frohlich árið 1907. Þeir uppgötvuðu að naggrísir gátu fengið skyrbjúg. Niðurstað- an leiddi til frekari rannsókna og síðan einangranar vítamíns- ins og staðfestingu árið 1932, og stóðu að þeim bæði banda- rískir og ungverskir vísinda- menn. Svissneskir, breskir og þýskir efnafræðingar sýndu fram á uppbyggingu vítamínsins og þróuðu aðferð til að framleiða það ódýrt úr þrúgusykri. Saga C-vítamínsins Fyrsta vítamínið sem kannað var með tilliti til meiriháttar sjúk- dómsfaraldra var C-vítamínið. Þó að þetta mikilvæga vítamín hafi ekki verið einangrað fyrr en á þessari öld þá þekktu frum- stæðustu þjóðflokkar mikilvægi þess. Þeir vissu að fólk sem ekki fékk ferskan mat mundi veikjast og deyja að lokum af sjúkdómi sem hafði einkenni skyrbjúgs. C-vítamín var fyrst vítamína einangrað sem hreint efni og kall- að ascorbic acid vegna þeirra áhrifa sem það hafði sem vöm gegn skyrbjúgi. Einu lífverurnar sem ekki hafa hæfileika til að mynda þetta vítamín era maður- inn, naggrís og tvær indverskar dýrategundir; leðurblökutegund og ein fuglategund. Önnur dýr geta auðveldlega myndað víta- mínið úr sykram. Þekktir eru úr sögunni sjúk- dómsfaraldrar sem sóttu á sjó- menn í löngum ferðum um úthöf- in og gerðu þá veika og leiddu oft til dauða. Skyrbjúgsfaraldrar fylgdu oft í kjölfar langra fyrir- sáta í hernaði, langra ferða þar sem kosturinn var aðallega korn- meti, langra vetrarmánaða, og langra þurrkatímabila og annarra aðstæðna sem hindraði aðgang að ferskum matvöram. Afleiðing- amar vora þekktar, en víða var ákveðin þekking til staðar sem barst frá einni kynslóð til annarr- ar, má þar nefna neyslu á ákveðn- um fæðutegundum sem komið gátu heilsunni í lag á ný. Má þar nefna seyði af laufi sígrænna tijáa, hvítkáli, spírum komteg- unda, lauktegundum, kryddjurt- um eins og karsi, appelsínum, eða ákveðnum tegundum af kjöti. Norður-amerískir indíánar vissu að ferskir laukhnúðar eða rótar- endar eða heitt seyði af laufi sí- grænna tijáa gat varnað sjúk- dómnum. Kanada-landkönnuður- inn Cartier skýrði frá þessum uppgötvunum sínum árið 1535 eftir að hann missti stóran hluta leiðangursmanna sinna úr skyr- bjúgi. Ifyrstu sjúkdómseinkenni C- vítamínskorts koma fram á æða- veggjum, það blæðir auðveldlega úr gómnum og við tennur, háræð- ar undir skinni springa án sjáan- legrar ástæðu. Þegar C-vítamínið hefur minnkað niður í einn fimmta af því sem Iíkaminn þarf, eftir u.þ.b. tvo mánuði, kemur skyr- bjúgur fram. Eðlileg endumýjun á kollageni t.d. í húð veldur frek- ari blæðingum í húð. Húðin verð- ur gróf, brún, hreistruð og þurr. Sár gróa seint, þar sem örvefur myndast ekki. Endumýjun verður ekki í beinum, beinendar verða mjúkir og aflagaðir og sprangur geta komið fram. Tennur losna vegna þess að bindivefur sem fest- ir þær verður veill. Blóðleysi og sýkingar era algengar. Einnig geta komið fram truflanir á taugakerfínu eins og óeðlileg við- kvæmni og þunglyndi. Eftir að skyrbjúgur hefur verið greindur á að vera hægt að lækna hann með C-vítamíni. M. Þorv. C-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi líkamans. Mikilvægir C-vítamíngjafar era m.a. sítrasávextir eins og sítrón- ur, appelsínur, greipaldin o.fl., káltegundir, dökkgrænt græn- meti, cantalópur (melónutegund) jarðarber, salatkál, paprika, tómatar, kartöflur o.fl. Vítamíninnihald margra þess- ara matvæla fer eftir árstíma og meðferð. Sé um að ræða þurr lauf geta þau haldið vítamíninni- haldi sínu þó að þau standi við stofuhita mánuðum saman. En sé blaðgrænmeti látið standa við stofuhita og nái það að visna getur það misst mest af vítamín- innihaldi sínu á nokkram dögum. Ef laufblöðin hafa brotnað og loft náð að leika um þau getur vítamínið horfíð á nokkram mínútum. Kartöflur sem soðnar era eða bakaðar halda vítamín- innihaldi sínu að mestu, en ef þær eru pressaðar og þeyttar í kartöflumús á meðan þær era heitar, hverfur stór hluti af vít- amíninu við meðhöndlunina. Ferskskornir tómatar eða app- elsínur eða safínn getur staðið opið í nokkra klukkutíma án veralegs missi á vítamíninu. Þar er það sýran sem hindrar eyð- ingu vítamínsins. Þegar grænmeti er fryst til sölu á markaði er algengt að bregða því fyrst í sjóðandi vatn eða í heita gufu til að eyða virkni efnahvata. Síðan er grænmetið fryst eða sett í geymslu við mjög lágt hitastig. Þessi meðhöndlun varðveitir vítamínin. Neytendum skal bent á til fróðleiks að mat- vælin sem sett era á markað sem fersk, frosin eða niðursoðin inni- halda í flestum tilfellum nægjan- legt magn vítamínsins svo fram- arlega að fæðan sé næg og sett saman á fjölbreyttan hátt. Þegar næringarinnihald fæðu- tegunda er metið verður að taka tillit til fjölmargra þátta, m.a. næringarástands ræktunar- svæða. Samspil vítamína og ann- arra næringarefna er mjög mikil- vægt, þó að þau hvert um sig gegni sérhæfðu hlutverki í þessu undraverki sem mannslíkaminn er. Lausnin er því að borða fjöl- breytt fæði. M. Þorv.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.