Morgunblaðið - 08.12.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBJER 1992
13
Kynningartilboð Heimsferða — 7. ganúar
Stórglæsileg smáhýsi á Kanaríeyjum.
Aðeins 10 smáhýsi i boði
eftir þessu og Guðlaugur Óttársson
fer á kostum á gítar og Jón Ólafs-
son á orgel. Eini gallinn sem tína
má til við lagið er „gregoríanski
stúknakórinn", sem er framkallað-
ur með tölvum og verður fyrir vik-
ið ekki eins skemmtilegur og er
tími hefði gefist til að fá fullskipað-
an barnakór til að radda.
Eins og jafnan er ástin í sínum
margbreytilegu myndum yrkisefni
Megasar, og þá helst óendurgoldin
ást. í Þremur blóðdropum sýnir
hann á ástjnni óteljandi hliðar,
einna best í Ég get líka, sem Bubbi
Morthens syngur með honum, og
Súðavíkurlúða. Ógetið er svo frá-
bærs flutnings Megasar á tveimur
textum Stefáns Ólafssonar, Meyj-
armissi, sem allir kannast við, og
Raunakvæði, sem er hreint fyrir-
tak.
Nýjar bækur
Safn ljóða
frá Spáni
ÚT ER komin bókin Hið eilífa
þroskar djúpin sín, úrval spæn-
skra ljóða 1990-1992 í þýðingu
Guðbergs Bergssonar.
Safnið hefur að geyma um 170
ljóð eftir 52 ljóðskáld og er því skipt
í fjóra meginkafla sem markast af
tímaskeiðum. Þýðandinn, Guðbergur
Bergsson, ritar formála að hveijum
kafla þar sem hann gerir grein fyrir
hverju tímabili sem um ræðir. Hveiju
skáldi fylgir auk þess æviágrip og
lýsing á helstu einkennum þess eða
viðhorfum á sviði ljóðlistar.
Útgefandi er Forlagið. Bókin
er 182 bls. Essemm/Tómas Hjálm-
arsson hannaði kápu. Prentsmiðj-
an Oddi hf. prentaði. Verð 1.980
krónur.
Þrír blóðdropar Megasar
Hljómplötur
Arni Matthíasson
Magnús Þór Jónsson, sem alþjóð
þekkir sem Megas, hefur verið
gríðarlega áhrifamikill í íslenskri
rokktónlist allt frá því hann sendi
frá sér sína fyrstu plötu snemma
á áttunda áratugnum. Á þeirri
plötu mátti heyra að hann var
sprottinn úr bóhemskum menntaf-
arvegi og gerði uppreisn gegn við-
teknum skoðunum og þá kannski
helst almennu skoðanaleysi. Þessi
fyrsta plata hneykslaði marga, líkt
og allar plötur Megasar hafa
hneykslað og hvekkt, því fjölmarg-
ir geta ekki greint á milli sögu-
mannsins og þess sem sagan segir
frá. Þannig hefur mörgum víðsýn-
um mannvininum skrikað fótur í
merkingarfræðinni þegar Megas
hefur upp raust sína og segja má
að á hverri plötu sé einhver slík
sprengja falin að geta hrellt áheyr-
endur.
Fyrir stuttu kom út plata Meg-
asar Þrír blóðdropar og í kjölfar
hennar hafa risið úfar og mörg
mannvitsbrekkan látið ljós sitt
skína. Ekki verður rakið hér frekar
hvað það er sem sett hefur menn
út af laginu, en frekar fyallað um
blóðdropana þijá, sem er að mati
þess sem þetta skráir, ein af bestu
plötum Megasar og sú besta sem
frá honum hefur komið í áraraðir.
Síðast sendi Megas frá sér af-
bragðsplötuna Hættuleg hljóm-
sveit, sem hafði þann eina galla
að vera of löng, þ.e. á henni voru
lög sem ekki hefði verið eftirsjá
að. Á Þremur blóðdropum, en flest-
ir þekkja líklega tilvísunina, er
ekkert ofsagt og platan í slíku jafn-
vægi að aðdáunarvert er. Líklega
ræður mestu um gæði hennar að
á henni hefur textasmiðurinn yfír-
höndina, ólíkt því sem gerst hefur
að tónsmiðurinn hefur tekið völdin.
Gaman er að heyra í fyrsta lag-
inu, sem segir frá þeim Höllu og
Eyvindi áttunda áratugarins, beina
línu til söngsins um Eyjólf bónda
á fyrstu plötu Megasar og sjá
þannig í einni svipan samhengið í
allri hans tónsköpun. Textinn er
beittur og þeir sem þekkja vita hve
óþægilega nærgöngull hann er,
sérstaklega í lokin þegar hann
berar hlutskipti utangarðsmanns-
ins, líka þess andlega, á snyrtileg-
an hátt: ... svo dó hann loks hans
Eyvi og liggur allri veröld gleymd-
ur / í ómerktri gröf í Kristjaníu /
og fært er það í letur jú og fíflin
klifa á því / fáir lifa svo öllum
heimi líki / og samt var Halla
drykkjusjúk og kvensöm og með
kynsjúkdóm / og hún var krökuð
fyrir rest upp úr díki / já hún var
krökuð upp úr dönsku síki / en
við erum þessu hjú ...
í bestu lögum plötunnar má
fínna eins konar upphafna epík,
líkt og til að mynda í Viltu byrja
með mér, þar sem Megasi og félög-
um hefur tekist að skapa gullin-
snið tónlistar og texta. Álíka er
uppi á teningnum Gamansemi guð-
anna, sem hefur orðið allvinsælt,
sem vonlegt er. Þar bregður fyrir
kunnuglegu minni í kveðskap Meg-
asar; maðurinn leiksoppur gam-
ansamra guða, sem velta honum
til og frá sér til skemmtunar í leið-
indum eilífðarinnar: Þú spyrð karl-
inn í búðinni / hvar er minn rétt-
ur? / sá eini sem fínnst / hann er
yfir þér settur / en allt er háð lög-
máli / og lögmálið er þessar ör-
lagaglettur. Annað í textanum er
Magnús Þór Jónsson, Megas.
air europa
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
TUKAUIA
39.900
pr. mann m.v. 4 í ibúð
49.900
pr. mann m.v. 2 í íbúð
Heimsferöum er þaö sönn
ánægja aö bjóöa þetta
kynningartilboö á Duna Beach,
stórglæsileg smáhýsi hjá Ensku
ströndinni á Kanaríeyjum.
Undirtektir viö Kanaríferöum
okkar hafa veriö einstakar, yfir
200 bókaöir um jólin og yfir 100
manns í brottförina 7. janúar.
Bólcaðu sirax —
þetta tilboð sést
ekki afftur
FYRIR ÍSLENSKA HÖNNUN OG HANDVERK
m
LEÐUR
Söðlaleður
Nautshúðir
Föndurskinn og saumaskinn
| Leðurreimar
; Sylgjur, hringir, taumlásar
| Tauma- og gjarðaefni
MYNDLIST
íiArHítiVh
Vatnslitapappír
Crafíkpappír
Teiknipappír
Pastelpappír
Sýrufrítt karton
Foam (frauð) karton
Kjarnar
Hreinsiefni
Aburður
Vatnsvörn
Tvinni
Skólitur
rr ni f i i i
Oasis skinn og Chagríne
Vaxborínn þráður
Bókbandspappi
THm'JII
Borðar
Húsgagnabólur
Nálar og tvinni
HEILDSALA
SMÁSALA
to58O0sE
LEDURVÖRUDEILD
BYGGGARÐAR 7
SELTJARNARNES
SÍMI 612141